Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2012, Page 22
L
istamanninn Erró þarf
vart að kynna fyrir ís-
lenskum listunnendum.
Þann 19. júlí mun
Erró, Guðmundur
Guðmunds son, fagna áttræðis-
afmæli sínu. Hann fæddist í
Ólafsvík árið 1932 og bjó um
tíma á Kirkjubæjarklaustri en
flutti síðan til Frakklands þar
sem hann hefur búið allar götur
síðan.
Í tilefni af áttræðisafmæli
hans verður, þann 16. júní, opn-
uð sölusýning á grafíkverkum
hans frá árunum 1990–2010.
Óhætt er að segja að sýningin
verði haldin á óvenjulegum stað
því Brekkugerði 19 í Reykja-
vík mun hýsa sýninguna. Það
hús er teiknað af arkitektinum
Högnu Sigurðardóttur, en hún
og Erró hafa þekkst um árabil
og hafa bæði verið búsett í París
lungann úr ævi sinni.
Íslenskur innblástur
Högna er vel kunn sem frum-
kvöðull á sviði byggingalistar á
Íslandi og var fyrst kvenna til að
hasla sér völl sem arkitekt hér-
lendis. Hún er þekkt fyrir að feta
ókunnar slóðir í verkum sínum
og var hús sem hún teiknaði að
Bakkaflöt 1 í Garðabæ valið eitt
af 100 merkustu byggingum 20.
aldar í Evrópu.
Högna útskrifaðist sem arki-
tekt frá École Nationale Supéri-
eure des Beaux-Arts í París árið
1960 og hlaut þá sérstaka viður-
kenningu skólans fyrir lokaver-
kefni sitt. Um var að ræða Garð-
yrkjubýli í Hveragerði og er það
mat þeirra sem til þekkja að þá
þegar hafi gætt áhrifa sérkenna
landsins, íslenskrar náttúru og
veðurfars í verkum hennar og
þann innblástur þróaði hún
áfram í síðari verkum sínum.
Sundlaug í forstofunni
Brekkugerði 19, sem hýsir sölu-
sýninguna, er um margt sér-
stakt hús. Húsið var byggt árið
1963 og er á tveimur hæðum
og hefur hlotið viðurkenningar
fegrunarnefndar Reykjavíkur;
árið 1971 fyrir snyrtilegt hús og
lóð, og 1973 sem fallegt mann-
virki.
Innan dyra er náttúruefni
afar áberandi – fallegt grjót,
steinar og viður. Einnig má telj-
ast einstakt að berja augum
sundlaug í forstofunni.
Högna Sigurðardóttir tók
sæti í Frönsku byggingalist-
arakademíunni árið 1992 og var
hún kjörin heiðursfélagi Arki-
tektafélags Íslands árið 2008 auk
þess sem hún hefur hlotið fjölda
alþjóðlegra viðurkenninga.
Erró hefur líkt og Högna
hlotið fjölda alþjóðlegra viður-
kenninga og meðal annars
verið sæmdur orðu frönsku
Heiðursfylkingarinnar í tvígang.
Það fer án efa vel á því að
verk þessara tveggja þekktustu
listamanna Íslands á franskri
grundu séu kynnt saman.
Sýningin stendur 16. júní–2.
júlí í Brekkugerði 19 í Reykjavík,
opnunarathöfnin stendur frá
klukkan 14.00 til 17.00 og það-
an í frá verður hún opin daglega
frá klukkan 12.00 til 17.00.
22 Menning 18. júní 2012 Mánudagur
Saga úr geimnum
n Ridley Scott snýr aftur á heimavöll
Í
ár sneri Ridley Scott aft-
ur á heimavöll með
Prometheus, eftir 30 ára
hlé frá vísindaskáldskap.
Prometheus fjallar um
atburði sem gerast á undan
Alien-þríleiknum. Myndin
rekur í raun upprunann á
geimverunni, sem skelfdi
áhorfendur fyrir rúmum
40 árum með því að vekja
upp óhuggulegar kennd-
ir um innilokun og kyn-
líf (þökk sé m.a. illræmdri
hönnun H.R. Giger). Helsti
fræðilegi munurinn á Alien
og Prometheus er sá að
Prometheus glímir nefnilega
við guðfræðileg og stjarn-
fræðileg viðfangsefni, sem
Alien kemur ekki nálægt.
Kosmískur leyndardómur
Myndin hefst árið 2089 þegar
tveir fornleifafræðingar
(Noomi Rapace, Logan Mars-
hall-Green) finna það sem
þau telja vera stjörnukort
meðal margra mismunandi
fornra menningarsamfélaga.
Þau líta á þetta sem skilaboð
frá fyrirrennurum mann-
kynsins, svokölluðum „verk-
fræðingum“. Síðan er hopp-
að tíu ár fram í tímann en þá
hefur leiðangur til plánet-
unnar, sem vísað er til í forn-
um hellaristum, verið fjár-
magnaður af stórfyrirtækinu
Weyland Corporation í þeim
tilgangi að reyna að svara
stærstu spurningum mann-
kynssögunnar. Könnunar-
geimskipið Prometheus lendir
þá á þessari fjarlægu plánetu
og reyna vísindamennirnir að
komast til botns í þessum ko-
smíska leyndardómi.
