Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2012, Síða 4
Óraunhæfur
réttlætishÓpur
Ræddu um endurreisnina
n Aðrar þjóðir gætu lært af Íslendingum, sagði Helle Thorning-Schmidt
H
elle Thorning-Schmidt, for-
sætisráðherra Danmerkur,
og sendinefnd hennar hafa
yfirgefið Ísland og haldið
áleiðis til Grænlands. Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra tók á
móti henni á Þingvöllum á mánu-
dag. Gengu þær niður Almanna-
gjá og að Lögbergi áður en sest var
að fundarborði í Þingvallabústaðn-
um ásamt embættismönnum og
ráðgjöfum. Samkvæmt tilkynningu
forsætisráðuneytisins var rætt um
stöðu efnahagsmála, bæði á Íslandi
og í Danmörku, svo og stöðu efna-
hagsmála í Evrópu. Í tilkynningunni
kemur einnig fram að danski for-
sætisráðherrann telji aðdáunarvert
hvernig Íslandi hafi tekist til í efna-
hagsmálum eftir fjármálahrunið
2008. Telur hún að aðrar þjóðir
geti dregið lærdóm af árangri Ís-
lendinga.
Meðal annarra mála sem bar á
góma á fundinum voru makríld-
eilan, málefni norðurslóða og að-
ildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu. Danir styðja Ísland
eindregið í samningaferlinu eins og
áréttað er sérstaklega í stjórnarsátt-
mála danskra stjórnvalda.
Að fundarhöldum loknum fylgdi
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, danska forsætisráð-
herranum um Alþingishúsið. Heim-
sókninni lauk svo með kvöldverði í
Þjóðmenningarhúsinu en þar fékk
forsætisráðherrann að skoða ýmis
skinnhandrit frá miðöldum, svo
sem Konungsbækur Eddukvæða og
Snorra Eddu.
johannp@dv.is
4 Fréttir 29. ágúst 2012 Miðvikudagur
Forsætisráðherrar spjalla Jóhanna
Sigurðardóttir og Helle Thorning-Schmidt
ræddu sérstaklega um stöðu efnahagsmála
á Íslandi og í Danmörku.
Sveddi tönn
trúlofaður
Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi
tönn eins og hann er kallaður, trú-
lofaði sig nýlega í Brasilíu. Sverr-
ir dvelur nú í fangelsi þar í landi,
grunaður um að hafa skipulagt
smygl á 46 þúsund e-töflum til Bras-
ilíu frá Lissabon í Portúgal. Sam-
kvæmt heimildum DV er unnusta
Sverris íslensk, en hún mun hafa
farið til Brasilíu eftir að Sverrir var
handtekinn þar í júlí síðastliðnum.
Parið setti upp hringana í fangels-
inu Ary Franco í úthverfi Rio og er
sagt alsælt með ráðahaginn.
Neitað um fjar-
skiptagögn
Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði
Héraðsdóms Suðurlands um að
Símanum yrði gert að afhenda lög-
reglunni á Selfossi upplýsingar um
inn- og úthringingar um fjarskipta-
möstur í Herjólfsdal í Vestmanna-
eyjum meðan Þjóðhátíð stóð yfir.
Lögreglan á Selfossi krafðist þess að
fá upplýsingarnar afhentar vegna
rannsóknar á kynferðisbroti sem
framið var á Þjóðhátíð.
Í úrskurði Héraðsdóms Suður-
lands frá 17. ágúst síðastliðnum
kemur fram að brotaþoli hafi gefið
lýsingu á manninum og þeim fatnaði
sem hann hafi klæðst. Við skoðun á
myndbandsupptöku úr eftirlitskerfi
í Herjólfsdal megi sjá karlmann sem
svipi til lýsingarinnar hlaupa frá
brotavettvangi og niður á bifreiða-
stæði í dalnum. Á upptökunni sést
maðurinn tala í síma og nauðsyn-
legt sé vegna rannsóknar málsins
að afla umræddra fjarskiptagagna.
Lögreglustjórinn á Selfossi þurfi
á fyrrnefndum úrskurði að halda,
enda geti upplýsingarnar skipt sköp-
um fyrir rannsókn málsins.
