Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Side 2
N
ýráðinn verkefnastjóri Þró-
unarsamvinnustofnunar,
staðsettur í Malaví, hefur ekki
búið í Afríku, hefur ekki form-
lega menntun í þróunarmál-
um né hefur hann starfað í geiranum.
Þrátt fyrir þessa vankanta var Guð-
mundur Rúnar Árnason, forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar og fulltrúi Sam-
fylkingarinnar, talinn hæfastur í hópi
tæplega 80 umsækjenda um stöðuna.
Fyrirtækið Capacent fór með ráð-
gjöf við ráðningu Guðmundar en auk
þess voru Engilbert Guðmundsson,
framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
og María Erla Marelsdóttir, sviðsstjóri
Þróunarsviðs utanríkisráðuneytisins,
með í ráðum. Þá mun einnig hafa ver-
ið leitað til Vilhjálms Wiium, umdæm-
isstjóra Þróunarsamvinnustofnunar-
innar í Malaví. DV hefur heimildir fyrir
því að ráðningin sé ekki á forsendum
Þróunarsamvinnustofnunar og að
innan stofnunarinnar og meðal þeirra
sem starfa við þróunarmál hér á landi
sé veruleg ólga vegna hennar. Fram-
kvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofn-
unar þvertekur fyrir þrýsting ofan úr
ráðuneyti. Traustar heimildir blaðsins
herma að Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra hafi með ráðningu Guð-
mundar að gera.
DV leitaði eftir viðbrögðum frá
Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráð-
herra en fékk ekki. Þá var gerð tilraun
til að ræða við Guðmund sjálfan en
það tókst ekki heldur.
Kannast ekki við þrýsting
„Ég skal svara því mjög einfaldlega á
þessari stundu og segja að það er bara
alls ekki tilfellið,“ segir Engilbert Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri Þró-
unarsamvinnustofnunar, aðspurður
hvort þrýst hafi verið á hann að ráða
flokksbróður utanríkisráðherra í starf-
ið. „Ráðherra hefur á engu stigi máls-
ins beitt mig neinum þrýstingi eða lagt
til neitt í málinu og mér þykir ólíklegt
að hann hafi verið að hafa samband
við einhvern hjá Capacent eða um-
dæmisstjóra minn í Malaví.“ Engu að
síður hefur DV upplýsingar úr fleiri
en einni átt um að ráðningin sé ekki á
forsendum stofnunarinnar.
Þróunarsamvinnustofnun og
Engil bert hafa nokkra reynslu af um-
deildum ráðningum. Árið 2007, áður
en Engilbert hlaut framkvæmdastjóra-
stöðuna, var Stefán Jón Hafsteinn,
borgarfulltrúi í Reykjavík, ráðinn til
stofnunarinnar. Sú ráðning var gagn-
rýnd nokkuð og þótti lykta af sam-
tryggingu stjórnmálanna. Ólíkt Guð-
mundi hafði Stefán þó nokkra reynslu
af því að starfa við þróunarmál en
hann var sendifulltrúi Alþjóðasam-
bands Rauða kross félaga og Rauða
kross Íslands í Genf og Afríku nokkrum
sinnum á árunum 1985 til 1988.
Engilbert þekkir pólitískar ráðn-
ingar á eigin skinni ef marka má heim-
ildir DV en árið 2001 sótti hann um
starf framkvæmdastjóra Þróunarsam-
vinnustofnunar ásamt Sighvati Björg-
vinssyni fyrrverandi ráðherra Alþýðu-
flokksins. Þrýst var á Engilbert á sínum
tíma að draga umsóknina til baka sem
hann og gerði. „Það er mál sem ég kæri
mig ekki um að ræða,“ segir Engilbert
við DV spurður hvort rétt sé að þrýst
hafi verið á hann sjálfan á sínum tíma
að draga umsókn sína til baka.
Ekki fyrir ráðuneytið
Utanríkisráðuneytið hefur hingað til
ekki átt fulltrúa í matsnefndum við
ráðningu verkefnastjóra stofnunar-
innar. Öðru gildir þó um ráðningu
framkvæmdastjóra. Hjá utanríkis-
ráðuneytinu fengust þau svör að
María Erla hafi ekki komið að ráðn-
ingunni sem fulltrúi ráðuneytisins.
„Þróunarsamvinnustofnun óskaði
eftir því að sviðsstjóri Þróunarsam-
vinnusviðs ráðuneytisins hefði að-
komu að ráðningunni í krafti sér-
þekkingar sinnar á málaflokknum.
