Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 27
„Við erum rosalega ánægð“ n Hljómsveitin Kúra tilnefnd til danskra tónlistarverðlauna V ið erum rosalega ánægð með þetta og bíðum spennt eftir að sjá hvað gerist. En fyrst og fremst er það bara mikill heiður að vera tilnefnd, segir Fanney Ósk Þórisdóttir, söngkona dansk-íslensku hljómsveitarinnar Kúra, en danska tónlistartímaritið Gaffa hefur tilnefnt sveitina sem bestu nýju dönsku hljóm- sveit ársins. Þá er plata Kúra, Halfway to the Moon, einnig tilnefnd sem besta elektróníska plata ársins. Hljóm- sveitina skipa ásamt Fanneyju, frændi hennar Brynjar Árni Heimisson Bjarn- foss og Rasmus Liebst. Gaffa-verðlaunin 2012 verða afhent þann 6. desember næstkomandi með pomp og prakt og þá kemur í ljós hvort hvort Kúra hreppir verðlaun í áður- nefndum flokkum. Hljómsveitin er mjög vinsæl í Danmörku og hefur spilað á stór- um tónlistar hátíðum, þar á með- al Hróarskelduhátíðinni. Í haust kom hljómsveitin einnig fram á norrænu menningarhátíðinni Días Nordicos í Madrid. Fanney segir tilnefningu ekki bara vera heiður heldur sé hún einnig góð kynning fyrir sveitina, hvort sem þau hreppi verðlaunin eða ekki. „Þetta er mjög ánægjulegt allt saman, alveg sama hvort við vinnum þetta eða ekki.“ Fanney býr á Íslandi en félagar hennar í Danmörku. Hún segir fjar- lægðina á milli þeirra þó ekki hafa nein áhrif. Það sé lítið mál fyrir þau að semja tónlist í sitthvoru landinu og jafnvel taka hana upp. Þá flýgur hún út til tónleikahalds, en á döfinni hjá Kúra í desember eru tónleikar á vinsælum skemmtistað í Danmörku. Í haust voru þau uppgötvuð í Bretlandi og var í kjölfarið boðið í áheyrnarprufur hjá breskum um- boðsmanni. Hann vinnur nú að því að markaðssetja Kúra í Bretlandi. „Þau eru yfir sig ánægð með tónlistina okk- ar og við erum að vinna að nýjum lög- um sem munu væntanlega koma út í Bretlandi ef allir samningar ganga vel,“ segir Fanney að lokum. n Byrjuð að skreyta F jölmiðlakonan og rithöf- undurinn Tobba Marinós tók sig til í síðustu viku og byrjaði að skreyta heima hjá sér fyrir jólin. Hún tók mynd af af- rakstrinum og birti á fésbókarsíðu sinni. Þar mátti sjá tvær stjörnur með hvítum seríum hangandi í glugga. Tobba og kærasti hennar, Karl Sigurðsson borgarfulltrúi, festu kaup á íbúð á Ránargötu fyrr á þessu ári og ætla má að þau séu búin að gera huggulegt í kringum sig. Tobba bætir svo um betur með jólaskreytingum en senn líður að fyrstu jólunum þeirra í íbúðinni. Tobba tók það fram á síðunni að eftir að hún hengdi upp skrautið hafi byrjað að snjóa. n Tobba Marinós gerir jólalegt í nýju íbúðinni Eignuðust stúlku H jónin Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi varaformaður Samfylkingarinnar og ný ráðinn efnahags- og at- vinnuráðgjafi forsætisráðherra, og eiginkona hans, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræðingur, eign- uðust sína þriðju dóttur á mánu- dagskvöldið. Mikil gleði ríkir hjá fjölskyldunni með nýjasta fjölskyldu- meðliminn en fyrir eiga þau hjónin tvær dætur og því má segja að Ágúst búi við sannkallað kvennaveldi. Fjöl- skyldan fluttist nýlega heim til Ís- lands eftir að hafa búið í New York þar sem hjónin voru við nám. n Ágúst býr við kvennaveldi Dreymdi um að verða falleg skautadrottning T ökur á nýrri mynd Ragnars Bragasonar, Málmhaus, standa nú yfir. Á fésbókarsíðu myndarinnar eru reglulega birtar stöðuuppfærslur um gang mála og myndir frá tökustað svo áhugasamir geti fylgst með fram- vindunni, en Málmhaus er væntan- leg í kvikmyndahús haustið 2013. Nýlega birtist mynd á síðunni af leikkonunni Brynhildi Guðjóns- dóttur í hlutverki sínu sem Hall- dóra Hannesdóttir. Hún er helst til grimmdarleg á svipinn og virðist hlutverkið ekki draga fram það fal- legasta í andliti hennar. Brynhildur skrifar sjálf um- mæli við myndina: „Þegar ég var lítil dreymdi mig um að verða falleg skautadrottning og heita Magdalena. En nei. Það var þetta sem átti fyrir mér að liggja.