Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Qupperneq 20
Lífleg baðfatatíska í sumar
n Hátt mitt og metallitir áberandi
N
ýjustu straumar og stefnur í
baðfatatískunni eru líflegir í
ár. Baðfatatískan einkennist af
bikiníbuxum með háu mitti,
metallitum og útskornu sniði á sund-
fatnaði.
Útskornu sundbolirnir hafa aldrei
verið efnisminni og spurning hvort
einhver þorir í sundbol er minnir á
lítinn köngulóarvef í Vesturbæjar-
laugina. Þær sem eru með örlítinn
maga taka þó hátt skornum bikiní-
buxum vel.
Mynstraðir bolir koma líka sterkir
inn og „retro“-sundbolir í anda sjötta
áratugar eru enn eldheitir.
20 Lífsstíll 6. júní 2012 Miðvikudagur
Heimavinnandi
og úrvinda?
n Sex ráð til að hlúa að þér – líkamlega og
andlega
Mundu eftir sólinni
Að njóta yls sólarinnar í örfáar
mínútur getur haft gríðarlega
jákvæð áhrif það sem eftir lifir
dagsins. Birtan kveikir á fram-
leiðslu á vellíðunarhormónum í
heila og D-vítamín hefur góð áhrif
á heilsuna.
Knúsaðu herra loðinn
Eins og þú veist geta loðin gælu-
dýr gert kraftaverk fyrir slasaða og
veika. Þú veist kannski ekki að þau
geta látið heilbrigðum einstak-
lingum líða enn betur. Klappaðu
kisu eða hundi – eða starðu á fiska
í búri – og njóttu þess að finna
stressið líða í burtu.
Farðu í nudd
Að tína upp dót og sinna börnum
allan daginn reynir á bakið. Gerðu
æfingar og farðu í nudd ef þreytan
fer að segja alvarlega til sín.
Talaðu um sjálfa/n þig
Það getur verið erfitt að muna eftir
sjálfum sér þegar fókusinn er alltaf
á þarfir annarra. Hringdu í vin.
Það mun koma þér á óvart hversu
mikið þú þarft að tala.
Nartaðu eins og fimm ára
Stundum erum við svo önnum
kafin að við gleymum að borða.
Þú verður samt ennþá þreyttari
og pirraðri daginn eftir ef þú
treður í þig sætindum fram eftir
öllu kvöldi. Búðu til hollt snakk úr
ávöxtum, ferskum og þurrkuðum,
ostum og hnetum og hafðu við
höndina allan daginn.
Mundu eftir húmornum
Upphugsaðu þinn versta mögu-
lega dag sem atriði í Saturday
Night Live. Hvað myndi virkilega
ýta þér fram af brúninni? Leitaðu
að því fyndna í erfiðum ástæðum.
Iðkaðu jóga til
að bæta kynlíf
n Þjálfaðu þig til að lifa í núinu svo þú njótir kynlífsins í botn
G
ott kynlíf þarfnast samspils
líkama og hugar. Það sama á
við um jóga. Þetta segir Ellen
Barrett höfundur bókarinn-
ar Sexy Yoga. „Jóga er ekki
aðeins frábært tæki til að losa um
stress og álag heldur bæta ákveðnar
æfingar blóðflæðið og opna hjarta
þitt en hvort tveggja er nauðsyn-
legt fyrir sjóðheita ástarleiki,“ segir
Barrett sem segir tæknina að lifa í
núinu mikilvægustu æfinguna þegar
kemur að kynlífi. Samkvæmt rann-
sókn, sem birtist í tímaritinu Journal
of Sexual Medicine, eiga konur oft
erfitt með að halda einbeitingunni
í ástarleikjum en einbeitingarleysi,
samkvæmt Barrett, er ein aðalástæð-
an fyrir því að kynlíf verður leiði-
gjarnt og tilfinningasnautt. Lærðu að
elskast án þess að missa hugann út
um hvippinn og hvappinn með þess-
um jógaæfingum sem Barrett segir
bæta kynlífið:
1. Farðu á fjórar fætur með
axlir beint yfir ökkla og
mjaðmir beint yfir hné.
2. Dragðu inn andann og fettu
þig. Ýttu brjóstkassanum upp og
í burtu frá maganum.
3. Blástu frá og búðu til
kryppu. Endurtaktu sex
sinnum.
Af hverju það virkar:
„Þú styrkir sömu vöðva og
dragast saman við fullnægingu,“
segir Barrett.
Kisan og kusan
1. Liggðu á maganum, með
ennið við gólfið. Settu lófana
niður við rifbeinin.
2. Ýttu fótunum saman og
teygðu á þeim.
3. Ýttu með höndunum
niður og dragðu olnbog-
ana að líkamanum.
4. Notaðu bakið til
að lyfta brjóstinu
frá gólfinu. Rúllaðu
öxlunum aftur á bak. Haltu í tíu
til tuttugu sekúndur.
Af hverju það virkar: Sam-
kvæmt Barrett opnar þessi
æfing á hjartastöðvarnar.
Kóbraslangan
1. Byrjaðu á fjórum fótum. Settu
mjaðmabil á milli fóta og
krepptu tærnar.
2. Notaðu lófana til að
lyfta hnjánum frá gólfi. Lyftu
rófubeininu upp í loftið svo
líkaminn minni á V.
