Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Qupperneq 17
„Ég sleit
sambandinu“
„Hjartað í mér var
brotið“
Tav Macdougall, fyrrverandi kærasti Lindu Pétursdóttur. – DV.isTómas Guðbjartsson læknir um það þegar hann bjargaði lífi Skúla Sigurz. – DV Jussanam Da Silva sem fagnar eins árs ríkisborgararétti. – DV
R
akst nýlega á gamlan skólafé-
laga hér heima. „Finnur“ hefur
lengi rekið nokkur fyrirtæki sem
gengið hafa upp og ofan. Aðal-
lega ofan þó. Samt heldur hann áfram
ótrauður, enda hafa „bankarnir“ af-
skrifað nokkur hundruð milljónir fyrir
hann.
Það er ekki að sjá að tapreksturinn
og skuldavandamálin (sem vitanlega
eru ekki lengur hans vandamál) hafi
haft mikil áhrif á „Finn“ og spúsu hans,
sem aka á nýjum jeppa og Benz og búa
í einbýlishúsinu sínu à la 2007. Fermdu
einn barnungann í vor og til að fagna
inngöngu barnsins í samfélag heilagr-
ar þrenningar dugði ekkert minna en
þriggja rétta „sit-down dinner“ fyrir
200 manns.
Þegar ég hitti „Finn“ voru þau hjón-
in á leið í þriggja vikna frí til Suður-
Frakklands. Ég reyndi að halda spari-
brosinu en fannst verst að hafa ekki á
mér ælupokann úr sætisvasa flugvélar-
innar.
Mér varð hugsað til annarra kunn-
ingjahjóna, launafólks, sem ég veit að
eiga í erfiðleikum með að greiða sínar
skuldir, sem ekki eru einhverjar fjár-
málafyllerísskuldir eins og „Finns,“
heldur einfaldlega húsnæðisskuldir
sem þau, eins og þúsundir annarra Ís-
lendinga, munu aldrei losna við vegna
geðsjúkrar peningastefnu íslenskra
stjórnvalda, sama hve þau leggja hart
að sér.
„Ísland er mjög alkóhólískt
þjóðfélag“
Fyrir tveimur árum skrifaði ég grein
fyrir tímarit SÁÁ um meðvirkni: Ísland
er „mjög alkóhólískt þjóðfélag – í raun
erum við ein stór vanvirk fjölskylda...
kannski ekki undarlegt þar sem alkó-
hólismi er okkar þjóðarsjúkdómur...
við [erum því] líka mjög meðvirkt sam-
félag. Í starfi mínu sem blaðamaður,
á erlendri grund að mestu, fannst mér
þjóðarmeðvirkniseinkennin stund-
um sláandi. Gagnrýni og skammir sem
ég fékk fyrir að lýsa og gagnrýna – af
hverju vildi ég tala svona „illa um Ís-
land?“ – opinberlega á erlendum vett-
vangi það sem gerst hafði á Íslandi
minnti mig á sambærileg viðbrögð í
vanvirku fjölskyldunni.“
Í dysfúnksjónal eða vanvirkum fjöl-
skyldum þjást fjölskyldumeðlimir af
hræðslu, reiði, særindum og skömm
vegna hegðunar (algengast alkóhól-
ismi/lyfjafíkn, spila/fjárhættufíkn) eins
eða fleiri fjölskyldumeðlima ... og inn-
an fjölskyldunnar er mikilli orku varið
– eins og sagt er, „alkóhólismi er ekki
áhorfendasport; öll fjölskyldan fær að
vera með“ – í að leysa úr og leyna flækj-
unum sem hegðunin skapar, sem og
auðvitað hegðuninni sjálfri.
Svarti sauður
þjóðarfjölskyldunnar
Mér finnst samlíkingin enn eiga vel
við. Foreldrar „bjarga“ fullorðnu af-
kvæmi sínu, sem á við, segjum áfeng-
isvandamál eða fjárfíkn að stríða,
með að þrífa upp eftir það – hringja
með afsakanir í vinnuveitendur, víla
og díla við lögreglu og lánardrottna,
borga skuldir alkóhólistans og sjá
honum fyrir fé, sem að sjálfsögðu fer í
meira áfengi og önnur föng nauðsyn-
leg til viðhalds vandamálsins. Hreini
skjöldurinn, fægður af foreldrunum,
er notaður til áframhaldandi misferla
– fyllería eða og fjársvika.
Við sjáum þessa hegðun alls stað-
ar í íslensku þjóðfélagi. Það er varla
sá fréttatími sem ekki greinir frá ein-
hverjum rettirófum eins og „Finni“,
sem skilja eftir sig sviðna jörð og tærð
tún. Og eftir uppskrift vanvirku fjöl-
skyldunnar er áfram hlúð að svarta
sauð þjóðarinnar, fjármálafíklum
forréttindastéttarinnar, sem lifa í vel-
sældum meðan almenningur berst í
bönkum, bókstaflega.
