Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2012, Qupperneq 17
Ég hefði breitt
yfir þetta
Við höfðum ekki
efni á að leigja
Gunnar Bjarni Ragnarsson segir margt hafa breyst en hann yrði seint kallaður ráðsettur. – DV
Tillögurnar ekki verið hunsaðar
Spurningin
„Nei, ég held að það sé algjör
óþarfi.“
Embla Sigurást Hallsdóttir
19 ára nemi
„Þarf að spyrja að því?“
Þórdís Guðmundsdóttir
52 ára náms- og starfsráðgjafi
„Guð minn góður, nei.“
Geir Finnsson
20 ára nemi
„Það held ég nú ekki.“
Sverrir Páll Sverrisson
20 ára starfsmaður í sláturhúsi
„Er þetta ekki bara úrelt hefð?“
Oddur Ævar Gunnarsson
20 ára nemi
Þarf forsetinn
fylgd?
1 Harmleikur í Noregi Íslenskur karlmaður féll til bana í
Noregi um helgina.
2 Mættu óboðin í brúðkaup Taylor Swift og kærasti hennar Conor
Kennedy mættu óboðin í brúðkaup
Kyle Kennedy.
3 Grínari hafnar opinberu sögunni um 11. september
Þorsteinn Guðmundsson segir að árás-
irnar á Tvíburaturnana 11. september
2001 sé mesta lygi sögunnar .
4 „Þetta voru nú mjög saklaus mótmæli af minni hálfu“
Ók á mótorhjóli inn í grunnskóla til að
mótmæla einelti.
5 Sveddi tönn trúlofaður í fangelsi
Trúlofaðist íslenskri kærustu sinni í Ary
Franco-fangelsinu í Brasilíu.
6 Rændu jarðböð Peningaskápur brotinn upp og
hundruðum þúsunda króna stolið.
7 Sátu báðum megin borðsins Sverrir Bollason vann skýrslu um fjölgun
gistirýma í Reykjavík.
Mest lesið á DV.is
T
ilefni þessarar greinar er ein-
hliða og villandi fréttaflutn-
ingur DV af flokksstjórn-
arfundi Samfylkingarinnar
sl. laugardag undir fyrirsögninni:
Hrunstjórnarflokkur hunsar um-
bótastarf.
Á flokksstjórnarfundinum var
rökrætt um útfærslu á einni tillögu,
vissulega mikilvægri, af alls 31 til-
lögu sem umbótanefnd Samfylk-
ingarinnar skilaði í desember 2010.
Í fréttinni er nær eingöngu vitn-
að í þá sem voru ósáttir við niður-
stöðu fundarins, en sjónarmið og
rök hinna ekki rakin. Með fyrirsögn
og viðtölum er gefið til kynna að
allt umbótastarf Samfylkingarinn-
ar standi og falli með þessari einu
tillögu. Veruleikinn er allt annar. Í
viðamiklu ferli flokksins sem enn
stendur yfir hefur, auk þess að viður-
kenna andvara- og aðgerðaleysi
flokksins í aðdraganda bankahruns-
ins og biðja þjóðina afsökunar á því,
verið unnið í samræmi við nær all-
ar tillögur umbótanefndarinnar og
mikil eining verið um niðurstöður.
Starfshættir og stefnumörkun Sam-
fylkingarinnar var endurskoðuð frá
grunni og fjöldi lagabreytinga sam-
þykktur í því skyni að styrkja inn-
viði og auka áhrif almennra félaga.
Það er því af og frá sem fyrirsögnin
og ummæli nokkurra meðlima um-
bótanefndar fullyrða, að Samfylk-
ingin „sé að hverfa frá uppgjörinu“
eða „ýta tillögum umbótanefndar til
hliðar“.
