Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2012, Síða 13
J ackie Samuel, 29 ára bandarísk kona, hefur valið sér heldur óvenjulegan starfsferil. Hún er nefnilega líklega eini atvinnu­ kúrarinn í heiminum. Og það er nóg að gera hjá henni, svo mikið að suma daga er hún að vinna sér inn 260 dollara með kúri og líklega kúrir hún hjá um 30 karlmönnum á viku. Það er þó ekkert kynferðislegt við starf hennar heldur býður hún ein­ göngu upp á hlýju. Kölluð vændiskona Jackie hóf að kúra með ókunn­ ugum gegn gjaldi til þess að geta menntað sig og séð um ungan son sinn. Það eru ekki allir samnem­ endur hennar sáttir við vinnuna sem hún hefur valið sér og sumir hafa kallað hana vændiskonu. „Ég held ég hafi fæðst með kunnáttu til að kúra. Kúr er hollt, andlegt og skemmtilegt,“ segir hún í samtali við Daily Mail. Jackie segist vera með fjölbreytt­ an kúnnahóp og fólk komi til henn­ ar af ýmsum ástæðum. Allir eiga kúnnarnir það þó sameiginlegt að finnast einstaklega gott að kúra. „Ég held að viðskiptavinir mínir komi til mín af mörgum ástæðum. Sumir af eldri viðskiptavinum mínum hafa misst eigin konu sína og þá vantar bara einhvern til þess að vera með, og upplifa snertingu með,“ segir hún. Setur viðskiptavinunum mörk „Sumir af yngri viðskiptavinunum eru á milli sambanda, sumir eru í erf­ iðu sambandi, og sumir eru bara mjög forvitnir og koma til þess að athuga hvernig þetta fer fram.“ Jackie aug­ lýsir þjónustu sína á veraldarvefnum og rukkar 60 dollara á klukkutímann. Kúnnarnir geta fengið kúr hvar sem er í íbúð Jackie í Rochester í New York. Hún segir þó að flestir kjósi að kúra með henni í rúminu hennar. Hún set­ ur viðskiptavinunum mörk og bann­ ar þeim að snerta þá staði líkamans sem nærföt hennar hylja undir nátt­ fötunum sem hún klæðist við kúrið. Komin með lærling Það er svo mikið að gera hjá Jackie að hún hefur meira að segja ráðið til sín lærling, unga konu að nafni Colleen. Lærlingurinn hefur ekki ennþá far­ ið alla leið og kúrt ein með viðskipta­ vini en hefur tvisvar verið með Jackie þegar hún kúrir með kúnna. Þrátt fyrir að hún setji strangar reglur um að ekk­ ert kynferðislegt fari fram við kúrið þá hefur hún fengið fjölda tölvupósta og símtala þar sem hún er fordæmd fyrir starfið og kölluð vændis kona. „Sumir hafa sagt að ég sé verri en vændiskona því þeim finnst kúr vera innilegra en kynlíf. Það hefur verið sagt við mig að ég sé að gera lítið úr ástinni.“ Einn af viðskiptavinum Jackie sem kemur fram undir nafninu Tim segir Jackie hafa hjálpað honum í gegnum erfið sambandsslit. Hann sagðist líka myndu halda áfram að koma til Jackie þótt hann væri kom­ inn í samband. n Erlent 13Miðvikudagur 7. nóvember 2012 Vinnur við að kúra n Jackie Samuel starfar sem kúrari n Sögð verri en vændiskona Kölluð vændiskona Jackie hefur verið kölluð vændiskona fyrir að kúra með viðskiptavinum sínum. Kúrir að atvinnu Jackie kúrir með um 30 kúnnum á viku. Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.