Öll aðföng fara í björgunarað-
gerðir
Þjóðfélagið, rétt eins og vanvirka
fjölskyldan, logar í illdeilum vegna
hegðunar fíkilsins og vandamálanna
sem hann og hans vandamál skapa.
Heilbrigð markmið og áform fyrir
fjölskylduna eru vonlaus því öll orka
fer í viðbrögð við vandamálunum; öll
athygli og aðföng fara í björgunarað-
gerðir fyrir fíkilinn meðan hin börnin,
þau heilbrigðu (eða sem höfðu alla
burði til heilbrigðis), eru vanrækt.
Verst er að þetta baneitraða fjöl-
skyldumunstur fær sjálfstæða til-
veru sem erfist milli kynslóða.
Fjölskyldumeðlimirnir endurtaka
hegðunina í eigin fjölskyldum og
samböndum – og stofnunum þjóðfé-
lagsins.
Nú mun eitthvað breytast!
Fjölskyldumeðlimirnir hugsa með
sér, þegar einhverjum hræðileg-
um botni er náð – eins og íslenska
bankahrunið – að nú muni „eitt-
hvað“ gerast og breytast, að nú muni
fíkillinn hætta, foreldrarnir sjá að
sér og hætta að fjármagna hegðun-
ina. En sjaldnast er raunin sú, eins
og Íslendingar vita. Áratugalangri
afneitun og meðvirkni verður ekki
breytt yfir nótt án utanaðkomandi
inngrips og jafnvel þó til slíkrar að-
stoðar komi er hjálpin sem þar býðst
oft notuð – ekki til þess að hefja nýtt,
heilbrigt líf – heldur til þess einung-
is að slökkva stærstu eldana eftir fík-
ilinn og viðhalda hegðunarmunstr-
inu.
Heilbrigðu börnin, sem eru orðin
langþreytt og þjáð, hugsa sem svo,
jæja, best að leyfa þeim bara að fá
skellinn á Botninum. En eins og
reynslan sýnir virðist ekki skipta máli
hve djúpur og hrjúfur botninn er. Og
biðin eftir Botninum getur verið afar
löng. Oft er eini botninn sex fetum
undir torfu.
Íslenska alkafjölskyldan
Spurningin
„Ég fékk mér ávaxta
frappuccino.“
Lóa Björk Björnsdóttir
19 ára nemi
„Ég lagði mig nú bara.“
Harpa Hilmarsdóttir
19 ára vinnur við aðhlynningu á
dvalarheimili aldraðra
„Labbaði um í bænum.“
Thelma Haraldsdóttir
18 ára nemi
„Ég fékk mér börger á Búllunni.“
Eysteinn Eyvindsson
18 ára nemi
„Ég var að vinna í allan dag á
hátíðarkaupi.“
Alfreð Jóhann Eiríksson,
18 ára tónlistarmaður
Hvað gerðir þú
á 17. júní?
1 Guðbergur um Gillz: „Meyj-arhaftavörn sem kallast
femínismi“
Rithöfundurinn Guðbergur Bergsson
bloggaði um lyktir máls Egils
Einarssonar.
2 Slys á Bíladögum: „Forvitni á ekki heima í svona óheppni“
Kynnir á Bíladögum á Akureyri bað
áhorfendur um að standa ekki yfir
þeim slösuðu eftir að bíl var ekið í
áhorfendahóp.
3 Ruddust inn á heimili og réðust á húsráðanda
Þrír menn ruddust inn á heimili á Akur-
eyri og gengu í skrokk á húsráðanda.
4 „Er Guðbergur ekki bara orðinn elliær?“
María Lilja Þrastardóttir spurði hvort
Guðbergur Bergsson væri orðinn elliær
vegna bloggs um Gillz-málið.
5 Kvensköpum skolaði á land Eftirlíkingu af æxlunarfærum kvenna
skolaði á land í Reykjafirði.
6 Bjartmar: „Aldrei án hennar“ Söngvarinn Bjartmar Guðlaugsson er
búinn að vera með konu sinni í 30 ár.
7 Lán til Páls ofmetin um 1.400 milljónir
Lán til eignarhaldsfélaga í eigu
athafnamannsins Páls Guðfinns
Harðarsonar voru ofmetin um 1.400
milljónir.
Mest lesið á DV.is
17. júní Líf og fjör í miðbænum á þjóðhátíðardaginn.
MyNd: Eyþór ÁrNaSoNMyndin
Kjallari
Íris Erlingsdóttir
Umræða 17Mánudagur 18. júní 2012
„Þjóðfélagið, rétt
eins og vanvirka
fjölskyldan, logar í illdeil-
um vegna hegðunar fíkils-
ins og vandamálanna sem
hann og hans vandamál
skapa.
„Aldrei án
hennar“
Bjartmar Guðlaugsson poppari um konu sína. – DV