Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 25
Lífsstíll 25Miðvikudagur 21. nóvember 2012
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
V
ið vinkonurnar höfðum gengið
með þessa hugmynd í nokkurn
tíma og í tilefni þess að Dýr-
leif hefði orðið þrítug þann 23.
nóvember ákváðum við að láta verða
að þessu,“ segir Silja Dögg Baldurs-
dóttir sem mun, ásamt vinkonum sín-
um, halda minningartónleika á Græna
hattinum á fimmtudagskvöldið til
styrktar Dag- og göngudeild lyflækn-
inga Sjúkrahússins á Akureyri. Tón-
leikarnir eru haldnir til minningar um
vinkonu stelpnanna, Dýrleifu Yngva-
dóttur, sem lést 19. ágúst, 2004, eftir
harða baráttu við erfið veikindi.
Mikið áfall
Á meðal tónlistarmanna sem koma
fram á tónleikunum eru Lára Sóley
og Hjalti, Marína Ósk, Heimir Ingi-
mars, WhyKings, Konni Konga, Ein-
ar Höllu og gestir og Heimir Björns úr
Larry Brd en kynnir kvöldsins verður
Rögnvaldur gáfaði.
Í ár eru átta ár síðan Dýrleif lést
og Silja segist hugsa reglulega til vin-
konu sinnar. „Við stelpurnar tölum
líka oft um hana þegar við hittumst,
vitnum í hana og getum hlegið með
henni. Hennar er sárt saknað. Dýrleif
var alltaf hrókur alls fagnaðar og mik-
ill stuðbolti. Þetta var rosalegt sjokk
og sérstaklega á þessum aldri. Maður
bjóst ekkert við að þurfa að kveðja vini
sína svona ungur.“
Algjör hetja
Silja segir Dýrleifu hafa kennt sér
meins í höfði í nokkurn tíma áður en
hún var greind með heilaæxli. „Svo
fundu þeir æxlið í janúar og hún er
dáin í ágúst. Þetta gerðist mjög hratt en
æxlið var á stærð við mandarínu þegar
það fannst,“ segir hún og bætir við að
Dýrleif hafi gengist undir aðgerð sem
virtist hafa tekist nokkuð vel. „Í einn
mánuð var hún einkennalaus en æxlið
fannst svo aftur við fyrstu skoðun. Við
trúðum því aldrei að þetta myndi fara
svona. Dýrleif var líka alltaf svo jákvæð
sjálf og sá alltaf fyrir endann á þessu.
Hún ætlaði sér að sigrast á þessu. Hún
var bara algjör hetja, alltaf svo sterk.
Þetta bugaði hana aldrei. Hún var svo
sterkur karakter, hress, fyndin, opin og
rosalega skemmtileg. Það líkaði öll-
um við hana,“ segir Silja og bætir við
að það hafi verið lýsandi fyrir Dýrleifu
að finna til með lækninum þegar hann
tilkynnti henni að æxlið væri komið
aftur. „Það var það sem hún pældi mest
í, hvað það hlyti að hafa verið erfitt fyrir
hann að segja henni frá þessu.“
Stelpurnar eru með Facebook-síðu
þar sem hægt er að lesa meira um tón-
leikana. „Þar er einnig hægt að skoða
myndir af hálsmeninu Dýrleif sem
Hulda vinkona okkar bjó til. Þeir sem
hvorki vilja kaupa hálsmenið né skella
sér á tónleika geta samt styrkt okkur
og verið þannig með. Allur peningur
rennur til Dag- og göngudeildar lyf-
lækninga hér á Akureyri. Við vildum
gera eitthvað með sjúkrahúsinu hér í
bænum tengt krabbameinssjúkling-
um og þessi deild varð fyrir valinu. Það
er náttúrulega mikill niðurskurður á
sjúkrahúsinu svo þessum peningum
verður án efa vel varið.“
Facebook-síða tónleikanna nefnist
Minningartónleikar Dýrleifar.
indiana@dv.is
n Halda styrktartónleika til minningar um Dýrleifu Yngvadóttur
„Hennar er
sárt saknað“
Dýrleif Silja segir
vinkonu sína hafa
verið hrók alls
fagnaðar.
Vinkonurnar Stelpurnar ákváðu að halda minningartónleika í tilefni þess að Dýrleif hefði
orðið þrítug á þessu ári ef hún hefði lifað.
Furðulegar þrár
á meðgöngu
n Samkvæmt óvísindalegri
rannsókn vefsíðu sem fjallar um
meðgöngu og ungbörn finna
flestar ófrískar konur fyrir óvenju
mikilli löngun í ís – og það jafn-
vel um miðja nótt.
n 40% kvenna
fundu fyrir
óvenju mikilli
löngun í sæl-
gæti.
n Yfir 33%
sögðust hugsa
mikið um saltað snakk.
n Bragðsterkur matur er líka
vinsæll hjá ófrískum konum
(17%).
n 10% sögðust finna fyrir djúpri
löngun í súra ávexti á borð við
appelsínur og græn
epli.
n 85% kvenna
sögðust hafa
fundið fyrir
furðulegum
löngunum á með-
göngu. Þær snérust
um allt frá súrsuðu grænmeti
vöfðu inn í ost til salsasósu beint
upp úr krukkunni eða fitu af
vænni steik.
n Ein verðandi móðirin lifði
nánast eingöngu á súrsuðum
lauk en gat ekki einu sinni horft
á hann eftir fæðingu. Önnur varð
óð í eggaldin og sú þriðja borð-
aði allt upp í tvö og hálft kíló af
ferskjum á dag.
n Líklega tengjast þessar lang-
anir hormónabreytingum sem
hafa áhrif á bragð og lykt. Enginn
veit það þó með vissu. Sumir
sérfræðingar útskýra löngun í
sígarettufilter og línsterkju með
járnskorti. Aðrir útskýra sjúklega
mikla löngun í súkkulaði út frá
skorti á B-vítamíni og löngun í
rautt kjöt út frá skorti á próteini.
En á móti kemur, að ef líkaminn
kallar á þau efni sem hann vant-
ar myndu langflestar konur finna
fyrir löngun í ávexti, grænmeti
og aðra hollustu.
n Sumir telja að tilfinningarnar
spili þarna inn í svo það sem
flestar konur þurfi á að halda sé
einfaldlega knús frá makanum.