Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Qupperneq 4
Verður að svara kostnaði
n Ríkur vilji fyrir villidýrasafni í Mosfellsbæ
M
ikill samhugur er innan bæj-
arstjórnar Mosfellsbæjar
um stofnun villidýrasafns
í sveitarfélaginu sem yrði
staðsett í Ævintýragarðinum. Bæj-
aryfirvöld eru þó ekki búin að sam-
þykkja að safnið verði sett á laggirnar
en í tilefni 25 ára afmælis Mosfells-
bæjar lýsti bæjarstjórnin því yfir í
ágúst síðastliðnum að gengið yrði til
samstarfs við Mosfellinginn Kristján
Vídalín Óskarsson sem hefur vakið
athygli sveitarfélagsins á safni sínu af
uppstoppuðum dýrum en sem hann
hefur skotið og eru fáséð hér á landi.
Dýrin veiddi hann í Asíu, Afríku,
Ástralíu og víðar. Það var Herdís Sig-
urjónsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, sem lagði þetta til á bæj-
arstjórnarfundi. Samkvæmt Karli
Tómassyni, bæjarfulltrúa Vinstri-
grænna, er málið í ferli og ekki end-
anlega ákveðið hvort af því verður.
Finna þyrfti safninu varanlegt hús-
næði og meta kostnað sveitarfé-
lagsins við rekstur safnsins áður en
ákvörðun verður tekin. Það yrði að
þó að svara kostnaði fyrir sveitarfé-
lagið.
Dýrasafn Kristjáns samanstend-
ur af nokkrum tegundum antilópa,
fíl, nashyrningi, ljóni og ljónynju og
strúti, svo eitthvað sé nefnt.
Í yfirlýsingu frá Mosfellsbæ kem-
ur fram að safn hans sé það umfangs-
mikið að vandi hafi verið að skjóta yfir
það skjólshúsi. Við skoðun á gripun-
um hafi komið í ljós að flest dýranna
séu ákaflega vel uppstoppuð og reynt
hafi verið að leggja grunn að umgjörð
sem sýni dýrin sem væru þau lifandi
og í veiðihug eða á flótta. n
4 Fréttir 17. september 2012 Mánudagur
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu
byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
H
eilsa hans er nokkuð góð
og hann er kominn til
Akureyrar,“ segir Guð-
mundur Már Einarsson,
faðir Sigurbjörns Árna
Guðmundssonar sem hefur þurft
að berjast fyrir lífi sínu frá því hann
fæddist á sjúkrahúsinu á Akureyri að
kvöldi þess 5. ágúst síðastliðins.
Á meðgöngu hafði komið í ljós
að á vinstra nýra væri útvíkkun sem
fylgst var með fram að fæðingu.
Þegar hann fæddist virtist hann
vera hraustur strákur og ákveðið var
að bíða til næsta dags með nánari
skoðun. Morguninn eftir uppgötv-
aði móðir hans hins vegar að hann
var ekki með endaþarmsop og í
kjölfarið uppgötvaðist hjartagalli.
Hann var því svæfður og sendur
með sjúkraflugi suður þar sem í ljós
kom að hjartagallinn var tvíþættur.
Þá fór hann í aðgerð þar sem settur
var upp stómapoki. Hann var síðan
sendur til Lundar í Svíþjóð þar sem
gerð var aðgerð á hjarta.
