Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Síða 9
bjuggu frítt
í 16 mánuði
Fréttir 9Miðvikudagur 6. júní 2012
H
elga Daníelsdóttir, eig-
inkona Sævars Jóns-
sonar sem oftast er
kenndur er við skart-
gripa- og úraverslunina
Leonard í Kringlunni, var síðast-
liðinn fimmtudag dæmd af Hér-
aðsdómi Reykjaness til að greiða
Arion banka og Kaupthing Mort-
gage fimm og hálfa milljón auk
dráttarvaxta vegna vangoldinn-
ar húsaleigu. Helgu var auk þess
gert að greiða stefnendum 700.000
krónur í málskostnað.
Í þinghaldinu var deilt um leigu
vegna búsetu Helgu og Sævars í ein-
býlishúsi að Súlunesi 16 í Garðabæ,
eftir að Arion banki leysti húsið til
sín á nauðungaruppboði í nóvem-
ber 2009. Helga og Sævar bjuggu í
húsinu í 16 mánuði eftir kaup Arion
banka og eignin var afhent bankan-
um. Í þann tíma borguðu þau enga
húsaleigu, en ágreiningur var um
hvort þeim bæri skylda til þess þar
sem enginn leigusamningur lá fyrir.
Krafin um „himinhátt gjald“
Stefnendur byggðu kröfu sína á því
að með dvöl Helgu og Sævars í fast-
eigninni í rúmlega 16 mánuði frá
2. desember 2009 til 6. apríl 2011,
hafi stefnda stofnað til skuldar við
stefnendur, það er að segja, við
hvorn stefnanda um sig á meðan
eignarhald hvors þeirra á fasteign-
inni stóð yfir. Arion banki og Kaup-
thing Mortgage hafi aldrei heimil-
að endurgjaldslaus afnot Helgu og
Sævars af fasteigninni á því tímabili
sem þau dvöldu í henni. Þeir hafi
ekki getað leigt húsið út á meðan
þau bjuggu í húsinu eða selt það og
því orðið fyrir umtalsverðu tjóni.
Málsvörn Helgu byggði með-
al annars á því að rangt sé að
afnot stefndu á eigninni hafi haft
afleiðingar fyrir stefnendur eða
valdið þeim tjóni. Það hafi ekkert
verið því til fyrirstöðu fyrir stefn-
endur að krefjast rýmingar eignar-
innar strax 9. desember 2009 og
fara í útburðarmál, hafi þeir viljað,
og með því takmarka tjón sitt, hafi
verið hætta á slíku. „Þess í stað hafi
stefnendur verið fullkomlega að-
gerðalausir gagnvart sér og krefji
hana síðan um himinhátt gjald fyr-
ir afnot eftir að hún hafi samið um
rýmingu eignarinnar gegn gjaldi frá
þeim tíma sem krafan kom fram til
afhendingar eignarinnar,“ eins og
það stendur í dómnum.
Glæsihýsi þrátt fyrir gjaldþrot
Sævar var úrskurðaður gjaldþrota
árið 2009 en þá færði hann rekstur
skartgripa- og úraverslunar sinnar yfir
á nýja kennitölu og gerði kaupmála
við eiginkonu sína þannig að verslun-
in fluttist yfir á hana í hinu nýja fyrir-
tæki. Ekkert fékkst upp í rúmlega 200
milljóna kröfu í þrotabú Sævars.
Ári síðar reistu þau Helga og Sæv-
ar sér glæsilegt einbýlishús að Mo-
sprýði í Garðabæ en það hús er al-
farið á nafni Helgu. Húsið er hið
reisulegasta en það er 420 fermetrar
á þremur hæðum og á jarðhæðinni
er að finna 60 fermetra bílskúr.
Áður í eigu 1899 ehf.
Eigandi Súluness 16 fyrir nauðungar-
söluna var 1899 ehf. Samkvæmt út-
skrift úr Hlutafélagaskrá voru stofn-
endur félagsins og eigendur Sævar
Jónsson og Jón A. Þórarinsson og var
Sævar stjórnarmaður og prókúruhafi
en Jón varamaður í stjórn. Var félag-
ið úrskurðað gjaldþrota þann 1. júlí
2010. Með afsali, dags. 23. júní 2010,
eignaðist stefnandi Kaupthing Mort-
gages Fund fasteignina. Rekstraraðili
sjóðsins er Stefnir hf., dótturfélag
Arion banka. Afsalaði Arion banki
fasteigninni Súlunesi 16 til Kaup-
thing Mortgage Fund með afsali dag-
settu 23. júní 2010.
