Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Blaðsíða 25
Ekki láta stækka brjóstin Fólk 25Miðvikudagur 7. nóvember 2012 www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur Endurnærir og hreinsar ristilinn Í boði eru 60-150 töflu skammtar + Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf 30 = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Fagnaði afmælinu n Trista Sutter á rómantískan eiginmann F yrrverandi og reyndar fyrsta piparjúnkan (Bachelorette), Trista Sutter, fagnaði fertugs afmæli sínu um síðustu helgi ásamt eiginmanni sínum, Ryan Sutt- er, og 150 nánustu fjölskyldumeð- limum og vinum. „Þetta var besti af- mælisdagur sem ég hef átt og það er manninum mínum að þakka,“ sagði Trista í viðtali við tímaritið People. Gestir skáluðu fyrir afmælis- barninu í Martini & Rossi Asti-kok- teilum og dönsuðu fram á nótt und- ir tónum uppáhaldstónlistarmanns Tristu, söngvaranum Brett Dennen. Trista afþakkaði allar gjafir en bað gesti um að láta smá upphæð af hendi rakna til samtaka sem sér- hæfa sig í krabbameinsrannsókn- um. Með fjöl- skyldunni Trista og Ryan eiga tvö börn. n Sharon Osbourne á móti fegrunaraðgerðum Þ etta ár hefur reynst raun- veruleikaþáttastjörnunni Sharon Osbourne erfitt. Sharon gekkst undir tvöfalt brottnám brjósta eftir að í ljós kom að hún er með gen sem oft kallast „krabbameinsgenið“. Að auki ákvað Sharon að gefa lýta- lækningar upp á bátinn. „Nú er nóg komið. Ég er búin að skoða myndir af sjálfri mér eftir að ég fór að létt- ast,“ sagði hin nýbakaða amma í sjónvarpsþættinum The Talk. „Á mörgum myndanna er ég hreinlega gervileg útlits. Ég vildi að ég hefði aldrei lagst undir hnífinn. Nú er ég sko hætt,“ sagði Sharon sem viður- kennir að vandamál með brjósta- fyllingu hafi fyllt mælinn. „Einn púðinn sprakk og hafði dreift sér um allt. Annað brjóstið var líka allt öðruvísi útlits en hitt. Ég var ekki greind með brjóstakrabbamein en ég er með genið og brjóstin á mér voru afar illa farin eftir enda- lausar stækkanir. Þess vegna lét ég fjarlægja þau bæði,“ sagði Shar- on og bætti við varnaðarorðum að lokum: „Aldrei láta stækka á ykkur brjóstin!“ Erfitt ár Læknar greindu Sharon með svokallað „krabba- meinsgen“ og því lét hún fjarlægja bæði brjóst sín. n Khloé Kardashian kynnir í X Factor Þ egar Khloé Kardashian var spurð hvernig hún hefði undirbúið sig fyrir nýja starf- ið, að kynna raunveruleika- og söngþáttinn X Factor, var svarið einfalt. „Ég fór í megrun,“ sagði raunveruleikastjarnan sem er 28 ára. „Ég reyndi að minnka nammiát og borðaði minna af osti. Ég elska ost. Ég borða ost með öllu og borða mik- ið í einu. Og græt svo. Ég hef alltaf átt í baráttu við aukakílóin,“ sagði Kloé sem er systir hinnar heimsfrægu Kim Kardashian sem er í rauninni frægust fyrir að vera sæt. Khloé sagðist hafa lært af reynsl- unni að öfgar borgi sig ekki. „Ég hef oft léttst hratt en þá held ég því ekki. Núna geri ég þetta öðruvísi. Er dugleg í ræktinni og reyni að borða hollan mat. Þetta er erfiðara en virkar betur.“ Michelle og Jason óhult n Hluti hússins skemmdist í fellibylnum Sandy M ichelle Williams og Jason Segel eru óhult eftir fellibylinn Sandy sem reið yfir New York í síðustu viku. Þetta staðfesti ein besta vinkona Michelle, Busy Philipps, í viðtali við E! En Michelle og Jason búa í þakíbúð í Brooklyn, í húsnæði sem var áður vöruskemma. Einhverjir höfðu áhyggjur af parinu því frést hafði að hluti af byggingunni, þar á meðal matvöru- verslun á neðstu hæðinni, hefði eyðilagst vegna mikilla flóða á svæðinu í kjölfar fellibyljarins. Íbúð Michelle og Jason skemmdist hins vegar ekki og þau eru óhult ásamt dóttur Michelle, Matildu. X Factor Khloé kynnir þáttinn ásamt Mario Lopez. Íturvaxin Khloé segist alltaf hafa átt í baráttu við aukakílóin. Undirbúningurinn var megrun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.