Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 4
KóKaín fannst í þvagi þorsteins 4 Fréttir Gæluverkefni ríkisstjórnar n Vigdís Hauksdóttir gagnrýnir fjárútlát vegna þróunarhjálpar V igdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, telur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar­ dóttur eyða of miklu í gælu­ verkefni. Hún hefur ítrekað lýst yfir þessari skoðun sinni og gjarnan vísað í aðildarumsókn Íslands að Evrópu­ sambandinu. Í umræðum í þinginu fyrir viku sagði hún hins vegar þróunar hjálp líka vera eitt af þessum gæluverkefnum. „Það verður ekki gert í tíð þessarar ríkisstjórnar vegna þess að hún hefur að mestu sóað ríkisfé í gæluverk efni eins og (forseti hringir.) ESB­umsókn­ ina og, takið eftir, þróunarhjálp hjá öðrum ríkjum þegar Íslendingar sjálfir svelta,“ sagði hún í umræðum á sama tíma og hún hvatti þingheim til að taka höndum saman og reyna að komu málum í lag hér á landi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vig­ dís lætur í ljósi óánægju sína vegna þróunaraðstoðar. Árið 2010 kallaði hún eftir því að Ísland óskaði eftir undanþágu frá greiðslum í þróunar­ sjóð EFTA. Ísland veitir árlega nokkrum milljörðum í þróunarmál. Til að mynda er gert ráð fyrir tæplega fjögurra milljarða króna framlagi úr ríkissjóði til þróunarmála, þar með talið til Þróunarsamvinnustofnunar Ís­ lands. Í efnahagshruninu var skorið tals­ vert niður í þróunaraðstoð eins og öðrum málaflokkum. Samkvæmt mælingum OECD standa Íslendingar sínum helstu samanburðarlöndum langt að baki þegar kemur að þróunar aðstoð. Samkvæmt úttekt OECD létu Íslendingar 0,22 prósent af þjóðarframleiðslu til þróunarmála. n Þ orsteinn Kragh, sem dæmd­ ur var í níu ára fangelsi fyrir innflutning á tæplega 200 kílóum af hassi og 1,5 kílói af kókaíni árið 2009, var fyrir nokkrum vikum staðinn að kókaín­ neyslu í dagsleyfi sem hann fékk frá Kvíabryggju á Snæfellsnesi. Kókaínið fannst í þvagi Þorsteins eftir að hann hafði skilað sér of seint í fangelsið úr dagsleyfinu – fangarnir þurfa að vera komnir aftur til baka fyrir miðnætti. Þótti ástand Þorsteins bera þess merki að hann kynni að hafa notað fíkniefni í leyfinu því það er alls ekki svo að fangar á Kvíabryggju þurfi alltaf að gangast undir þvagprufu þegar þeir skila sér aftur í fangelsið eftir að hafa verið í leyfi. Þorsteinn hafði brugðið sér frá Kvíabryggju og til Reykjavíkur á Porsche­jeppanum sínum. Eftir að fíkniefnin fundust í þvagi Þorsteins var hann færður frá Kvíabryggju á Litla­Hraun, þar sem hann afplánaði hluta af dómi sínum áður en hann var færður á Kvíabryggju. Fíkniefna­ notkunin mun leiða til þess að Þor­ steinn mun þurfa að sitja lengur í fangelsi en hann hefði þurft, líklega í um sex mánuði. Sú vist verður á Litla­Hrauni. Mikill munur er á aðstöðu og að­ búnaði fanga á Kvíabryggju og Litla­ Hrauni. Fyrrnefnda fangelsið er opið og er frelsi fanga þar umtalsvert og gæsla og eftirlit með föngum eins lítið og mögulegt er, þeir geta meðal annars farið út fyrir fangelsis svæðið, geta farið í dagsleyfi, hafa aðgang að farsímum símum og tölvum lungann úr sólarhringnum og svo framvegis. Þeir sem til þekkja hafa lýst staðn­ um sem „himnaríki í helvíti“, mann­ úðlegu fangelsi sem er óravegu frá Litla­Hrauni. Á Litla­Hrauni, sem er lokað öryggisfangelsi, er frelsi fanga miklu minna og eftirlit meira auk þess sem þar eru hættulegri fangar, ofbeldi tíðara sem og neysla fíkni­ efna. Skemmst er að minnast þess að fyrr á árinu fannst fangi látinn í klefa sínum á Litla­Hrauni eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi. Átti