Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Side 8
8 Fréttir 18. júní 2012 Mánudagur
n Karl segir sér hafa verið hafnað um skólavist vegna aldurs
synjað um
skólagöngu
M
aður fær bara á tilfinn-
inguna að maður sé al-
gjör aumingi, af því að
ég er 31 árs og lesblindur
þá er bara ómögulegt að
komast inn,“ segir Karl Olsen. Hann
segir farir sínar ekki sléttar við Fjöl-
brautaskólann við Ármúla þar sem
hann hafi sótt um að hefja nám í
haust.
Hló nánast að mér
Karl sótti um á nuddbraut en til vara
á almennri braut að ráðum náms-
ráðgjafa. Hann er ekki með stúd-
entspróf. „Konan mín hringdi niður
eftir og fékk að tala við námsráðgjafa
sem sagði mér að sækja um á netinu.
Það var eitthvað vesen þannig að ég
fór niður í skóla. Þar talaði ég við að-
stoðarskólastjórann og fékk að vita
að það væri nánast tilgangslaust
fyrir mig að sækja um af því ég væri
31 árs og lesblindur. Það væru engar
líkur á því að ég kæmist inn. Hann
nánast hló að mér,“ segir Karl sem
ákvað þrátt fyrir það að freista þess
að sækja um.
Lengi langað í skóla
Hann segist hafa viljað skrá sig í
nám til þess að geta vænkað hag
sinn og fjölskyldu sinnar en hann
og eiginkona hans eiga samtals
fjögur börn. „Ég vinn hjá borginni í
þjónustu fyrir fatlaða og það er ekki
vel borgað. Ég var búinn að ræða við
yfirmann minn um að ég gæti verið
í skólanum og unnið með. Mig hef-
ur lengi langað til að læra eitthvað
en út af lesblindunni þá hef ég ekki
þorað að kýla almennilega á það
fyrr en núna. Svo fær maður svona
neitun og þetta er bara högg í and-
litið,“ segir hann en synjunarbréfið
barst honum fyrir helgi. „Mig lang-
aði bara að fara í skóla og klára eitt-
hvað þannig að ég gæti aflað meira
fjár og ég gæti gert meira fyrir mig
og fjölskyldu mína.“
Útilokað að komast inn núna
Ólafur H. Sigurjónsson, aðstoðar-
skólastjóri Fjölbrautaskólans við Ár-
múla og sá sem Karl segir að hafi
nánast hlegið að sér, kannast ekki
við tiltekið atvik. „Ég kannast nú ekki
við þessa lýsingu og þetta mál,“ seg-
ir hann. Ólafur segir metaðsókn hafa
verið í skólann í ár. „Hún hefur aldrei
verið meiri,“ segir hann. Þeir nem-
endur sem koma beint úr 10. bekk
grunnskólans ganga fyrir. „Síðan
allir sem eru undir 18 ára, þar á eft-
ir allir undir 25 ára og svo þeir sem
eru yfir 25 ára eru aftastir í röðinni,“
segir hann og því ljóst að Karl fell-
ur í þann hóp. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Ólafi sóttu 70 manns um
að komast inn á nuddbraut við skól-
ann en aðeins 15 fengu inngöngu.
„Meirihluti þeirra sem eru að sækja
um á nuddbraut er stúdentar eða
fólk með BA-próf,“ segir hann og því
ljóst að ekki hafi verið miklar líkur á
að Karl kæmist inn á nuddbrautina.
„Það er útilokað já, eins og er núna,“
segir Ólafur.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Ármúli Aðstoðarskólameistari segir ekki óeðlilegt að Karl hafi ekki komist inn vegna þess
að það sé tekið inn eftir aldri. Þeir sem yngri eru hafi forgang.
Sár Karl segist hafa viljað skrá sig í skóla til að vænka hag fjölskyldu sinnar. Hann fékk neitun og er ósáttur.
Hópslagsmál og húsbrot
n Erill hjá lögreglunni á Akureyri á Bíladögum
Þ
rír menn ruddust inn á heim-
ili á Akureyri og gengu í skrokk
á húsráðanda á laugardags-
kvöld. Í tilkynningu frá lög-
reglunni á Akureyri segir að málið
tengist deilum milli húsráðanda og
árásarmanna. Húsráðandi slapp með
minniháttar meiðsl.