Þessi eina af tillögum umbóta-
nefndar var, að einungis skráðir og
virkir flokksmenn, sem hefðu greitt
árgjald og verið meðlimir í tiltek-
inn tíma, mættu taka þátt í vali á
framboðslista. Fyrir flokksstjórn-
arfundinum sl. laugardag lá tillaga
framkvæmdastjórnar frá því í mars
sl. sem gekk skemur, en fól í sér að
takmarka þátttöku í prófkjörum við
þá sem væru skráðir í flokkinn þegar
framboðsfrestur rynni út. Þegar til-
lagan kom fram sl. vor varð töluverð
umræða og fram kom breytinga-
tillaga um að bæði flokksfélagar og
skráðir „stuðningsmenn flokksins“
gætu tekið þátt í vali á frambjóðend-
um. Það væri ein fjögurra aðferða
við val á framboðslista sem kjör-
dæmisráð veldi á milli. Á fundinum
sl. laugardag kom fram viðbótar-
tillaga sem skilgreindi skilyrði þess
að fólk gæti gerst skráðir stuðnings-
menn, m.a. að flokknum væri heim-
ilt að varðveita þá skrá og nýta til
að hafa samband og senda viðkom-
andi upplýsingar. Það hefur aldrei
verið gert áður og er því frábrugð-
ið opnum og skuldbindingalaus-
um prófkjörum fyrri tíma. Svipað
fyrirkomulag „skráðra stuðnings-
manna“ er þekkt meðal evrópskra
sósíaldemókrata (t.d. á Spáni og í
Grikklandi) og þegar franski sósía-
listaflokkurinn valdi sinn forseta-
frambjóðanda, Hollande, og sá
breski sinn formann, Miliband, gátu
allir sem kosningarétt höfðu í þeim
löndum kosið með því að undir-
rita stuðningsyfirlýsingu við þeirra
flokka.
Þeir sem studdu tillöguna um
stuðningsmannaskrá bentu á að
stjórnmálaþátttaka fólks hefði
breyst, valkostum til áhrifa fjölg-
að, færri tækju þátt í hefðbundnu
flokksstarfi og flokkar yrðu að vera
opnir fyrir margs konar tengslum
við sína stuðningsmenn. Ungt fólk
vildi ekki skuldbinda sig til langtíma
flokksaðildar í sama mæli og fyrri
kynslóðir. Samtíminn gerði aukn-
ar kröfur um meiri hlutdeild fólks
í ákvarðanatöku; persónukjör og
margs konar beint lýðræði, sem allt
er í stefnu Samfylkingarinnar.
Enginn ágreiningur var um þá til-
lögu umbótanefndar að takmarka
mjög fé sem frambjóðendur mættu
eyða í prófkjörum og voru því sett-
ar þröngar skorður. Þar með var
brugðist við einni megingagnrýni
á prófkjör fyrri tíma. Sú röksemd
að auðveldara sé að „smala fólki“
á stuðningsmannaskrár en inn á
félaga skrár flokka stenst illa þegar
litið er til þeirrar staðreyndar að á
núverandi flokksskrám flestra flokka
er fjöldi fólks sem einungis vill taka
þátt í vali á framboðslista. Eðlilegra
er að hafa þá á sérskrá stuðnings-
manna, í stað þess að á félagaskrám
sé fjöldi fólks sem aðeins kýs að taka
þátt í vali á framboðslista en ekki
öðru flokksstarfi.
Íslenskir stjórnmálaflokkar eiga
undir högg að sækja. Þeir eru lykil-
stoðir okkar lýðræðiskerfis. Fjöl-
miðlum ber að veita þeim aðhald.
En það aðhald verður að vera mál-
efnalegt og sanngjarnt. Fyrrnefnd
frétt DV uppfyllir því miður ekki þau
skilyrði.
Nei eða já? Andstæðingar Evrópusambandsaðildar leynast víða, meðal annars í Leirársveit þar sem ljósmyndari átti leið hjá á dögunum. Eins og sjá má er búið að útbúa eins
konar traktor úr heyböggum og skilaboðin eru skýr: ESB – NEI TAKK Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 29. ágúst 2012
„Íslenskir
stjórnmála-
flokkar eiga undir
högg að sækja
Kjallari
Margrét S.
Björnsdóttir
Pirrandi að láta
ljúga að sér
Þorsteinn Guðmundsson segir að árásin þann 11. september sé lygi. – Rás 2 Elvar Árni Lund, formaður SÍ, um mynd af höfuðlausu hreindýri. – DV