Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Blaðsíða 3
Kvaddi á af-
mælisdaginn
Þ
að verður stjórnarfundur
næstkomandi miðvikudag
[í dag, innsk. blm.] þar sem
framkvæmdastjóri sjóðsins
mun væntanlega upplýsa
stjórnina um þetta mál,“ segir Þor-
björn Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Sameinaða lífeyrissjóðsins.
DV sendi honum fyrirspurn
vegna umfjöllunar sem DV birti á
mánudaginn um að Sameinaði líf-
eyrissjóðurinn hefði veitt hjónunum
Sævari Jónssyni, eiganda skartgripa-
og úraverslunarinnar Leonard, og
Helgu Daníelsdóttur um 100 millj-
óna króna íbúðalán eftir banka-
hrunið. Hvorugt þeirra er sjóðsfélagi
í Sameinaða lífeyrissjóðnum svo vit-
að sé til og ólíklegt þykir að þau hafi
farið í gegnum greiðslumat. Þess
skal getið að Ólafur Haukur Jónsson,
skrifstofustjóri og staðgengill fram-
kvæmdastjóra Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, er eldri bróðir Sævars.
Titringur í sjóðnum
Samkvæmt heimildum DV hefur
umfjöllunin um lánveitinguna
valdið nokkrum titringi innan Sam-
einaða lífeyrissjóðsins. Samkvæmt
svari frá stjórnarformanni sjóðsins
verður Kristjáni Erni Sigurðssyni,
framkvæmdastjóra sjóðsins gert að
svara fyrir þessa lánveitingu í dag.
„Ég vil taka það
fram að allar lánveitingar til
sjóðsfélaga fara fram á ábyrgð
framkvæmdastjóra. Einstakar lán-
veitingar koma aldrei inn á borð
stjórnar enda væri það ekki eðlilegt.
Ég vísa þessu máli alfarið til hans til
að svara fyrir það,“ sagði Þorbjörn
enn fremur í svari við fyrirspurn DV
um það hvort stjórn Sameinaða líf-
eyrissjóðsins myndi óska eftir skýr-
ingum á umræddu 100 milljóna
króna láni eða óska eftir rannsókn á
því.
Sævar persónulega gjaldþrota
Sameinaði lífeyrissjóðurinn lánaði
hjónunum Sævari Jónssyni og Helgu
Daníelsdóttur rúmlega 100 milljón-
ir króna út á 500 fermetra glæsihýsi
við Mosprýði 10 eftir íslenska banka-
hrunið. Á þeim tíma voru hjónin í
verulegum fjárhagsvandræðum en
sem kunnugt er var Sævar persónu-
lega lýstur gjaldþrota árið 2009.
Ólafur Haukur, eldri bróðir Sæv-
ars, sagðist í samtali við DV á mánu-
daginn hvergi hafa komið nærri
lánveitingum til bróður síns. Fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, Kristján Örn
Sigurðsson, tók í sama streng og
sagði hjónin ekki hafa fengið lán í
gegnum fjölskyldutengsl. Kristján
Örn gat þó ekki staðfest að hjónin
væru félagar í sjóðnum né hvort þau
hefðu farið í gegnum greiðslumat
áður en lánin voru veitt. Lánin eru í
dag á nafni Helgu þar sem Sævar er
persónulega gjaldþrota.
Strangar reglur um greiðslumat
Afar strangar reglur eru fyrir sjóð-
félaga þegar kemur að lánveitingum.
Þegar slík lán eru veitt þurfa umsækj-
endur að fara í gegnum greiðslumat
og þurfa að hafa verið félagar í sjóðn-
um í að minnsta kosti sex mánuði
áður en lánið er veitt. Efast má um að
hjónin hafi, á þeim tíma sem lánin
voru veitt, staðist greiðslumat miðað
við fjárhagsstöðu sína – afborgun af
100 milljóna króna íbúðaláni er um
600 þúsund krónur á mánuði.
„Ég bara man ekki hvort þau fóru
í gegnum greiðslumat eða ekki. Það
er náttúrulega mjög margt búið að
breytast síðan þessi lán voru veitt.
Núna eru menn orðnir strangari á
greiðslumati. Í gegnum tíðina þá
hafa menn, eins og bankakerfið
gerði, horft fyrst og fremst á stöðu
tryggingarinnar sem var á bak við
lánin. Við horfum alltaf mest á þær
tryggingar sem eru bak við lánin.
Eftir hrun hafa menn verið að taka
alla svona verkferla til endurskoðun-
ar. Allavega, grunnforsendan er þessi
að sjóðurinn hefur ekki tapað krónu
á þessu og veðstaðan er bara mjög
sterk miðað við verðmæti hússins í
dag,“ sagði Kristján Örn í viðtali við
DV á mánudaginn. n
Fréttir 3Miðvikudagur 21. nóvember 2012
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Þarf að svara fyrir lánið
Kristján Örn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Sam-
einaða lífeyrissjóðsins, þarf
að svara fyrir 100 milljóna
króna lánveitingu til Sævars
Jónssonar og Helgu Dan-
íelsdóttur á stjórnarfundi
lífeyrissjóðsins í dag.