Viðauka ekki þinglýst
Með kaupsamningi 20. janúar 2008
seldu Sævar og Helga fasteignina
Súlunes 16 í Garðabæ, til 1899 ehf. Er
tekið fram í kaupsamningnum að á
1. veðrétti hvíli skuldabréf frá Kaup-
þingi banka, uppreiknað 60.329.043
krónur, greiðandi sé Sævar og greiði
hann áfram greiðslur af skuldabréf-
inu og þurfi ekki að aflýsa því. Þá sé
áhvílandi á 2. veðrétti tryggingarbréf
frá Landsbanka Íslands hf. að fjár-
hæð 80.000.000 króna og sé greið-
andi 1899 ehf. Afhending eignar-
innar var 31. desember 2009 og er
ákvæði um að seljandi hafi heim-
ild til að búa í húsinu frá undirritun
til afhendingardags. Þann 1. mars
2009 var gerður viðauki við kaup-
samninginn þar sem tekið er fram að
samkomulag sé um að afhendingar-
dagur frestist til 1. júní 2011 og hafi
seljendur heimild til að búa endur-
gjaldslaust í húsinu frá undirritun
til afhendingardags í tengslum við
söluna. Undirrituðu bæði Helga og
Sævar viðaukann. Viðaukanum var
ekki þinglýst á eignina. Í samtali við
DV vildi Helga ekkert tjá sig um mál-
ið.
n Byggðu glæsihús á meðan n Viðskiptaflétta Sævars og Helgu í Leonard
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Sævar og Helga
Sævar Jónsson og
Helga Daníelsdótt-
ir, oftast kennd við
skartgripaverslun-
ina Leonard.
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 10. – 11. mars 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 29. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395 n Á HVERJU ÁRI
n KRABBAMEIN ER ÞÓ EKKI DAUÐADÓMUR
KNATTSPYRNUHETJAN SÆVAR JÓNSSON:
LÖGREGLUSTJÓRAR:BÖNNUM VÍTISENGLA
VIÐSKIPTAMAÐURÁRSINS STÓR-SKULDUGUR
ÖGMUNDURNÁLGASTSTJÓRNINA
n FLUTTI SKARTGRIPAVERSLUNINA LEONARD YFIR Á KONUNA FYRIR GJALDÞROTIÐn SEGIST VERA AÐ FLÝJA BAUGn „ÉG ER BÚINN AÐ MISSA HÚSIГn „ÁTTI ENGAN ANNAN KOST“
FLUTTI
BÚÐINA
Á KONUNA
KARLARDEYJA
FREKAR EN KONUR
ÚTTE
KT
MEÐ 640MILLJÓNAKÚLULÁNn RÁÐINN TIL LANDSVIRKJUNAR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
FRÉTTIR
22 LEIÐIRTIL AÐ SPARA
MILLJÓN
4 FRÉTTIR 12. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Helga Daníelsdóttir, eigandi og stjórn-
andi skartgripa- og úraverslananna
Leonard, hefur sótt um að reisa risa-
stórt sumarhús við Hafrafell í Reyk-
hólahreppi. Hún er eiginkona knatt-
spyrnuhetjunnar Sævars Jónssonar,
sem áður var að fullu skráður fyrir
verslununum, en hann hefur sjálfur
verið úrskurðaður gjaldþrota. Á sama
tíma eru hjónin að leggja lokahönd á
tæplega 500 fermetra höll í Garðabæ.
Í síðustu viku lagði Guðni Tyrf-
ingsson, einn eigenda dönsku arki-
tektastofunnar Gassa arkitektar, inn
umsókn fyrir hönd Helgu þar sem
óskað er eftir leyfi til að reisa sumar-
hús við Hafrafell í Reykhólahreppi,
nánar tiltekið í Berufirði. Eftir því sem
DV kemst næst er um að ræða risa-
vaxið sumarhús, sannkallaða sumar-
höll, því samanlagður fermetrafjöldi
þess er yfir 200 fermetrum og verð-
mæti þess í kringum 100 milljónir
króna.
Afgreitt fljótlega
Óskar Steingrímsson, sveitarstjóri í
Reykhólahreppi, staðfestir að um-
sóknin hafi borist og bíður hann nú
eftir teikningum af húsinu. Reynist
þær í lagi á hann von á að leyfið verði
samþykkt síðar í mánuðinum. „Já,
þetta er rétt. Umsóknin hefur borist
en ég hef ekki séð teikningarnar enn
þá. Þær eru væntanlega á leiðinni í
pósti en byggingarnefnd fundar síðar
í mánuðinum. Standist teikningarnar
kröfur verður þetta áreiðanlega sam-
þykkt og það er af hinu góða að fjölga
góðu fólki í sveitinni,“ segir Óskar.
Umsóknin um sumarhúsið er ein-
göngu stíluð á nafn Helgu þar sem
nafn Sævars kemur hvergi fram. Fyr-
ir vikið má gera ráð fyrir því að það
verði alfarið í hennar eigu, líkt og nýtt
heimili þeirra hjóna við Mosprýði í
Garðabæ sem og Leonard-fyrirtækið.