“ n Tökur standa yfir á kvikmyndinni Málmhaus Uppgötvuð í Bretlandi Hljómsveitin Kúra vinnur nú að nýjum lögum sem munu væntanlega koma út í Bretalandi. V ið lögðum af stað í húsbíl, en á þriðja degi varð okk- ur ljóst að allar þær ráð- leggingar sem við höfðum fengið reyndust réttar,“ segir tónlistarmaðurinn Jónas Sig- urðsson hlæjandi, en hann er á tónleikaferðalagi um landið ásamt gítarleikaranum Ómari Guðjóns- syni. Með þeim í för er einnig Jón Þór Þorleifsson. Jónas viðurkennir að það hafi líklega ekki verið mikið vit í að leggja af stað í ferðalag um landið á húsbíl á þessum árstíma. „En hug- myndin var góð. Við vorum búin að hafa það rosalega gott í húsbíln- um og þetta var mjög rómantískt ævintýri, en gekk ekki upp.“ Gekk vel í fyrstu Ferðlagið hófst í Reykjavík fyrir rúmri viku en fyrsti viðkomu- staðurinn var Borgarnes, þaðan lá leiðin í Stykkishólm og svo á Patreks fjörð. Eftir það fór að síga á ógæfuhliðina. „Þetta gekk alveg rosalega vel. Við sváfum í húsbíln- um og það var þvílíkt kósí stemn- ing. Þegar byrjuðum að leggja á heiðarnar fóru að renna á okk- ur tvær grímur. Þegar við vorum komnir í Bjarkalund og húsbíllinn farinn að renna til í rokinu uppi á heiðum þá breyttum við plan- inu. Við fengum rosalegan jeppa úr bænum og skiptum húsbílnum út.“ Þrátt fyrir að þeir félagar væru komnir á betri bíl var ævintýrunum á vegunum þó langt í frá lokið, enda allra veðra von á Vestfjörðum á þessum árstíma. Aftakaveð- ur gerði um síðustu helgi og litlu mátti muna að þeir kæmust ekki til Ísafjarðar þar sem þeir voru bókaðir á tónleika á laugardags- kvöldið. Gengu á undan bílnum „Við fórum inn á Drangsnes og spiluðum þar og það mættu allir nema tveir, að okkur skildist. En aðalævintýrið var að komast á laugardeginum til Ísafjarðar. Við biðum fram á miðjan dag, þangað til Vegagerðin hafði gefið út að þeir ætluðu að ryðja.“ Þá vippuðu félagarnir sér upp í jeppann og héldu af stað út í óveðrið á eftir ruðningsbílnum, sem keyrði þó einungis brot af leiðinni. Þegar þeir komu inn Álftafjörð til móts við Súðavík var kominn blindbylur. „Við vorum farnir að labba tveir á undan bílnum og sáum ekki stikurnar eða neitt,“ segir Jónas til að reyna að lýsa ógöngunum sem þeir voru komnir í. Í Súðavík beið svo sjálfur Mugison eftir þeim með þær fréttir að það væri fært um Súðavíkurhlíðina svo þeir héldu förinni áfram. „Um leið og hann kom heim þá komst hann að því að það væri búið að loka öllu og það væri algjörlega allt ófært. Þannig að við lögðum bara í þetta alveg blint,“ segir Jónas og hlær þegar hann rifjar upp ævintýrið. „Þetta rétt slapp, við með kerruna og allt draslið, inn á Ísa- fjörð á sama tíma og tónleikarnir áttu að byrja.“ Nokkur snjóflóð féllu á veginn um Súðavíkurhlíð á laugardaginn, skömmu eftir að þeir fóru þar um og það mátti varla tæpara standa. Ísfirðingar mjög þakklátir Tónleikarnir fóru fram í Húsinu á Ísafirði og segir Jónas fólk hafa verið mjög ánægt með að þeir hafi yfirhöf- uð komið á staðinn. „Við skynjuðum mikið þakklæti fyrir það að við vær- um að leggja svona mikið á okkur til að koma og skemmta. Það er mikið á sig lagt til að breiða út boðskapinn hjá okkur.“ Á sunnudaginn skelltu þeir sér svo til Flateyrar og og spiluðu á Vagninum ásamt Mugison, og var vel tekið af heimamönnum. Prógrammið er ansi stíft hjá þeim félögum því á mánudagsmorgun, eftir að hafa drukkið kaffi með Mugi- son, heldu þeir förinni áfram til Akureyrar þar sem þeir spiluðu á Græna hattinum á mánudagskvöldi. Þegar blaðamaður náði tali af Jónasi á þriðjudag voru þeir á leiðinni til Vopnafjarðar, en alls munu þeir spila á fjórtán stöðum um land allt áður en tónleikaferðalaginu lýkur. n n Jónas Sig og félagar komust í hann krappann n Rétt sluppu við snjóflóð n Urðu að skipta út húsbílnum rómantískt ævintýri Skiptu út húsbílnum Þeir félagar Jónas og Ómar lögðu af stað á húsbíl um landið þrátt fyrir að vera ráðlagt að gera það ekki. Fólk 27Miðvikudagur 21. nóvember 2012

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.