Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Page 48
1 Joe „no-show“Þið kynnist í borg þar sem hvor- ugt ykkar býr. Eftir tveggja mánaða sjóðheitt símasamband grátbiður hann þig um að koma í heimsókn. Á leiðinni segirðu konunni sem situr við hlið þér í flugvélinni að þú sért að fara að hitta stóru ástina í lífi þínu. Nokkur seinna, eftir að færibandið með farangurinn hefur stöðvast, lítur hún á þig með samúð í augunum og spyr hvort þig vanti far. Það er merki þess að þú eigir að kaupa þér miða heim aftur. 2 Herra afbrýðisamurÍ fyrstu er hann stuttur í spuna við þjón sem daðrar við þig. Næst verður hann pirraður af því að þú ræddir svo lengi við afgreiðslumann á pósthúsi. Þegar hann er farinn að skipta sér af því hversu lengi þú faðmar bróður þinn eða ýja að því að kvensjúkdómalæknirinn þinn sé hrifinn af þér er kominn tími til að sleppa honum. Því fyrr, því betra. Afbrýðisemin getur verið krúttleg fyrstu fimm mínúturnar en verður svo ansi fljótt þreytandi. 3 HrottinnÞetta er gaurinn sem rífur í þig til að fá þig til að setjast niður, togar í hárið á þér til að kyssa þig og potar harkalega í bringuna á þér til að leggja áherslu á orð sín. Flestar okkar forðast hann. Þú skalt líka gera það. Þessi litlu atriði eru aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal. 4 FramhjáhaldarinnHann er lasinn og kemst ekki á stefnumótið. Þú skellir saman í rjúkandi súpu og skutlar henni til hans á leiðinni í vinnuna. Daginn eftir er hann ennþá lasinn en býður þér í heimsókn. Þú býðst til þess að hita súpuafganginn upp en þegar þú hellir henni í skálina sérðu að þetta er alls ekki kjúklingasúpan þín heldur sveppasúpa. Þessi maður fær súpu frá fleiri konum og mun halda áfram að fá súpur hjá fleiri konum. Láttu þig hverfa. 5 Hinn svikniGaurinn sem kærastan yfirgaf fyrir aðra konu og er pirraður og reiður út í allt og alla. Ef þú ferð í samband með slíkum manni skaltu vera tilbúin að gefa allar vinkonurn- ar upp á bátinn. Annars áttu á hættu að vera sökuð um að vera lesbísk. 6 Herra egóistiÁstarsamband við mann sem lítur á hvolpinn þinn sem keppinaut um ást þína er ekki skemmtilegt til lengdar. Ef þú samþykkir annað stefnumót með honum ertu að bjóða meiri vandræði velkomin en þú kærir þig um. 7 Herra gramurÞegar þú segir honum frá launahækkuninni eyðir hann næstu mínútum í að útskýra hversu lítil hækkunin er eftir skatta og talar um starfið þitt sem „litla verkefnið þitt“. Þótt að sumir karlmenn eigi erfitt með þá staðreynd að konur geta þénað meira en þeir er það ekki þitt hlutverk að fórna þínum frama til að hjálpa honum að aðlagast. 8 SýndarástmaðurinnÞvílíkur léttir sem það er þegar karlmaður reynir ekki að fá þig í rúmið á fyrsta stefnumóti! Hversu heilluð ertu þegar hann tilkynnir þér að hann vilji bíða „þar til þið haldið þetta ekki út lengur“? Hversu full samúðar ertu á sjötta stefnumóti þeg- ar hann segir þér frá fyrrverandi sem kramdi hjarta hans? Hversu ringluð verðurðu sex mánuðum síðar þegar þú gerir þér grein fyrir að hann þarf að skjótast í hvert skipti sem þú held- ur að þið ætlið að elskast enda sendir hann þér blómvönd vikulega og fal- leg smáskilaboð