Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 21. nóvember 2012 Miðvikudagur É g er búinn að vera tvisvar sinnum inni á geðdeild. Ég er með kvíðaröskun, áfallastreituröskun, víðáttu­ fælni, ég þori ekki að vera úti. Ég fyllist hræðslu þegar ég heyri nöfn þeirra og ég er hræddur um að þeir sendi menn á eftir mér. Ég þarf að vera á róandi lyfjum því annars hellist hræðslan yfir mig,“ sagði ungur maður fyrir héraðs­ dómi á þriðjudag þegar hann var spurður hvaða áhrif árás sem hann á að hafa orðið fyrir af hálfu Bark­ ar Birgissonar og Annþórs Krist­ jáns Karlssonar í félagi við fleiri hafi haft á hann. Sú árás var ein af þremur málum sem tekin voru fyr­ ir á mánudag og þriðjudag þegar aðalmeðferð í máli Barkar, Ann­ þórs og átta annarra karlmanna fór fram í Héraðsdómi Reykjaness. Sakarefnin eru alvarleg og varða sérstaklega hættulegar lík­ amsárásir, fjárkúganir og frelsis­ sviptingar. Stöðugur kvíði Börkur og Annþór voru leiddir inn í dómsal hvor í sínu lagi í fylgd fjölda lögreglumanna sem einnig fylgdust náið með meðan á þing­ haldinu stóð. Báðir eiga langan og ofbeldisfullan sakaferil að baki. Málið sem ungi maðurinn lýsti fyrir dómnum varðar árás sem hann varð fyrir ásamt tveim­ ur félögum þegar þeir voru stadd­ ir í heimahúsi í Grafarvogi í des­ ember í fyrra. Annþór og Börkur fengu ekki að vera viðstaddir á meðan maðurinn gaf skýrslu fyr­ ir dómi, þar sem það yrði honum íþyngjandi og hefði áhrif á fram­ burð hans samkvæmt vottorði geðlæknis. Þeir gátu þó hlýtt á framburð hans í öðrum sal. Ásakanir um kúgun Maðurinn ungi sem sagðist einu sinni hafa unnið fyrir Börk með því að stela fyrir hann og stunda glæpi, lýsti því hvernig Annþór og Börkur, ásamt fleirum, hefðu ráð­ ist inn á heimili þar sem hann var gestkomandi og neytt hann til að leggjast á magann. Staðið hefði verið ofan á höndum hans og hon­ um haldið á meðan vinur hans var neyddur til að kasta yfir hann þvagi, auk þess sem Börkur hafi barið hann í hnakkann með tré­ kylfu. „Þeir létu mig setjast í sófa og Börkur spurði mig hvort að ég væri ofurhetja. Hann kýldi mig svo í andlitið og reif í eyrað á mér. Hann spurði mig hvað ég fengi mikið í bætur á mánuði. Ég sagði honum að ég fengi 200.000 og þá sagði hann að ég skuldaði honum 200.000 á mánuði þangað til að hann segði stopp.“ Á meðan hafi Annþór neytt vin hans með sér inn á salerni. Þegar Annþór og félagar voru farnir hafi vinur hans komið blóðugur fram og sagt að hann skuldaði þeim fimm milljónir og að 500.000 ættu að borgast á morgun. Maðurinn kærði árásina nokkru eftir að hún átti sér stað. Aðspurður hvers vegna hann hefði ákveðið að kæra svaraði hann: „Vegna hræðslu og vegna erfiðleikanna sem ég hef gengið í gegnum. Ég óttast um líf mitt.“ Neituðu sök Ástæða árásarinnar á að hafa verið sú að Börkur og Annþór höfðu heyrt að vinurinn hefði sagt að það ætti að skjóta menn eins og þá í lappirnar. Börkur og Annþór neituðu í skýrslu­ töku að hafa beitt þá ofbeldi. Þeir ját­ uðu að hafa farið á staðinn, en sögðu að þeim hefði verið meinaður aðgang­ ur að íbúðinni af kærustu húsráð­ anda og því hafi einn mannanna kom­ ið út til að tala við þá. Hann hafi hins vegar hlaupið í burtu og dottið í stiga á hlaupunum. Annþór hélt því fram að mennirnir sem og aðrir sem kærðu þá fyrir árásir hefðu verið beittir þrýstingi til að kæra af lögreglu og mönnum innan undirheimanna sem vilja sjá á eftir þeim inn í fangelsi. „Lögreglan er að hvetja menn til að kæra okkur og við eigum okkur óvildarmenn innan undirheimanna sem vilja losna við okkur og fá okkur inn.