Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 20
Hörmungar Real Madrid
n Plan Mourinhos að falla saman n Langt á eftir Barcelona
Þ
ótt einhverjum finnist fráleitt
að útiloka möguleika félags-
liða þegar aðeins fjórar um-
ferðir eru liðnar af vetrarlöngu
keppnistímabili er raunin oftar en
ekki sú á Spáni að nái annaðhvort
stórliðanna, Barcelona eða Real Ma-
drid, sæmilegu forskoti í deildinni
helst sú forysta gjarnan fram á vorið.
Þetta vita stuðningsmenn Real
Madrid, leikmenn þess og ekki síst
þjálfari mætavel en lið Real Madrid
byrjar leiktíðina hörmulega á þeirra
mælikvarða. Á laugardag tapaði fé-
lagið 1–0 fyrir Sevilla á meðan erki-
fjendurnir frá Katalóníu unnu Getafe
1–4.
Þessi úrslit þýða að Real Madrid
er nú átta stigum á eftir Barcelona
eftir aðeins fjórar umferðir á Spáni og
fer fjarri að gengi Mourinhos og fé-
laga sé eftir bókinni. Enn verra er að
stórstjörnur Real hafa aðeins skorað
fimm mörk í þessum fjórum leikjum
á móti tólf mörkum Börsunga.
Sjálfur virðist Jose Mourinho vera
úti á þekju hvað þessa slæmu byrj-
un varðar. „Ég taldi mig vera með
traustan og frábæran hóp í byrjun
tímabilsins en nú opna ég augun og
er allt í einu ekki með neitt.“
Portúgalinn tók þá merkilegu
ákvörðun, miðað við djúpar hirslur
Real, að kaupa aðeins einn leikmann
fyrir þessa leiktíð, Luka Modric, og
að öðru leyti keyra á þeim mannskap
sem fyrir var. Sá mannskapur er ekki
af verri endanum og hugmyndin ekki
fráleit en slök byrjun liðsins hefur
kallað á gagnrýni stuðningsmanna
sem vilja sjá liðið með ferska og frá-
bæra nýja leikmenn.
Spænska blaðið Marca segir frá
því að Mourinho sé strax farinn að
líta í kringum sig þó ekki geti hann
keypt leikmenn fyrr en í janúar.
Ákveðinn Falcao frá Kolómbíu er víst
undir smásjá hans en þar mun hann
efalítið þurfa að etja kappi við önnur
stórlið sem sýnt hafa þeim snillingi
áhuga síðustu vikurnar. n
albert@dv.is
20 Sport 17. september 2012 Mánudagur
Úrslit
Pepsi-deild karla
ÍBV – Grindavík 2-1
1-0 Christian Olsen (23.), 2-0 Andri Ólafsson v. (32.),
2-1 Hafþór Ægir Vilhjálmsson (52.)
Fylkir – Selfoss 2-0
1-0 Magnús Þórir Magnússon (59.), 2-0 Björólfur
Takefusa (72.)
Keflavík – Fram 5-0
1-0 Sigurbergur Elíasson (18.), 2-0 Sigurbergur
Elíasson (62.), 3-0 Magnús Þorsteinsson (69.), 4-0
Hörður Sveinsson (73.), 5-0 Jóhann Ragnar
Benediktsson.
KR – Breiðablik 0-4
0-1 Kristinn Jónsson (34.), 0-2 Nichlas Rodhe (72.),
0-3 Elfar Árni Aðalsteinsson (81.), 0-4 Tómas Óli
Garðarsson.
ÍA – Valur 1-1
0-1 Matthías Guðmundsson (85.), 1-1 Garðar B.
Gunnlaugsson (88.)
Stjarnan – FH 2-2
1-0 Halldór Orri Björnsson (10.), 1-1 Albert Brynjar
Ingason (15.) 1-2 Atli Guðnason (82.), 2-2 Mark
Doninger (93.)
Staðan
1 FH 19 13 3 3 45:19 42
2 ÍBV 19 9 4 6 30:17 31
3 KR 19 9 4 6 32:27 31
4 Stjarnan 19 7 9 3 39:33 30
5 Breiðablik 19 8 5 6 26:24 29
6 ÍA 19 8 5 6 28:32 29
7 Keflavík 19 8 3 8 32:30 27
8 Fylkir 19 7 5 7 24:34 26
9 Valur 19 8 1 10 29:28 25
10 Fram 19 6 2 11 27:34 20
11 Selfoss 19 5 3 11 25:36 18
12 Grindavík 19 2 4 13 26:49 10
Enska úrvalsdeildin
Norwich – West Ham 0-0
Fulham – WBA 3-0
1-0 Berbatov (32.), 2-0 Berbatov v. (45.), 3-0
Sidwell (90.)
Stoke – Man City 1-1
1-0 Crouch (15.), 1-1 Garcia (35.)
