Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Page 10
10 Fréttir 6. júní 2012 Miðvikudagur
Úthýst af fundi Brims
n Finnbogi Vikar ekki vinsæll hjá útgerðarmönnum
F
ékk ekki að fara inn, segir Finn-
bogi Vikar Guðmundsson,
laganemi við Bifröst, um op-
inn starfsmannafund útgerðar-
félagsins Brims sem haldinn var á
þriðjudag. Finnbogi er fyrrverandi
fulltrúi Borgarahreyfingarinnar í
samráðs- og sáttanefnd um sjávar-
útveg vegna fyrirhugaðra breytinga á
fiskveiðistjórnunarkerfinu en nefndin
starfaði árin 2009 og 2010. „Þeir meira
að segja tóku á móti mér úti á plani
og tilkynntu að mér hefði ekki verið
boðið,“ segir hann. „Við buðum bara
alþingismönnum og fjölmiðlum en
þetta var starfsmannafundur,“ segir
Guðmundur Kristjánsson, forstöðu-
maður Brims, um málið. „Ef hann
hefði bara hringt í mig. Hann talaði
aldrei við mig. Ég skal tala við Finn-
boga hvenær sem er,“ segir hann að-
spurður hvort ekki hafi mátt túlka
fréttatilkynningar og boðun fundar-
ins líkt og um opinn fund væri að
ræða.
Finnbogi Vikar skilað á sínum
tíma séráliti í nefndinni þar sem hann
sagðir skipun nefndarinnar hafa ver-
ið mistök. Jafnframt segir hann að
samningaleiðin, sú sem nefndin taldi
farsælasta verstu mögulega útkomu
í málinu. Þá vann Finnbogi ásamt
Þórði Má Jónssyni, lögfræðingi og
varaþingmanni Samfylkingarinnar,
skýrslu um kvótakerfið sem bar heitið
Fiskveiðistjórnunarkerfið: Brask á
kostnað þjóðarinnar. Hann hefur
áður lent í því að vera vísað af fundum
á vegum útgerðarmanna. DV sagði frá
því í október 2009 þegar Finnbogi var
rekinn á dyr á aðalfundi LÍÚ, fundi
sem hann hafði áhuga á að sitja sem
nefndarmaður í áður-
nefndri samráðs- og
sáttanefnd.
Ekki velkominn
Finnboga var vísað á dyr
á fundi Brims á þriðjudag.
Fnykurinn kom
upp um dópsala
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann fíkniefni við húsleit á tveimur
stöðum í Reykjavík fyrir helgina.
Karl á þrítugsaldri var handtekinn
í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti en
grunur lék á að kannabisefni væru
seld þaðan. Mikla kannabislykt
lagði frá íbúðinni en innandyra
fundust um 170 grömm af mari-
júana í söluumbúðum.
Lögreglan lagði sömuleiðis
hald á tæplega 50 grömm af mari-
júana í söluumbúðum í kjallara-
íbúð í Vesturbænum. E-töflur
fundust einnig á staðnum en gest-
komandi maður í íbúðinni var
handtekinn í þágu rannsóknar-
innar.
Húsráðandinn var hins vegar
fjarstaddur en hann var kallaður á
vettvang og yfirheyrður. Lögreglu
höfðu borist tilkynningar um tíð-
ar mannaferðir í íbúðina á öllum
tímum sólarhrings og þegar hún
mætti á vettvang lagði mikinn
kannabisþef frá íbúðinni.
Eldur í sorp-
eyðingarstöð
Eldur kom upp í sorpeyðingar-
stöðinni Kölku í Reykjanesbæ
snemma þriðjudagsmorguns og
var slökkvilið Suðurnesja kallað
út um sexleytið vegna brunans.
Tókst að ráða niðurlögum eldsins
en rífa þurfti einn gafl hússins til
að komast að eldinum. Þeir sem
voru að störfum í byggingunni
komust allir út af sjálfsdáðum en
eldsupptök er ókunn. Lögreglan
á Suðurnesjum fer með rann-
sókn málsins. Þrátt fyrir skemmd-
ir á byggingunni sluppu öll tæki
óskemmd úr brunanum svo starf-
semin gat haldið áfram á þriðju-
dag.
Ú
tgerðarfyrirtækið Samherji
hefur veitt á milli 180 og 280
þúsund tonn af fiski á hverju
ári við strendur Vestur-Afríku
síðastliðin fimm ár. Aðallega er um
að ræða hestamakríl úti fyrir strönd-
um Máritaníu og Marokkó nyrst á
vesturströnd álfunnar en Samherji
hefur nú fært sig sunnar, niður til
Namibíu, syðst í álfunni. DV hef-
ur fjallað um þessar veiðar síðustu
vikurnar og hefur meðal annars
greint frá því að á milli 30 og 40 pró-
sent af tekjum Samherja megi rekja
til Afríkuveiðanna – rúmlega 20
milljarða króna árið 2010.
