Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Side 4
Flutt í stofuna til tengdó
n 5 manna fjölskylda á Hólmavík búin að missa íbúðina:
V
ið ætlum bara að byrja á að
vera hérna þangað til allir eru
orðnir snarbilaðir á öllum og
svo verður þetta bara að koma
í ljós,“ segir Erla Heiða Sverrisdóttir á
Hólmavík en hún og fjölskylda hennar
fluttu í síðustu viku út úr íbúð sem þau
höfðu búið í. Sveitarfélagið Stranda-
byggð átti íbúðina en hafði selt hana.
Mikill húsnæðisskortur er á Hólmavík
og erfitt að finna laust húsnæði.
Sveitarfélagið á þó aðra íbúð sem
stendur tóm en til stendur að leigja
hana út í tvo mánuði að sögn Erlu.
Í samtali við DV í síðustu viku sagði
Erla að fjölskyldan þyrfti líklegast að
flytja í tjald því þau væru heimilislaus.
Nú búa þau hins vegar í stofunni hjá
tengdaforeldrum Erlu. „Það er þröngt
en fer alveg furðuvel um okkur,“ seg-
ir Erla en íbúðin er um 100 fermetrar
og þau búa þar sjö saman. Erla segist
ekki hafa fengið nein svör frá sveitar-
félaginu og segir þau ekki ætla að
sækja um að leigja áðurnefnda íbúð
í tvo mánuði. „Þá lendum við bara
í nákvæmlega sömu stöðu eftir tvo
mánuði,“ segir hún. Fjölskyldunni
hefur þó verið boðið að búa í húsi
sem systir unnusta Erlu á. „Það geng-
ur ekki upp því hún er hérna allt sum-
arið en við fáum að geyma dótið okk-
ar þar.“
Hún seg-
ir vissulega
óþægilegt að vita ekki hvert fjölskyld-
an flytji næst. Þau vilji ekki flytja úr
plássinu þar sem þau eru bæði með
örugga atvinnu. „Við erum ekki alveg
á götunni meðan við erum hér en það
er mjög óþægilegt að vita ekki hvert
við förum næst.“
4 Fréttir 6. júní 2012 Miðvikudagur
30.maí 2012
Fjölskyldan Erla og fjölskylda eru flutt út úr íbúðinni og vita
ekki hvert þau eiga að flytja næst.
n Fyrirburi kom í heiminn í athvarfi fórnarlamba mansals og vændis
Nýfætt barn í
Kristínarhúsi
H
ún kom svolítið fyrir tím-
ann en þetta gengur bara
ótrúlega vel,“ segir Guðný
Halldórsdóttir, starfskona
Stígamóta og Kristínarhúss.
Á laugardagsnótt fæddist einum af
skjólstæðingum Kristínarhúss lítið
stúlkubarn en sú litla kom nokkuð
fyrir tímann og því var ekki allt til-
búið fyrir komu hennar. Starfskon-
ur í Kristínarhúsi brugðu þá á það
ráð að auglýsa á Facebook eftir ung-
barnafötum og vöggu eða rúmi fyr-
ir barnið. Það stóð ekki á viðbrögð-
um fólks sem vildi hjálpa til. „Öll
þessi aðstoð, hjálp og viðbrögð sem
við erum búin að fá er alveg æðisleg.
Við erum búin að fá alveg helling og
síminn bara stoppar ekki,“ segir Guð-
ný og heldur áfram. „Þetta er allt að
koma hjá okkur. Við eigum eftir að
fara almennilega í gegnum það sem
komið er en það eru margir búnir að
aðstoða okkur. Það er bara frábær öll
þessi góðmennska.“
Algengt að þeim fylgi börn
Kristínarhús var opnað í septem-
ber á síðasta ári en það eru Stíga-
mót sem reka athvarfið. Það er hugs-
að sérstaklega fyrir konur sem eru
á leið úr vændi og eru fórnarlömb
mansals og er einnig nýtt fyrir kon-
ur utan af landi sem þurfa á þjónustu
Stígamóta að halda. Guðný segir al-
gengt að þessum konum fylgi börn
sem fá þá að dveljast með mæðrum
sínum í athvarfinu en yfirleitt eru
börnin mjög ung. Nú er þar ann-
að barn til viðbótar við litlu stúlk-
una sem fæddist um helgina og þar
að auki er ein kona sem dvelur í
athvarfinu ófrísk og á von á sér eft-
ir nokkra mánuði. „Konurnar sem
hingað koma eiga stundum börn,
yfirleitt mjög ung börn og svo koma
þær stundum ófrískar hingað,“ segir
Guðný.
