Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Blaðsíða 14
F rá morgni til kvölds, allt að fjórtán tíma á dag, alla daga, þræla 1,7 milljónir indverskra barna við að meðhöndla tóbak og beitta hnífa til að vefja hefðbundnar indverskar sígar- ettur sem kallast „beedi.“ Flest barn- anna eru stúlkur, allt niður í fimm ára gamlar, sem af illri nauðsyn leið- ast út í þessa vinnu og neyðast til að þræla ásamt mæðrum sínum og systrum við að vefja hinar vinsælu síga rettur við ömurlegar aðstæður fyrir í mesta lagi tvo dali á dag. En til þess að þéna sem nemur þessum 250 íslensku krónum þurfa stúlkurnar að vefja að minnsta kosti þúsund beedi- sígarettur. Launin eru greidd af milliliðum, undirverktökum beedi- framleiðendanna sem sjálfir græða milljarða dala á tóbakssölu. Af illri nauðsyn Góðgerðasamtökin Plan hafa skorið upp herör gegn þessari meðferð á „tóbaksstúlkum“ Indlands og um átakið og stöðu þeirra var fjallað í CNN Freedom Project á dögunum. Í bænum Kadiri í Andhra Pradesh-héraði á Indlandi reiða hundruð fjölskyldna sig á hinar tak- mörkuðu tekjur sem hafa má úr beedi-framleiðslu. Í flestum tilfellum þýða of lítil af- köst stúlknanna ungu við að vefja sígarettur einfaldlega að þær muni hvorki eiga til hnífs né skeiðar þann daginn. Fíngerðir fingur vefja þúsund á dag „Pressan við að halda tilteknum hraða og ná þúsund beedi takmark- inu á hverjum degi er slík að margar þeirra sleppa því hreinlega að borða og jafnvel drekka svo þær tapi ekki tíma á klósettferðum,“ segir einn sjálfboðaliðanna í Kadiri á heima- síðu plan-international.org. Og það er engin tilviljun að ung börn, sér í lagi ungar stúlkur leiðast út í þessa þrælkunarvinnu. Fram- leiðendurnir hafa nefnilega fundið það út að fíngerðir fingur þeirra eru fullkomnir til að vefja retturnar. Á Indlandi eru þó lög sem skil- greina vafningsstarfið sem hættulegt, en líkt og með svo margt annað þá er smuga á lögunum. Börn sem aðstoða foreldra sína í vinnunni eru ekki var- in af þeim. Og hinn efnahagslegi þrýstingur sem á fjölskyldunum hvíl- ir um að skila tilteknu magni beedi- sígaretta á degi hverjum þýðir að þær dragast inn í bransann til að aðstoða fjölskyldur sínar. Alvarlegar afleiðingar Beedi-sígarettur eru í grunninn tóbak vafið í lauf íbenholttrjáa. Vinnufólkið vefur tóbakið í laufin og lokar síðan stautunum með flug- beittum hnífum, eða skærum. Það þarf ekki mikinn sérfræðing til að skilja að það gerir engum gott, hvað þá ungum börnum, að vinna við að handleika tóbak allan lið- langan daginn. Fimm ára börn eru í þessari vinnu og húð þeirra drekk- ur í sig, gríðarlegt magn af nikótíni á hverjum degi. Eftir áralangt starf við‘ að vefja beedi-sígarettur hefur húðin á fingrum vinnufólksins þynnst mik- ið. Stúlkurnar fara með tímanum að missa tilfinninguna í höndunum uns loks þær geta ekki lengur vafið sígar- ettur. „Hendur mína bólgna oft upp. Ég veit ekki hvað ég mun gera þegar ég get ekki rúllað upp beedi lengur,“ hefur CNN eftir Mahboobjaan, konu á fertugsaldri sem á þrjár dætur. Plan segir heilsukvillana sem beedi-framleiðslu fylgja margvíslega. Allt frá berklum og astma til óheyri- legra verkja og liðamótavandamála. Hin skaðlegu áhrif eru ekki einungis heilsufarsleg. Það dylst engum að hér er brot- ið gróflega gegn mannréttindum og réttindum barna og fólks með margvíslegum hætti. Stúlkurnar sem dragast inn í þessa sígarettu- þrælkun fá aldrei tækifæri til að mennta sig og enn fleiri eru dregnar úr skóla til að framfleyta fjölskyld- um sínum. Barnungir sígarettuþrælar Rodney King látinn n Fannst dáinn á botni sundlaugar B andaríkjamaðurinn Rodney King er látinn, 47 ára að aldri. King varð heimsfrægur á einu augnabliki árið 1992 eft- ir að myndband var birt af lögreglu- mönnum, sem allir voru hvítir á hörund, að berja blökkumanninn King illa, eftir að hann var stöðvað- ur fyrir að aka of hratt. Lögreglumennirnir