Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Qupperneq 4
4 Fréttir 22. ágúst 2012 Miðvikudagur
Þ
að er vonlaust að fá íbúð,
maður fer á milli íbúða og
er að berjast um pínulitl
ar íbúðir á uppsprengdu
verði við 100 aðra,“ seg
ir einstæð móðir á leigumarkaðn
um. Hún fékk á dögunum, eftir
margra mánaða leit, loksins leigða
íbúð og segir þungri byrði af sér
létt. Hún var þó einungis ein af
mörgum sem leita sér að íbúð á
höfuð borgarsvæðinu og gengur
illa að finna. Fjölmargir leigjendur
sem DV hefur rætt við hafa sömu
sögu að segja. Erfitt er að fá íbúð
ir til leigu, baráttan er hörð um
þær fáu íbúðir sem eru í boði og
leiguverðið er hátt, mun hærra en
margir ráða við. Hún segir þó verst
hversu ótryggt ástandið sé en núna
er sá tími þegar hvað mest hreyf
ing er á leigumarkaðnum. „Þótt
ég sé komin með íbúð núna finnst
mér ég samt ekki vera örugg, það
er svo algengt að fólk leigi út íbúð
ir í stuttan tíma í senn og það vant
ar eitthvert öruggara úrræði,“ segir
konan sem vill ekki láta nafns síns
getið.
Biðlistinn aldrei verið lengri
Samkvæmt mælingum frá Þjóð
skrá Íslands hækkaði leiguverð á
höfuð borgarsvæðinu um 3,2 pró
sent í júlí. Það er mun meiri hækk
un en hefur verið undanfarna
mánuði en að meðaltali hefur sú
hækkun verið 0,9 prósent. Dæmi
eru um að 2–3 herbergja íbúð
ir á almennum leigumarkaði séu
leigðar á í kringum 150.000 krónur
á dýrari svæðum höfuðborgarinn
ar þó er það misjafnt eftir því hvar
þær eru staðsettar í bænum.
Staða ungs fólks á leigumark
aðnum virðist frekar slæm. Til að
mynda hefur biðlisti eftir íbúðum
hjá Stúdentagörðum Háskóla Ís
lands aldrei verið lengri og margir
nemar eiga erfitt með að finna
leiguhúsnæði sem hentar þeirra
fjárhag.
Þegar íbúðum var úthlutað hjá
Stúdentagörðum þann 1. ágúst
síðastliðinn voru 1.018 umsækj
endur á biðlista eftir íbúðum sem
ekki fengu úthlutað. Það er lengsti
biðlisti sem hefur verið en áður
var sá lengsti frá árinu 2008 en þá
voru 985 á lista. Í fyrra voru 658
umsækjendur á listanum en árið
2005 voru þeir 427.
Leigja frekar til ferðamanna
Rebekka Sigurðardóttir upplýsinga
fulltrúi hjá Félagsstofnun stúdenta
segir ýmsar ástæður vera að baki
löngum biðlista. „Þótt ég geti auð
vitað ekki fullyrt neitt þá finnst mér
líklegt að á meðal þess sem veldur
þessum mikla fjölda sé að margir
sem eiga litlar íbúðir virðast hafa
gert þær upp til að leigja ferða
mönnum með meiri hagnaðarvon
í huga. Þar með eru íbúðirnar ekki
lengur í langtímaleigu. Þannig að
margt af því húsnæði sem stúdent
ar höfðu ráð á að leigja er farið af
markaðnum og er orðið að gistihús
næði sem leigt er til ferðamanna á
verði sem stúdentar ráða ekki við.
Aðalvandinn er svo sá sami og alltaf
hefur verið, það er ekki hefð fyrir
neinu sem heitir langtímaleigu
markaður á Íslandi. Framboð á litl
um leigueiningum er lítið og það er
stórt vandamál fyrir hópa eins og
stúdenta og aðra sem hafa litla pen
inga á milli handanna.“
Leigja svart
Þegar skoðaðar eru nokkrar þeirra
vefsíðna sem auglýsa íbúðir til
leigu má að fjöldi íbúða í boði er
ekki gríðarlegur. Skilmálar leig
unnar eru líka misjafnir. Í sumum
tilfellum er hússjóður og rafmagn
reiknað inn í leiguverð en oft borg
ar leigjandinn það aukalega. Þegar
íbúð er tekin á leigu þarf yfirleitt að
borga tryggingargjald, stundum allt
upp í sem nemur þriggja mánaða
leigu. Auk þess virðast sumir vilja
leigja íbúðir sínar út án þess að gefa
það upp en þá getur leigjandinn
ekki fengið húsaleigubætur hafi
hann rétt á þeim. Viðmælandi DV
kannast við það úr íbúðaleit sinni.
