Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Síða 18
Ferðastu um heiminn nánast Frítt
18 Neytendur 6. júní 2012 Miðvikudagur
Þarf að eitra fyrir maðki?
n Rétti tíminn til að eitra er mjög skammur
N
ú er tími trjámaðksins í görð-
um landsmanna en hann fer
á stjá í lok maí og fyrri hluta
júní. Garðeigendur spyrja
sig gjarnan hvort það sé nauðsyn-
legt að láta eitra hjá sér, en hér eru
nokkur atriði sem gott er að hafa í
huga, bæði til að sem minnst rösk-
un verði á lífríki garðsins og til að
viðkvæmur gróður sé varinn fyrir
skemmdum.
Ef garðeigandi er í vafa hvort
eigi að úða eða ekki er gott að
skoða gróðurinn með fagmanni.
Ef sú skoðun leiðir í ljós skemmdir
en lítið sést af maðki þá er líklega
orðið og seint að úða. Það gæti
jafnvel orðið skaðlegt nytjadýrum
og laufblöðin geta látið á sjá eftir
úðunina.
Ef hvorki sjást skemmdir né
maðkur er heldur ekkert gagn af
úðun, þá hefur maðkurinn ekki
klakist út og efnið nær ekki til
hans. Rétti tíminn til að bregðast
við er því í raun mjög skammur og
mikilvægt er að bregðast við á rétt-
um tíma.
Það er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir því að skordýraeitur
drepur öll skordýr sem það lend-
ir á, líka gagnlegu skordýrin sem
lifa á skaðvöldunum og veita lið í
baráttunni gegn þeim. Trjámaðk-
urinn er fæða fyrir fugla og þegar
við drepum hann drögum við úr
fæðuframboði þeirra dýra sem við
viljum hafa í kringum okkur.
Barrtré, alaskaösp, gljávíðir,
gullregn og sólber eru dæmi um
tegundir sem eru alveg lausar við
trjámaðk og ætti þess vegna aldrei
að úða. Þá eru margar trjátegund-
ir sem verða fyrir skemmdum af
völdum trjámaðksins sem ná sér
aftur á strik þótt ekkert sé úðað.
Þetta á til dæmis við um birki.
Víðir, toppar, kvistar og misplar
eru tegundir sem helst geta orðið
fyrir miklum skemmdum af völd-
um trjámaðks og því oft nauðsyn-
legt að beita úðun til að verja þær.
E
ld
sn
ey
ti
Algengt verð 248,9 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 248,7 kr. 248,5 kr.
Algengt verð 248,6 kr. 248,4 kr.
Algengt verð 248,9 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 250,9 kr. 248,7 kr.
Algengt verð 248,7 kr. 248,5 kr.
Útilíf
í Glæsibæ
n Lofið þessa vikuna fær verslun
Útilífs í Glæsibæ. Kona hafði sam-
band og sagði frá því að í sólskins-
blíðu hafi hún farið inn í verslun-
ina á laugardegi og keypt sér
forláta sundbol. Í búðinni
lét hún klippa af öll merki
og ætlaði sér strax í sund.
Við umhugsun ákvað
hún að þvo bolinn
og vildi svo illa til að
úr þvottavélinni kom
blettóttur. Ekki vissi
hún hvers vegna en
ákvað að fara með bolinn
aftur í Glæsibæ þar sem tekið var
á móti honum og henni afhentur
nýr með vingjarnlegu viðmóti þó
á hinn vantaði alla merkimiða.
Traustið sem viðskiptavinum er
sýnt er til fyrirmyndar.
Vantaði
klettasalat
n Lastið að þessu sinni fær
veitingastaðurinn Hressingarskál-
inn í Austurstræti. Viðskiptavinur
sendi DV eftirfarandi: „Ég fór í há-
deginu á Hressó með vinnufélög-
um mínum og pantaði mér pítsu
með parma skinku,
mozzarellaosti og
klettasalati sem
hljómaði mjög girni-
lega á matseðlinum.
Þegar pítsan kom var
hins vegar ekkert klettasalat
á henni heldur fylgdi með
skál með iceberg salati.