Sviðsstjórinn varð við þeirri beiðni,
en aðkoman var ekki sem fulltrúi
ráðuneytisins, heldur vegna þekk-
ingar á málaflokknum sem um
ræðir,“ segir í svari ráðuneytisins.
Svör Þróunarsamvinnustofnun-
ar voru samsvarandi og því bætt við
að Þórdís Sigurðardóttir skrifstofu-
stjóri stofnunarinnar sem fer með
starfsmannamál hafi talið sig van-
hæfa og óskað eftir að víkja úr ráðn-
inganefndinni vegna tengsla við um-
sækjendur.
Capacent án valds
DV óskaði eftir aðgengi að nafnalista
þeirra áttatíu sem sóttu um starf-
ið frá Þróunarsamvinnustofnun.
Þar fengust þau svör frá Capacent
að nauðsynlegt sé að aðvara þá sem
sóttu um áður en nafn þeirra birt-
ist í umfjöllun fjölmiðla. Listinn var
því ekki afhentur áður en blaðið fór
í prentun. Þá hefur Þróunarsam-
vinnustofnun þegar borist ósk um
nánari röksemdarfærslu fyrir ráðn-
ingu Guðmundar.
Þótt gjarnan sé vitnað til aðkomu
ráðningafyrirtækja líkt og Capacent
sem stimpil á faglega ráðningu er vert
að taka fram að fyrirtækin veita að-
eins ráðgjöf. DV leitaði til Capacent
og Hagvangs og óskaði upplýsinga
um í hverju ráðgjöf fyrirtækjanna
fælist. Báðir aðilar staðfestu við blað-
ið að ákvörðunartaka er ávallt í hönd-
um verkkaupa. Fulltrúum hans er því
ávallt í sjálfvald sett að breyta, hafna
eða bæta við einstaklingum sem taka
á í mat eða færa fram í næsta stig
ráðningarferlisins. Samkvæmt þessu
fara fyrirtækin með ráðgjöf en ekki
ráðningu. Stjórnmála- og embættis-
menn geta því ekki sjálfkrafa skýlt sér
að baki fyrirtækjunum.
Lokaritgerð um kosningar 1987
Árið 1991 útskrifaðist Guðmund-
ur, sá sem ráðinn var, með doktors-
gráðu í stjórnmálafræði frá London
School of Economics. Guðmundur
er samkvæmt upplýsingum frá Þró-
unarsamvinnustofnun ekki einn úr
hópi umsækjenda með doktorspróf.
Guðmundur var einn með dokt-
orspróf sem fór í viðtal. „Sá aðili sem
var valinn var klárlega með mesta
menntun þeirra sem þóttu alvarlega
koma til greina en það var ekki bara
menntunin heldur líka reynslan. Sér-
staklega á sviði stjórnsýslu, fjármála-
stjórnar og annarra slíkra hluta sem
teknir voru fram í auglýsingunni.
Það réði þessari ákvörðun,“ segir
Engilbert en bætir við að meðal um-
sækjenda hafi meðal annars verið
læknir. Hann hafi verið í hópi sem
verulega kom til greina en valdist þó
ekki í lokahópinn. Hvort læknirinn
sé með doktorspróf segir Engilbert;
„Það minnir mig en ég þori ekki að
fullyrða það. Ég fullyrði að í hópi
þeirra sem þetta teymi sá ástæðu til
að að eiga viðtal við var Guðmundur
sá eini með doktorspróf,“ svarar Eng-
ilbert. Þekking á lýðheilsumálum var
talinn kostur í auglýsingu Þróunar-
samvinnustofnunar um starfið.
Frá Hafnarfirði til Malaví
Guðmundur var til loka júní bæjar-
stjóri í Hafnarfirði í skjóli meirihluta
Samfylkingar og VG en var ætlað
að víkja úr sæti bæjarstjóra sam-
kvæmt samkomulagi flokkanna um
mitt kjörtímabil. Umsóknarfrestur í
starf þróunarstjóra rann út fimmta
júní síðastliðinn en starfið var fyrst
auglýst í maí. Í starfslýsingu sem
birtist í Vefriti um þróunarmál sem
stofnunin gefur reglulega út seg-
ir að starfið feli í sér verkefnastjórn
og undirbúning vegna verkefna
stofnunarinnar. Þá segir að í starf-
inu felist áætlanagerð og eftirfylgni
með verkefnum, samskipti við
stjórnvöld, þar með talið samskipti
við héraðsstjórn í Mangochi. Sam-
vinna og stuðningur við hagsmuna-
samtök, stofnanir og hagsmunaað-
ila er hluti af starfinu sem og ráðgjöf
við umdæmisstjóra stofnunarinnar
í landinu.