Fært á Helgu
Sævar færði rekstur skartgripa- og
úraverslunar sinnar yfir á nýja kenni-
tölu á haustmánuðum 2009. Nafni
gamla félagsins var breytt skömmu
áður, Sævar segir það gert til að slíta
tengslin við Baug. Í hinu nýja félagi af-
salar hann sér öllum völdum til eigin-
konu sinnar, Helgu.
Fram í nóvember 2009 var rekstur
Leonard undir félagi sem hét Leon-
ard ehf. þar sem Sævar var skráður
í stjórn, sem framkvæmdastjóri og
með prókúruumboð fyrirtækisins. Þá
var skyndilega gerð nafnabreyting á
fyrirtækinu og því breytt í Ince ehf. en
samkvæmt ársreikningi 2008 hvíldu
þar talsverðar skuldir. Í þessum sama
mánuði, nóvember 2009, var síðan
stofnað nýtt fyrirtæki, Leonard ehf.,
sem heldur utan um rekstur búðanna
en sú breyting er á nýja fyrirtækinu
að þar er Helga komin með öll völd,
bæði í stjórn og með prókúruumboð.
Stórhýsi
„Við erum ekki með neitt leikrit og
erum ekki að skilja skuldir eftir í
gamla félaginu. Ég er búinn að missa
húsið og ég hef engan áhuga á því að
missa fleira. Ég átti raunverulega eng-
an annan kost,“ sagði Sævar í samtali
við DV þegar fjallað var um kenni-
tölubreytingu fyrirtækisins. Þá stað-
festi hann að reksturinn væri kom-
inn undir nýja kennitölu en útilokaði
að það væri gert til að losna undan
skuldum.
Samkvæmt heimildum DV er fyr-
irhugað sumarhús Helgu við Hafrafell
risavaxið og hið sama má segja um
nýtt heimili hennar, og þeirra hjóna, í
Garðabænum. Áður höfðu þau misst
heimili sitt við Súlunes í Garðabæn-
um á nauðungaruppboði. Nýja heim-
ilið er tæpir 500 fermetrar að stærð í
nýju hverfi úti í hrauni þegar ekið er í
átt að Bessastöðum. Óhætt er að segja
að staðsetning eignarinnar sé glæsi-
leg og útsýnið ekki af verri endanum.
Sjálft húsið er 420 fermetrar á þremur
hæðum og á jarðhæðinni er að finna
60 fermetra bílskúr. Af efstu hæð er
ómetanlegt útsýni yfir hraunið, Álfta-
nesið, höfuðborgina og Esjuna.
LEONARD-HJÓN
REISA SUMARHÖLL
Eigendur Leonard-verslananna, Helga Daníelsdóttir og Sævar Jónsson, hafa sótt um
leyfi til að byggja risastórt sumarhús við Hafrafell í Reykhólahreppi. Á sama tíma
leggja þau lokahönd á nýtt heimili sitt í Garðabæ en Sævar hefur verið úrskurðaður
gjaldþrota og verslanirnar færðar í nýtt félag á nafni Helgu. Sveitarstjórinn í Reyk-
hólahreppi á von á því að umsóknin verði samþykkt og fagnar fjölgun í hreppnum.
Nóg að gera Eiginkona
Sævars hefur sótt um
leyfi fyrir risasumarhúsi í
Reykhólahreppi og leggur
einnig lokahönd á nýtt
heimili hjónanna í Garða-
bæ. Knattspyrnukappinn
færði fyrirtæki þeirra á nafn
konunnar.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Það er af hinu góða að fjölga
góðu fólki í sveitinni.
Ungir notendur Facebook dreifa nú
á milli sín ábendingu á síðum sínum
og vara við hóp á netinu sem sagð-
ur er stofnaður af barnaníðingum í
þeim tilgangi að safna þar myndum
af börnum. Börn eru beðin um að
passa sig og dreifa ábendingunni sín
á milli.
Hópurinn sem um ræðir er und-
ir heitinu: „Þeim sem finnst pabbi og
mamma það besta sem hefur komið
fyrir mann“ og þar geta Facebook-
notendur skráð sig sem meðlim-
ir. Börn á Facebook eru aftur á móti
farin að setja á vegg sinn viðvörun
og vara aðra notendur samskipta-
vefjarins við að ganga í þennan hóp.
Ástæðan sé sú að hópurinn hafi verið
stofnaður af barnaníðingum í þeirri
von að safna þar saman börnum og
myndum af þeim.
Ef að er gáð er ekki hægt að greina
stofnanda eða stofnendur hópsins
inni á Facebook. Þar kemur sérstak-
lega fram að stofnendur hafi dregið
sig út þannig að ekki er lengur hægt
að sjá hverjir þeir eru. Þar inni er hins
vegar að finna umræður frá vormán-
uðum þar sem varað er við stofnend-
um hópsins og í hvaða tilgangi hann
er stofnaður.
