Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Side 17
Vandræðalegri sjónvarpsþáttur
hefur varla sést á Íslandi
3 til 4 krónur
í viðbót
En þið stjórnið ekki
dagskrárgerð Stöðvar 2
Egill Helgason um forsetaframboðskappræðurnar á Stöð 2. – FacebookRunólfur Ólafsson um eðlilega lækkun eldsneytisverðs miðað við heimsmarkaðsverð.Þorbjörn Þórðarson fréttamaður á Stöð 2 við ósátta forsetaframbjóðendur. – Stöð 2
Eftirlit með kynferðisbrotamönnum
Varúð: Sólsjúkir
Í
gamla daga var talað um að sumt fólk
væri tunglsjúkt. Reynslan sýndi þá
að fólk sýndi af sér aukna brjálsemi
þegar tunglið væri fullt. Enska orðið
yfir fólk sem er brjálað eða óútreikn-
anlegt í hegðun er „lunatics“, dregið af
orðinu „luna“, sem merkir tungl.
Það lá hins vegar í augum uppi í byrj-
un sumarsins að tunglið er ekki það sem
ærir fólk hér á landi. Á Íslandi verður
fólk ekki tunglsjúkt, heldur sólsjúkt.
Það var auðvelt að greina muninn á
Íslendingum og erlendum ferðamönn-
um í miðbæ Reykjavíkur í sumarveðr-
inu síðustu daga. Um leið og sólin sýndi
sig og hitastigið skreið yfir 10 gráðurnar,
flettu Íslendingarnir sig klæðum og há-
mörkuðu bera húðfleti, líkt og þeir yrðu
að ná hverjum einasta geisla.
Fólk sást hlaupa inn til sín örstutta
stund, og út aftur, til að ná að uppfæra
statusinn á Facebook: „Geeeðveikt veð-
ur!“ Og það var eitthvað geðveikt við
þetta.
Sumir geta sagt að það sé ekkert
óeðlilegt að vilja vera úti í sólinni. Með
sama hætti er hægt að segja að það sé
ekkert aðfinnsluvert við að vilja drekka
áfengi endrum og eins. Það er hins vegar
ýmislegt að því að vera áfengissjúkur.
Þótt sólsjúkir hefðu verið úti allan
daginn og væru orðnir snarkandi
útfjólubláir, héldu þeir samt áfram.
„Eigum við ekki að borða úti?“ spurðu
þeir. „Ætlarðu virkilega að vera inni í
þessu veðri?“ spurðu þeir aðra, eins
og fólk væri að brjóta af sér með því að
vera inni brot af deginum. Þeim er al-
veg sama þótt líkami þeirra sé farinn að
skaðast af sólinni og þótt það sé miklu
þægilegra inni. Eitthvað innra með
þeim dregur þá út undir sólina og held-
ur þeim þar. Síðla kvölds berjast hinir
sólsjúku við að halda sér berum í kvöld-
svalanum, eins lengi og geislarnir skína,
til að missa ekki af neinu.
Fyrstu ummerkin um að fólk sé
haldið sjúkdómnum sólsýki sjást um
leið og það sést til sólar úti. Fyrst byrja
þeir að iða. Þeir sýna augljósa vanlíðan
og horfa í kringum sig, vonandi að aðrir
deili tilfinningunni með þeim og fólk
hætti að vinna til að láta sólina skína
á bert holdið. Þeim verður fljótlega
ómögulegt að vera innandyra. „Hvernig
getið þið verið inni í þessu veðri?“ Þeir
ráða ekki við það, að áður en þeir vita af
er sólsýkin farin að gera þeim ókleift að
vinna. Sumir þeirra svíkjast síðan undan
vinnu vegna sólsýkinnar.
Í miðbæ Reykjavíkur má sjá hræði-
legar afleiðingar af þessu. Þar eru þræl-
ar sólsýkinnar sitjandi á bekkjum allan
liðlangan daginn. Fólkið, sem fór einn
daginn úr vinnunni til að fá sér smá
sól, en sneri aldrei aftur. Sjúkdómurinn
svipti þá getunni til að lifa innandyra á
eigin heimili og hrakti þá til þess að ger-
ast útigangsmenn.
Það er allt í lagi að vilja vera úti í sól-
inni. En þegar fíknin er farin að trufla
vinnuna þína, stjórna hversdagslífinu
og valda þér líkamstjóni er kominn tími
til að hugsa sig um.
Svarthöfði
Einmana mávur Þessi afslappaði mávur lét fara vel um sig á þaki Bessastaðakirkju í blíðunni á dögunum. Hann sleikti sólina eins og flestallir landsmenn. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 6. júní 2012
1 „Tek ekki í höndina á svona manni“
Svavar Halldórsson reiddist Ástþóri
Magnússyni vegna ummæla um Þóru
Arnórsdóttur.
