Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Blaðsíða 13
J
ackie Samuel, 29 ára bandarísk
kona, hefur valið sér heldur
óvenjulegan starfsferil. Hún er
nefnilega líklega eini atvinnu
kúrarinn í heiminum. Og það
er nóg að gera hjá henni, svo mikið
að suma daga er hún að vinna sér inn
260 dollara með kúri og líklega kúrir
hún hjá um 30 karlmönnum á viku.
Það er þó ekkert kynferðislegt við
starf hennar heldur býður hún ein
göngu upp á hlýju.
Kölluð vændiskona
Jackie hóf að kúra með ókunn
ugum gegn gjaldi til þess að geta
menntað sig og séð um ungan son
sinn. Það eru ekki allir samnem
endur hennar sáttir við vinnuna
sem hún hefur valið sér og sumir
hafa kallað hana vændiskonu. „Ég
held ég hafi fæðst með kunnáttu
til að kúra. Kúr er hollt, andlegt og
skemmtilegt,“ segir hún í samtali
við Daily Mail.
Jackie segist vera með fjölbreytt
an kúnnahóp og fólk komi til henn
ar af ýmsum ástæðum. Allir eiga
kúnnarnir það þó sameiginlegt að
finnast einstaklega gott að kúra. „Ég
held að viðskiptavinir mínir komi til
mín af mörgum ástæðum. Sumir af
eldri viðskiptavinum mínum hafa
misst eigin konu sína og þá vantar
bara einhvern til þess að vera með,
og upplifa snertingu með,“ segir
hún.
Setur viðskiptavinunum mörk
„Sumir af yngri viðskiptavinunum
eru á milli sambanda, sumir eru í erf
iðu sambandi, og sumir eru bara mjög
forvitnir og koma til þess að athuga
hvernig þetta fer fram.“ Jackie aug
lýsir þjónustu sína á veraldarvefnum
og rukkar 60 dollara á klukkutímann.
Kúnnarnir geta fengið kúr hvar sem er
í íbúð Jackie í Rochester í New York.
Hún segir þó að flestir kjósi að kúra
með henni í rúminu hennar. Hún set
ur viðskiptavinunum mörk og bann
ar þeim að snerta þá staði líkamans
sem nærföt hennar hylja undir nátt
fötunum sem hún klæðist við kúrið.
Komin með lærling
Það er svo mikið að gera hjá Jackie að
hún hefur meira að segja ráðið til sín
lærling, unga konu að nafni Colleen.
Lærlingurinn hefur ekki ennþá far
ið alla leið og kúrt ein með viðskipta
vini en hefur tvisvar verið með Jackie
þegar hún kúrir með kúnna. Þrátt fyrir
að hún setji strangar reglur um að ekk
ert kynferðislegt fari fram við kúrið þá
hefur hún fengið fjölda tölvupósta og
símtala þar sem hún er fordæmd fyrir
starfið og kölluð vændis kona. „Sumir
hafa sagt að ég sé verri en vændiskona
því þeim finnst kúr vera innilegra en
kynlíf. Það hefur verið sagt við mig að
ég sé að gera lítið úr ástinni.“
Einn af viðskiptavinum Jackie
sem kemur fram undir nafninu Tim
segir Jackie hafa hjálpað honum í
gegnum erfið sambandsslit. Hann
sagðist líka myndu halda áfram að
koma til Jackie þótt hann væri kom
inn í samband. n
Erlent 13Miðvikudagur 7. nóvember 2012
Vinnur við að kúra
n Jackie Samuel starfar sem kúrari n Sögð verri en vændiskona
Kölluð vændiskona Jackie hefur verið kölluð vændiskona fyrir að kúra með viðskiptavinum sínum.
Kúrir að atvinnu
Jackie kúrir með um 30
kúnnum á viku.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is