Útaf fyrir sig segir Guðberg Jóns-
son, verkefnastjóri SAFT á Íslandi,
vakningarátaks um örugga tækni-
notkun barna og unglinga hérlendis,
það vekja grunsemdir að stofnendur
hópsins hafi dregið sig útaf svæðinu.
Þá segir hann nafn hópsins eitt og
sér vekja upp grunsemdir. „Í þessu
tilviki er mögulegt að stofnendurnir
hafi séð að sér og dregið sig út. Við
höfum fengið Facebook til að loka
mörgum svona síðum þar sem stofn-
andinn hefur horfið. Það kæmi mér
ekki á óvart að þetta sé stofnað í ann-
arlegum tilgangi. Nafnið er skrítið og
grunsamlegt,“ segir Guðberg.
trausti@dv.is
Börn láta viðvaranir ganga á samskiptavefnum Facebook:
Varað við níðingum
Varað við níðingum Viðvaranir ganga
barna á milli á Facebook þar sem varað
er við hópi þar sem grunsemdir eru um
annarlegan tilgang stofnenda.
Veitti ekki ráðgjöf
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
segist ekki hafa átt þátt í að leið-
beina Magma Energy um stofnun
dótturfyrirtækis þess í Svíþjóð, svo
það gæti keypt HS Orku hér á landi.
Katrín segir ráðuneytið ekki leið-
beina neinum um hvernig eigi að
fara á svig við lög. Hún segist hafa
farið yfir gögn í ráðuneytinu og ekki
séð nein merki þess að ráðuneytið
hafi tekið þátt í ákvörðunum Mag-
ma. Katrín segir það alltaf hafa legið
fyrir að Magma í Svíþjóð væri skúff-
ufyrirtæki.
Vændiskonur
eru brotaþolar
Hæstaréttarlögmaðurinn og formað-
ur Lögmannafélags Íslands, Brynjar
Níelsson, furðar sig á málflutningi
Höllu Gunnarsdóttur, talskonu Fem-
ínistafélags Íslands, þegar kemur að
lokuðum réttarhöldum gegn meint-
um vændiskaupendum. Hún hefur
barist hart fyrir opnum réttarhöld-
um yfir sakborningunum ellefu þar
sem engin rök séu fyrir lokuðu þing-
haldi. Því hafnar Brynjar sem segir
vændiskonurnar vera brotaþola í
málinu. „Vændiskaup er kynferðis-
brot gegn þeim sem selur vænd-
ið. Því eru þinghöld í vændiskaupa
málum lokuð eins og í öllum öðrum
kynferðisbrotamálum,“ segir Brynjar.
Fleiri taka strætó
Farþegum í strætó hefur fjölgað og
bílaumferð minnkað frá bankahrun-
inu. Þetta kemur fram í mælingum
Vegagerðarinnar sem greinir sam-
drátt í umferð bíla um allt land eftir
hrun en fyrir hrunið mátti greina
samfellda aukningu bílaumferðar
á Íslandi. Á sama tíma og umferð
einkabíla hefur minnkað hefur far-
þegum Strætó bs. hins vegar fjölgað
um nokkur prósent.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verkir í hásin?
Vandaðar stuðningshlífar
til meðferðar á hásinabólgu
Fjölbreytt úrval
4 | Fréttir
17. október 2011 Mánudagur
G
jaldþrota eignarhaldsfélag í
eigu Sævars Jónssonar, fyrr-
verandi landsliðsmanns í
knattspyrnu sem kenndur
er við skartgripa- og úra-
verslunina Leonard, skilur eftir
sig skuldir upp á nærri 312 millj-
ónir króna. Skiptum er lokið á búi
félagsins, samkvæmt auglýsingu
sem birtist í Lögbirtingablaðinu á
fimmtudaginn. Ekkert fékkst upp í
skuldir félagsins. Starfsemi eignar-
haldsfélagsins, sem heitir 1899 ehf.
en hét áður Leonard ehf., fólst í
„sölu á úrum og skartgripum“.
Þriðja kennitalan
Sævar hefur lent í talsverðu basli
eftir íslenska efnahagshrunið 2008.
Hann var úrskurðaður gjaldþrota
árið 2009 og skráði þá Leonard á eig-
inkonu sína, Helgu Daníelsdóttur.
Nafni rekstrarfélags Leonard, Leon-
ard ehf., var þá breytt í Ince ehf. og
stofnuð var ný kennitala með nafn-
inu Leonard ehf. Verslanirnar eru
reknar inni í því eignarhaldsfélagi
um þessar mundir. Þetta var þriðja
kennitalan sem til var með nafninu
Leonard ehf. en félagið sem í dag
heitir 1899 ehf. var fyrsta rekstrar-
félagið sem bar þetta nafn.