QPR – Chelsea 0-0
Man Utd – Wigan 4-0
1-0 Scoles (51.), 2-0 Hernandez (63.), 3-0 Buttner
(66.), 4-0 Powell (82.)
Arsenal – Southampton 6-1
1-0 Hooiveld sjm (11.), 2-0 Podolski (31.), 3-0
Gervinho (35.), 4-0 Clyne sjm (37.), 4-1 Fox (45.), 5-1
Gervinho (71.), 6-1 Walcott (88.)
Aston Villa – Swansea 2-0
1-0 Lowton (16.), 2-0 Benteke (88.)
Sunderland – Liverpool 1-1
1-0 Fletcher (29.), 1-1 Suarez (71.)
Reading – Tottenham 1-3
0-1 Defoe (19.), Defoe (74.), 0-3 Bale (71.), 1-3 Kanu
(90.)
Staðan
1 Chelsea 4 3 1 0 8:2 10
2 Man.Utd. 4 3 0 1 10:5 9
3 Arsenal 4 2 2 0 8:1 8
4 Man.City 4 2 2 0 9:6 8
5 Swansea 4 2 1 1 10:4 7
6 WBA 4 2 1 1 6:4 7
7 West Ham 4 2 1 1 4:3 7
8 Fulham 4 2 0 2 10:6 6
9 Everton 3 2 0 1 4:3 6
10 Tottenham 4 1 2 1 6:5 5
11 Stoke 4 0 4 0 4:4 4
12 Aston Villa 4 1 1 2 4:5 4
13 Newcastle 3 1 1 1 3:4 4
14 Wigan 4 1 1 2 4:8 4
15 Sunderland 3 0 3 0 3:3 3
16 Norwich 4 0 3 1 2:7 3
17 Liverpool 4 0 2 2 3:8 2
18 QPR 4 0 2 2 2:9 2
19 Reading 3 0 1 2 4:8 1
20 Southampton 4 0 0 4 5:14 0
Spænska úrvalsdeildin
Malaga – Levante 3-1
Valencia – Celta 2-1
Getafe – Barcelona 1-4
Sevilla – Real Madrid 1-0
Espanyol – Athletic 3-3
Granada – Deportivo 1-1
Osasuna – Mallorca 1-1
Real Sociedad – Zaragoza 2-0
Atlético – Rayo 4-3
Staðan
1 Barcelona 4 4 0 0 12:3 12
2 Málaga 4 3 1 0 6:2 10
3 Mallorca 4 2 2 0 5:3 8
4 Sevilla 4 2 2 0 4:2 8
5 Rayo Vallecano 3 2 1 0 3:1 7
6 Dep. La Coruna 4 1 3 0 7:5 6
7 R.Valladolid 3 2 0 1 3:2 6
8 R.Sociedad 4 2 0 2 5:7 6
9 Valencia 4 1 2 1 6:6 5
10 Atl.Madrid 2 1 1 0 5:1 4
11 Real Madrid 4 1 1 2 5:4 4
12 Getafe 4 1 1 2 5:8 4
13 Levante 4 1 1 2 5:8 4
14 Ath.Bilbao 4 1 1 2 8:12 4
15 Real Betis 2 1 0 1 6:5 3
16 Celta 4 1 0 3 4:5 3
17 R.Zaragoza 4 1 0 3 2:5 3
18 Granada 4 0 2 2 2:6 2
19 Espanyol 4 0 1 3 7:10 1
20 Osasuna 4 0 1 3 2:7 1
Svekkelsi Jose
Mourinho er
vafalítið óhress
með byrjun sinna
manna á leiktíð-
inni. Mynd ReuteRS
H
ver sá maður sem spáð
hefði fyrir um að maður-
inn sem næstum bjargaði
South ampton frá sínu fyrsta
og eina falli úr ensku úrvals-
deildinni kæmi til með að þjálfa og
spila í næstefstu deild á Íslandi með
Íþróttafélagi Reykjavíkur sjö árum
síðar hefði sennilegast fengið skutl á
næstu geðheilbrigðisstofnun.
Það er engu að síður staðreynd að
Nigel Quasie er þjálfari og leikmað-
ur ÍR en leiktímabilið 2004 til 2005
lék hann með enska úrvalsdeildarfé-
laginu og var langbesti leikmaðurinn
í lokaleik liðsins í síðustu umferðinni
gegn Manchester United það árið.
Leik sem þeir fyrrnefndu þurfti að
vinna til að komast hjá falli en það
gekk ekki eftir.
Nigel Quasie náði aldrei stór-
stjörnupallinum í knattspyrnunni en
nú þegar ákveðin kynslóðaskipti hafa
átt sér stað í knattspyrnunni í Evrópu
er forvitnilegt að skoða hvað hafi
orðið um margar þær stjörnur sem
skærast skinu á grænu grasi hér fyr-
ir nokkrum árum. Ótrúlega margar
þeirra eru enn að þvælast í boltanum.