“ Líkamsárás í Mosfellsbæ Annað málið á hendur Annþóri, Berki og átta öðrum karlmönnum varðar líkamsárás í Mosfellsbæ, en þeim er gefið að sök að hafa ráðist inn á heimili þar. Atvikið átti sér stað þann 4. janúar síðastliðinn og áttu þeir að hafa veist að fjórum karl­ mönnum sem þar voru með hættu­ legum vopnum og bareflum, þar á meðal golfkylfum, sleggju með haus úr harðplasti, kylfum, handlóðum og tréprikum. Aðdragandi var sá að fyrr um daginn hafði húsráðandi á heimilinu sem ráðist var inn á farið að heim­ ili eins sakbornings í Breiðholti og lamið hann í höfuðið með gadda­ kylfu. Á bráðamóttöku hafi sá sem fyrir högginu varð og félagi hans haft samband við félaga sína og ákveðið að fara til Mosfellsbæjar, þar sem sá bjó sem hafði slegið hann með kylf­ unni, og ræða málin. „Verða þeir að borga bætur“ Börkur og Annþór fengu fréttir af því að mennirnir hygðust fara og sögð­ ust einnig eiga eitthvað vantalað við þann mann þar sem hann skuldaði þeim 50.000 krónur. Þeir sögðust fyr­ ir dómi hafa ætlað að fara á undan til mannsins til þess að tryggja að þeir fengju borgað og vildu ekki blanda þessum málum saman. Annþór sagð­ ist aðspurður fyrir dómi hafa vitað að mennirnir væru á leið í Mosfellsbæ, en segir þá ekki hafa ætlað að ráðast á mennina heldur fara fram á fébætur. „Í þessum heimi er það svoleiðis að þegar menn gera eitthvað og eru í órétti þá verða þeir að borga bætur. Það er bara svoleiðis.“ Einn mannanna sem ákærður er fyrir aðild að árásinni lýsti atburða­ rásinni svona: „Þegar við komum voru Börkur og Annþór inni. Síðan er hringt í einn okkar og Annþór opnar svo hurðina. Við heyrðum kallað innan úr íbúðinni: „hleypið þeim inn“.“ Hann segir aðspurður að einhverjir af þeim hafi verið vopnaðir kylfu og sleggju. „Þegar við komum inn réðst einn af mönnunum sem voru inni að okkur. Ég byrjaði að ráðast á mann sem heitir X, en Y var með þessa sleggju að berja allt og alla. Hann var snaróður með þessa sleggju. Hún fór eiginlega í okk­ ur alla, hún var út um allt.“ Maðurinn sagði að Annþór hefði farið með einn einstaklinganna sem voru í íbúðinni út og því ekki verið við­ staddur árásina. Börkur hefði ekki gert annað en að afvopna einn mann sem hefði ráðist að honum en ekki tekið annan þátt í árásinni. „Lamdi hann eins og ég gat“ Saksóknari benti manninum á að í skýrslutöku hjá lögreglu eftir at­ burðinn hefði hann sagt að hann hefði séð Börk berja einn mannanna sem slasaðist einna mest í árásinni. „Það er þá eitthvað sem að löggan hefur sagt mér að segja. Hún var alltaf að biðja mig um að segja eitt­ hvað um Börk og Annþór. Þetta er bara lygi sem kemur fram í þessari skýrslu. Þeir sögðu mér fullt af hlut­ um sem ég átti að segja sem eru ekki sannir … Þetta gerðist allt í svo mikl­ um flýti,“ sagði maðurinn sem viður­ kenndi að hafa beitt sleggjunni á einn brotaþola. „Ég lamdi hann bara eins og ég gat með þessari sleggju. Ég bara missti mig.