Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Side 13
„LýðveLdi en
ekki einveLdi“
Eldflaugar geta borið kjarnavopn
n Pakistanar geta ráðist á hernaðarlega mikilvæga staði á Indlandi
P
akistönsk stjórnvöld hafa gert
tilraunir með eldflaugar sem
eru nógu öflugar til að bera
kjarnorkuvopn. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá pakistanska hern-
um. Sérfræðingar sem bandaríska
blaðið New York Times hefur rætt við
vegna yfirlýsingarinnar telja að með
þessu séu pakistönsk stjórnvöld að
senda indverskum stjórnvöldum að-
vörun. „Pakistan er að komast á það
stig að geta brugðist við eldflaugaárás
frá Indlandi,“ segir Mansoor Ahmed,
sérfræðingur í varnarmálum Pakist-
ans. „Hugmyndin er að geta komist af í
árás og að geta svarað fyrir hana.“
Eldflaugin getur borið bæði kjarn-
orkuvopn og aðrar sprengjur sam-
kvæmt tilkynningu hersins. Pakistönsk
stjórnvöld geta notað eldflaugarnar til
að ráðast á hernaðarlega mikilvæga
staði á Indlandi. Ahmed segir að séu
eldflaugarnar raunverulega jafn góð-
ar og pakistanski herinn heldur fram
þýði það að pakistönsk stjórnvöld geti
varist hugsanlegum árásum Indverja
meðfram öllum landamærum ríkj-
anna tveggja.
Eins konar kalt stríð er á milli ríkj-
anna tveggja og virðist sem bæði ríki
keppist ötullega við að færa vopnasafn
sitt í nútímalegra horf. Ahmed segir
skilaboðin vera skýr og að tilgangur-
inn sé fyrst og fremst að láta vita að
Pakistanar standi Indverjum ekki að
baki hvað varnarmál varðar.
Erlent 13Miðvikudagur 6. júní 2012
M
ikið hefur verið um dýrð-
ir víða um breska sam-
veldið í tilefni af 60 ára
krýningarafmæli El-
ísabetar II Bretadrottn-
ingar. Það eru þó ekki allir sem taka
þátt í veisluhöldunum því vaxandi
hópur Breta er andsnúinn kon-
ungdæminu og vill stofna lýðveldi.
Hópur breskra lýðveldissinna mót-
mælti konungdæminu á sama tíma
og skrúðganga var farin til heiðurs
drottningunni.
„Við viljum ekki fagna réttindum
og völdum sem erfast. Skilaboð-
in sem við erum að senda til þeirra
milljóna sem eru andsnúnar kon-
ungdæminu að það er hreyfing sem
þau geta tekið þátt í. Það eru ekki
allir í landinu hrifnir af konung-
dæminu. Það er minnihlutinn. Við
munum halda áfram þangað til kon-
ungdæmið verður afnumið,“ segir
Graham Smith, framkvæmdastjóri
Republic, samtaka lýðveldissinna í
Bretlandi, á mótmælafundinum.
Var haldið frá fögnuðinum
Mótmælendurnir héldu á skiltum
sem meðal annars var áletrað á
„völdin til fólksins“ og „lýðveldi en
ekki einveldi“. Mótmælin fóru frið-
samlega fram þó að kölluð hafi ver-
ið slagorð og ávörp flutt með að-
stoð gjallarhorns. Lögreglan hafði
gert sérstakar ráðstafanir vegna
mótmælanna og settar voru upp
girðingar til að halda mótmæl-
endunum í hæfilegri fjarlægð frá
skrúðgöngunni.
Mótmælendur sögðu í samtali
við breska blaðið Guardian að ósk-
að hafi verið eftir því við lögregluyf-
irvöld að fá að komast í sjónfæri við
hátíðarhöldin. „Konungsfjölskyldan
hefur lifað meira og minna allt sitt
líf vernduð frá allri gagnrýni – með
þessum mótmælum gefum við þeim
tækifæri til að sjá hversu öflug hreyf-
ing lýðveldissinna í Bretlandi er.“
Vilja alls ekki Karl sem konung
Af þeim mótmælendum sem
blaðamaður Guardian ræddi við
á fundinum virtust flestir sam-
mála um að þeir vildu ekki að Karl
Bretaprins yrði næsti þjóðhöfðingi
þeirra. Hann er afar umdeildur á
meðal bresku þjóðarinnar, jafn-
vel á meðal konungssinna. Lík-
legt þykir að hann muni taka við
konungdæminu á næstu árum en
móðir hans, drottningin, er orðin
86 ára. Ljóst þykir hins vegar að
lýðveldissinnar muni berjast hart
gegn því að nokkur maður muni
koma í stað Elísabetar II Breta-
drottningar.
