Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2012, Page 10
Ó
vissuástand ríkir í Sam-
fylkiginnu gagnvart for-
mannsembættinu. Skiptar
skoðanir eru á Árna Páli
Árnasyni, oddvita flokks-
ins í Suðvesturkjördæmi, en hann
er sá eini sem tilkynnt hefur form-
lega um formannsframboð. Katrín
Júlíusdóttir fjármálaráðherra var
lengi vel orðuð við formannsfram-
boð en eftir naumt tap gegn Árna í
flokksvali Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi virðist sem hennar
formannsdraumur sé úti. Nánast
er hægt að slá því föstu að enginn
frambjóðandi fái jafn góða kosn-
ingu og Jóhanna Sigurðardóttir,
fráfarandi formaður flokksins, fékk
þegar hún var kjörin formaður,
jafnvel þótt enginn bjóði sig gegn
Árna Páli.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingkona flokksins í Reykjavík, og
Oddný G. Harðardóttir, fyrrver-
andi fjármálaráðherra, þykja lík-
legustu keppinautar Árna Páls um
formannsstólinn. Báðar náðu þær
góðum árangri í flokksvali flokks-
ins hvor í sínu kjördæminu en
þær hlutu báðar mestan stuðning
flokksmanna til að þiggja sæti á
lista, Sigríður Ingibjörg í annað
sæti í Reykjavík og Oddný í odd-
vitasætið í Suðurkjördæmi.
Mátaði formannsbuxurnar
fyrir löngu
Allt frá því að Árni Páll tapaði
varaformannskjöri fyrir Degi B.
Eggerts syni, oddvita flokksins í
borgarstjórn, hefur hann leynt og
ljóst unnið að því að verða næsti
leiðtogi flokksins. Hann hefur
verið duglegur að rækta gras-
rótina í flokknum. Hann hefur því
lengi verið að máta formannsbux-
urnar, eins og Össur Skarphéðins-
son utanríkisráðherra orðaði það á
Beinni línu fyrr á árinu.
Árni Páll hefur hins vegar ekki
flekklausan feril innan flokksins og
voru margir flokksfélagar óánægðir
með störf hans sem efnahags- og
viðskiptaráðherra en Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra skipti
honum úr ríkisstjórn þegar sam-
eining ráðuneyta lá fyrir dyrum en
færði Katrínu, sem er í öðru sæti
í sama kjördæmi og Árni Páll, í
valdameira ráðuneyti. Þrátt fyrir
þetta hefur Árni Páll náð að halda
nokkuð góðri stöðu í Kraganum en
hann fékk stuðning tæplega 49 pró-
senta flokksmanna í flokksvalinu.
Lítið þekkt utan flokksins
Vinsældir Sigríðar Ingibjargar inn-
an flokksins eru talsverðar og er
hún einn þeirra frambjóðenda sem
virðist njóta hvað mests stuðnings
úr flokknum, ef marka má niður-
stöður flokksvalsins. Hún hefur
setið á þingi frá því í þingkosn-
ingunum árið 2009 en þá kom hún
ný inn á lista Samfylkingarinnar.
Áður en hún settist á lista hafði hún
helst vakið athygli fyrir að segja sig
úr bankaráði Seðlabanka Íslands
í kjölfar hrunsins og viðurkenna
að mistök hafi verið gerð. Sú stað-
reynd að hún hafi ekki náð fyrsta
sætinu í kjördæminu mun þó vafa-
laust flækja málið og líklega letja
hana til formannsframboðs.
Síðan hún settist á þing hefur
hún einna helst vakið athygli innan
flokksins þrátt fyrir að hafa leitt
fjárlaganefnd þingsins á einum
mestu niðurskurðartímum síðari
tíma. Það er þó auðvitað svo að
flokksmenn kjósa sér formann og
verður því að teljast líklegt að staða
Sigríðar sé nokkuð sterk ákveði
hún að láta reyna á formannsfram-
boð. Hún virðist einnig eiga stuðn-
ing hjá breiðari hópi Samfylkingar-
fólks en Árni Páll þó erfitt sé að
sjá hvort myndi standa uppi sem
sigur vegari.
Össur ríður ekki feitum hesti
Lengi hefur því verið gert skóna að
Össur færi í formannsframboð fyrir
næstu kosningar. Hann var formað-
ur flokksins um nokkurra ára skeið
eftir að flokkurinn var stofnaður
en tapaði svo fyrir Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, sem hrökklaðist úr
stjórnmálum eftir hrunið og í kjöl-
far veikinda. Hann hefur hins vegar
sjálfur neitað að ætla í formanns-
slag en stjórnmálaskýrendur hafa
ítrekað leitt að því líkur að Össur
muni láta til leiðast og sé í raun bú-
inn að leggja drög að formanns-
framboði um nokkurt skeið.