Þegar ég spurði þjónustu-
stúlkuna um málið yppti hún öxl-
um og sagði að klettasalatið væri
búið. Mér fannst mjög lélegt að
fá ekki að vita það áður en ég tók
ákvörðun um að fá mér þessa pítsu
að eitt hráefnið, sem gefur mikið
bragð, væri ekki til.“
DV hafði samband við
Hressingarskálann þar sem vakt-
stjóri svaraði og var mjög hissa yfir
atvikinu. „Þetta gerist nú ekki oft
hjá okkur. Við látum fólk nú venju-
lega vita ef eitthvað er búið svo
þetta hlýtur að hafa verið einstakt
tilfelli. Við erum að ráða inn mikið
af nýju fólki þessa dagana og starfs-
maðurinn gæti ekki hafa vitað bet-
ur, en ef svona gerist þá bjóðum við
fólki yfirleitt afslátt.“ Vaktstjórinn
sagði jafnframt að þessi ábending
yrði til þess að farið yrði betur yfir
starfsvenjur með nýju starfsfólki.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
1 Íbúðaskipti eða útleiga
Ef þú átt hús eða íbúð eru
fjölmargar heimasíður
sem bjóða upp á
heimilisskipti. Á
flestum þeirra
þarftu að borga
skráningargjald, en
í staðinn er húsið/
íbúðin auglýst í eitt
ár. Annar möguleiki er
að leigja út heimili sitt á
meðan farið er í frí.
Kíktu á þessar síður; homeexchange.
com, homexchangevacation.com eða
homebase-hols.com
Jákvæða hliðin: Ókeypis gisting hljómar
alltaf vel. Dvöl í heimahúsi er oft þægilegri
en á hóteli, því þú hefur eldhús, síma og
jafnvel internet. Að leigja húsið sitt út er
einnig frábær leið til að fjármagna fríið.
Neikvæða hliðin: Reyndu að fá sem flestar
upplýsingar um þann sem þú réttir lyklana
þína, annars áttu kannski ekkert heimili
þegar þú kemur til baka. Þú gætir lent í
að heimili þitt sé lagt í rúst eða
verðmætum stolið.
2 Að passa hús
Að passa hús getur verið
sniðugur kostur og til eru
heimasíður þar sem fólk
auglýsir eftir aðilum til
að passa húsið sitt. Kíktu
á housecarers.com, mindmy-
house.com.
Jákvæða hliðin: Að finna svona er algjör
snilld. Frítt húsnæði fyrir að vökva nokkur
blóm og/eða gæta gæludýra.
Neikvæða hliðin: Ekki er alltaf allt
sem sýnist. Ef eitthvað er of gott
til að vera satt, þá er það eflaust
þannig. Kynntu þér vel fólkið
sem þú ætlar að passa húsið
fyrir.
3 Deildu bíl eða
farðu á puttanum.
Reyndu að fá að fljóta með einhverjum í
bíl sem er að fara sömu leið, eða ef þú ert á
bíl, getur þú fengið
einhvern til að
fá far með þér
og minnkað
þannig elds-
neytiskostnað.
Gott er að
plana slíkar
ferðir með góð-
um fyrirvara og
jafnvel reyna að fá
upp- lýsingar um viðkomandi.
Svo er alltaf hægt að fara á puttanum, en
Íslendingar eru kannski frekar ragir við það.
Að ferðast á puttanum getur þó verið hinn
besti ferðamáti og í sumum löndum þykir
það mjög sjálfsagt.
Kíktu á síðurnar; erideshare.com, compartir.
org, hitchhikers.org og íslensku síðuna
samferda.net.
Jákvæða hliðin: Að deila bíl, eða ferðast á
puttanum er frábær leið til að kynnast fólki,
svo er þetta umhverfisvænna og ódýrara en
að ferðast einn.
Neikvæða hliðin: Það er gott að hafa varann
á þegar ferðast er með ókunnugum. Þú veist
aldrei á hvernig einstaklingum þú lendir.
n Þú þarft ekki fulla vasa af peningum til að ferðast n Notaðu hugmyndaflugið og gríptu tækifærin n Nýttu þér internetið
F
lestir hafa heyrt talað um að
allt það besta í lífinu sé ókeyp-
is en halda að þar sé átt við
ilm af blómum, hlátur með
vinum, koss frá maka og fleira
í þeim dúr. Þetta gullkorn getur þó
átt við stærri hluti en það, eins og til
dæmis að ferðast um heiminn.
Það kann að hljóma ótrúlega í eyr-
um margra að það sé hægt að ferðast
um heiminn án þess að eiga krónu,
en á vefsíðunni vergemagazine.com
eru hugmyndir að nokkrum leiðum
til þess að ferðast án þess að þurfa
að eiga fullt veski af seðlum eða
kreditkort með hárri úttektarheim-
ild.
Til að þetta sé framkvæman-
legt þarftu að hafa augun opin fyrir
tækifærum og vera tilbúin/n að taka
smá áhættu. Gott er að hugsa aðeins
fram í tímann, fá leiðbeiningar og
þiggja alla aðstoð sem býðst. Vertu
óhrædd/ur við að biðja um það sem
þú vilt því það mun koma þér á óvart
hvað fólk er tilbúið að gera fyrir ná-
ungann. Allt sem þú þarft eru smá
frumlegheit, kjarkur og eldmóður –
þá eru þér allir vegir færir.
Gróður Ef hvorki sjást
skemmdir né maðkur er
ekkert gagn af því að eitra.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is