Nokkur erill var hjá lögreglunni
á Akureyri um helgina en þar voru
haldnir Bíladagar.
Segir í tilkynningu frá lögreglunni
að mikið hafi verið um að vera í bæn-
um og margir úti að skemmta sér.
Þurfti lögregla því aðallega að sinna
verkefnum tengdum skemmtanalíf-
inu. Voru fimm fluttir á slysadeild af
lögreglu eftir að hafa lent í slagsmál-
um í miðbænum. Einn var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild eftir
líkamsárás. Einnig barst tilkynning
um nokkur hópslagsmál í miðbænum
eftir að skemmtistöðum bæjarins var
lokað en mikill mannfjöldi safnaðist
saman fyrir utan staðina eftir lokun.
Nokkrar tilkynningar og afskipti
af aðfinnsluverðu aksturslagi öku-
manna komu upp en aðallega var um
að ræða menn sem voru að spóla í hr-
ingi með tilheyrandi hávaða og látum.
Tveir aðilar voru teknir fyrir ölvun
við akstur en annar þeirra ók á staur í
miðbænum og utan í bifreið.
Þá voru tveir handteknir eftir að
hafa sparkað í og skemmt bifreið á bif-
reiðastæði í miðbænum.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir
of hraðan akstur innanbæjar á Akur-
eyri en annar þeirra var á mótorhjóli
og mældist á 93 kílómetra hraða á
klukkustund þar sem hámarkshraði
er 50. astasigrun@dv.is Mikið um að vera Lögregla sinnti verkefnum tengdum skemmtanalífinu.
Kvensköpum
skolaði á land
Feðgunum Grétari Erni og Daða
Snæ varð ekki um sel þegar þeir
rákust á afar sérkennilegan hlut í
fjöruferð á Reykjafirði um helgina.
Daði Snær ætlaði að handleika
hlutinn en faðirinn bannaði hon-
um það, enda var honum ljóst að
hér var enginn venjulegur hlutur
á ferð, heldur eins konar eftirlík-
ing af kvensköpum. Grétar seg-
ist enga hugmynd um það hafa
hvers vegna þessi hlutur endaði í
fjörunni. „Það er margt sem end-
ar í fjörunni án frekari skýringa
og verður ímyndunaraflið oft að
ráða.“ Vefurinn vestur.is greindi
frá.
Forseti og stríð
Stefán Pálsson, formaður Sam-
taka hernaðarandstæðinga, skrif-
aði opið bréf til forseta Íslands á
bloggsíðu sína um helgina. Þar
víkur hann að ummælum Ólafs
Ragnars um að forsetinn eigi að
reka sjálfstæða utanríkisstefnu
og spyr hvers vegna Ólafur, með
sína sjálfstæðu utanríkisstefnu,
hafi aldrei beitt sér gegn stuðningi
Davíðs Oddssonar og Halldórs Ás-
grímssonar við Íraksstríðið. Tveir
forsetaframbjóðendur skilja eftir
athugasemdir við grein Stefáns.
Hannes Bjarnason segist telja að
forsetinn hefði átt að bregðast við
stuðningsyfirlýsingu Davíðs Odds-
sonar og Halldórs Ásgrímssonar
með einhverjum hætti og Andr-
ea Jóhanna Ólafsdóttir skrifar að
forsetinn hefði einfaldlega getað
veitt þessum ráðherrum lausn ef
sterk krafa hefði komið frá fólkinu
um það.
Reginn á
markað
Hlutafé í fasteignafélaginu Reg-
in verður boðið út í Kauphöll Ís-
lands í dag, mánudag. Regin er
fasteignafélag í eigu Landsbank-
ans og stefnt er að því fá allt að
11,6 milljarða króna fyrir hlutaféð.
Reginn á meðal annars verslun-
armiðstöðina Smáralind, íþrótta-
og afþreyingarhúsið Egilshöllina í
Grafarvogi og JL-húsið. Þá á félag-
ið nýlegt háhýsi á Bíldshöfða 9 og
fasteign á Suðurlandsbraut 14 þar
sem Íslandsbanki er meðal annars
til húsa. Á síðustu þremur árum
hefur félagið selt margar eign-
ir sínar en stærstu eignirnar hef-
ur verið erfitt að selja. Erfiðleikar
hafa verið í rekstri bæði Egilshall-
ar og Smáralindar undanfarin ár.