“ Allir ákærðu sem og allir brota­ þolar sögðu að ríkt hefði algjört kaos meðan á árásinni stóð. Hinir ákærðu segja þetta hafa verið slagsmál á milli allra aðila en þeir sem fyrir árásinni urðu segjast ekki hafa getað björg sér veitt. Ósamræmi var á milli vitnis­ burðar málsaðila sem ýmist sögð­ ust lítið muna eða að ekki hefði verið hægt að átta sig á atburðarás þar sem allt var í háalofti. Annþór sagðist hafa orðið eft­ ir á vettvangi þar sem hann átti eft­ ir að tala við einn mannanna um „aurinn“. Stuttu síðar kom lögreglan á vettvang. Fyrir dómi sagði lög­ reglumaður sem kom fyrst á stað­ inn að enginn brotaþolanna hefði viljað ræða við hann. „Þeir vildu okk­ ur bara burt.“ Hann sagði að Annþór hefði verið á staðnum og að hann hefði virst pollrólegur. „Hann sagði að þetta hefðu bara verið áflog á milli tveggja hópa og að þeir myndu vinna úr þessu sjálfir.“ Árás inni á sólbaðsstofu Þriðja málið varðar líkamsárás í hús­ næði sólbaðsstofunnar Sól í Hafnar­ firði þann 12. október í fyrra. Þar er Annþór ákærður fyrir að hafa veist að ungum manni, slegið hann í and­ lit og líkama, tekið um háls hans með kverkataki, haldið honum uppi við vegg og ekki sleppt takinu fyrr en hann missti meðvitund. Látið hann þá falla í gólfið og slegið hann ítrekað í andlitið þar sem hann lá á gólfinu. Annþór er einnig ákærður fyr­ ir að hafa á sama stað og tíma veist að öðrum ungum manni og sleg­ ið, skipað honum að leggjast á gólf­ ið, sparkað í hann og staðið ofan á höfði hans. Hann er einnig ákærður fyrir frelsissviptingu og tilraunir til fjárkúgunar með því að krefjast þess að þeir greiddu honum 500.000 hvor um sig með hótunum um frekara of­ beldi ef þeir yrðu ekki við kröfum hans. Samkvæmt ákæru hótaði hann þeim einnig frekara ofbeldi og fjár­ kúgunum ef þeir segðu frá brotum hans gagnvart þeim með þeim orð­ um að þeir færu þá í áskrift hjá þeim, sem væri ævilöng skuld við hann. „Lyppaðist bara niður“ Annþór segir atburði hafa verið með öðrum hætti. „Ég sló X utan undir með flötum lófa. Ég tók Y svæfingar­ taki. En kyrkja? Það er stór munur á því að kyrkja og svæfa.“ Aðspurður af saksóknara hvort maðurinn hefði misst meðvitund svaraði Annþór neitandi. „Það tekur þrjár mínútur að kyrkja mann en bara þrjátíu sek­ úndur að svæfa mann. Hann lyppað­ ist bara niður.“ Hann segist þá hafa slegið hann í andlitið til þess að vekja hann. Hann hafi ekki beitt þá fjár­ kúgun heldur aðeins krafið þá um greiðslu upphæðar sem þeir hefðu stolið frá öðrum. Báðir ungu mennirnir höfðu lýst árásinni í skýrslutöku hjá lögreglu, en fyrir dómi, þar sem Annþór sat og hlustaði á framburð þeirra, drógu þeir orð sín til baka og sögðust hafa logið í skýrslutökunni. n Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Leiddur fyrir dóm Annþór Kristján Karlsson var leiddur fyrir dóm í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag í fylgd lögreglu. MyNd preSSphotoS.biz„Ég lamdi hann bara eins og ég gat með þessari sleggju „óttast um líf mitt“ n Aðalmeðferð í málum Barkar og Annþórs n Brotaþoli uppfullur af hræðslu eftir árás

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.