Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2012, Qupperneq 64
Hver skyldi vorkenna Jónínu? Jón í stúkunni n Á miðvikudaginn fór fram knatt- spyrnuleikur milli Víkings Reykja- vík og knattspyrnufélagsins Fáks. Í marki fyrir lið Fáks var Davíð Smári Helenarson eða Dabbi Grensás eins og hann er gjarnan kallaður. Dabbi þótti fara á kostum í markinu en mesta athygli vakti þó stuðningslið Fáks en þar var fremstur í flokki Jón H. Hallgrímsson eða Jón stóri. Hann hvatti sína menn í Fáki ákaft áfram en hvatningar- ópin dugðu þeim þó ekki til sigurs og lið Víkings vann leikinn. Ásdís Rán í karlafans n Nýfráskilda athafnakonan Ásdís Rán heldur sínu striki í Búlgaríu þrátt fyrir erfiða tíma í einkalífinu. Ásdís sinnir nú sínum fjölmörgu verkefnum af alúð en leyfir sér líka að sletta úr klaufunum. Á þriðju- dagskvöld var Ísdrottningin nefni- lega viðstödd keppnina Herra Búlg- aría á Rainbow Plaza-hótelinu og ef marka má Facebook-síðu hennar var þar nóg af sykursætum búl- görskum glæsi- mennum. Myndir birtust af Ásdísi þar sem hún stillir sér upp með, að því er virðist, sigurvegara keppninnar sér við hlið. Vorkennir karlmönnum n „Stundum skammast ég mín fyrir að vera kona en oftast gleymi ég því og lít á mig sem manneskju með fullt jafnrétti,“ sagði Jónína Bene- diktsdóttir á Facebook-síðu sinni um frétt DV af bleikum og bláum hjálmum sem Eimskipafélagið og Kiwanis gefa 6 ára börnum á land- inu. Mikil umræða spratt upp um fréttina en þar segir Hildur Lillien- dahl litavalið vera tímaskekkju. Jónína sagði af sama tilefni að hún „vorkenndi karlmönnum í því andrúmi sem hér ríkir á Íslandi“ og að hún væri „orðin þreytt á þessum kon- um sem gera jafnrétti að aðhláturs efni og virðast ekki hafa neitt við tímann sinn að gera.“ Þ orbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, er ósátt við tímaritið sem hún vann áður á. „Örlagarík helgi hjá Tobbu Marinós: Pabbi fékk hjarta- stopp. Sagan öll,“ segir á forsíðu tíma- ritsins Séð og heyrt í þessari viku. Bæði Tobba og fjölskylda hennar eru ósátt við að ekki hafi verið haft samráð við hana vegna birtingarinnar. Tobba greindi frá því á Facebook að hún hefði „… aldrei skammast sín fyr- ir að vera fyrrum starfsmaður á Séð og heyrt fyrr en í dag [miðvikudag].“ Kær- asti hennar, Karl Sigurðsson, Bagga- lútur og borgarfulltrúi, vandaði Séð og heyrt ekki heldur kveðjurnar. Syst- ir Tobbu, Rebekka Rut Marinósdóttir, kvartar einnig á vefsíðu Séð og heyrt: „Gaman að sé skrifað svona bak við mann frétt um fjölskylduvandamál manns og ekki látið mann eða annan vita sem viðkemur málinu …“ Lilja Katrín Gunnars- dóttir, ritstjóri Séð og heyrt, og Tobba eru vinkonur og hafa verið um árabil. Þær störfuðu saman á Séð og heyrt en Lilja Katrín lék einnig aðalhlutverkið í þátt- unum Makalaus sem gerðir voru eftir bókum Tobbu. Þá störfuðu þær einn- ig saman í sjónvarpsþætti Tobbu sem sýndur var síðastliðinn vet- ur, þar sem Lilja Katrín sá um innslög og fékk marga þjóðþekkta einstaklinga til að sprella með sér. Lilja Katrín vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Raunar kemur blaðið ekki til áskrifenda fyrr en í dag, föstudag, vegna bilunar í prentsmiðju, segir á Facebook-síðu Séð og heyrt. Aðspurð sagði Lilja Katrín það ekki tengjast umræddri forsíðu. Ekki náð- ist í Tobbu Marinós við vinnslu fréttar- innar. Tobba hefur verið áberandi í fjöl- miðlum undanfarin ár. Hún hóf feril sinn í fjölmiðlum á Séð og heyrt, þar sem hún skrifaði um súrt og sætt í lífi fólks. Tobba brjáluð út í Séð og heyrt n Ósátt við umfjöllun um veikindi föður síns Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 18.–20. maí 2012 57. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Ósátt við vinkonuna Lilja Katrín, ritstjóri Séð og heyrt, og Tobba hafa verið vinkonur um ára bil og starfað mikið saman.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.