Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Blaðsíða 24
24 Sport 6. júní 2012 Miðvikudagur Danny Welbeck England Aldur: 21 árs Lið: Manchester United Staða: Framherji Landsleikir: 5 (1 mark) Phil McNulty, yfirmaður knattspyrnu- umfjöllunar hjá BBC: „Danny Welbeck er framherji sem er enn að slíta barnsskónum knattspyrnulega séð, bæði fyrir þjóð sína og félagslið. Hann hefur sannað sig í enska landsliðinu; einbeittur en um leið afslappað- ur. Hann er enn óslípaður en býr þó þegar yfir hraða og gæðum til að skora mörk í hæsta gæðaflokki. Jordi Alba Spánn Aldur: 23 ára Lið: Valencia Staða: Vinstri bakvörður Landsleikir: 5 Gaizka Mendieta, fyrrverandi landsliðsmað- ur Spánar: „Jordi Alba er nýr í landsliðshópi Spánverja. Hann er magnaður leikmaður og gæti staðið sig afar vel, sérstaklega ef hann kæmist að í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur vaxið mikið sem leikmaður undanfarið og verð- ur betri með hverjum deginum. Hann hentar landsliðinu vel því hann spilar stöðu sem óvissa ríkti um eftir síðustu heimsmeistarakeppni.“ Mario Gotze Þýskaland Aldur: 19 ára Lið: Borussia Dortmund Staða: Sóknarsinnaður miðjumaður Landsleikir: 13 (2 mörk) Raphael Honigstein, fréttaritari þýsku Bundesligunnar hjá The Guardian: „Gotze gæti orðið einn af stórkostlegustu leikmönnum sinnar kynslóðar. Hann virðist hafa með- fædda hæfileika og er sérstaklega leikinn og útsjónarsamur með boltann. Ég á von á því að hann komi inn í leikina af bekknum og geti haft mikil áhrif á gang þeirra. Hraði hans og hug- myndaflug getur valdið varnarmönnum miklu hugarangri; sérstaklega er hann tekur hlaupin af köntunum inn á hættusvæðið við teiginn.“ Claudio Marchisio Ítalía Aldur: 26 ára Lið: Juventus Staða: Miðjumaður Landsleikir: 19 (1 mark) James Horncastle, ítalskur sparkspek- ingur: „Einn af mörgum öflugum leikmönn- um Juventus í ítalska landsliðshópnum. Marchisio hefur þroskast mikið á nýyfirstað- inni leiktíð. Hann er afar fjölhæfur leikmaður og getur spilað margar stöður á vellinum. Hann á bestu árin sín í boltanum framundan. Marchisio skoraði níu mörk á yfirstandandi leiktíð.“ Alan Dzagoev Rússland Aldur: 21 árs Lið: CSKA Moskva Staða: Sóknarsinnaður miðjumaður Landsleikir: 18 (4 mörk) Alexey Smertin, fyrrverandi landsliðsmað- ur Rússlands: „Hann er virkilega fljótur. Í mín- um huga hafa Rússar mjög góða sóknarmenn innan sinna raða og Dzagoev er einn þeirra. Hann mun spila gegnt Andrei Arshavin á vellinum. Dzagoev er leikmaður sem er mjög flinkur með boltann og mun búa til mörg marktækifæri fyrir rússneska liðið.“ Yann M‘Vila Frakkland Aldur: 21 árs Lið: Rennes Staða: Varnarsinnaður miðjumaður Landsleikir: 18 (1 mark) Matt Spiro, sparkspekingur í Frakklandi: „M‘Vila er lykilmaður í landsliði Laurent Blanc þjálfara. Hann er í raun hjartað í liðinu. M‘Vila er baráttuhundur og býr yfir nokkurri reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hann er frábær fyrir framan vörnina og er miðdepillinn í leikkerfi franska liðsins. Strykleikar hans felast fyrst og fremst í vinnusemi og því hversu vel hann les og skilur leikinn.