Leiðtogar og meðlimir sam-
takanna hafa sagst ætla að halda
baráttu sinni áfram allt þangað til
markmiðinu verði náð. Það er þó
alls óvíst hvort það muni nokkurn
tímann gerast.
n Lýðveldissinnar í Bretlandi mótmæltu á krýningarafmælishátíð
„Við
viljum
ekki fagna
réttindum og
völdum sem
erfast
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Ekki allra Drottningin nýtur bæði hylli og
óvinsælda meðal bresku þjóðarinnar.
Friðsamlegt Mótmælin sem haldin voru á sunnudag fóru friðsamlega fram en voru þó hávær. Mynd REutERs
uppfæra vopnabúrið Svo virðist vera
sem Pakistanar séu að reyna að nútímavæða
vopnabúr sitt og koma þeim skilaboðum til
indverskra stjórnvalda að þeir standi þeim
ekki að baki í varnarmálum.
Sólarflugvél á
milli heimsálfa
Tveir ævintýramenn hafa skipst
á að fljúga flugvél sem aðeins
er knúin sólarorku frá Sviss til
Madrid, höfuðborgar Spán-
ar, og þaðan til Rabat, höfuð-
borgar Marokkó. Þetta er í fyrsta
skipti sem flugvél sem aðeins er
knúin sólarorku er flogið á milli
heimsálfa og var það Bernard
Piccard sem stjórnaði vélinni yfir
mörk Evrópu og Afríku. Andre
Boschberg flaug hins vegar vél-
inni frá Sviss til Madrid í síðasta
mánuði. Flugið er undirbúningur
fyrir flug í kringum hnöttinn árið
2014.
Milljónir vegna
kynsjúkdóms
Bandarísk kona á fimmtugs-
aldri hefur unnið mál gegn 69 ára
gömlum karlmanni eftir að mað-
urinn smitaði konuna af kynsjúk-
dómi. Kviðdómur í máli konunn-
ar dæmdi manninn til að greiða
henni 900.000 dali, jafnvirði 117
milljóna króna, í skaðabætur.
Maðurinn smitaði konuna eftir
fjórða stefnumótið sem þau áttu.
Konan hélt því fram að maðurinn
hafi sagst ætla að nota verjur en
að hann hafi ekki gert það og þess
vegna smitað konuna. Banda-
ríska blaðið Oregonian greinir frá
þessu. Dómurinn komst að því að
atvikið væri 75 prósent manninum
að kenna. „Okkur fannst að hann
hefði átt að segja henni frá þessu
– honum bar skylda til þess,“ sagði
einn kviðdómaranna í samtali við
blaðið. Málsóknir vegna smitunar
kynsjúkdóma eru afar fátíðar þar
sem sérstaklega erfitt er að sanna
að brot hafi átt sér stað. Í þessu til-
felli var það hins vegar svo að kon-
an gat sýnt fram á að hún hafi ver-
ið ósmituð nokkrum vikum áður
en hún svaf hjá manninum.
Dómari lagði
kapal í vitna-
leiðslum
Réttarhöldin yfir Anders Behring
Breivik hafa staðið í átta vikur og
virðist vera kominn þreyta í þá
sem vinna við þau. Mynd náðist af
einum dómaranna í málinu vera
að spila tölvuspil í miðjum vitna-
leiðslum. Samkvæmt breska blað-
inu Independent spilaði dómar-
inn kapal í tölvunni sinni í heilar
fimmtán mínútur áður en gert
var hádegishlé á réttarhöldunum.
Talsmaður dómsins hefur svarað
fyrir atvikið með því að segja að
menn hafi mismunandi leiðir til
að halda athyglinni.