Til samanburðar má geta þess
að heildarkvóti tuttugu stærstu út-
gerðarfélaga landsins, talið í þorsk-
ígildistonnum, nemur tæplega 248
þúsund tonnum á ári. Þar af er Sam-
herji, sem er í öðru sæti yfir kvóta-
hæstu útgerðir landsins, með kvóta
upp á rúmlega 24 þúsund þorsk-
ígildistonn á hverju fiskveiðiári.
Samherji veiðir því árlega um það
bil tíu sinnum meira í Afríku en á Ís-
landi þegar litið er á aflamark félags-
ins í þorskígildistonnum hér á landi.
Heildaraflinn 500 þúsund tonn
Samherji keypti útgerðina í Afríku,
sem þeir kalla Kötlu Seafood, af
Sjólaskipum um miðbik árs 2007 og
hefur síðan fiskað mjög vel í álfunni.
Í frétt á Stöð 2 í ágúst 2010 kom til
dæmis fram að samkvæmt gögnum
frá Samherja sem fréttastofan hafði
undir höndum hefði Samherji veitt
500 þúsund tonn af fiski á Íslandi
og í útlöndum árið 2007. Þar kom
fram að 117 þúsund tonn af öllum
fisktegundum, meðal annars loðnu,
hefðu veiðst hér við land og rúmlega
380 þúsund tonn hefðu verið veidd
erlendis.
Forsvarsmenn Samherja vildu
ekki tjá sig við Stöð 2 um hvernig afl-
inn skiptist á milli einstakra landa
en sögðu þó að stærsti hlutinn af
veiðunum erlendis væri aflinn sem
veiddur hefði verið í lögsögu Márit-
aníu og Marokkó í gegnum Kötlu
Seafood.
Ótrúleg veiði
Samanlagður hagnaður Samherja
af Afríkuveiðunum á árunum 2007
til 2010 nemur tæplega 139 milljón-
um dollara, líkt og DV hefur greint
frá. Miðað við gengi dollarans um
þessar mundir nemur þessi upp-
hæð tæplega 17,6 milljörðum króna
en þegar upphæðin er reiknuð út
frá gengi krónunnar í lok árs 2008
nemur hún tæplega 16,7 milljörð-
um króna. Mestur var hagnaðurinn
2008 en þá nam hagnaður Samherja
af veiðunum 11,9 milljörðum króna.
DV hefur heimildir fyrir því að
veiðar Samherja í Afríku hafi geng-
ið sérstaklega vel á árunum 2007 til
2009, líkt og hagnaðartölur hér að
framan bera með sér. Þá var veiði sjö
togara þeirra um 40 þúsund tonn á
ári að meðaltali. Síðastliðin tvö ár,
2010 og 2011, hefur Samherji verið
við veiðar með sex togara sem hver
um sig hefur veitt á bilinu 30 til 35
þúsund tonn.
„ Þá var veiði sjö
togara þeirra um
40 þúsund tonn á ári að
meðaltali.
n Samherji veiðir árlega um tíu sinnum meira í Afríku en á Íslandi
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Veiða allt að 280
þúsund tonn á ári
Öflugt skip Kristina EA er stærsta
og fullkomnasta skip íslenska
flotans og hefur verið notað við
makrílveiðarnar í Afríku.
Milljarðar í
laxeldinu
Unnið er að uppbyggingu á laxeldi
á vegum Fjarðalax, sem er í eigu
North Landing, sem gæti gefið 10
þúsund tonna ársframleiðslu eftir
um það bil fimm ár. Laxeldið mun
byggjast upp á sunnanverðum
Vestfjörðum og verður með nátt-
úrulega vottaðan lax. Vonast er til
að útflutningstekjur gætu skilað
um 6 til 8 milljörðum. Þetta kemur
fram í viðtali í sjómannadagsblaði
Fiskifrétta við Arnór Björnsson,
aðaleiganda Fjarðalax og North
Landing. North Landing er stað-
sett á austurströnd Bandaríkjanna
og flytur inn lax og vinnur fyrir
stórkaupendur og nú þegar hafa
verið settir um 2 milljarðar króna í
uppbyggingu á laxeldið fyrir vest-
an. Arnór segir að forsendur fyr-
ir rekstrinum séu að laxinn verði
vottaður sem náttúruleg fram-
leiðsla. Til að fá vottun þarf lax-
eldið að vera svæða- og kynslóða-
skipt.