Vildi slíta tengslin við Baug
Í viðtali við DV í mars í fyrra sagð-
ist Sævar vera nauðbeygður að
færa Leonard yfir á konu sína. „Ég
er búinn að missa húsið og ég hef
engan áhuga á því að missa fleira.
Ég átti raunverulega engan annan
kost. Ég get ekki sett þetta á kenni-
töluna mína ef bankinn setur mig í
þrot,“ sagði Sævar. Hús sem Sævar
átti, við Súlunes 16, var yfirtekið
af Kaupþingi í fyrra og var sett inn
í eignarhaldsfélagið Kaupthing
Mortgages Fund. Í lok september á
þessu ári var það svo selt til eignar-
haldsfélagsins Akp ehf.
Í viðtalinu sagði Sævar að ein af
ástæðunum fyrir kennitöluskipt-
unum á rekstri Leonard væri að
rjúfa tengslin við fyrirtækið Baug
hf. Baugur átti hlut í Leonard þar til
skömmu fyrir bankahrunið og sat
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi for-
stjóri Baugs, meðal annars í stjórn
Leonard áður en félagið skipti um
kennitölu. „Við erum ekki með
neitt leikrit og erum ekki að skilja
skuldir eftir í gamla félaginu. Við
erum bara skíthrædd við þetta
Baugsdæmi allt saman og ef ein-
hver skítur kemur upp þar. Það er
aðallega þess vegna sem við gerum
þessa breytingu,“ sagði Sævar.
Tapaði gríðarlega á falli
krónunnar
1899 ehf. skilaði tapi upp á nærri 350
milljónir króna á hrunárinu 2008.
Stærsti hluti tapsins, nærri 193 millj-
ónir króna, var tilkominn út af geng-
ismun. Verðfall íslensku krónunnar
kom sér því afskaplega illa fyrir 1899
ehf. Í ársreikningi félagsins árið 2008
kom fram að af rúmlega 374 milljóna
króna skuldum félagsins hafi nærri
180 milljónir verið í erlendum mynt-
um. Félagið átti að greiða 230 millj-
ónir króna af þessum skuldum árið
2009.
Á móti þessum skuldum átti fé-
lagið eignir upp á rúmlega 157 millj-
ónir króna. Þar af voru fasteignir
félagsins metnar á nærri 143 milljón-
ir króna. Kaupin á þessum fasteign-
um voru gerð á árinu 2008 og voru
178 milljónir króna greiddar fyrir
eignirnar. Þessar fasteignir eru ekki
lengur í eigu eignarhaldsfélagsins
1899 ehf. samkvæmt upplýsingum
úr fasteignaskrá og ljóst er að ekk-
ert fékkst upp í skuldir eignarhalds-
félagsins.
n Úra- og skartgripaverslunin Leonard á sinni þriðju kennitölu n Fyrsta kennitalan komin í þrot upp á 312 milljónir króna n Tapaði gríðarlega á falli krónunnar „Við erum bara
skíthrædd við
þetta Baugsdæmi allt
saman og ef einhver
skítur kemur upp þar.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Milljóna gjaldþrot
Sævars í Leonard
Þorvaldur
bloggar á DV
Þorvaldur Gylfason, prófessor í hag-
fræði við Háskóla Íslands og fyrr-
verandi stjórnlagaráðsmaður, hefur
ákveðið að byrja að blogga á frétta-
vefnum DV.is. Þorvaldur hefur um
árabil vakið mikla athygli fyrir vand-
aðar greinar sínar, sem birst hafa í
Fréttablaðinu á undanförnum árum.
Auk þess að blogga á DV.is, mun
Þorvaldur eftirleiðis skrifa kjallara-
greinar í prentútgáfu DV.
Söluferli Iceland
komið af stað
Malcolm Walker, forstjóri og stofn-
andi Iceland Foods-verslunar-
keðjunnar í Bretlandi, ætlar ekki
að bjóða í hlutafé félagsins strax.
Slita stjórn gamla Landsbankans og
Glitnis hefur fyrstu umferð söluferl-
isins á næstunni. Þetta kemur fram
hjá breska dagblaðinu The Tele-
graph.
Walker á 23 prósenta hlut í Ice-
land Foods en margir töldu að hann
myndi kaupa hin 77 prósentin sem
bú gömlu bankanna reyna nú að
selja.
Þó er talið að Walker muni bíða
með kauprétt sinn þar til á síð-
ari stigum ferlisins en í samningi
Walker við hluthafa félagsins er
kveðið á um að hann þurfi bara að
jafna hæsta tilboðið í félagið til að
bera sigur úr býtum.
Tuttugu fjárfestar hafa fengið
upplýsingar um söluna en ekki er
víst að einhver bjóði í allan hluta
bankanna í fyrstu umferð söluferlis-
ins. Fjöldi Iceland Foods-verslana
er 780.