2 Öryggisvörður barði mann á Hlemmi
Vefsíða Grapevine birti sláandi
myndband af öryggisverði kasta manni
á dyr með offorsi.
3 Starfsmenn Samherja látnir skrifa undir trúnaðaryfir-
lýsingu
Starfsmenn útgerðarfyrirtækisins
hafa fengið þau tilmæli að þeir sendi
ekki fjármálaupplýsingar og fleira
sín á milli í netföngum Samherja.
Fyrirtækið sætir rannsókn.
4 Ástþór segist hafa kallað Þóru „fjölmiðlagæs“
Forsetaframbjóðandinn fyrrverandi,
Ástþór Magnússon, leiðréttir Svavar
Halldórsson.
5 Dauðhræddar sjónvarps-stjörnur
Steindi Jr. og Auðunn Blöndal lentu í
kröppum dansi í fallhlífarstökki við
tökur á Evrópska draumnum.
6 Rólegur morðingi handtekinn Luka Rocco Magnotta, eftirlýstur
klámmyndaleikari, var loks handtek-
inn í Berlín. Hann myrti kærasta sinn
og borðaði hluta af honum.
7 Finnboga Vikar úthýst af fundi Brims
Andstæðingur fiskveiðistjórnunarkerf-
isins ekki velkominn á fund Guðmundar
Kristjánssonar útgerðarmanns.
Mest lesið á DV.is
R
eglulega kemur upp umræða um
mögulegt eftirlit með kynferðis-
brotamönnum eftir að afplánun
dóms lýkur. Í umræðunni vegast
á ólík sjónarmið. Annars vegar hin
hefðbundnu grunngildi réttarríkisins:
Einstaklingur brýtur af sér, hlýtur dóm
og að aflokinni refsingu er viðkomandi
frjáls til að hefja nýtt líf. Hins vegar það
sjónarmið að standi almenningi hætta
af einstaklingi sem dæmdur hefur verið,
geti verið ástæða til að halda honum frá
samfélaginu lengur en kveðið er á um í
refsidómi eða hafa eftirlit með honum.
Hið síðara er nú í almennri umræðu hér
á landi vegna einstaklinga sem brot-
ið hafa alvarlega gegn börnum. Ég hef
sagt að hér þurfum við að fara fram af
yfirvegun; af virðingu fyrir réttarríkinu
en jafnframt gera það sem unnt er til að
vernda börn fyrir ofbeldismönnum.
Lagafrumvarp í burðarliðnum
Í gildandi lögum er gert ráð fyrir þeim
möguleika að láta brotamann sæta frek-
ari öryggisráðstöfunum að refsingu lok-
inni ef telja má af glæp hans og andlegu
ástandi að hann „muni drýgja afbrot af
vana eða í atvinnuskyni og sé því hættu-
legur umhverfi sínu“. Þetta er hægt að
gera með refsidómi eða með sérstöku
máli sem ákæruvaldið höfðar. Í reynd
hefur þetta lagaákvæði ekki nýst eins
og að var stefnt. Tilraunir til að beita því
gegn sakhæfum brotamönnum sem
fremja ítrekað mjög alvarleg brot hafa
ekki skilað árangri. Því eru það eingöngu
ósakhæfir brotamenn sem hafa verið
vistaðir á stofnunum í ótilgreindan tíma.
Í innanríkisráðuneytinu eru nú í
undirbúningi lagabreytingar til að unnt
verði að láta kynferðisafbrotamenn með
barnagirnd á háu stigi sæta öryggis-
ráðstöfunum eftir afplánun refsidóma.
Frumvarpsgerð er á lokastigi og drög
verða sett á vef innanríkisráðuneytis-
ins til umsagnar áður en langt um líð-
ur. Stefni ég að því að leggja frumvarpið
fram á haustþingi.
Alltaf með dómi
Verði þetta frumvarp að lögum aukast
möguleikar á eftirliti með hættulegum
glæpamönnum eftir að afplánun lýkur
en grundvallarforsenda er að mínu mati
sú að slíkt ákvarðist með dómi. Það tel
ég einu færu leiðina, enda getur það
vegið að mannréttindum að vista menn
án dóms eða að hafa eftirlit með þeim
án þeirrar vitneskju eftir að þeir hafa
tekið út sína refsingu. Gegn öðru hef
ég viljað gjalda varhug. En með þessari
nálgun gæti ákæruvaldið höfðað sérstakt
mál fyrir lok afplánunar í tilfellum þar
sem maður var dæmdur í fangelsi fyrir
alvarlega glæpi, ekki síst gróf ofbeldis-
eða kynferðisbrot, eða tilraun til slíkra
brota, ef líklegt er talið, í ljósi sakarfer-
ils og andlegs ástands viðkomandi, að
hann muni endurtaka brot sín eftir að
afplánun lýkur.