Borgað fyrir bumbubolta
Þannig er til dæmis um hinn stór-
kostlega Ronaldinho sem er enn að
heima í Brasilíu þó meiri tími fari í að
njóta ljúfa lífsins en stunda fótbolta-
æfingar eins og raunin var alltaf hjá
kappanum. Annar Brassi sem enn
hræðir andstæðinginn þó hraðinn
sé minni en áður er Roberto Carlos
sem lengi vel virtist eini varnarmað-
ur heims sem kunni best við sig í
sókn. Carlos spilar nú í Rússlandi við
hlið Samuels E‘too. Enn eldri en enn
spriklandi er samlandi þeirra Rivaldo
sem lengi vel heillaði margan með
snilli sinni. Brasilíumaðurinn hef-
ur víða komið við og var nú síðast í
Angóla.
Francesco Totti var alltaf um-
deildur sem persóna en í fótboltan-
um var hann frábær. Hann er enn
að hjá liði sínu Roma þó ekki leiki
hann þar stórt hlutverk eins og áður.
Ekki má heldur gleyma þeim frá-
bæru knattspyrnumönnum sem
ljúka ferlinum í Bandaríkjunum en
þeim fer fjölgandi. Menn eins og
Thierry Henry og David Beckham
ætla að ljúka leik þar. Í Asíu má einnig
finna eldri stjörnur á borð við Didier
Drogba, Jay Jay Ococha og Spánverj-
ann Raúl en allir fá þeir feita launa-
seðla fyrir harkið.
erfitt að slíta sig frá boltanum
Enn aðrir sem stórkostlegir þóttu
fyrir nokkrum árum fóru þráðbeint
í þjálfun að ferlinum loknum. Í slík-
um störfum má finna stjörnur eins og
markvörðinn David Seaman, Dennis
Bergkamp, Pep Guardiola, Luis En-
rique, Didier Deschamps og Laurent
Blanc svo nokkrir séu nefndir. Enn
aðrir hafa þótt vera fínir í betri störf
innan klúbbanna. Þannig er um
menn eins og Rui Costa sem er yfir-
maður hjá Benfica í Portúgal. Sama
gildir um hinn stórskemmtilega
Zinedine Zidane sem er titlaður yfir-
maður knattspyrnumála hjá stórliði
Real Madrid. Sama gildir um fyrrver-
andi liðsfélaga hans hjá Real Madrid,
Portúgalann Luís Figo. Sá er titlaður
sérstakur sendiherra Inter Milan á
Ítalíu.
Á eftir bolta …
Af þeim örfáu heimsþekktu stjörn-
um fyrri ára sem enn hafa látið bolt-
ann að mestu vera síðan þeir luku
leik má nefna Ítalina Paolo Maldini
og Cristian Vieri sem saman eiga og
reka tískuvöruverslanir undir merk-
inu Sweet Years.
Markvörðurinn eftirminnilegi
Oliver Kahn er sjónvarpsstjarna í
heimalandinu og ótrúlega vinsæll
í Kína. Hann stjórnar eigin þáttum
sem sýndir eru reglulega í báðum
löndum. Þá starfar Kahn líka reglu-
lega fyrir hinar ýmsu sjónvarps-
stöðvar í Þýskalandi.
Hinn stórkostlegi Gabriel
Batistuta sem er eini knattspyrn-
umaðurinn með sína eigin styttu í
Flórens við hlið Sókratesar, Da Vinci
og annarra merkra manna. Batistuta
sem skoraði á ferlinum 356 mörk í
571 leik alls á og rekur sitt eigið verk-
takafyrirtæki í Argentínu.
Þá eru minnst tveir stórgóðir leik-
menn atvinnulausir þessa stundina
þó ólíklegt sé að þeir þurfi á bótum
að halda. Michael Ballack er enn að
leita sér að liði eftir að samningi hans
við Bayer Leverkusen var sagt upp í
sumar og varnarjaxlinn Tony Adams
er á lausu eftir að hafa reynt fyrir sér
með þjálfun í Aserbaídsjan. n
Einsleitni hjá gömlu
knattspyrnuhetjunum
n Erfitt að slíta sig frá boltanum n Kempurnar margar enn að
„Sá er titlað-
ur sérstak-
ur sendiherra Inter
Milan á Ítalíu
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Gamlar hetjur Cristian Vieri á tískuvöru-
verslun í dag en Batistuta verktakafyrirtæki
í Argentínu. Mynd ReuteRS
Vinsæll Oliver Kahn er sjónvarps-
stjarna í Þýskalandi í dag en þættir hans
eru einnig vinsælir í Kína. Mynd ReuteRS