Samkvæmt Telegraph eru líkleg-
ustu kaupendur verslunarkeðjurnar
Morrisons og Asda.
Mikið um
hálkuóhöpp
Sjö minniháttar umferðaróhöpp
urðu aðfaranótt sunnudags auk
þess sem tvær bílveltur urðu
á Suðurlandsvegi. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu má að
mestu rekja öll óhöppin til mik-
illar hálku sem var víða á land-
inu þegar kvölda tók. Karlmaður
missti stjórn á bílnum sínum ná-
lægt Hvassahrauni og ung kona
velti bíl sínum í Njarðvík þar
sem hún var að aka hringtorg. Þá
veltu tveir erlendir ferðamenn
bílnum sínum utan við Selfoss.
Þeir sluppu ómeiddir en bíllinn
er óökufær. Talsverð snjókoma
var á heiðum á Vestfjörðum um
helgina. Þannig lokaðist Hrafns-
eyrarheiði á laugardag vegna
snjóflóða. Landsmenn eru hvattir
til að huga vel að færð í vikunni
því Veðurstofan gerir ráð fyrir
köldu veðri um nánast allt land
næstu daga.
M ín skoðun er sú að þetta sé algjörlega ólíðandi. Það er ekki bara mín skoðun heldur bæjar stjórnar og allra bæjar-
búa sem ég hef talað við,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hvera-
gerði. Íbúar bæjarins hafa ekki far-
ið varhluta af hrinu jarðskjálfta að
undan förnu. Skjálftana má rekja til
niðurdælingar um 900 sekúndulítra
af affallsvatni niður í borholur. Frá 8.
september, þegar dælingin hófst, hafa
mælst rúmlega 1.700 skjálftar á svæð-
inu. Á laugardag urðu tveir nokkuð
snarpir skjálftar, um fjórir á Richter að
stærð, og fundu íbúar Hveragerðis vel
fyrir þeim.
„Það er auðvitað ekki í lagi að það
sé verið að framkalla hér jarðskjálfta
sem ná fjórum á Richter á jafnvirku
háhitasvæði og um ræðir. Mér finnst
þetta afskaplega óeðlilegt,“ segir Aldís
en í síðustu viku var ályktað á fundi
bæjarstjórnar að krefjast skýringa frá
Orkuveitunni. Meðal annars hvort
hægt væri að sjá umfjöllun um mann-
gerðu skjálftana í umhverfismati fyrir
Hellisheiðarvirkjun sem starfsleyfi
hennar byggir á. „Ég stórefa að það sé
hægt því ég á ekki von á því að allir þeir
sérfræðingar sem á sínum tíma fjöll-
uðu um virkjunina hafi búist við þess-
um áhrifum,“ segir Aldís. Orkuveitan
hefur boðað til íbúafundar í Hvera-
gerði í kvöld þar sem farið verður yfir
stöðu mála.
Í fréttum RÚV á laugardag sagði
Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri
að íbúar þurfi ekki að hafa áhyggjur
af skjálftunum. Reynslan sýni að þeir
valdi ekki skemmdum. „Þó það sé ekki
hægt að útiloka það í einstökum tilvik-
um er ekki sérstök ástæða til að hafa
áhyggjur af því í þessum skjálftum,“
sagði Guðni og bætti við að ekki væri
ástæða til að hætta niðurdælingu. Al-
dís furðar sig á þessum ummælum.
„Ég er mjög undrandi á því að virtur
vísindamaður skuli vera með þá af-
stöðu.“ Aldís segir að nú sé beðið svara
við því hvort íbúar þurfi áfram að búa
við tíða jarðskjálfta eða hvort aðrar
leiðir séu færar til að íbúar geti verið í
rónni. einar@dv.is
„Algjörlega ólíðandi“
n Bæjarstjóri Hveragerðis er þreyttur á tíðum manngerðum jarðskjálftum
Óþolandi Aldís egir að það sé ekki
eðlilegt að bæjarbúar þurfi að búa við
manngerða jarðskjálfta. Orkuveitan hefur
boðað til íbúafundar í kvöld, mánudag,
þar sem staða mála verður rædd.
Mynd SigTryggur Ari
10. mars 2010
17. október 2011
26. október 2011
12. júlí 2010
10. mars 2010
„Arion banki og
Kaupthing Mort-
gage hafi aldrei heimil-
að endurgjaldslaus afnot
Helgu og Sævars af fast-
eigninni á því tímabili
sem þau dvöldu í henni.
6 | Fréttir
26. október 2011 Miðvikudagur
E ignarhaldsfélagið Skipti hf. tapaði rúmlega 8,1 milljarði króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Það ger-ir tap upp 22 milljónir króna hvern einasta dag ársins. Skipti hf. eiga og reka meðal annars Símann, Skjá einn og Mílu. Félagið Tæknivörur var síð-an selt úr samstæðunni fyrr á þessu ári. Skipti eru í eigu kröfuhafa Exista og hollenska fyrirtækisins Exista B.V., en var áður í eigu Bakkabræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona þeg-ar þeir áttu Exista.
