Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Síða 2
Kvaddi á af-
mælisdaginn
2 Fréttir
Milljóna-
samningur
vegna plasts
og pappírs
Ríkiskaup hafa gert margra millj-
óna króna samning við Papco um
kaup á plastpokum og hreinlætis-
pappír. Um er að ræða kaup á
mörgum tonnum af plastpokum.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Papco en þar segir einnig að
samningurinn sé mikilvægur fyrir
fyrirtækið. Samningurinn sem
gerður var er til tveggja ára með
möguleika á framlengingu. Papco
hefur séð ríkinu fyrir hreinlætis-
pappír síðastliðin fjögur ár. Fjöl-
mörg sveitarfélög eru einnig aðilar
að samningnum.
900 milljóna
gjaldþrot
Afskrifa þarf rúmlega níu
hundruð milljóna króna skuldir
eignarhaldsfélagsins Vestur hafnar
ehf. sem úrskurðað hefur verið
gjaldþrota. Engar eignir fundust í
þrotabúi félagsins. Félagið var að
stærstum hluta í eigu Páls Her-
manns Kolbeinssonar og Bene-
dikts Sigurðssonar, samkvæmt síð-
asta birta ársreikningi þess. Síðasti
ársreikningur félagsins er vegna
rekstrarársins 2008 en þar kemur
fram að eiginfjárhlutfall félagsins
var neikvætt um hundrað og átján
prósent í lok þess árs. Samtals var
kröfum upp á 912,6 milljónir lýst í
þrotabúið. Félagið var úrskurðað
gjaldþrota árið 2011 en skiptum
á því lauk í mars á þessu ári. Ein
af þekktustu eignum félagsins var
tískuvöruverslunin Sævar Karl.
Félagið keypti verslunina af þá-
verandi eigendum hennar, Sævari
Karli Ólasyni og Erlu Þórarins-
dóttur, árið 2007.
Skreyta jóla-
þorpið
Leikskólabörn í Hafnarfirði munu
næstkomandi fimmtudag taka
sig til og skreyta Jólaþorpið sem
árlega er opnað í bænum. Börnin
munu skreyta jólatrén sem um-
lykja þorpið með fallegu hlutun-
um sem þau hafa sjálf útbúið.
Þetta er í tíunda skipti sem þorp-
ið er reist og hafa leikskólabörn
skreytt það frá upphafi. Sam-
kvæmt tilkynningu frá Hafnar-
fjarðarbæ munu hressir og
skemmtilegir jólasveinar taka á
móti börnunum og syngja með
þeim jólalög. Jólaþorpið verður
svo opnað þann 24. nóvember og
verður opið á laugar- og sunnu-
dögum fram að jólum frá klukkan
13 til 18 og á Þorláksmessu frá
klukkan 13 til 22.
D
avíð Örn Arnarsson lést á
líknardeildinni í Kópavogi
síðastliðinn laugardag, 17.
nóvember, á 32. afmælisdegi
sínum. Davíð hafði háð
harða baráttu við krabbamein sem
hann greindist fyrst með í hálsi árið
2008. Þá fór hann í tvær skurðaðgerð-
ir og geislameðferð og talið var að
meinið væri á brott. Tveimur árum
seinna, árið 2010, hafði meinið tekið
sig upp að nýju. Þá hafði það dreift
sér og var komið lengra á veg en
áður. Davíð hafði í fyrra skiptið farið
í lyfjameðferð en ákvað nú að berjast
við meinið á sínum eigin forsendum
með hollum lifnaðarháttum. Hann
neitaði lyfjagjöf að mestu leyti og
studdist við lífrænt mataræði.
Barðist fram á síðustu stundu
Davíð sagði frá baráttu sinni í viðtali
við DV í júní á þessu ári. Þar sagðist
hann ætla að berjast við krabbann og
það gerði hann svo sannarlega fram á
síðustu stundu þó að krabbinn hafi á
endanum haft betur. „Ég er í baráttu
og ætla að ná bata. Og ég trúi að það
sé hægt á þennan hátt. Með huga og
líkama. Maður hefur séð ótrúlegustu
kraftaverk og þessu trúi ég.“
Davíð skilur eftir sig eiginkonu,
Karenu Björk Guðjónsdóttur, og
tvær dætur; Brynju Vigdísi, fimm ára
fósturdóttur, og Hrafnkötlu Rún, tíu
mánaða.