Ábyrgð hjá framkvæmdastjóra
Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarformaður
Sameinaða lífeyrissjóðsins, segir ábyrgð
á 100 milljóna króna íbúðaláni til Sævars
Jónssonar og Helgu Daníelsdóttur liggja
hjá Kristjáni Erni Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra lífeyrissjóðsins.
„Allar lánveitingar til
sjóðfélaga fara fram á
ábyrgð framkvæmdastjóra
Hjónin Þau Helga og Sævar fengu eftir hrun 100
milljóna króna lán hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum til
byggingar glæsilegs einbýlishúss í Garðabæ. Stuttu
seinna var Sævar úrskurðaður gjaldþrota en allar
hans eignir hafa verið færðar yfir á eiginkonu hans.
„Þvílíkt æðruleysi
sem bjó í einum
manni.
n Davíð Örn lést á 32 ára afmælinu sínu eftir hetjulega baráttu við krabbamein
að láta það sem skiptir máli vera
í forgangi í okkar lífi, annað get-
ur beðið,“ segir einn þeirra á Face-
book-síðu Davíðs. „Hvíldu í friði
þú mikli meistari, þú ert tákn
um jákvæðni og styrk og er það
aðdáunarvert hvernig þú stóðst
þig og tókst á veikindunum,“ segir
annar vinur. n
Þeir sem vilja styrkja
stelpurnar hans Davíðs;
eiginkonu hans og dætur,
er bent á að hægt er að
leggja inn á reikning:
0544-05-402441 -
kennitala 111177-4819.
N1 segir 19
starfs
mönnum upp
Nítján starfsmönnum hefur ver-
ið sagt upp hjá olíufélaginu N1. Í
tilkynningu frá fyrirtækinu seg-
ir að ástæðu uppsagnanna megi
rekja til þess að hluti rekstrar-
ins verði settur í dótturfélag sem
beri nafnið Bílanaust. Skemmst
er að minnast þess að árið 2007
sameinuðust Bílanaust og Olíu-
félagið ESSO undir nafni N1. Í til-
kynningu frá því í apríl 2007 sagði
að viðskiptavinir myndu þegar
í stað finna fyrir miklum ávinn-
ingi vegna sameiningarinnar og
að þjónustan yrði betri og öflugri.
Samruninn væri í þágu viðskipta-
vinanna.
Nú hefur dæminu verið snúið
við en markmiðið er þó, sam-
kvæmt tilkynningunni í dag, það
sama; „að efla þjónustu við við-
skiptavini N1 á öllum sviðum.“
Uppskiptingin muni þýða að hægt
verði að uppfylla betur þarfir við-
skiptavina, eins og það er orðað.
Með hagræðingu í rekstri muni
hann styrkjast til frambúðar.
„Auðvitað er alltaf erfitt að þurfa
að segja upp starfsfólki, en með
þessum aðgerðum teljum við að
hægt sé að snúa rekstri Bílanausts
til betri vegar,“ er haft eftir Egg-
ert Benedikt Guðmundssyni, for-
stjóra N1.
Það verða sérverslanir með
varahluti, aukahluti í bíla og
rekstrarvörur sem færðar verða í
dótturfélagið Bílanaust og verður
það rekið sem sjálfstæð eining.
Þingmannsefni
setur upp
reiknivél
Lögmaðurinn Sigríður Ásthildur
Andersen, sem sækist eftir 3.– 4.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, hefur sett upp reikni-
vélina Vasareikninn á heimasíðu
sinni. Með þessari reiknivél eiga
menn að geta séð hvað þeir fá í
vasann þegar þeir bæta við sig
aukavinnu, að sögn Sigríðar.
„Vinnandi fólk getur lent í því
að auka ráðstöfunartekjur sínar
aðeins um 2.500 krónur við það að
selja út vinnu sína fyrir 10 þúsund
krónur. Hinar 7.500 krónurnar fara
í virðisaukaskatt, tryggingagjald,
iðgjöld í sameignarsjóð, tekjuskatt
og bótaskerðingu. Þetta óæski-
lega samspil skatta- og bótakerfa
hefur stundum verið nefnt jaðar-
áhrif,“ skrifar Sigríður sem seg-
ir hjúskapar stöðu, tekjur, eignir,
skuldir, vaxtagjöld og fjölskyldu-
stærð geta haft áhrif á þessi dæmi.
„Það er búið að tengja marga
þætti saman sem flækir kerfið
gríðarlega. Auk þess sem hér er
tekið með í reikninginn eru af-
borganir námslána tekjutengdar,
svo dæmið getur litið jafnvel enn
verr út.“ Slóðin á reiknivélina er
sigridurandersen.is/vasareiknir.
gERT aÐ ÚTsKÝRa
lániÐ Til sævaRs
n Lífeyrissjóður lánaði Sævari og Helgu 100 milljónir