viku eftir Þorsteinn átti einungis um viku eftir að afplánun sinni á Kvíabryggju þegar hann var tekinn vegna neyslu kókaíns­ ins. Eftir viku til viðbótar á Kvíabryggju hefði hann farið á Vernd í Reykjavík. Þar hefði hann getað sótt launavinnu á daginn um nokkurra mánaða skeið meðan hann hefði lokið afplánun sinni. Eftir dvölina á Vernd hefði hann orðið frjáls maður. Þess í stað bætast um sex mánuðir við refsingu hans; refsingu sem hann þarf þar að auki að afplána á miklu verri stað, Litla­Hrauni, en Kvía­ bryggju. Losnaði um pláss fyrir Jón og Ragnar Áður en Þorsteinn Kragh var færður á Litla­Hraun hafði hann dvalið í 200 fermetra einbýlishúsi sem áður var heimili forstöðumanns­ ins á Kvíabryggju. Húsið er með þremur einstaklingsherbergjum. DV greindi frá því á föstudaginn að Exet­ er Holdings­fangarnir, Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson, hefðu fengið að flytja inn í umrætt hús fyrir nokkru. Í einbýlishúsinu er betri aðstaða en í stóra húsinu sem hýsir 20 af þeim 23 föngum sem af­ plána á Kvíabryggju hverju sinni. Þar er minna eftirlit, fullbúið eldhús, gufubað fyrir 4 til 6, íbúarnir eru með aðgang að internetinu og farsímum allan sólarhringinn, auk þess sem grill er á sólpalli við húsið. Þeir fangar sem eru á Kvíabryggju vilja því eðlilega flestir fá að búa í stóra húsinu. Þorsteinn hafði dvalið í húsinu með dæmdum barnaníðingi, Jóni Sverri Bragasyni, en vegna fíkniefna­ notkunar hans losnaði um pláss í húsinu. Fyrir vikið fengu þeir Ragn­ ar Z. og Jón Þorsteinn að flytja inn í húsið þar sem þeir búa í dag. n Afdrifaríkt Neysla Þor- steins er afdrifarík fyrir hann því hann átti einungis um viku eftir af afplánun sinni á Kvíabryggju. Þaðan hefði hann farið á Vernd og lokið afplánuninni.„Þorsteinn átti einungis um viku eftir að afplánun sinni á Kvíabryggju þegar hann var tekinn vegna neyslu kókaínsins. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is 21. nóvember 2012 Miðvikudagur n Fór í dagsleyfi til Reykjavíkur á Porsche-jeppa Ófagleg tamning „Félagið fordæmir þær aðferðir sem viðhafðar eru í myndbandinu og hefur vísað málinu til aga­ nefndar félagsins,“ segir í yfirlýs­ ingu frá Félagi tamningamanna vegna myndbands sem DV.is sagði frá á mánudag þar sem sjá má unga konu beita því sem félagið kallar „óviðeigandi og ófaglegum tamningaaðferðum“ í yfirlýsingu sinni. „Aðalmarkmið Félags tamn­ ingamanna er að stuðla að réttri og góðri tamningu og meðferð ís­ lenska hestsins sem og að stuðla að bættum hag félagsmanna sinna.“ Myndbandið, sem er reyndar ársgamalt, fór heldur ekki fram hjá Dýraverndarsambandi Íslands en sambandið hefur tilkynnt málið til lögreglu. Umrætt myndband var að finna á Youtube á mánudag en var fjarlægt eftir að athygli var á því vakin. Magnús fær milljónir Ákæru embættis sérstaks sak­ sóknara á hendur Magnúsi Guð­ mundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, var vísað frá dómi á þriðjudag. Ákæra sérstaks saksóknara þótti óskýr og vanreifuð og því ekki annað hægt að mati dómsins en að vísa henni frá. Magnús fær að auki níu milljónir króna frá ís­ lenska ríkinu í málskostnað en úr­ skurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar Íslands. Magnús var, ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einars­ syni og Ólafi Ólafssyni, ákærður í al Thani­málinu svokallaða sem snýr að markaðsmisnotkun og umboðssvikum. Vill skera niður Vigdís vill að þróunarað- stoð verði skorin niður en hún telur að það sé gæluverkefni ríkisstjórnarinnar. Mynd SigtRygguR ARi JóHAnnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.