Davíð var afar vinmargur og vin-
sæll og meðan á baráttu hans stóð
voru haldnir nokkrir fjáröflunarvið-
burðir þar sem safnað var fyrir fjöl-
skyldu hans en Davíð hafði vegna
veikinda sinna ekki getað sinnt fullri
vinnu síðan hann greindist fyrst, árið
2008.
„Þvílík hetja!“
Fjölmargir minnast Davíðs á Face-
book-síðu hans en undanfarna
mánuði var hann duglegur að skrifa
þar fréttir af líðan sinni og deila visku
sinni til fólks og margir eru þakklát-
ir fyrir það. Davíð var duglegur með-
an á veikindum sínum stóð að minna
fólk á að lifa lífinu lifandi og njóta
líðandi stundar og brýndi fyrir fólki
mikilvægi góðs mataræðis sem hann
fylgdi í hvívetna sjálfur. „ Yndislegur
drengur dó í gær á 32 ára afmælis-
degi sínum – stundum skilur maður
ekki tilveruna og tilganginn. Eitt er
þó víst að Davíð Örn Arnarsson skil-
ur eftir sig margt sem fjölskylda hans,
vinir og kunningjar munu geyma að
eilífu. Þeir sem stóðu honum næst
hafa minningarnar um ljúfan dreng,
yndislega manneskju, fallega sál og
svo miklu miklu meira. Við hin höf-
um fylgst með honum og baráttu
hans hér á netinu og reynt að styrkja
á einhvern hátt. Það öfugsnúna er þó
að það var Davíð sem styrkti okkur.
Hann gaf okkur hvatningu, minnti
okkur á að vera góð við hvort annað,
kenndi okkur að meta heilsufæði,
gerði grín þegar manni fannst hann
hvað veikastur, kvartaði sjaldan og
gleymdi aldrei vinum sínum. Þvílík
hetja!,“ segir Facebook-vinur Davíðs
um hann.
Þvílíkt æðruleysi
Það er greinilegt að Davíð hafði
áhrif á marga í kringum sig líkt og
sést á skrifum vina hans á Face-
book-síðu hans. „Takk kæri Dav-
íð fyrir að fá mig til að hugsa hvað
það er sem skiptir máli í þessu
lífi,“ segir einn vinurinn. „Það var
með ólíkindum að tala við hann
og hlusta á það sem hann hafði að
segja. Þvílíkt æðruleysi sem bjó í
einum manni. Hann fékk mann
gjarnan til þess að hugsa hlutina
aftur og oftar en ekki öðruvísi en
áður. Ég var svo heppinn að fá að
heimsækja hann á líknardeildina
og fara yfir mál sem að voru hon-
um og mér hugleikin og verða von-
andi einhvern tímann að veruleika
öðrum langveikum einstakling-
um til góðs,“ skrifar einn þeirra á
síðuna. „Ég á eftir að sakna þess
að lesa allt það magnaða sem þú
hafðir fram að færa … jákvæðnina,
kærleikann og allt það æðruleysi
sem einkenndi þig. Eins og sjá má
þegar ég les kveðjurnar hér á síð-
unni þinni þá snertir þú við ófáum
með fallegu og svo réttu hugarfari
… sem fékk okkur hin til þess að
staldra við og hugsa.“
Fjölnismaður af guðs náð
Davíð var uppalinn í Grafarvogi og
bjó þar alla tíð. Margir Grafarvogs-
búar syrgja góðan vin. „Við andlát
Davíðs flaug einn af bestu sonum
Grafarvogs á braut, Fjölnismaður
af Guðs náð. Við skulum halda
minningu hans á lofti og vera góð
við hvort annað og reynum líka
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
n Davíð Örn lést á 32 ára afmælinu sínu eftir hetjulega baráttu við krabbamein
Hetjuleg barátta Davíð háði
hetjulega baráttu við krabbameinið.
Hér er er hann ásamt eiginkonu sinni
og dætrum. Davíð kvaddi þennan
heim síðastliðin laugardag, á 32 ára
afmælisdegi sínum. Mynd Gunnar SverriSSon
„Takk kæri Davíð
fyrir að fá mig til að
hugsa hvað það er sem
skiptir máli í þessu lífi.
21. nóvember 2012 Miðvikudagur