Össur ríður þó ekki feitum hesti
frá flokksvali Samfylkingarinnar í
Reykjavík en þar sigraði hann Sig-
ríði Ingibjörgu naumlega í barátt-
unni um fyrsta sætið. Össur, sem
var eini ráðherra flokksins í valinu í
Reykjavík, fékk ekki stuðning nema
tæplega 39 prósenta félaga til að
leiða listann og ekki nema 71,5
prósenta stuðning til að taka eitt-
hvert sæti á listanum, það er ellefu
prósentustigum minni stuðningur
en var við hans helsta keppinaut,
Sigríði Ingibjörgu.
Óþekkt stærð innan flokksins
Oddný verður líka að teljast líkleg-
ur kandídat í formannsslaginn eftir
að hún bar sigurorð af Björgvini
G. Sigurðssyni, fyrrverandi við-
skiptaráðherra og oddvita flokks-
ins í Suðurkjördæmi. Hann hélt
fast utan um fyrsta sætið í próf-
kjöri flokksins fyrir síðustu þing-
kosningar þrátt fyrir að hafa verið
ráðherra bankamála í sjálfu banka-
hruninu haustið 2008. Oddný sigr-
aði hins vegar með yfirburðum í
flokksvalinu um síðastliðna helgi
og fékk stuðning 65 prósenta
flokksfélaga til að leiða listann í
kjördæminu, með 22 prósentustig-
um meiri stuðning en Björgvin.
Þrátt fyrir þetta er erfitt að gera
sér grein fyrir hversu mikinn stuðn-
ing Oddný býr við innan flokks-
ins til að taka að sér leiðtogahlut-
verk á landsvísu. Hún þótti standa
sig nokkuð vel í stóli fjármálaráð-
herra þegar hún leysti Katrínu af í
barneignarorlofi. Oddný þykir hafa
unnið sér inn mikið traust á meðal
flokksmanna þó að margir þekki
hana ekki nógu vel til að fylkja sér á
bak við hana í formannsslag.
Guðbjartur enn í annarri
baráttu
Sama má í raun segja um Guðbjart
Hannesson velferðarráðherra. Enn
er ekki komið í ljóst hvort hann á
stuðning til að leiða lista Samfylk-
ingarinnar í Norðvesturkjördæmi
fyrir næstu kosningar. Hann var
kjörinn á þing fyrst í síðustu kosn-
ingum og hefur síðan þurft að vera
andlit ýmissa óvinsælla verkefna.
Niðurskurður í heilbrigðiskerf-
inu og vandræðagangur í kringum
launahækkun Björns Zoëga, for-
stjóra Landspítalans, fyrr á ár-
inu mun án efa verða Guðbjarti til
trafala, bæði í flokksvalinu og í
hugsanlegu formannskjöri. Hann
þykir þó vera samvinnufús maður
og á sína dyggu stuðningsmenn
innan flokksins.
Þó að ekki sé ljóst hver, ef ein-
hver, muni berjast við Árna Pál
um formannsstólinn er ljóst að
ný kynslóð Samfylkingarmanna
er að koma upp. Magnús Orri
Schram, sem fékk mikinn stuðning
í flokksvalinu, er til að mynda strax
farinn að leggja drög að frama inn-
an flokksins. Þá má líka ekki af-
skrifa bæði Oddnýju og Sigríði
Ingibjörgu sem framtíðarleiðtoga
ákveði þær að fara ekki gegn Árna
Páli núna. Fari þau fram þriðja
kjörtímabilið árið 2017 má gera ráð
fyrir að þau muni öll eiga stuðning
til að leiða flokkinn. n
10 Fréttir 21. nóvember 2012 Miðvikudagur
n Tvær konur þykja líklegustu andstæðingar Árna n Nóg af framtíðarleiðtogum
Virðist berjast einn
um formannsstólinn
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Nartaði í hælana Sigríður Ingibjörg komst nálægt því að sigra Össur í flokksvali Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík. Flokksfélagar sem DV ræddi við voru sammála um að hún væri einna
líklegust til að geta tekið Árna Pál í formannsslag. MyNd EyþÓr árNasoN
Eini frambjóðandinn Árni Páll
er sá eini sem hefur boðið sig fram
til embættis formanns í Samfylk-
ingunni. Ekki eru allir á eitt sáttir við
það og er Árni Páll ekki öruggur um
að hljóta kosningu fái hann sterkan
mótframbjóðanda. Hann á þó
dygga stuðningsmenn í flokknum
sem munu berjast fyrir sinn mann.
MyNd EyþÓr árNasoN