Rafrænt eftirlit
Ekki væri þó alltaf horft til þess að vista
menn á meðferðarstofnun eða í fangelsi.
Aðrar öryggisrástafanir koma til greina
svo sem rafrænt eftirlit. Brotamaðurinn
gæti þá hafið líf í samfélaginu að nýju
en með þeim skilyrðum að hann sé ekki
í grennd við mögulegan brotaþola. En í
einhverjum tilfellum, t.d. þar sem um er
að ræða ítrekuð brot gegn börnum, getur
verið ástæða til að vista menn í fangelsi
eða á annarri stofnun. Til að þetta gangi
eftir þurfa vistunarúrræði að vera fyrir
hendi, bæði innan heilbrigðiskerfisins
og fangelsiskerfisins. Nú horfir til betri
vegar í fangelsismálum eftir að samþykkt
hefur verið að reisa nýtt fangelsi en það
breytir ekki því að við höfum fjarri því
náð nógu langt í að efla meðferðarúr-
ræði fyrir fanga og fyrrverandi fanga.
Kynferðislegt ofbeldi er ein alvarleg-
asta ógn sem steðjar að börnum og hana
á að taka alvarlega. Sú ógn getur tekið á
sig margar myndir. Ofbeldið getur ver-
ið framið af ókunnugum eða kunnug-
um, ættmenni eða óskyldum. Það getur
átt sér stað innan fjölskyldu – í innsta
hring barnsins – eða á öðrum vettvangi,
s.s. í félagsstarfi eða í vinahópnum. Á
hverju ári hlaupa kynferðisofbeldistilvik
ekki aðeins á tugum, heldur hundruð-
um. Aðeins hluti þessara mála ratar til
barnaverndaryfirvalda og/eða lögreglu
og aðeins hluti af þeim málum end-
ar með dómi. Síðan má reikna með að
hluti þeirra einstaklinga sem hlýtur dóm
greinist með barnagirnd og sé líklegur
til síbrotastarfsemi. Þessi löggjöf kæmi
til með að ná til þeirra og gæti þannig
minnkað líkur á að þeir brjóti aftur af sér.
Það er mikilvægt.
Verndum börnin
Hið samfélagslega viðfangsefni er eftir
sem áður miklu víðtækara og snýr að því
að koma í veg fyrir ofbeldi gegn börnum
og að skapa farveg fyrir börn til að segja
frá ef þau verða fyrir ofbeldi þannig að
hægt sé að láta þá sem slíkt fremja sæta
ábyrgð. Ofbeldi á ekki að líðast og aldrei
gegn börnum. Okkar er að grípa til allra
ráðstafana gegn því.
„Ég hef sagt að
hér þurfum við að
fara fram af yfirvegun; af
virðingu fyrir réttarríkinu
en jafnframt gera það sem
unnt er til að vernda börn
fyrir ofbeldismönnum.
Kjallari
Ögmundur Jónasson
Innanríkisráðherra
Komment
dagsins
við fréttir DV.is í vikunni
„Ég kallaði enga
manneskju
„vaggandi gæs“.
Ég sagði fjölmiðlana
matreiða „fjölmiðlagæs“
ofan í þjóðina talandi um
kringumstæður en ekki
einstaklinga.“
Ástþór Magnússon um
frétt af því að Svavar
Halldórsson hafi neitað að
taka í hönd hans vegna ummæla
um Þóru Arnórsdóttur.
„Takk fyrir að
auðvelda mér
valið, þau hjón
eru alveg búin að klúðra
þessu.“
Jóhannes Snorrason við
sömu frétt.
„Hvað ætli Dor-
rit hafi þurft að
taka í höndina
á mörgum
einstaklingum sem hafa
kallað Óla verri hluti en
„gæs“?“
Stefán Birgir Stefáns
við frétt um viðbrögð
Ástþórs við ummælum
Svavars í stóra handabandsmálinu.
„Þessir ves-
alingar halda
áfram að grafa
sína eigin gröf. Í stríði
við land og þjóð. Mikið
ofboðslega verður það
ljúft þegar kvótinn
verður hirtur af þessum
þjófum. Því fyrr því
betra.“
Arnar Petersen um frétt
af því að starfsmenn
Samherja hafi verið látnir
skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu.
45
115
33
24