2 Fréttir 22. ágúst 2012 Miðvikudagur
„Þetta er hundrað
prósent ósatt“
„Ég hef aldrei átt eða tengst smá-
lánafyrirtæki á Íslandi,“ segir
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
bankastjóri, í viðtali við DV um
það hvort hann tengist rekstri um-
deildra smálánafyrirtækja á Íslandi.
Mikil umræða hefur verið í sam-
félaginu og í netheimum um slík
fyrirtæki og hefur nafn Bjarna oftar
en ekki komið fram í tengslum við
það. Mynd hefur meðal annars
gengið á Facebook þar sem Bjarni
er bendlaður við smálánafyrirtæki
en rekstur þeirra þykir afar um-
deildur, eins og DV hefur fjallað um
undanfarið. Bjarni hefur meðal
annars verið sagður eigandi smá-
lánafyrirtækisins Hraðpeningar, en
hann segist hins vegar ekki tengjast
því á einn eða neinn hátt og segir:
„Þetta er hundrað prósent ósatt.“
Pólitísk ráðning
n Flokksbróðir ráðherra ráðinn til Þróunarsamvinnustofnunar
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Reynslulaus Guðmundur Rúnar Árnason var ráðinn úr hópi áttatíu umsækjenda. Hann
hefur hvorki reynslu né menntun á sviði þróunarmála.
Flokksfélagi Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra og Guðmundur eru
flokksfélagar.
Framkvæmdastjórinn Engilbert
Guðmundsson var ráðinn til Þróunarsam-
vinnustofnunar árið 2011.
Umdeild ráðning Sighvatur Björgvinsson
fyrrverandi ráðherra var árið 2001 ráðinn til
starfa sem framkvæmdastjóri stofnunar-
innar.
Aftur í bæjarstjórn Lúðvík Geirsson
fyrrverandi bæjarstjóri og þingmaður
Samfylkingarinnar sest væntanlega aftur í
bæjarstjórn vegna fjarveru Guðmundar.
Bjóst við ákæru
Ríkissaksóknari hefur ákært
Gunnar Andersen, fyrrverandi
forstjóra Fjármálaeftirlitsins, og
starfsmann Landsbankans fyr-
ir að brjóta gegn þagnarskyldu
bankaleyndar. Frá þessu var
greint í Fréttablaðinu í gær. Tví-
menningarnir eru kærðir fyrir að
hafa aflað gagna um persónuleg
fjármál Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, og komið þeim til DV í
gegnum þriðja aðila.
„Þetta kemur ekki á óvart
því þarna var aflað gagna með
ólöglegum hætti,“ sagði Guð-
laugur Þór um kæruna í viðtali á
Bylgjunni. Hann sagði þó kald-
hæðnislegt að lekinn hafi ekki
komið illa við sig þar sem upp-
lýsingarnar sem fram komu hafi
ekki verið neitt launungarmál.
Málið er afar athyglisvert í
ljósi þess að Gunnar Andersen
hefur sjálfur sakað Guðlaug Þór
um að leka gögnum um hann til
Kastljóssins. Sagði Gunnar þau
gögn einnig hafa verið fengin úr
Landsbankanum. Að auki voru
fréttastjóri DV og lektor við Há-
skóla Íslands á meðal sakborn-
inga í fyrstu, en mál saksóknara
á hendur þeim hafa verið látin
niður falla.
Dans dans
dans á RÚV
RÚV hefur ákveðið að ráðast í fram-
hald af þáttunum Dans dans dans
þrátt fyrir nýlegar fréttir um hið
gagnstæða. Í frétt Viðskiptablaðsins
í byrjun ágúst kom fram að hætt
hefði verið við að framleiða og sýna
aðra seríu þáttarins Dans Dans
Dans. Ástæðan var sögð peninga-
leysi ríkismiðilsins. Þetta staðfesti
dagskrárstjóri RÚV, Sigrún Stefáns-
dóttir, á dögunum. Þá kom fram
í fréttinni að í stað dansþáttarins
myndi Þórhallur Gunnarsson stýra
þætti þar sem sýnd yrðu brot úr
þáttunum Á tali með Hemma Gunn,
sem Hermann Gunnarsson stýrði
til fjölda ára. Dansprufur fara fram í
Hörpu í september og eru áhuga-
samir hvattir til að taka þátt. Dóm-
ararnir verða þeir sömu og í fyrra.