Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Page 6
6 Fréttir
Vilja semja um tannlæknakostnað barna
n Stefnt að fullri niðurgreiðslu í ársbyrjun 2018
S
júkratryggingum Íslands hefur
verið veitt heimild til að ganga
til samningaviðræðna við tann
lækna með það að markmiði að
tannlækningar fyrir börn verði niður
greiddar að fullu. Þetta var samþykkt í
ríkisstjórn á þriðjudag að tillögu Guð
bjarts Hannessonar velferðarráðherra.
Ríkisstjórnin vill að niðurgreiðslan
nái yfir allan kostnaðinn í ársbyrjun
2018 og að unnið verði að málinu í
áföngum.
Tillagan sem Guðbjartur lagði til
byggir á vinnu starfshóps sem ráðherr
ann skipaði í sumar en meðal verk
efna hópsins var að finna tillögur að
tímabundnum lausnum vegna tann
lækninga barna auk þess að finna til
lögur að fyrirkomulagi sem leysa ætti
vandann til framtíðar. Í júlí síðastliðn
um breyttist gjaldskrá Sjúkratrygginga
Íslands í takt við tillögur starfshóps
ins sem leiddi til þess að hlutfall raun
kostnaðar var hækkað í rúm 62 pró
sent. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá velferðarráðuneytinu.
Tillögur hópsins miða að því að
samið verði við tannlækna um fasta
gjaldskrá fyrir öll börn. Í fyrsta áfanga
samninganna á að stefna að því að
greitt verði að fullu fyrir almenna
tannlæknaþjónustu 12–17 ára barna
og þriggja ára barna, að undanskildu
komugjaldi, og að á hverju ári verði
bætt við árgöngum þar til öll börn njóti
niðurgreiðslna að fullu í samræmi við
nýtt kerfi, samkvæmt tilkynningunni.
Í starfshópnum áttu sæti fulltrú
ar velferðarráðuneytisins, Sjúkra
trygginga Íslands, Tannlæknafélags
Íslands, Háskóla Íslands, embættis
landlæknis og heilsugæslunnar. n
21. nóvember 2012 Miðvikudagur
Vilborg Anna
lögð af stað
Vilborg Arna Gissurardóttir
hóf á mánudag göngu sína á
suðurpólinn en áætlað er að
ferð hennar á syðsta punkt jarð
ar taki um 50 daga.
Vilborg hefur síðustu daga
dvalið í tjaldbúðum ALE
(Antarctic Logistics and Ex
peditions) í Union Glacier en
þaðan fara flestir leiðangrar á
suðurpólinn. Frá Union Glacier
var Vilborgu flogið til Hercules
Inlet, þar sem hún hóf gönguna.
Vilborg var brött í lok fyrsta
göngudags en hún bloggar um
upphaf göngunnar á heima
síðu sinni lifsspor.is: „Sólóleik
ar Suðurskautsins hófust í dag.
Mér var flogið á upphafsstað í
morgun og ég var klár kl. hálf
1 að byrja gönguna. Þurfti að
ganga yfir nokkrar snjópakkaðar
sprungur […] Nú er kósýstund
í tjaldinu en það gustar aðeins
úti. Gekk 6,3 km í dag í góðu
veðri.“
Í tilkynningu kemur fram
að gangan sé farin í þágu Lífs,
styrktarfélags Kvennadeildar
Landspítalans, en hægt er að
heita á hana í síma 9081500
og dragast þá 1.500 krónur frá
símreikningnum. Einnig er það
hægt með frjálsum framlögum á
heimasíðunni lifsspor.is.
Vilborg nýtur stuðnings við
leiðangurinn frá ALE og verður
hún í sambandi við tjaldbúðirn
ar að minnsta kosti einu sinni á
sólarhring meðan á ferð hennar
um suðurpólinn stendur.
Áætlað er að ferð Vilborgar
frá Hercues Inlet á syðsta punkt
jarðar taki um 50 daga og að á
hverjum degi gangi hún um 22
kílómetra að meðaltali. Hún
mun draga á eftir sér tvo sleða
með nauðsynlegum búnaði til
fararinnar sem vegur í byrjun
um 100 kíló.
Kannabisræktun
í Mosfellsbæ
Lögreglan á höfuðborgarsvæð
inu stöðvaði kannabisræktun í
húsi í Mosfellsbæ um helgina.
Við húsleit á áðurnefndum stað
fannst á annan tug kannabis
plantna. Karlmaður á fertugs
aldri, húsráðandi á staðnum, var
yfirheyrður í þágu rannsóknar
innar og viðurkenndi hann að
ild sína að málinu að því er fram
kemur í tilkynningu lögreglu.
Lögreglan minnir á fíkni
efnasímann 8005005. Í hann má
hringja nafnlaust til að koma á
framfæri upplýsingum um fíkni
efnamál. Fíkniefnasíminn er
samvinnuverkefni lögreglu og
tollyfirvalda og er liður í barátt
unni við fíkniefnavandann.
Heimild til viðræðna Ákvörðun ríkisstjórnarinnar felur í sér að Sjúkratryggingum verði
heimilað að ganga til samningaviðræðna við tannlækna. Mynd PHotoS
G
uðlaugur Þór Þórðarson,
þingmaður Sjálfstæðis
flokksins, hefur verið
kærður til sérstaks sak
sóknara fyrir meint um
boðssvik og mútuþægni vegna
viðskipta einkahlutafélagsins Bog
mannsins ehf. við Landsbanka
Íslands árið 2003. Þetta herma
traustar heimildir DV. Kæran var
lögð fram á þriðjudaginn, þann 20.
nóvember.
