Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Blaðsíða 15
Barnungir sígarettuþrælar
Erlent 15Mánudagur 18. júní 2012
n 1,7 milljónir barna vefja sígarettur á Indlandi n Vinna 14 tíma á dag til að vefja þúsund sígarettur fyrir tvo dali í kaup á dag
Börn þræla Hér má sjá tíu ára stúlku, Toslima Khatun, sem vinnur við að vefja beedi. Sjö
mánaða gömul systir hennar liggur sofandi við hlið hennar í þorpinu Bhulki á Indlandi.
Með hvítvoðung í vinnunni Þessi unga móðir í Kadiri vinnur við að rúlla upp beedi með
nýfætt barn sitt með í för.
Unnið með hnífa Börn, allt niður í fimm ára
gömul, vinna með hnífa sem þessa til að leggja
lokahönd á hverja sígarettu. Engir hanskar eða
hlífðarbúnaður er í boði.
„Pressan við að
halda tiltekn-
um hraða og ná þús-
und beedi takmark-
inu á hverjum degi er
slík að margar þeirra
sleppa því hreinlega
að borða og jafnvel
drekka
Innbyrða nikótín Nikótín úr tóbakinu kemst í börnin sem vefja beedi-sígaretturnar í
gegnum húð handa þeirra. Margir missa tilfinninguna í höndunum eftir að hafa unnið um
árabil við að vefja.
Milljónir í sömu
stöðu Áætlað
er að 1,7 milljónir
barna vinni við að
vefja beedi á Ind-
landi. Flest þeirra
eru stúlkur.
„Hrætt við
andlit mitt“
Þegar Chandra Wisnu gekk að
eiga eiginkonu sína Nanik fyrir 33
árum, í Indónesíu, blasti lífið við
honum. Hann var ungur, myndar-
legur og vel menntaður og kom-
inn af góðum ættum. Skömmu
eftir brúðkaupið fór að síga á
ógæfuhliðina.
Hann hafði tekið eftir því að
litlar blöðrur höfðu myndast á
bakinu skömmu fyrir brúðkaup-
ið. Þá var hann nítján ára en fimm
árum síðar hafði ástandið versnað
til muna og þegar hann var 32 ára
þöktu blöðrurnar allan líkamann.
Wisnu vonast til að finna lækn-
ingu, sérstaklega af því að börnin
hans tvö virðast vera með sömu
einkenni.
Fjallað er um Wisnu í
myndinni Bubble Skin Man sem
sýnd verður 20. júní á TLC-sjón-
varpsstöðinni.
„Fólk er hrætt við andlitið mitt
og óttast að það smitist,“ sagði
hann við news.com.au. „Ég forð-
ast því fólk og fer örsjaldan út.
Þegar ég geri það þá hyl ég andlit
mitt,“ segir Wisnu sem hefur þó
ekki glatað eiginkonu sinni þrátt
fyrir ástandið.
Barn drakk
vodka og lést
Bandarískur karlmaður er
ákærður fyrir manndráp af gá-
leysi eftir að fjögurra mánaða
dóttir hans lést eftir að hafa
drukkið vodka úr pela.
Stúlkan lét lífið í júní í fyrra
eftir að hún drakk áfengið.
Ári seinna hefur faðir hennar,
Keith Antonine Furlow, frá Sto-
ne Mountain í Bandaríkjunum,
verið ákærður fyrir að mann-
dráp af gáleysi.
„Við erum að vonast eftir
réttlæti fyrir hönd stúlkunn-
ar,“ sagði saksóknarinn Robert
James við fjölmiðla vestanhafs.
Ákæruvaldið telur að barnið
hefði aldrei geta komist í áfeng-
ið. Er talið víst að faðir stúlk-
unnar, Furlow, hafi sett vodka í
pelann hennar.
„Það er augljóst að barn á
þessum aldri er ekki fært um að
halda á pelanum eitt og drekka.
Fjögurra mánaða gömul börn
eru mötuð,“ sagði saksóknarinn.