Hæstiréttur hafnaði kröfunni
á þeim forsendum að krafa lög-
reglunnar á Selfossi hafi ekki beinst
að tilteknum síma eða fjarskipta-
tæki, heldur að því að veittar yrðu
allar upplýsingar um alla farsíma
sem hringt var úr eða í um fjar-
skiptamöstrin á tilgreindum tíma.
Því hafi krafa lögreglustjóra gengið
lengra en rúmaðist innan orðalags
lagagreinar.
E
kkert varð úr vinnu starfshóps
sem núverandi ríkisstjórn sam-
þykkti að tillögu fjármálaráð-
herra að skipa á fundi sínum í
lok ágúst 2009. Átti hópurinn
að kanna möguleika ríkisins á að hefja
og reka skaðabótamál á hendur þeim
fyrirtækjum og einstaklingum sem
hugsanlega hefðu valdið ríkinu og al-
menningi í landinu fjárhagslegu tjóni
í aðdraganda bankahrunsins og í því.
Fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar með
hópnum fengu hins vegar skell, álitn-
ar ótímabærar og óraunhæfar, og enn
virðist þjóðin og ríkið engu nær því
réttlæti sem vonast var til að næðist
með einhverskonar uppgjöri á hrun-
inu.
Réttlætishópurinn mikli
Tilkynnt var um stofnun þessa rétt-
lætishóps ríkisstjórnarinnar með
fréttatilkynningu og um hann fjallað
í öllum fjölmiðlum meðan reiðin
kraumaði hvað mest í þjóðfélaginu eft-
ir hrun. Tilkynningin bar með sér að
nú ætti loks að sækja peningana „okk-
ar“ í hendur útrásarvíkinga og með-
reiðarsveina þeirra og fólk fékk það á
tilfinninguna að nú ætti að gera eitt-
hvað varðandi þá aðila sem taldir voru
hafa knésett þjóðina. Það var þó ekki
fyrr en í apríl 2011, með álitsgerð rík-
islögmanns, að ljóst varð að verkefni
og fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar með
starfshópnum væru óraunhæfar mið-
að við gefnar forsendur og þar að auki
ótímabærar. Þar með staðfesti ríkislög-
maður í raun skoðun fulltrúa hópsins
sjálfs.
Ekki á launum
DV óskaði eftir upplýsingum um hinn
gleymda starfshóp í fjármálaráðu-
neytinu og fengust þau svör að skip-
að hafi verið í hann í lok árs 2009 og
hann starfað þar til bréf ríkislögmanns
barst í apríl 2011. Samkvæmt sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar átti hópurinn
að vera skipaður fulltrúum forsætis-,
fjármála-, dómsmála- og viðskipta-
ráðuneytis auk tveggja til þriggja lög-
fræðinga. DV fékk þær upplýsingar að
fulltrúar hópsins hafi reyndar fengið
greidd laun fyrir setu sína.
Verkefni hópsins voru tilgreind sem
þau að gera „… á því athugun í hvaða
tilvikum líklegt er að hefja megi slík
mál með árangri, skilgreina einstök
mál og velja þau sem líklegt er að geti
haft hraðan framgang og hafi fordæm-
isgildi. Að lokinni þessari undirbún-
ingsvinnu verður svo ákveðið hvort
og með hvaða hætti staðið verður að
málshöfðun og þá meðal annars hvort
hún yrði í höndum ríkislögmanns eða
annarra.“
Samkvæmt svari ráðuneytisins við
fyrirspurn DV hefur starf hópsins ekki
verið reglulegt síðan álit ríkislögmanns
í raun kæfði verkefni hans og fyrirætl-
anir ríkisstjórnarinnar. Leitað var þó
til hópsins síðastliðinn vetur þar sem
hann tók saman upplýsingar fyrir ut-
anríkismálanefnd vegna umfjöllunar
í nefndinni um þingsályktunartillögur
um málshöfðun á hendur Bretum og
fleiri aðilum vegna beitingar hryðju-
verkalaganna hrunveturinn 2008.