Skuldir félagsins eru gríðarlegar. Samtals nema þær 77,7 milljörðum króna, en lækkuðu þó á milli ára því í lok árs 2009 voru þær 85,7 milljarðar króna.
Eigið fé Skipta er aftur á móti 27,8 milljarðar króna en félagið þarf að
borga um 1.853 milljónir króna í af-borganir af skuldum á næsta ári. Í ársreikningi félagsins er ekki til-greint nákvæmlega hvaða fyrirtæki í eigu Skipta eru á bak við þenn-an gríðarlega taprekstur. Skjár einn hefur enn ekki skilað ársreikningi, en tap á rekstri sjónvarpsstöðvar-innar hefur verið verulegt síðustu ár. Skjár einn hefur tapað milljón á dag að meðaltali síðustu fjögur ár, en Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta, sagði í viðtali við DV að hann gerði ráð fyrir því að áfram yrði tap á rekstri Skjás eins.
Langstærsta fyrirtækið innan Skiptasamsteypunnar, Síminn hf., hefur hins vegar skilað inn ársreikn-ingi. Ljóst er að stór hluti af tapi Skipta skýrist af taprekstri Símans, en tapið þar á síðasta ári nam alls 7.052
milljónum króna. Þar af var rekstrar-tap um 4,7 milljarðar en afgangurinn er að mestu vaxtagjöld. Eignir Sím-ans eru metnar á 48 milljarða króna.
Þar af er langstærsta eignin við-skiptavild sem er metin á 38,4 millj-arða króna.
valgeir@dv.is
Bullandi tap hjá Símanum í fyrran Ársreikningar Símans og Skipta sýna mikið tap á rekstri
Síminn Langstærsta eign Símans er viðskiptavild upp á rúma 38 milljarða króna.
V
ið Mosprýði 10 í Garðabæ stendur tæplega 500 fer-metra nýbyggt glæsihús þar sem Sævar Jónsson, fyrr-verandi knattspyrnumaður og stofnandi skartgripa- og úraversl-unarinnar Leonard, býr ásamt fjöl-skyldu sinni. Húsið er skráð á Helgu Daníelsdóttur, eiginkonu Sævars, en sjálfur var hann úrskurðaður gjald-þrota árið 2009. Það ár missti hann einnig hús fjölskyldunnar við Súlu-nes 16 á nauðungaruppboði hjá Ari-on banka.
Við gjaldþrotið skráði Sævar Leonard á Helgu og á sama tíma var nafni rekstrarfélags Leonard, Leonard ehf., breytt í Ince ehf. og ný kennitala stofnuð með nafninu Leonard ehf. Frá árinu 2009 hefur verslunin Leonard í tvígang skipt um kennitölu.
Skuldir upp á 312 milljónirDV greindi frá því fyrr í október að skiptum á þrotabúi eignarhalds-
félagsins Leonard ehf. væri lok-ið. Var það auglýst í Lögbirtinga-blaðinu. Félagið skilur eftir sig skuldir upp á tæpar 312 milljónir króna, en ekkert fékkst upp í skuldir félagsins.
Í viðtali við DV í mars í fyrra sagðist Sævar vera nauðbeygður að færa Leonard yfir á konu sína. „Ég er búinn að missa húsið og ég hef engan áhuga á því að missa fleira. Ég átti raunverulega engan annan
kost. Ég get ekki sett þetta á kenni-töluna mína ef bankinn setur mig í þrot,“ sagði Sævar. Hann tók fram að þau væru ekki með neitt leik-rit og sagði að engar skuldir hefðu verið skildar eftir í gamla félaginu. Sævar sagði jafnframt að ein af ástæðum þess að félagið hefði skipt um kennitölu væri til að rjúfa tengslin við Baug, en fyrirtækið átti hlut í Leonard þangað til rétt fyrir hrun.
Glæsilegt útsýni
Þrátt fyrir raunir í fjármálum síð-astliðin tvö ár ætti ekki að væsa um Sævar í nýja einbýlishúsinu við Mos-prýði. Sjálft húsið er um 420 fermetr-ar á þremur hæðum og á jarðhæðinni er 60 fermetra innbyggður bílskúr. Mosprýði er í nýju hverfi í Garða-bænum sem staðsett er í hraunjaðr-inum. Af efstu hæð hússins er því væntanlega glæsilegt útsýni til allra átta; yfir hraunið, Álftanesið, Reykja-vík og Esjuna.