voru í kjölfar birtingar myndbandsins ákærðir fyrir líkamsárás en voru hins vegar sýknaðir af öllum ákærum. Sýknudómurinn vakti upp mikla reiði á meðal blökkumanna og annarra minnihlutahópa sem töldu ljóst að lögreglumenn hefðu aldrei verið sýknaðir nema af því að fórnarlambið var blökkumaður. Næstu sex sólarhringa logaði allt í óeirðum í Los Angeles. Alls létust 53 í óeirðunum og meira en 2.000 manns slösuðust. Tjónið var metið á um einn milljarð dollara. Það var unnusta King sem kom að honum látnum á botni sund- laugar á sunnudaginn. Lífgunartil- raunir báru engan árangur og var hann lýstur látinn skömmu síðar. Lögreglan í Los Angeles rannsak- ar málið en talið er að hann hafi drukknað. King átti lengi við áfengis- og vímuefnavandamál að stríða. Árið 2008 tók hann þátt í raunveruleika- þættinum Celebrity Rehab, sem gekk út að frægt fólk var sent í með- ferð og allt tekið upp á myndband. Læknirinn sem stýrði meðferðar- stofnuninni sagði í þáttunum að ef King tæki sig ekki verulega á þá myndi fíknin draga hann til dauða. 14 Erlent 18. júní 2012 Mánudagur n 1,7 milljónir barna vefja sígarettur á Indlandi n Vinna 14 tíma á dag til að vefja þúsund sígarettur fyrir tvo dali í kaup á dag Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Umhverfisráð- herra hafnaði syninum 17 ára sonur Caroline Selman, umhverfisráðherra Bretlands, sakar móður sína um að snúa baki við sér, eftir að hann var úrskurð- aður í nærri tveggja ára leikbann í ruðningi fyrir að taka inn stera. Jonny Selman, birti myndband á Youtube á dögunum þar sem hann bað fólk um fjárhagsaðstoð, þar sem foreldar hans hefðu hent honum að heiman. Selman, sem var þrælefnilegur ruðningsleik- maður og lék meðal annars með U-17 liði Englendinga, var rek- inn úr virtum einkaskóla í kjölfar þess að upp komst um steranotk- un hans. Hann hefur nú snúið sér alfar- ið að vaxtarrækt. „Foreldrar mínir eru ekki sáttir við að ég hafi helgað mig vaxtarrækt. Þau hafa hætt að styrkja mig og sagt mér að flytja út. Stefnir ríkinu vegna óhamingju Tansanískur innflytjandi í Bret- landi hefur stefnt breska ríkinu vegna þess að ákvörðun um gera vegabréf hans upptækt hafi valdið honum og fjölskyldu hans „mikilli óhamingju.“ Hann krefur breska ríkið um 11 milljónir punda, upphæð sem samsvarar 2,2 milljörðum króna. Daniel Kiunsi telur að bresk yf- irvöld hafi framið mannréttinda- brot þegar þau tóku af honum vegabréfið fyrir þremur árum. Hann segir þetta hafa valdið mik- illi óhamingju og telur að breska ríkið eigi að borga fyrir hann húsaleigu, matarinnkaup og borga fyrir hann alla reikninga. Kiunsi segir við breska blaðið Daily Mail að með vísindalegum aðferð- um hafi hann komist að því að 2,2 milljarðar króna væri hæfileg upphæð í skaðabætur. Kiunsi sem er vélaverkfræðingur á fimmtugs- aldri hafði búið í Bretlandi. Hann tók starfi í öðru landi, en þegar hann ætlaði að snúa aftur upp- fyllti hann ekki skilyrði um áfram- haldandi búsetu í Bretlandi og því var vegabréf hans tekið af honum. Rodney King Látinn 47 ára að aldri. Hann varð heimsfrægur fyrir að sæta harðræði af hálfu lögreglumanna. Sósíalistar sig- urstranglegir Samkvæmt kosningaspám í Frakk- landi lítur út fyrir að sósíalista- flokkur Francois Hollande muni ná nógu mörgum þingsætum til að mynda hreina meirihlutastjórn. Útlit er fyrir að flokkurinn nái 320 sætum af 577 í franska þjóð- þinginu, en það yrði besti árangur vinstrimanna í Frakklandi í marga áratugi. Ef spárnar reynast rétt- ar verður Hollande í lófa lagið að hrinda af stað áætlun sinni um aukin ríkisútgjöld og skattahækk- anir, og þyrfti Sósíalistaflokkurinn ekki að reiða sig alfarið á stuðn- ing græningja og byltingarsinn- aðra vinstrimanna innan þingsins. Hollande hefur lofað að fjölga op- inberum starfsmönnum og skapa hagvöxt með auknum ríkisfram- kvæmdum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.