Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Síða 19
Ferðastu um heiminn nánast Frítt
Neytendur 19Miðvikudagur 6. júní 2012
n Þú þarft ekki fulla vasa af peningum til að ferðast n Notaðu hugmyndaflugið og gríptu tækifærin n Nýttu þér internetið
4 Fáðu þér vinnu á skútu
eða skemmtiferðaskipi
Þú þarft ekki að vita neitt um
siglingar eða skip til að ráða þig í
þjónustustarf á skemmtiferða-
skipi. Ef þú býrð hins vegar yfir
þekkingu á skipum og siglingu
gætir þú fengið starf á skútu.
Kíktu til dæmis á þessar síður:
crewseekers.net, carnival.com
og royalcaribbean.com.
Ef þú ert í leit að ævintýrum og
ert staddur í hafnarbæ þar sem mikið
er af skútum og skemmtiferðaskipum í
höfninni geturðu jafnvel prófað að spyrjast
fyrir á hafnarbakkanum. Hvort það vanti
starfskraft einhvers staðar? Vertu á
réttum stað, á réttum tíma, með
rétta viðhorfið og þá er meira
en líklegt að þér takist að
komast um borð í eitthvert
fleyið.
Jákvæða hliðin: Hvern
hefur ekki dreymt um að
upplifa ævintýri á sjónum.
Það spillir varla fyrir að gera
það frítt eða jafnvel fá greitt
fyrir það. Njóttu þessarar upplif-
unar eins og puttaferðalangur með alvöru
skipstjóra.
Neikvæða hliðin: Áhafnarstörf eru ekki
alltaf sveipuð jafn miklum töfraljóma og
margir halda. Vaktirnar geta verið langar
og í sumum tilfellum þarf áhöfnin
alltaf að vera innan þilja og fær
sjaldan að yfirgefa skipið.
5 Fljúgðu ódýrt
Við Íslendingar erum ekki
alveg jafn heppnir og nágrannar
okkar í Evrópu þegar kemur að
flugfargjöldum. Með tilkomu nýrra
flugfélaga eins og WOW air og áætlunar-
ferða Easyjet til Íslands, hefur samkeppnin
þó aukist og allt virðist þetta þokast í rétta
átt. Síðustu vikurnar hafa íslensku flugfé-
lögin keppst við að undirbjóða hvert annað
í flugferðum til Evrópu. Þegar til Bretlands
er komið eða á meginland Evrópu er nokkuð
auðvelt að ferðast mjög ódýrt með flugi.
Kíktu á síðurnar: ryanair.com, easyjet.com
og flymonarch.com. Fyrir utan Evrópu má
skoða til dæmis virginaustralia.com og
jetstar.com.
Jákvæða hliðin: Þú getur jafnvel ferðast
þvert yfir alla Evrópu fyrir aðeins fimm til
sex þúsund krónur.
Neikvæða hliðin: Hjá lággjaldaflugfélög-
um er oft gert ráð fyrir því að þú ferðist
aðeins með lítinn handfarangur og greiða
þarf aukagjald fyrir stærri tösku sem fer í
farangursrýmið.
6 Bjóddu fram
starfskrafta fyrir gistingu
Þegar þú ert komin/n á gististaðinn þinn
gætirðu prófað að setja þig í samband við
rekstrarstjórann og boðið fram starfskrafta
þína fyrir afnot af herberginu. Það er
jafnvel enn betri hugmynd að
kanna það áður en þú pantar þér
gistingu einhvers staðar hvort
það sé laus störf að finna á
hótelum eða gistiheimilum
á þeim áfangastöðum sem
þú hefur hug á sækja heim.
Það er aldrei að vita nema þú
hafir heppnina með þér í þeim
efnum, sérstaklega ef þú hefur
reynslu af hótelstörfum.
Kíktu til dæmis á síðuna: hostelworld.com.
Jákvæða hliðin: Sniðug leið til að sameina
sumarfrí og sumarstarf.
Neikvæða hliðin: Í sumum löndum
getur það verið töluverð fyrirhöfn að fá at-
vinnuleyfi. Nauðsynlegt að er að gæta þess
að ekki sé brotið á réttindum þínum.
7 Fáðu þér vinnu í fríinu
Ef þig langar til að lengja dvöl þína á
einhverjum áfangastað en fjárhagurinn
stendur ekki vel þá getur verið
sniðugt að skoða það
að fá sér létta vinnu á
svæðinu. Möguleik-
arnir eru fjölmargir;
þú gætir til dæmis
ráðið þig sem au
pair eða í ávaxta-
tínslu. Kíktu á
síðurnar: greataupa-
ir.com, aupair.com og
anyworkanywhere.com.
Jákvæða hliðin: Það er frábært að geta
ferðast um heiminn og á sama
tíma fá að vinna við ýmis
störf sem þú myndir eflaust
aldrei annars prófa.
Neikvæða hliðin: Atvinnu-
rekendur gætu látið
þig vinna langar vaktir
þannig að frítíminn gæti
orðið lítill.
Nýttu tækifærin Ein hugmynd er
að fá sér vinnu á sumarfrísdvalar-
staðnum og lengja þannig fríið án
þess að þurfa að spá í aukaútgjöld.
Iceland Express
oftast á tíma
Samkvæmt stundvísitölum túristi.
is voru allar ferðir Iceland Ex-
press á réttum tíma fyrri hluta
maímánaðar. Tvær síðustu vikur
mánaðarins voru allar brottfar-
ir á réttum tíma og aðeins einni
komu seinkaði.
Ferðir Icelandair frá landinu
voru nánast alltaf á réttum tíma í
maímánuði en komutímar félags-
ins seinni hluta mánaðarins stóð-
ust hins vegar aðeins í rúmlega
sjötíu prósent tilvika.
Þess ber að geta að Iceland
Express fór rúmlega sjötíu ferð-
ir til og frá Keflavíkurflugvelli á
tímabilinu á meðan Icelandair fór
rúmlega sex hundruð ferðir.
Þar sem WOW air fór aðeins
eina ferð á tímabilinu 15. til 31.
maí voru þeir ekki með í mæl-
ingunum að þessu sinni.
Hreinar
strendur í
Evrópu
Sjórinn við langflestar bað-
strendur í Evrópu er hreinn í ár
samkvæmt nýjustu mælingum.
Ástandið er sérstaklega gott við
strendur Kýpur, Króatíu, Grikk-
lands og Möltu. Þá fá fjórar af
hverjum fimm baðströndum á
Spáni, Ítalíu og Portúgal topp-
einkunn og staðan við sjávarsíð-
una í Danmörku og Bretlandi er
einnig góð.
Þau lönd sem komu verst út úr
mælingum Evrópsku umhverfis-
stofnunarinnar voru Benelúx-
löndin, Lettland og Búlgaría. Var
það hreinleiki fljótanna sem dró
sum lönd niður samkvæmt frétt
Politiken.
Strandgestir á fyrrnefndu stöð-
unum geta þó kælt sig óhikað í
sjónum og leyft börnunum að
busla í flæðarmálinu.