Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Side 26
26 Fólk 22. ágúst 2012 Miðvikudagur Vinkonur með tískublogg n Fyrirsætan Tinna Alavis er frekari en stílistinn Brynja Norðfjörð M ig langaði að gera eitt- hvað skemmtilegt með skólanum og fékk þá hugmynd að byrja með tískublogg,“ segir fyrirsætan Tinna Alavis sem, ásamt Brynju Norðfjörð vinkonu sinni, stend- ur fyrir tískublogginu secrets.is sem fjallar um tísku, hönnun og heilsu. Tinna hefur unnið sem fyr- irsæta um víða veröld en er flutt heim. „Ég er að læra fatahönnun en Brynja er stílisti og förðunar- fræðingur og okkur langaði að fjalla um áhugamálið okkar. Við höfum báðar mikinn áhuga á tísku en ég hef verið mikið í kringum þennan bransa síðustu ár og finnst allt sem viðkem- ur tísku, hönnun og ljósmynd- un einstaklega spennandi. Okk- ur finnst báðum gaman að sýna falleg föt og gefa dömum og herrum hugmyndir um vöruúr- val í verslunum á Íslandi í dag. Tinna og Brynja hafa báðar verið áberandi í tískuheimin- um síðustu misserin og hafa auk þess verið vinkonur um árabil. „Brynja er vinur í raun, traust og trygg og ég hlæ aldrei jafn mik- ið og þegar Brynja mín er ná- lægt. Samstarfið gengur vel en við erum báðar skapstórar þótt ég hugsi nú að ég sé nú frekari,“ segir Tinna hlæjandi. Aðspurð neitar hún því að vinna ennþá sem fyrirsæta. „Ég er alfarið að einbeita mér að skólanum núna auk þess að vinna í síðunni. Við komum til með að sýna falleg föt úr ýmsum verslunum, gefa hollar og góðar uppskriftir, setja inn áhugaverð vídeó og margt fleira skemmti- legt.“ A mma á bústað þarna í grenndinni. Hún bjóst við að við vær- um að fara að hitta bændur og búalið og hlusta á sögur og fræðast um ættfræði í sveitinni. Við keyrð- um hins vegar með hana að Drumboddsstöðum þar sem við komum henni á óvart,“ seg- ir fréttamaðurinn Andri Ólafs- son sem, ásamt fjölskyldu sinni, bauð ömmu sinni, Auði Gests- dóttur, í rafting í Hvítá á 75 ára afmælisdaginn sem var síðasta laugardag. Andri segir uppátækið hafa komið Auði skemmtilega á óvart. „Hún var bara hress með þetta og hikaði ekki við að skella sér í blautgallann og setja á sig hjálminn. Afi kom líka með en hann treysti sér ekki. Það var allt í lagi. Það var amma sem átti afmæli og við gerum bara eitthvað fyrir hann þegar hann á afmæli,“ segir Andri og bæt- ir við að það hafi verið mamma hans sem hafi upphaflega átt hugmyndina. „Við vorum strax sammála um að framkvæma þetta og hugsuðum lítið um það hvort amma væri til eða ekki. Eða hvort henni þætti yfir höfuð gaman að fara í rafting. Amma er öflug og flott kona og þótt hún sé orðin 75 ára er hún ennþá heilsuhraust. Það er því engin ástæða fyrir hana að fara ekki í rafting.“ Andri segir ömmu sína ekki hafa dottið út fyrir. „Bátnum hvolfdi ekki en það var töluvert um ærsl og busl. Amma baðst vægðar í öllu svoleiðis svo ég lét mér nægja að fleygja mömmu í Hvítá. Amma var meira að virða fyrir sér fegurðina í kring á meðan við hin vorum að slást. Amma og fjölskylda hennar tengist þessu svæði og eru ætt- uð frá sveitinni þarna í grennd,“ segir hann en bætir við að hann viti ekki hvort hún ætli að skella sér aftur. „Ég efast um að hún sé komin með „bakteríuna“ en ég held að hún hafi haft mjög gaman að fá að upplifa þetta að minnsta kosti einu sinni.“ Andri þvertekur fyrir að fjöl- skyldan sé eitthvað ævintýra- gjarnari en gengur og gerist. „Það held ég ekki. Við erum bara voðalega venjuleg. Eftir ferðina fórum við svo öll saman í bústaðinn þar sem við borðuð- um saman stórfjölskyldan um kvöldið og fögnuðum afmælinu á sjálfri Menningarnótt.“ „Ég efast um að hún sé komin með „bakterí­ una“ en ég held að hún hafi haft mjög gaman að fá að upp­ lifa þetta að minnsta kosti einu sinni.“ Bauð ömmu í rafting n Andri Ólafsson gaf ömmu sinni heldur óvenjulega 75 ára afmælisgjöf Með ömmu Andri og Auður amma hans tilbúin í fjörið. Andri Ólafsson Andri er fréttamaður á Stöð 2. Hann eyddi síðasta laugardegi með stórfjölskyldunni þar sem amma hans átti afmæli. Fyndin sund- drottning Sunddrottningin og fyrirsæt- an Ragnheiður Ragnarsdóttir heldur úti vefsíðunni mdes- igniceland.tumblr.com þar sem hún birtir myndir af fal- legri hönnun og hlutum sem veita henni innblástur. Þar er einnig að finna svokallaða gif-brandara sem segja má að sé nýjasta æðið á netinu. Um stuttan texta undir hreyfimyndum er að ræða en önnur vinsæl íslensk gif-síða er The Berglind Festival. Inga Lind til Spánar Fjárfestarnir Árni Hauks- son og Hallbjörn Karls- son eru þekktir fyrir að vera séðir í viðskiptum og hafa veðjað rétt í gegnum tíðina í stormasömu íslensku við- skiptalífi. Nú veðja þeir báð- ir á Barcelona. Hallbjörn hefur búið í borginni um tíma með eig- inkonu sinni Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, fyrrver- andi borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, og nú flytj- ast hjónin Árni og Inga Lind búferlum til borgarinnar. Það er orðið æði fjöl- mennt af athafnafólki í borginni en þar búa einnig Hannes Smárason og kærasta hans Brynja X. Víf- ilsdóttir og Magnús Ármann og Margrét Baldursdóttir. Bræður saman í fríi Útvarpsmaðurinn og vöðva- tröllið Ívar Guðmunds- son nýtur lífsins í sumar- leyfi þessa dagana en hann er staddur í Bandaríkjunum ásamt stóra bróður sínum, fyrrverandi N1 forstjóranum Hermanni Guðmundssyni. Þeir bræður skelltu sér ein- ir saman í frí og hafa það nú gott í sólinni og á golfvellin- um. Samkvæmt heimildum DV er síðasta vika sumarleyfis Ívars runnin upp. Líklegt þyk- ir að útvarpsmaðurinn verði extra duglegur við æfingar og taki ærlega til í matarræðinu fyrir átök næstu daga en Ívar mun svo mæta endurnærður á Bylgjuna í byrj- un næstu viku. Forstjórinn fyrrverandi er stóri bróðir út- varpsmanns- ins en heil fjögur ár skilja bræð- urna að. Vinkonur Stelpurnar segja samstarfið ganga vel. Fyrirsæta Tinna hefur unnið sem fyrirsæta víðs vegar um heiminn. Stílisti Brynja Norðfjörð er bæði stílisti og förðunarfræðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.