Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Page 8
Fangelsi rísi 2015
n Arkís hannar Hólmsheiðarfangelsi
A
rkís arkitektar ehf. hlaut
fyrstu verðlaun í hönnunar-
samkeppni um byggingu
nýs fangelsis á Hólmsheiði í
Reykjavík. Dómnefnd kynnti þær til-
lögur sem bárust við hátíðlega athöfn
í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag.
Innanríkisráðuneytið bauð í
ársbyrjun til opinnar hugmynda-
samkeppni um byggingu nýs fang-
elsis á Hólmsheiði í Reykjavík. Dóm-
nefnd bárust alls 18 tillögur, átta frá
innlendum aðilum og tíu tillögur að
utan. Í dómnefnd sátu Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir, formaður og sér-
fræðingur í innanríkisráðuneytinu,
Páll E. Winkel, fangelsismálastjóri
skipaður af ráðherra, Pétur Örn
Björnsson, arkitekt skipaður af ráð-
herra, og tilnefnd af hálfu Arkitekta-
félags Íslands voru Gylfi Guðjónsson
og Hildur Gunnarsdóttir arkitektar.
Í niðurstöðu dómnefndar um
verðlaunatillöguna segir að tillagan
sé mjög góð og svari einstaklega vel
áherslum dómnefndar í samkeppn-
islýsingu.
Nýja fangelsið verður með 56
fangarýmum og á að leysa af hólmi
Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg og fangelsi í Kópavogi en báð-
um þessum fangelsum verður lokað
þegar hið nýja verður tekið í gagnið.
Þá er og gert ráð fyrir að gæsluvarð-
haldsdeild á Litla-Hrauni verði lögð
niður og aðstaða hennar tekin fyrir
afplánun. Gert er ráð fyrir að hönnun
byggingarinnar og útboðsgögn verði
tilbúin vorið 2013 og í kjölfarið geti
framkvæmdir hafist. Vorið 2015 er
stefnt að því að ljúka framkvæmdum
og taka bygginguna í notkun.
8 Fréttir 6. júní 2012 Miðvikudagur
Hjónum
bjargað
á Helgafelli
26 fjallgöngubjörgunarmenn
frá Slysavarnafélaginu Lands-
björg komu íslenskum hjónum
til bjargar á mánudag eftir að þau
lentu í sjálfheldu í klettabelti í
hlíðum Helgafells. Sveitin var köll-
uð út um klukkan tíu á mánudags-
kvöld eftir að neyðarkall barst frá
hjónunum. Aðgerðum lauk um
miðnætti og sluppu hjónin bless-
unarlega ómeidd frá þessu brölti.
Gekk nakinn
um borgina
Svo virðist sem hitinn á höfuð-
borgarsvæðinu fái fólk til að fækka
fötum unnvörpum þessa dagana.
Allt er það gott og blessað á meðan
slíkt er innan velsæmismarka. Fá-
klætt fólk má nú sjá í almennings-
görðum og á sundstöðum, svo bara
tveir staðir séu nefndir, og þykir
ekki fréttnæmt. Hvað þá að einhver
hringi í lögregluna vegna þessa.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur
fram að aðfaranótt sunnudags hafi
verið tilkynnt um óviðeigandi nekt.
Lögreglan svaraði kallinu strax og
hraðaði sér á vettvang. Þar blasti
við henni kviknakinn karl á miðj-
um aldri en sá var á gangi í mið-
borginni. Maðurinn hlýddi strax
fyrirmælum lögreglu og var mjög
samstarfsfús. Sagðist hann hvorki
vera á leið í sund né sólbað held-
ur væri klæðaburðurinn, eða öllu
heldur klæðaleysið, tilkomið vegna
veðmáls.
Átti maðurinn að fá nokkur
þúsund krónur fyrir að ganga til-
tekna leið allsber en sjálfur var
hann fullur efasemda um að hon-
um tækist verkið. Hefði hann því
hætt við á miðri leið og snúið til
baka. Örskömmu síðar mætti hann
lögreglunni, sem krafði hann ekki
frekari skýringa en skipaði honum í
buxur ef hann ætlaði að vera áfram
á almannafæri. Maðurinn hefur
nokkrum sinnum áður komið við
sögu hjá lögreglu en þá hefur hann
jafnan verið fullklæddur.
É
g er búinn að missa vinnuna
og það var alveg sjálfsagt, ég
missti stjórn á mér,“ segir Andr-
és Björgvinsson, maðurinn sem
sést á upptöku ráðast á annan
mann, meðal annars slá hann í höf-
uðið og sparka í hann. Andrés hefur
starfað sem öryggisvörður á Hlemmi
í fjögur ár samfleytt eða þangað til í
gær þegar honum var vikið tímabund-
ið úr starfi, á meðan frekari rannsókn
á atvikinu fer fram. Myndbandið hefur
farið eins og eldur í sinu um internetið
og vakið hörð viðbrögð.