3. Hafðu hné beygð og
hæla frá gólfi. Réttu rólega
úr fótum en ekki læsa
hnjánum.
Af hverju það virkar: „Í þessari æfingu
geturðu ekki horft á neitt annað en
gólfið. Þú ættir því að horfa inn á við,
líkt og þú værir með lokuð augu,“ segir
Barrett.
Hundurinn
Tré
1. Stattu bein/n með
mjaðmabil á milli fóta og
hendur með hliðum. Skiptu
þyngdinni á vinstri fót.
2. Beygðu hægra hné og
notaðu hægri hönd til að
staðsetja hægri fót á læri,
rétt ofan við hné.
3. Settu hendur saman
fyrir framan brjóstkassa líkt og þú
sért að biðja. Starðu á ákveðinn
punkt til að halda jafnvægi.
Stattu kyrr eins lengi og þú getur.
4. Gerðu tré frá annarri hlið og svo frá hinni en færðu
hendur núna yfir höfuð. Sjáðu hendurnar fyrir þér sem
sterkar greinar á tré.
Af hverju það virkar: Samkvæmt Barrett hjálpa allar
jafnvægisæfingar okkur við einbeitinguna.
Fiðrildið
1. Sestu á gólfið og láttu
iljar saman fyrir framan þig
og hendur á ökkla.
2. Láttu hnén nálægt gólfi
og ýttu mjöðmum
fram. Haltu í
tíu til fimmtán
sekúndur.
Af hverju það virkar: „Þessi
æfing hitar upp nárann og opnar mjaðmir
fyrir frekari átök,“ segir Barrett.
1. Byrjaðu á fjórum fótum. Settu bil á milli
fingra og ýttu öllum lófanum í gólfið.
2. Teygðu á maganum og krepptu tærnar svo
lærin lyftast beint upp.
3. Hælar, ökklar, rass, axlir, háls og höfuð eiga
að vera í beinni línu. Horfðu á þig í spegli.
4. Haltu í hálfa mínútu og hvíldu. Endurtaktu
þrisvar sinnum.
Af hverju það virkar: „Þessi góða magaæf-
ing æfing eykur sjálfstraust og kemur þér
í súpergott form sem hvort tveggja bætir
kynlífið,“ segir Barrett.
Plankinn
1. Liggðu á bakinu með
hné beygð og mjaðmabil
á milli þeirra. Haltu
fótunum frá rassinum.
2. Ýttu mjöðmunum
upp.
3. Leyfðu höndum að
liggja meðfram hliðum.
4. Haltu í eina mínútu.
Af hverju það virkar:
Samkvæmt sérfræðingnum styrkir brúin
beygivöðvann (flexor) og vinnur gegn
spennu.
Brúin
1. Liggðu á bakinu með mjaðmabil á
milli fóta, hendur meðfram hliðum,
lófa upp.
2. Beygðu hné að brjóstum, rúllaðu
mjöðmunum þar til fætur eru beinir
og tærnar snerta gólfið bak við
höfuðið. Settu hendur við bak til
stuðnings.
3. Lyftu fótunum til skiptis.
4. Settu hendur á gólfið með lófa
upp. Rúllaðu fram og til baka þar til
mjaðmir ná gólfi. Beygðu hné
og settu fætur í gólf.
Af hverju það virkar:
Blóðflæði til mjaðma og
heila eykst sem svo eykur orku. „Þú horfir
líka á mjaðmir þínar sem minna þig á
kynlíf,“ segir Barrett.
Axlarstaðan
Líkstaða
1. Liggðu á gólfinu. Settu hendur í 45 gráðu
fjarlægð frá líkama, lófa upp.
2. Slakaðu á í fótunum og í öllum líkaman-
um. Leystu um alla spennu.
3. Liggðu í fimm mínútur.
Af hverju það virkar: Sumir segja að
savasana-æfingin, sem þarfnast hvorki
krafts né úthalds, sé í rauninni erfiðasta
æfingin vegna þess að í henni þarftu að
einbeita þér að núinu.
Hátt mitti Sundfatnaður
frá Möru Hoffman.
Metallic Sundfatnaður
frá Normu Kamali.
Hátt mitti Sundfatnaður frá
Normu Kamali.
Metal Frá Lisu Blue. Töff frá Ástralíu Ástralir eru
framarlega í sundfatatískunni.
Te dregur úr
sykursýki 2
Rannsóknarteymi við Heinrich
Heine-háskólann í Düsseldorf í
Þýskalandi hefur komist að þeirri
niðurstöðu að mikil tedrykkja geti
dregið úr hættunni á að fá sykur-
sýki 2. Með mikilli tedrykkju er átt
við að minnsta kosti fjóra bolla á
dag. Í ljós kom að í þeim löndum
þar sem tedrykkja er mikil, líkt og
í Bretlandi, voru tuttugu prósent
minni líkur á því að fólk þróaði
með sér sjúkdóminn. Því meira
te sem þátttakendur í rannsókn-
inni drukku, því minni urðu líkur
á sjúkdómnum.
Líklegt þykir að ástæðan fyrir
þessu sé að teið hafi áhrif á upp-
töku glúkósa úr meltingarfærun-
um og verji þannig þær frum-
ur sem framleiða insúlín fyrir
skemmdum.