Tvífættur HAL 9000
Ljóst er að gríðarleg vinna
hefur verið lögð í myndina en
leikararnir eru góðir og sjón-
rænt séð er hún mjög falleg.
Handritið er framsækið en
ófáa hluti hefði þó mátt skýra
betur. Fyrir utan að skerpa
tæknibrellurnar og útlitið gerir
þrívíddin reyndar ekki mikið
fyrir myndina sjálfa og að mati
undirritaðs hefði eins vel mátt
njóta hennar án asnalegra
rammagleraugna. Áhugaverð-
asti karakterinn er án efa vél-
mennið David (Michael Fass-
bender), sem minnir sterklega
á persónu úr Blade Runn-
er (sem er einnig eftir Scott)
eða tvífættan og myndarlegan
HAL 9000 úr 2001: A Space
Odyssey.
Það er ekkert smá verk-
efni að fylgja Alien-þríleiknum
eftir en í tilfelli Prometheus
heppnast það ágætlega þó að
áttin sem stefnt var í hafi verið
allt önnur.
Erró í húsi högnu
n Lungamjúkir draumar n Sölusýning og sundlaug í forstofunni
Brekkugerði 19 Fallegt hús, byggt 1963.
Sundlaug í forstofunni Náttúruefni, grjót og vatn, gríðarlega fallegt.
Langt á undan sinni
samtíð Högna var merkur
arkitekt, langt á undan
sinni samtíð og þekkt fyrir
að feta nýjar slóðir.
Verkum stillt í rýmið Verkum Erró er stillt upp innan íbúðarinnar og úr
verður hin skemmtilegasta sölusýning.
Framsækið handrit Það er ekkert
smá verkefni að fylgja Alien-þrí-
leiknum eftir en í tilfelli Prometheus
heppnast það ágætlega.
Þórður Ingi Jónsson
ritstjorn@dv.is
Bíómynd
Prometheus
IMDb 7,7 RottenTomatoes 74% Metacritic 6,6
Leikstjóri: Ridley Scott
Handrit: Jon Spaihts, Damon Lindelof
Aðalleikarar: Noomi Rapace, Logan
Marshall-Green and Michael Fass-
bender
124 mínútur
Mögnuð
ræða
Högni Egilsson veitti verð-
laun á Grímunni í Hörpu á
fimmtudag í síðustu viku.
Hann hélt langa ræðu áður
en hann kynnti tilnefn-
ingarnar og var hugstæð
„kakófónía“ skipstjór-
anna við höfnina þar sem
þeir þeyttu skipsflauturn-
ar og drukku svart kaffi
úr fanti. „Sjálfur drekk ég
bara espressó,“ sagði Högni
og baðst svo afsökunar á
að hafa ælt út úr sér sín-
um ófullkomleika yfir gesti
Grímunnar.
Leikarinn prúði, Ólafur
Darri, aðalkynnir Grímunn-
ar, brosti út í annað þegar
hann steig á svið á eftir
Högna og þakkaði honum
háðslega fyrir að leiðrétta
allan misskilning um latte-
lepjandi trefla.
Tengdó
grét
Valur Freyr Einarsson, leik-
ari og leikskáld, var verð-
launaður í bak og fyrir á
hátíðinni. Sýningin Tengdó
hreinlega rakaði inn verð-
launum. Var það sannkall-
aður fjölskyldusigur fyrir Val
Frey og eiginkonu hans, Ilmi
Stefánsdóttur, en Ilmur var
verðlaunuð fyrir leikmynd
sína í sýningunni Hreinsun.
Sýningin Tengdó sem Val-
ur samdi og lék í fjallaði um
móður Ilmar, Magneu Rein-
aldsdóttur, og leit henn-
ar að föður sínum. Magnea
tók á móti verðlaununum
með Val. Valur sagði gestum
á Grímunni frá því að hann
hefði verið dauðhræddur
um að hafa sært tilfinningar
tengdamóður sinnar á frum-
sýningu verksins þar sem
hann sá hana gráta úti í sal
og hversu feginn hann varð
þegar hann komst að því að
tárin sem runnu hafi verið
vegna hrifningar og gleði.
Tríó Óskars Guð-
jónssonar á Kex
Á næstu tónleikum djass-
tónleikaraðarinnar á Kex
Hostel, Skúlagötu 28,
þriðjudaginn 19. júní kl.
21 kemur fram tríó sax-
ófónleikarans Óskars
Guðjónssonar. Auk hans
skipa tríóið gítarleikar-
inn Eðvarð Lárusson og
trommuleikarinn Matthí-
as Hemstock. Tríóið mun
meðal annars flytja eigin
útsetningar á tónlist úr
„Dýrunum í Hálsaskógi“
eftir Torbjörn Egner. Tón-
leikarnir hefjast standa í
um tvær klukkustundir,
með hléi. Sem fyrr er að-
gangur ókeypis, en bar-
inn og hið vinsæla eldhús
Kex er auðvitað opið.