Kom „rjúkandi“ í gegnum húsið
Þegar blaðamaður náði tali af Andrési
í gærkvöldi sagðist hann vera í hálf-
gerðu sjokki. „Ég bara er ekki búinn að
meðtaka þetta.“ Það var blaðamaður
Grapevine sem tók myndbandið fyrir
nokkrum dögum og birti það svo á
vefsíðu blaðsins á mánudag. Á mynd-
bandinu sést þegar Andrés beitir ann-
an mann ofbeldi til þess að reka hann
út af Hlemmi. Andrés slær hann með-
al annars í höfuðið, sparkar í hann og
kastar honum síðan utan í glugga.
Í samtali við DV segist Andrés sjá
eftir öllu saman: „Auðvitað sér mað-
ur eftir því þegar maður sleppir sér.“
Hann segist þó vilja koma því á fram-
færi að öll málsatvik kæmu ekki fram á
upptökunni. „Þetta er einungis endir-
inn á atburðarásinni sem sést á mynd-
bandinu. Þetta er ekki einhver maður
sem ég er að angra, þetta er maður sem
kemur rjúkandi í gegnum þvert húsið,
beint að mér, og öskrar á mig þar sem
ég er að skúra gólfið og orðbragðið var
svo yfirgengilegt að ég missti mig.“
Ósanngjarnar fullyrðingar
„Þetta er bara búið og gert, ég hljóp
á mig,“ segir Andrés og bætir við: „Ég
tapaði mér algjörlega, missti stjórn á
mér.“ Ljóst er að árásin er litin alvar-
legum augum af hálfu forsvarsmanna
Strætó sem íhuga nú að taka öryggis-
mál á Hlemmi til gagngerrar endur-
skoðunar. Andrés segist þegar hafa
haft samband við lögfræðing sem mæli
með því að hann safni öllum gögnum
sem til séu þurfi hann á því að halda
síðar meir. Ólíklegt verður að teljast að
hann haldi starfi sínu á Hlemmi.
„Það er látið eins og ég sé einhver
ofbeldismaður á Hlemmi en ég hef
setið með þetta fólk í fanginu á síð-
ustu dögum lífs þeirra,“ segir Andr-
és. Hann segir að fólk megi halda það
sem það vilji um hann en erfitt sé að
fylgjast með umræðunni því að þar sé
margt sem sagt er „afar ósanngjarnt
og ýmislegt sem fólk er að fullyrða.“
Aðspurður hvort hann hafi beitt fólk
slíku ofbeldi áður svarar hann með
spurningum: „Þarna? Slagsmál? Að ég
sé vondur við einhvern? Það er örugg-
lega einhver sem getur kvartað. Alveg
örugglega.“
„Get ekkert gert“
„Það er rétt að ég sló manninn í
hnakkann með flötum lófa og ég
sparkaði í rassinn á honum, en ég var
í rauninni bara heppinn að ég gerði
ekki eitthvað meira af mér, eitthvað
alvarlegt.“ Andrés segist ekki hafa ætl-
að sér að beita manninn ofbeldi: „Fólk
lætur eins og ég hafi ákveðið að gera
þetta.“ Aðspurður hvort til greina komi
að biðja manninn afsökunar fyrir það
sem hann gerði segir Andrés ekkert
hafa íhugað það. „Ég veit það ekki,
hann hefur ekkert farið fram á það.“
Andrés segir ákveðnar rangfærsl-
ur hafa komið fram í fjölmiðlum. Það
hafi til dæmis verið sagt að hann hafi
vitað hver maðurinn væri en það sé
ekki rétt. „Ég hef aldrei séð þennan
mann áður.“ Hann segir öryggisvörsl-
una hafa verið einu vinnuna sem hon-
um bauðst fyrir fjórum árum. Nú sé
framtíðin óljós. „Ég get ekkert varið
það sem ég gerði. Hvað á ég að gera?
Ég get ekkert gert.“
n Öryggisvörður viðurkennir að hafa misst stjórn á sér
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Ekki búinn að
mEðtaka þEtta“
Harkalegt Andrés skammast í
manninum og ýtir síðan harkalega
við honum þar sem hann situr.
Sleginn „Helvítis lygamörðurinn
þinn,“ segir Andrés eftir að hann
slær manninn fast í höfuðið.
„Út með þig“ Andrés
sparkar í manninn og segir
honum að hundskast út.
„Skammastu þín“
Þegar maðurinn verður
ekki við kröfunni dregur
Andrés hann út með valdi.
„Skal ég bara hvað?“ Andrés bregst ókvæða
við því þegar maðurinn segir honum að passa sig.
Skellir honum upp að rúðu sem dettur úr.
Snýst til varnar
Maðurinn grýtir dagblaði
í Andrés sem segir honum
enn á ný að skammast sín,
drulla sér í burtu og lokar
loks dyrunum.
1 2
4
5
6
3