Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Blaðsíða 26
26 Fólk 18. júní 2012 Mánudagur Lemur stráka og brýtur spýtur n Margrét Edda Gnarr reynir við svarta beltið í Taekwondo F itnessfyrirsætan og söng- konan Margrét Edda Gnarr veigrar sér ekki við því að slást við stráka og brjóta spýtur með spörk- um. Hún er nefnilega líka ein fremsta taekwondo-kona lands- ins og reynir nú við svarta beltið. „Gekk vel í svarta beltis próf- inu í dag. Það eina sem ég gat ekki gert var að brjóta stein! Fyrir utan að brjóta steininn barði ég tvo stráka og braut fjórar spítur með flugsparki og hringsparki,“ segir Margrét á Facebook-síðu sinni en hún hefur gert það gott undanfarin misseri í fitness og meðal annars unnið til verð- launa á Arnold Classic sem er eitt stærsta mót sinnar tegundar í heiminum. Þá vann hún einnig silfurverðlaun í tveimur flokk- um á WBFF-Evrópumótinu í fit- ness. „Ég hef einn mánuð til þess að brjóta steininn og þá fæ ég vonandi svarta beltið,“ heldur Margrét áfram en á Twitter-síðu sinni birtir hún mynd af illa far- inni hönd eftir að hafa reynt við steininn. Eins og nafn Margrétar gefur til kynna er hún dóttir Jóns Gnarr borgarstjóra. Margrét er sem fyrr sagði einnig söngkona en hún söng meðal annars með hinni sálugu sveit Merzedes Club. Hún sendi frá sér lagið Waiting for an Accident í vet- ur og vinnur nú að sinni fyrstu plötu. Ekki náðist í Margréti við vinnslu fréttarinnar. Högni dulbúinn Frétt á Smartlandi á mbl. is hefur vakið mikla athygli á Facebook. Þar segir að Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, hafi mætt „dul- búinn“ á Grímuverðlaun- in. Segir að söngvarinn hafi hreinlega verið „óþekkjandi“ á hátíðinni. Meðfylgjandi er mynd af Högna með hatt, klút og sólgleraugu. Vinir söngvarans hafa gert mik- ið grín að dulargervinu á Facebook sem er í raun hans hversdagsklæðnaður. Lífsstíll Loga Logi Geirsson, silfurdrengur og fyrrverandi landsliðs- hetja, hefur einbeitt sér að þjálfun eftir að hann lagði skóna á hilluna. Logi hefur stofnað fjarþjálfunarfyrir- tæki þar sem hann býð- ur upp á þjálfun og alhliða lífsstílsbreytingu eins og kappinn orðar það. Logi er þekktur fyrir jákvætt hugar- far sitt og er nú að leita eftir einstaklingi á Facebook-síðu sinni sem hann ætlar að taka í gegn frítt. Logi ætlar að taka ferlið upp á myndband til að sýna fólki árangurinn. Bónorð í beinni Eva Bjarnadóttir gerði sér lítið fyrir og bað kærasta síns, Fannars Daða, í beinni útsendingu á FM957 á föstu- daginn. Hún sendi morgun- þættinum Magasín tölvu- póst og bað stjórnendur að hringja í Fannar og biðja hans. Fannar var að keyra vörubíl og þurfti að stoppa úti í kanti þegar hann fékk bónorðið. Eva var á hinni línunni og fékk að bera upp spurninguna. Blá og marin Magga Edda eftir að hafa reynt að brjóta stein með höndinni. Mynd skjáskoT af TwiTTEr. É g er mjög stoltur pabbi,“ segir Garðar Gunn- laugsson sem fylgdist með Hectori syni sín- um keppa á sínu fyrsta Pollamóti á Skaganum á föstudaginn. Sjálfur keppti Garðar á mótinu, sem nú kallast Norðurálsmótið, á sínum tíma. „Þegar ég keppti hét þetta HC-mótið. Það er mjög langt síðan. Við unn- um ekki en mig minnir að við höfum samt sigrað ári seinna í Stjörnumótinu.“ Garðar, sem byrjaði sjálf- ur að æfa fótbolta þegar hann var fimm ára, er lið- stjóri strákanna en Hector og liðsfélagar hans eru sjö ára. „Þeir standa sig mjög vel. Hector spilar stöðu fram- arlega á vellinum. Annars eru þeir nú bara úti um allt þessir strákar. Hector kippir í kynið og er góður mið- að við aldur og hann á sér stóra drauma. Auðvitað er hann mest í þessu til að hafa gaman af en hann er með stórt skap og er aldrei ánægður nema hann skori og vinni leiki. Sem er bara af því góða. Ég var þannig líka. Og er þannig ennþá,“ viður- kennir Garðar sem sjálfur leikur með ÍA og nýtur þess þessa dagana að horfa á EM í knattspyrnu með Hectori. „Við styðjum báðir Spán og Þýskaland svo við erum mjög samstíga í þessu. Það er mjög skemmtilegt að eiga svona áhugamál saman. Hann hef- ur líka virkilegan áhuga á boltanum. Ég þarf ekkert að ýta honum út í þetta. Hann er spilandi allan daginn og ég þurfti til dæmis að draga hann inn klukkan tíu í gær- kvöldi til að koma honum í rúmið,“ segir Garðar og bæt- ir aðspurður við að hann geti sjálfur skemmt sér konung- lega við að sprikla úti með syninum. „Hins vegar búum við í svo rótgrónu hverfi og hér er alltaf fullt af krökkum úti að leika sér. Pabbi gamli er því ekkert að flækjast fyrir. Ég kann ekki alveg við það.“ Garðar mun setjast á skólabekk í haust en hann ætlar sér að klára viðskipta- fræðina sem hann hætti í fyrir tæpum tveimur árum. „Ég þurfti að hætta þar sem prófatörnin skaraðist á við keppnistímann en núna ætla ég að klára þetta í fjar- námi. Þetta er mjög erfitt, maður er bara einn að læra,“ viðurkennir hann og bætir við að hann sé að tryggja sér ein- hvern starfsferil eft- ir að boltanum lýkur. „Maður er líka alltaf að skoða einhverj- ar fjárfestingar og við bræðurnir erum að bralla í ýmsu. Svo þetta nám á bara eftir að koma sér vel.“ indiana@dv.is n Garðar Gunnlaugsson nýtur þess að horfa á EM með syninum Stoltur faðir! Liðstjóri Garðar er liðstjóri liðsins en hann ætlar að skella sér á skólabekk í haust. fótboltastjörnur framtíðarinnar Að sögn Garðars er Hector efnilegur eins og hann á kyn til. „Pabbi gamli er því ekkert að flækjast fyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.