Í Kristínarhúsi fá konurnar ör-
uggt skjól og reynt er að aðstoða
þær við að byggja sig upp til að tak-
ast á við lífið á nýjan leik. „Þetta eru
alveg yndislegar konur og ótrúlega
duglegar. Maður dáist að þeim. Hér
fá þær tækifæri til betra lífs, komast í
öruggt skjól og umhverfi og athyglin
beinist að þeim þar sem er ró og frið-
ur.“
Þörfin fyrir athvarf brýn
Konurnar sem fá athvarf í Kristínar-
húsi eru eins og áður sagði yfirleitt
að koma úr hörðum heimi vænd-
is og mansals. Oft og tíðum eru þær
illa hraktar þegar þær koma í athvarf-
ið og stundum koma þær allslausar.
Þá reyna starfskonur að aðstoða þær
eftir fremsta megni við að fá það sem
vantar, bæði fyrir þær og börn þeirra.
„Okkur vantaði aðallega föt í upphafi
en það er allt að koma,“ segir Guðný.
Í athvarfinu er pláss fyrir fimm
konur og Guðný segir plássin yfir-
leitt fullnýtt. „Ef það þarf meira rými
þá búum við hiklaust til meira pláss.“
Hún segir það hafa sannað sig á
þeim tíma sem athvarfið hefur verið
starfrækt að þörfin sé brýn. „Það er
alltaf nóg að gera og það er að sýna
sig núna hve mikil þörf er fyrir svona
athvarf, sérstaklega fyrir konur sem
vantar öruggan stað til þess að ná
áttum. Það er miklu meira um þessi
mansalsmál og að fólk sé neytt út í
vændi heldur en margir halda. Þetta
er yfirleitt aldrei eitthvað sem fólk
kýs að gera heldur eitthvað sem það
gerir í neyð eða af því að það er neytt
til þess,“ segir hún.
Misjafnt hvað þær dvelja lengi
Konurnar dvelja mislengi í athvarf-
inu en samtals hafa átján kon-
ur dvalið þar síðan það var opnað.
„Fer frá nokkrum dögum og upp í
fleiri mánuði. Þetta er svo einstak-
lingsbundið og hvert mál er sérstakt
þannig að það er ekkert hægt að al-
hæfa um þessi mál. Við tökum þessu
bara eins og það kemur og reynum
að gera okkar besta. Konurnar koma
hér sjálfviljugar, þær eru ekki neydd-
ar hingað og geta komið og farið eins
og þær vilja,“ segir hún. Átta starfs-
menn vinna hjá Stígamótum og þrjár
þeirra starfa í Kristínarhúsi. Ásamt
þeim er fjöldi sjálfboðaliða sem að-
stoðar við starfið. „Við erum með frá-
bæra sjálfboðaliða sem halda þessu
gangandi. Þetta er frábært starf og
ótrúlega gefandi og maður fyllist svo
miklu þakklæti að fá að starfa við
þetta,“ segir Guðný.
„Það er miklu meira
um þessi mansals-
mál og að fólk sé neytt út
í vændi heldur en margir
halda.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Góðar viðtökur Mikið af fólki hefur komið með föt og aðrar nauðsynjavörur fyrir litla
stúlkubarnið. Hér heldur Guðný, starfskona í Kristínarhúsi, á fötum og barnabílstól.
Rými fyrir fimm Í Kristínarhúsi er rými
fyrir fimm konur en þar dvelja konur sem eru
að stíga úr vændi og/eða mansali meðal
annars. Hér sést inn í eitt herbergi hússins.
Kærir Eirík
Kristján Óli Níelsson hefur
ákveðið að kæra blaðamanninn
Eirík Jónsson stjörnublaðamann
fyrir rangar sakargiftir. Eiríkur
birti á vefsíðu sinni frétt um að
Kristján hefði verið sá sem falsaði
undirskriftir fyrir framboð Ást-
þórs Magnússonar í Ólafsvík og
það væri vegna þessara undir-
skrifta sem framboð Ástþórs gekk
ekki eftir. Pressan sagði frá því á
mánudag að Kristján hygðist kæra
Eirík fyrir fréttina þar sem hann
væri ekki maðurinn sem um var
að ræða. Kristján bað Eirík um að
fjarlægja fréttina eða hann myndi
kæra hann, Eiríkur fjarlægði
fréttina til að byrja með en birti
hana aftur daginn eftir með nýrri
mynd en hefur nú fjarlægt hana
að nýju. Kristján hyggst þrátt fyrir
það leita réttar síns.
Styðja LÍÚ
Sjómannafélag Íslands styður
ákvörðun Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna um að halda
skipum heima til þess að mót-
mæla frumvörpum stjórnvalda
um auðlindagjald fiskveiðistjórn-
unarkerfisins. Jónas Garðars-
son, formaður kjararáðs félagsins,
segir stuðninginn tvíþættan og
að hagsmunir útgerðarmanna og
sjómanna fari saman. Þeir séu þó
ósáttir við að útgerðarmenn hafi
krafið sjómenn um lækkun launa
hjá ríkissáttasemjara í síðustu
viku. Ef krafan um launalækk-
unina kæmi ekki á sama tíma og
skipin væru bundin við bryggju þá
myndu sjómenn styðja útgerðar-
menn af heilum hug.