á hverjum degi. Ekki láta heillast of lengi. Á endanum mun hann kenna andfýlu þinni eða stærð læra þinna um. 9 Gaurinn með fullkomnu æskuna Mamma hans var fullkomin, pabbi hans drakk aldrei né reykti. Hann þolir ekki hvernig vinir hans kenna foreldrum sínum um allt sem miður frer. Hann og sjö systkini hans voru umvafin ást og kærleik frá morgni til kvölds. Slík lýsing er ótrúlega frísk- andi en reyndu að greina litlu rödd- ina sem þarna leynist og rembist við að sannfæra sjálfan sig. Þegar heimur hans hrynur mun samband ykkar að öllum líkindum kremjast undir honum. 48 Lífsstíll 18.–20. maí 2012 Helgarblað Lífleg baðfatatíska í sumar N ýjustu straumar og stefnur í baðfata- tískunni eru lífleg- ir í ár. Baðfatatískan einkennist af bikiníbuxum með háu mitti, metallitum og útskornu sniði á sund- fatnaði. Útskornu sundbolirnir hafa aldrei verið efnis- minni og spurning hvort einhver þorir í sundbol er minnir á lítinn köngulóar- vef í Vesturbæjarlaugina. Þær sem eru með örlítinn maga taka þó hátt skornum bikiníbuxum vel. Mynstraðir bolir koma líka sterkir inn og „retro“- sundbolir í anda sjötta áratugar eru enn eldheitir. Bros besta andlits- lyftingin Leikkonan Olivia Newton-John er orðin 63 ára og hefur barist við krabbamein og þunglyndi. Hún lítur samt ótrúlega vel út en segist aldrei hafa lagst undir hnífinn. „Þrátt fyrir gífurlega pressu um að líta vel út í fjölmiðlum hef ég ekki látið freistast. Ennþá. Mitt leynar- mál er að borða hollan mat, vera jákvæð og hamingjusöm. Þannig held ég mér ungri. Og það að brosa er besta andlitslyftingin,“ sagði leikkonan í nýlegu viðtali. Ávaxtasykur gerir okkur heimsk Námsmenn sem eru að læra fyrir próf ættu að halda sig fjarri gos- drykkjum samkvæmt vísinda- mönnum við UCLA-háskólann. Í rannsókn þeirra kemur fram að mikil neysla á gosi og matvælum sem innihaldi mikið af frúktósa hægi á heilanum og hefti minnis- og námsgetu. „Niðurstöður okkar sýna fram á að það sem þú borð- ar hefur áhrif á það hvernig þú hugsar,“ sagði prófessor Fernando Gomez-Pinilla. „Ef þú borðar mikinn ávaxtasykur í langan tíma breytist geta heilans til að læra og muna. Góðu fréttirnar eru þær að neysla á hnetum og fiski og fæðutegundum sem innihalda ómega-3 vegur á móti skemmd- unum.“ Merki um að þú eigir að forða þér n Persónueinkenni sem ber að forðast í leit að maka 9 atriði til umhugsunar„Mamma hans var fullkomin, pabbi hans drakk aldrei né reykti Líttu undan Samkvæmt rannsókn finnurðu minni sársauka ef þú horfir í hina áttina þegar læknirinn sprautar þig en þegar þú fylgist með nálinni stingast inn í þig. Vísindamenn við læknaháskólana í Berlín og Hamborg rannsökuðu áhrif þess að líta undan þegar stungan við spautuna kemur. Í ljós kom að flestir fundu mest til þegar þeir horfðu á nálina stingast inn í húð- ina. Niður stöðurnar voru birtar í læknaritinu Pain. Hátt mitti Sundfatn- aður frá Möru Hoffman. n Hátt mitt og metallitir áberandi Metallic Sundfatnaður frá Normu Kamali. Hátt mitti Sundfatn- aður frá Normu Kamali. Metal Frá Lisu Blue. Töff frá Ástralíu Ástralir eru framarlega í sundfata- tískunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.