Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.2012, Síða 29
Fólk 29Miðvikudagur 6. júní 2012 Þarf að vera 18 ára, upplýsingar í síma 564 2325 Vantar starfsmann í söluturn í Kópavogi E lton John og eiginmaður hans, David Furnish, von- ast til þess að geta stækk- að fjölskyldu sína. Tón- listarmaðurinn, sem er 65 ára, er sjálfur einkabarn og vill að sonurinn Zachary, sem er 17 mánaða, eignist bróður eða systur. „Þegar ég var barn eyddi ég miklum tíma inni í herbergi að hlusta á tónlist svo ég heyrði ekki í foreldrum mínum rífast. Ég veit hvað það getur verið erfitt að vera einkabarn og hvað þá að vera einkabarn frægs foreldr- is. Ég vil endilega gefa honum systkini svo hann hafi einhvern til að hanga með,“ sagði Elton í nýlegu viðtali þar sem hann seg- ir einnig Zachary án efa gagn- kynhneigðan. „Hann er alltaf að kyssa dóttur hreingerningarkon- unnar. Og hann elskar fótbolta.“ Fáránlegar lögsóknir n Miley Cyrus kærð fyrir að gretta sig n Borgarstjóri í Bieber-æði L indsay Lohan lögsótti fjármála- fyrirtækið E-trade árið 2010 fyrir auglýsingu þar sem henni misbauð notkun á nafni sínu. E-trade birti auglýsingu um smá- barnið Lindsay sem var fíkill í mjólk. Fáránlega langsótt en Lindsay tók þetta persónulega til sín. Lögfræðingur Lohan sagði aug- lýsinguna augljóslega nýta nafn hennar þar sem hún sé þekkt fyrir að vera, jú, fíkill á ýmislegt. Lindsay fór fram á 100 milljónir dollara í skaða- bætur. Málið var fellt niður. T ara Reid hefur setið fyrir í Playboy. Hún missti líka ann- að brjóstið úr kjólnum í af- mæli Sean Diddy Combs fyr- ir nokkrum árum. Í kjölfarið setti viðburðafyrirtækið Sky Las Vegas af stað herferðina: Kæra Tara Reid, láttu það flakka. Tara kærði herferðina og sagði fyrirtækið bendla sig við ósiðlegt athæfi. Málið var fellt niður en Tara fékk þó nokkrar bætur. M iley Cyrus tók mynd af sér og vinum sínum þar sem þau grettu sig fram- an í myndavélarnar. Meðal þess sem þau tóku upp á var að toga augun á sér til. Lucie Kim, kona af asískum uppruna tók athæfið nærri sér og sagði myndatökuna brjóta á réttindum fólks af asískum uppruna. Miley Cyrus sagði myndatökuna gerða í gamni og að Lucie tæki hana úr samhengi. Kim vildi fá tugmillj- óna dollara bætur og sagði fjölda Asíubúa hafa orðið fyrir andlegu áfalli við að skoða myndirnar. Málið var fellt niður og aumingja Miley bað fólk af asískum uppruna ítrekað afsökunar. Þ að er ekki oft sem leikarar eru sakaðir um að stela chihu- ahua-hundum. Það gerðist þó árið 2008 þegar leikkon- an Kathleen Turner sakaði Nicolas Cage um slíkt athæfi. Cage kærði Turner á móti og dag- blaðið sem birti ásakanirnar. Í ljós kom að frú Turner hafði átt sérlega slæman dag. Lögfræðikostnaður Cage var greiddur að fullu og Turner gaf stórfúlgu í góðgerðasjóð og mál- inu var þar með lokið. P rince lendir reglulega í deil- um við aðdáendur sína. Hann seilist afar langt í því að hafa stjórn á ímynd sinni og hefur lagt fram óteljandi kærur vegna ótrú- legustu mála. Hann hefur kært aðdáendasíð- ur þar sem hann er dáður, Youtube vegna spilunar á tónlistarmyndbönd- um sínum og einstaka aðdáend- ur sem birta of mikið af myndum af honum á heimasíðum sínum. Vill stærri fjölskyldu n Elton John segir soninn án efa gagnkynhneigðan Hamingjusöm fjölskylda Elton John og David Furnish vilja eignast annað barn. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Sjáðu meira fyrir aðeins 790 kr. á mánuði * Fáðu greinar í heild sinni á DV.is og vefáskrift af prentútgáfu DV * Verðið er 790 kr. fyrstu 3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.