Einbýlishúsið við Mosprýði er þó ekki eina glæsieignin í eigu Leonard- hjónanna, en í fyrrasumar lagði Helga inn umsókn hjá sveitarstjórn Reyk-hólahrepps fyrir leyfi til að reisa yfir 200 fermetra sumarhús við Hafrafell í Reykhólahreppi í Berufirði. Sam-kvæmt heimildum DV er húsið nú þegar risið og fjölskyldan ætti því einnig að eiga gott afdrep í sveitinni.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Ég er búinn að
missa húsið og ég
hef engan áhuga á því að
missa fleira.
Glæsivilla Sævar og fjölskylda fluttu nýlega inn í tæplega 500 fermetra einbýlishús við Mosprýði í Garðabæ. Húsið er skráð á konu Sævars, en hann var úrskurðaður gjaldþrota árið 2009.
Súlunes 16 Sævar var úrskurðaður gjaldþrota árið 2009 og missti sama ár húseignina að
Súlunesi 16 á nauðungaruppboði hjá Arion banka.
Ný hagspá ASÍ:
Spá doða
fram undan
Í nýrri hagspá ASÍ er gert ráð fyrir að verstu afleiðingar hrunsins séu að baki og fram undan sé hægur bati í efnahagslífinu. Hagspáin birtist á vef ASÍ. Þar segir að áhyggjuefni sé hvað efnahagsbatinn fram undan sé veik-ur; við blasi doði í hagkerfinu þar sem hvorki takist að endurheimta fyrri lífskjör né vinna bug á atvinnu-leysinu á komandi árum. Spáin nær til ársins 2014.
Því er spáð að landsframleiðsla aukist hægt á næstu árum og að hagvöxtur verði 2,4 prósent á þessu ári, um 1 prósent á næsta ári, 2,7 prósent árið 2013 og 1,5 prósent árið 2014. Hagur heimilanna vænk-ist á næstu misserum þó víða verði þröngt í búi og atvinnuleysi verði áfram mikið. Því er spáð að í lok árs 2014 verði atvinnuleysið um 5 pró-sent. „Útlit er fyrir litlar fjárfestingar í hagkerfinu á spátímanum. Mikil óvissa ríkir um framkvæmdir við álver í Helguvík og innanríkisráð-herra hefur slegið út af borðinu allar áætlanir um að gera átak í vegamál-um á Suðvesturlandi með sérstakri fjármögnun. Það er því ekki gert ráð fyrir þessum framkvæmdum í spánni. Þá valda erfiðleikar á er-lendum fjármálamörkuðum aukinni óvissu varðandi fjárfestingar,“ segir enn fremur.
Loks kemur fram að eina leiðin til að bæta lífskjör og draga úr atvinnu-leysi sé að auka verðmætasköpun þjóðarbúsins. Uppbygging í Helgu-vík og á Norðurlandi, með orku- og iðjuverum, gæti aukið hagvöxt um 3 prósent sem myndi hafa veruleg áhrif á atvinnustigið, til hins betra.
Fara í mál
vegna Glitnis
„Þetta eru rúmlega sjötíu einstak-lingar en í þessu tilfelli erum við bara að stefna fyrir einn einstakling og eitt fyrirtæki,“ segir Unnsteinn Elvarsson, lögmaður hóps fólks sem undanfarin misseri hefur undirbúið málsókn vegna hlutabréfaviðskipta í Glitni fyrir hrun.
Um er að ræða rúmlega sjötíu einstaklinga en upphaflega stóð til að fara í hópmálsókn. Ákveðið var að fara ekki hópaleiðina vegna þess að lögin bjóða ekki upp á það. Málið snýst um hlutabréfakaup í Glitni á tilteknu tímabili árið 2008.
Stefnan, sem verður þingfest þann 1. nóvember, er í þrennu lagi; gegn íslenska ríkinu, Fjármálaeftir-litinu og Kauphöllinni. „Við sækj-um þetta á ríkið vegna yfirlýsingar þess efnis að það ætlaði að styðja bankana og gefa 600 milljónir evra í hlutabréfaaukningu,“ segir Unn-steinn. Um leið og þessi yfirlýsing var gefin út opnaði Fjármálaeftir-litið fyrir viðskipti með bréf í Glitni þrátt fyrir að þeir hefðu lokað fyrir viðskiptin daginn áður. Fjöldi fólks taldi að þarna væri komið gott fjár-festingartækifæri og keypti bréf fyrir talsverða fjárhæð. Nokkrum dögum síðar féll Glitnir.
n Sævar Jónsson býr ásamt fjölskyldunni í nýju 500 fermetra einbýlishúsin Byggðu einnig sumarhús í Berufirði n 312 milljarða skuldir sitja eftir í félaginu
Gjaldþrota
í Glæsihúsi
Súlunes 16 Einbýlishúsið að Súlunesi 16 sem áður var í eigu Helgu Daníelsdóttur og
Sævars Jónssonar í Leonard.