Braggast vel
Sigurbjörn Árni liggur nú inni á
barnadeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri þar sem hann er í umsjá
foreldra sinna. „Hann braggast vel og
stækkar,“ segir Guðmundur en Sigur-
björn Árni bíður nú eftir því að fara í
aðra aðgerð. „Hann fer suður næst og
svo endar hann á hjartaaðgerð í Sví-
þjóð. Þá ætti þessu að vera lokið í bili,“
segir Guðmundur en hann og móð-
ir Sigurbjörns, Helga Sigurveig Krist-
jánsdóttir, eru bjartsýn á framhaldið:
„Við erum það. Hann er mjög
sterkur og hefur jafnað sig vel eftir
þær aðgerðir sem hann hefur farið í
og er að bæta á sig núna.“
Á barnadeildinni annast foreldr-
ar Sigurbjarnar hann en hjúkrunar-
fræðingur er ávallt til taks. „Hann
má ekki veikjast. Þess vegna er hann
á spítala. Hann myndi ekki ráða við
það að verða veikur.“
Þakklát
Fyrir áttu foreldrar Sigurbjörns Árna
tvo drengi og þar sem vinir og vanda-
menn óttuðust að veikindum hans
myndi fylgja mikill kostnaður settu
þeir upp styrktarreikning fyrir fjöl-
skylduna. Þeir sem vilja leggja fjöl-
skyldunni lið geta einnig lagt inn á
styrktarreikninginn, 062-26-002838.
Kennitalan er 240466-3339.
Í viðtali við DV í ágúst síðastliðn-
um sagðist Guðmundur vera afar
þakklátur fyrir stuðninginn. „Í raun
kom það okkur á óvart hversu mikinn
stuðning við höfum fengið, því við átt-
um alls ekki von á því. Fyrir það erum
við afar þakklát. Það er líka rétt að taka
það fram að stuðningurinn er ekki að-
eins í krónum talinn, góðar hugsan-
ir geta verið gulls ígildi þegar svona
stendur á,“ sagði hann. n
„Hann er mjög sterk-
ur og hefur jafnað
sig vel eftir þær aðgerðir
sem hann hefur farið í og
er að bæta á sig núna.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Foreldrar Sigurbjörns Árna bjartsýnir n Bíður eftir annarri aðgerð
Braggast vel Faðir
Sigurbjörns Árna segir
litla drenginn vera sterk-
an og braggast vel.
„Hann braggast
vel og stækkar“
Í veiðihug Á safni Kristjáns eru dýrin sýnd í
veiðihug eða á flótta.
10. ágúst 2012
Húsleit á föstudag:
Lögðu hald á
amfetamín
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á nokkra tugi gramma
af ætluðu amfetamíni við húsleit
í umdæminu á föstudagskvöld. Í
sömu íbúð fannst einnig þó nokk-
uð af reiðufé sem grunur leikur á
að sé gróði af fíkniefnasölu. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá lög-
reglu.
Þar segir að húsráðandi, kona
á þrítugsaldri sem tengist glæpa-
samtökunum Outlaws, hafi verið
handtekin í þágu rannsóknarinn-
ar. Hún hefur áður komið við sögu
lögreglu vegna fíkniefnamála.
DV greindi frá því fyrr á
laugardag að sérsveit ríkislög-
reglustjóra hefði aðstoðað lög-
regluna á höfuðborgarsvæðinu
við húsleit í Hafnarfirði á föstu-
dag, vegna gruns um að þar væri
að finna fíkniefni. Líklegt þykir
að um sama mál sé að ræða. DV
barst ábending og ljósmyndir frá
nágranna sem varð vitni að að-
gerðinni. Að hans sögn brutust
lögreglumenn inn með því að nota
kúbein á rúðu í hurðinni eftir að
hafa bankað og fengið ekkert svar.
Fjórfaldur
pottur næst
Enginn var með allar tölur réttar í
lottóútdrætti helgarinnar. Pottur-
inn að þessu sinni var þrefaldur
og hefði skilað heppnum spilara
eða spilurum samtals tæpum 18
milljónum króna. Þetta þýðir að
potturinn um næstu helgi verð-
ur fjórfaldur. Einn var með fjór-
ar tölur réttar og bónustöluna og
fær hann í sinn hlut tæpar 30.000
krónur. Tölurnar í drætti laugar-
dagsins voru 3, 7, 14, 21 og 25 en
bónustalan var 38.
Þá var enginn með fimm tölur í
réttri röð í Jókernum, en þrír voru
með fjórar tölur í réttri röð og fá í
sinn hlut hundrað þúsund krón-
ur hver.