Óskýr verkefni
En það kemur einmitt fram í álits-
gerð Einars Karls Hallvarðssonar rík-
islögmanns, sem DV fékk afrit af, að
verkefni starfshópsins samkvæmt
ákvörðun ríkisstjórnarinnar væru afar
víðtæk. „Til að raunhæft sé að reka
skaðabótamál verður í fyrsta lagi að
skilgreina og afmarka með ótvíræð-
um hætti hvaða tjón áformað er að fá
bætt,“ segir í álitsgerðinni. Þá verði að
liggja fyrir hvers eðlis tjónið er, hvernig
unnt sé að mæla það og meta til fjár og
margt fleira.
„Er með öðrum orðum ekki raun-
hæft að hefja málarekstur nema að
hann grundvallist á sakarreglunni og
með því þarf að liggja fyrir að meiri
líkur en minni séu á að háttsemi
einstakra manna séu saknæmar og
ólögmætar.“
Í álitinu rifjar Einar Karl upp að lög-
gjafinn hafi brugðist með ýmsu móti
við hruninu en nefnir sérstaklega skip-
an rannsóknarnefndar Alþingis og
stofnun embættis sérstaks saksóknara.
Benti hann á að ljóst væri að heimild-
ir og úrræði sem sérstakur saksóknari
hefur yfir að ráða til gagnaöflunar væri
miklu meiri en „ætla má að ráðuneyt-
um væri fært að hlutast til um“.
Gæti skaðað önnur mál
Að auki gæti það hreinlega reynst
skaðlegt öðrum málum sem til rann-
sóknar eru. „Viss hætta er á að ótíma-
bær málsókn af hálfu ríkisins þar
sem afmörkun tjóns væri þar að auki
ómarkviss gæti truflað þann farveg
sem löggjafinn hefur markað rann-
sókn mála með tilliti til hugsanlegrar
refsiábyrgðar.“
Í niðurlagi álitsgerðarinnar segir:
„Að framansögðu er það mat embætt-
isins að málarekstur á þeim grund-
velli sem starfshópnum var ætlað að
kanna sé ekki tímabær. Er ítrekað að
málshöfðun er ekki raunhæf nema af-
markað sé á skýran hátt hvert tjón rík-
isins er og á hvern hátt það hafi orsak-
ast.“
Ekki fór hins vegar jafn mikið fyr-
ir niðurstöðu ríkislögmanns og stofn-
un starfshópsins á sínum tíma og tals-
verðan tíma tók fyrir DV að fá svör frá
ráðuneytinu um örlög þessa hóps.
Leitin að sökudólgum og einhvers
konar réttlæti í formi fébóta sem upp-
haflega var lagst í af mikilli hugsjón er
því fjarri því að ljúka. Þess utan hefur
risið verið lágt á embætti sérstaks sak-
sóknara sem meirihluti þjóðarinn-
ar ber svo mikið traust til samkvæmt
Þjóðarpúlsi Gallup. Gagnrýnisraddir
á skilvirkni og árangur þess embætt-
is verða sífellt háværari og hefur DV
heimildir fyrir því að innan stjórn-
arráðsins séu menn sömuleiðis orðn-
ir langeygir eftir árangri.
n Engar bætur sóttar til hrunverja á næstunni n Starfshópur greip í tómt
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fréttaskýring Vanhugsað Þó upphafleg hugmynd Steingríms J. Sig-
fússonar með starfshópnum
hafi verið góðra gjalda verð
reyndist hún á endanum
vanhugsuð. Dæmd ótíma-
bær og tæpast raunhæf.
Mynd: SiGTRyGGuR ARi
„Er með öðr-
um orðum
ekki raunhæft að
hefja málarekstur.
Fujitsu Lifebook AH530
Omnisverð
89.900
Fartölvan þín fær betri
þjónustu hjá okkur.
444-9900
www.omnis.is
REYKJAVÍK
Ármúla 11
REYKJANESBÆR
Tjarnargötu 7
AKRANES
Dalbraut 1
BORGARNES
Borgarbraut 61
Öflug Lifebook á ótrúlegu verði. 15,6” LED glossy skjár, Intel Core i3 örgjörvi,
4GB af DDR3 vinnsluminni og 500GB diskur. Vökvavarið lyklaborð.