“ Christian Eriksen Danmörk Aldur: 20 ára Lið: Ajax Staða: Sóknarsinnaður miðjumaður Landsleikir: 22 (2 mörk) Jan Molby, fyrrverandi leikmaður Liverpool og danska landsliðsins: „Allir biðu eftir því að hann slægi í gegn á heimsmeistaramótinu en það var of snemmt. Hann hefur bætt leik sinn og er farinn að axla ábyrgð varnarlega. Það þarf hann að gera þó hann sé aðalstjarna liðsins. Hann mætti ef til vill skora aðeins meira en ef hann stendur sig vel á mótinu munu stærstu lið Evrópu sýna honum áhuga. Rui Patricio Portúgal Aldur: 21 árs Lið: Sporting Lissabon Staða: Markvörður Landsleikir: 10 Andy Brassel, einn virtasti íþróttafrétta- maður Evrópu: „Rui Patricio er stórfenglegur markvörður sem mikið fer fyrir í markinu. Portúgalar leika í riðli með Dönum, Þjóðverjum og Hollendingum og það er ljóst að hann mun hafa nóg að gera þegar slíkir andstæðingar standa í vegi. Hann hefur mikið sjálfstraust og er orðinn mjög öruggur markvörður. Hann hefur undan- farið ár fest sig í sessi sem aðalmarkvörður landsliðsins.“ Þessir gætu slegið í gegn Evrópumótið í knattspyrnu hefst á föstudaginn. Mótið fer fram í Póllandi og Úkraínu en þar keppa 16 lið í þrjár vikur um titilinn eftirsótta. Evrópumótið hefur lengi verið vettvangur ungra leikmanna til að slá í gegn. BBC tók saman upplýsingar um átta leikmenn sem gætu slegið í gegn og látið til sín taka á mótinu. United kaupir Shinji Kagawa Manchester United staðfesti á þriðjudag að félagið hefði gengið frá samningum við þýska félagið Borussia Dortmund um kaupin á japanska miðjumanninn Shinji Kagawa. United hefur einnig náð samkomulagi við Kagawa og þarf hann aðeins atvinnuleyfi og að standast læknisskoðun til að allt gangi upp. Talið er að United greiði 12 milljónir punda fyrir Kagawa sem verið hefur lykilmaður í meistara- liðum Dortmund síðustu tvö árin. SkySports greinir frá því að kaup- verðið gæti hækkað upp í 17 millj- ónir punda en Kagawa, sem er 23 ára, verður fyrsti Japaninn til að leika með United. M‘Vila fær grænt ljós Franski miðjumaðurinn Yann M‘Vila hefur verið úrskurðaður leikfær af læknum franska lands- liðsins fyrir EM 2012 sem hefst um helgina. M‘Vila, sem fjallað er um í greininni hér til hliðar, er einn af efnilegustu miðjumönnum Evrópu. Hann meiddist í 2–0 sigri Frakklands í vináttuleik við Serbíu í síðustu viku. Hann fór grátandi af velli svo menn óttuðust hið versta. Laurent Blanc, landsliðsþjálfari Frakka, hlýtur að anda rólega fyrst hinn öflugi 21 árs gamli miðju- maður er klár í slaginn. Barton barinn við hommabar Joey Barton, miðjumaður QPR, virðist staðráðinn í að moka yfir sig eftir að hafa grafið sína eigin gröf með framferði sínu í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City. Barton fékk 12 leikja bann fyrir ofbeldi þar en hann komst aftur í fréttirnar um helgina þegar hann var handtek- inn aðfaranótt mánudags. Barton náðist á mynd, alblóðugur, eft- ir að hafa lent í slagsmálum fyr- ir utan einn þekktasta hommab- ar Liverpool. Hann hafði verið að skemmta sér með kærustu sinni. Þeir sem Barton slóst við voru einnig handteknir og sleppt. Málið er til rannsóknar. Barton er floginn til Portúgal í sumarfrí með fjöl- skyldunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.