Kærandinn er Gunnar Ander
sen, fyrrverandi forstjóri Fjármála
eftirlitsins, sem nú sætir ákæru
vegna meintra lögbrota í starfi.
Ríkis saksóknari hefur ákært Guð
laug fyrir að hafa aflað gagna um við
skipti Bogmannsins ehf. við Lands
bankann í gegnum fyrrverandi
samstarfsmann sinn í Landsbanka
Íslands. Gunnar lét af störfum sem
forstjóri Fjármálaeftirlitsins í byrjun
þessa árs í kjölfar fjölmiðlaumfjöll
unar um störf hans fyrir aflands
félög Landsbanka Íslands. Í mars
síðastliðinn hélt Gunnar því fram
í samtali við Fréttablaðið að Guð
laugur Þór Þórðarson hefði lekið
gögnum um störf hans í Kastljós
Ríkissjónvarpsins.
DV hafði samband við Guðjón
Ólaf Jónsson, lögmann Gunnars
Andersen, sem skrifaði kæruna
samkvæmt heimildum DV, en hann
neitaði að tjá sig við blaðið. Gunnar
vildi sömuleiðis ekki tjá sig um mál
ið þegar blaðið náði tali af honum.
Ágústa og Sigurjón kærð líka
Kæra Gunnars beinist einnig að
eiginkonu Guðlaugs Þórs, Ágústu
Johnson, og bankastjóra Lands
bankans, Sigurjóni Þorvaldi Árna
syni, samkvæmt öruggum heim
ildum DV. Ágústa er kærð af því
að hún var annar eigandi og fram
kvæmdastjóri Bogmannsins ehf. og
stjórnarmaður í félaginu. Sigurjón
er kærður vegna starfa sinna fyrir
Landsbankann.
Inntakið í kærunni snýr senni
lega að því að viðskiptin á milli Bog
mannsins og Landsbankans hafi
ekki verið gerð á eðlilegum, við
skiptalegum forsendum heldur hafi
verið um eins konar sýndargjörning
að ræða sem rannsaka þurfi sem lög
brot. Í þessu felst að viðskiptin hafi
verið skipulögð til að koma fjármun
um frá Landsbankanum til Guð
laugs Þórs í gegnum Bogmanninn.
Sagðist ekkert hafa grætt
Líkt og DV greindi frá í febrúar síð
astliðinn fékk Bogmaðurinn ehf. 33
milljónir króna frá Landsbanka Ís
lands í júní 2003 vegna sölu á um
boði fyrir tryggingamiðlun sviss
neska tryggingafélagsins Swiss Life.
Umboðið hafði áður verið í eigu
Búnaðarbankans þar sem Guð
laugur Þór starfaði ásamt Sigurjóni
Árnasyni. Millifærslan frá Lands
bankanum til eignarhaldsfélags
Guðlaugs Þórs var framkvæmd
þann 13. júní 2003. Bogmaðurinn
var stofnaður þann 11. júní 2003,
samkvæmt samþykktum félagsins
frá þeim degi, og virðist því hafa ver
ið komið á laggirnar gagngert til að
taka við greiðslunni frá Landsbank
anum. Tilgangur félagsins er sagður
vera auglýsingamiðlun. Guðlaugur
hafði sest á Alþingi mánuði áður, í
maí 2003.
Í samtali við DV í febrúar sagðist
Guðlaugur Þór aðspurður hafa
keypt Swiss Lifeumboðið með
skammtímaláni frá Búnaðarbank
anum. „Ég man það ekki alveg en ég
held að ég hafi fengið skammtíma
lán, væntanlega frá Búnaðarbank
anum. Það leið mjög skammur tími
frá því ég keypti umboðið þar til ég
seldi það þannig að vaxtagjöldin
hafa ekki verið mjög mikil.“
Hann segist hafa selt umboðið
til Landsbankans á nokkurn veginn
kostnaðarverði. „Þetta er væntan
lega einn versti díll sem nokkur
maður hefur gert,“ sagði Guðlaugur
og bætti því við að söluverðið hafi
rétt dugað til að greiða lánið til baka
til Búnaðarbankans og fyrir útlögð
um kostnaði. Guðlaugur Þór sagðist
því ekki hafa grætt mikið persónu
lega á viðskiptunum, einungis
nokkur hundruð þúsund krónur.
Gunnar Andersen telur málið
hins vegar tortryggilegt og vill að
það verði rannsakað. n
n Ágústa og Sigurjón líka kærð n Varðar meint umboðssvik og mútuþægni
Guðlaugur Þór kærður
til sérstaks saksóknara
Kærður á þriðju-
daginn Guðlaugur Þór
Þórðarson var kærður til
embættis sérstaks sak-
sóknara á þriðjudaginn
út af máli Bogmannsins.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Í mars síðast
liðinn hélt
Gunnar því fram í
samtali við Frétta
blaðið að Guðlaugur
Þór Þórðarson hefði
lekið gögnum um
störf hans í Kastljós
Ríkisútvarpsins