„Þá er leigan í einhverjum tilfell
um aðeins lægri, þó alls ekki öll
um, en þá fær maður ekki leigu
bætur þannig að eins og fyrir mig
þá myndi ég aldrei hafa efni á því,“
segir konan.
Verð á þeim íbúðum sem aug
lýstar eru á vefsíðunum sem skoð
aðar voru er misjafnt en sjald
gæft er að finna tveggja herbergja
íbúðir undir 100 þúsund krónum
á mánuði. Auk þess geta alls kyns
gjöld bæst við, svo sem hiti, raf
magn og hússjóður sem ekki er
alltaf reiknaður inn í kostnaðinn.
SlegiSt um
leiguíbúðir
n Leiguverð hækkar n Aldrei verið fleiri á biðlista hjá Stúdentagörðum„Aðalvandinn er
og hefur alltaf
verið sá, að það er ekki
hefð fyrir neinu sem heitir
leigumarkaður á Íslandi.
Dæmi um
íbúðir til leigu
Hverfi Stærð Herbergi Verð
111 43 2 95.000 kr
108 75 3 155.000 kr
104 90 3 190.000 kr
101 117 3 250.000 kr
108 107 4 150.000 kr
170 64 2 140.000 kr
200 55 2 110.000 kr
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Baráttan hörð
Erfitt er að fá
íbúðir til leigu og
baráttan um þær
sem eru í boði er
hörð.
1000 á biðlista Rebekka segir vanta
minni húsnæði á leigumarkaðinn en rúm-
lega 1000 manns eru á biðlista eftir íbúð á
Stúdentagörðum.
Suðurlandsskjálftarnir 2008:
Rúmlega hundrað
mál enn ókláruð
Hundrað og níu tjóna og við
bótartjónamál vegna jarðskjálft
anna á Suðurlandi árið 2008
hafa enn ekki fengið fullnað
arafgreiðslu. Þetta kemur fram
í svari efnahags og viðskipta
ráðherra við fyrirspurn Sigurðar
Inga Jóhannssonar, þingmanns
Framsóknarflokksins. Sigurð
ur spurði ráðherra hver staða
tjónþola hvað varðar viðlaga
tryggingar væri eftir skjálftanna
2008.
Í svarinu kemur fram að sam
kvæmt upplýsingum Viðlaga
tryggingar Íslands hafi þann 1.
júlí síðastliðinn tilkynntir tjóns
staðir vegna skjálftanna verið
4.493. Þar af eru tjón á fasteign
um í 3.914 tilvikum og í 579 mál
um var eingöngu tilkynnt um inn
bús eða lausafjártjón. Tilkynnt
hefur verið um viðbótarfasteigna
tjón í 828 málum og viðbótarinn
bústjón í 2 málum.
Ef litið er á tjónstilkynningar
á fasteignum eftir árum voru
3.169 tjónsatvik tilkynnt árið
2008. Árið 2009 voru tilkynnt
536 tjón og 424 viðbótartjón,
árið 2010 voru tilkynnt 131 tjón
og 177 viðbótartjón, árið 2011
voru tilkynnt 60 tjón og 154 við
bótartjón og það sem af er af ár
inu 2012 hafa verið tilkynnt 18
tjón og 86 viðbótartjón.
Tjóna og viðbótartjóna
mál sem enn hafa ekki feng
ið fullnaðarafgreiðslu eru 109
talsins. Þar af voru þann 1. júlí
sl. 5 mál í greiðsluferli, í 47 mál
um var frestur tjónþola til and
mæla ekki liðinn, matsgerð var í
vinnslu í 46 málum og óskoðuð
mál voru 11.
Af óskoðuðum málum voru
þrjú mál tilkynnt árið 2008,
eitt var með ranga skráningu í
gagnagrunni, eitt er á Vestfjörð
um og telst utan áhrifasvæð
is jarðskjálfta á Suðurlandi og
í þriðja tilfellinu hefur verið
beðið eftir viðbrögðum tjónþola
við fyrirspurnum matsmanna.
Tvö málanna voru tilkynnt 2010
og þrjú 2011 og hafa þau ekki
ennþá verið skoðuð. Síðustu
þrjú málin voru öll tilkynnt á
þessu ári og eru í vinnslu. Í þeim
tilfellum sem tjónaskoðun hef
ur dregist hefur nú þegar verið
brugðist við og haft samband
við málsaðila til að ljúka skoðun
og tjónamati.
Unglingadeild
“Þvert á stíl”
Einsöngsdeild
Grunnnám, miðnám, framhaldsnám
Innritun til 28. ágúst
Inntökupróf 30. ágúst
Skólasetning 31. ágúst kl. 18
Sjá nánar á www.songskoli.is
Sími: 552-0600 og 893-7914