Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 17. ágúst 2011 Miðvikudagur
Eigandi Langa Manga:
Ekki ölvuð
á bak við
barinn
„Ef maður lítur á björtu hliðarnar
þá vita allir hvar Langi Mangi er
núna,“ segir Karen Elísabet Sæ-
rún Ingadóttir, eigandi skemmti-
staðarins Langa Manga á Ísafirði.
Fyrir um viku fékk staðurinn þó
nokkra athygli eftir að honum var
lokað vegna
ölvunar starfs-
fólks, að sögn
lögreglu. Karen
segir fréttaflutn-
ing hafa verið
nokkuð einhliða
og vill fá að skýra
sína hlið málsins
en hún segir af
og frá að ástæða
hafi verið til þess
að loka staðnum.
„Mér finnst skrítið að lögreglan
haldi því fram að starfsfólk hafi
verið ölvað þegar þeir létu starfs-
fólk ekki einu sinni blása í áfengis-
mæla,“ segir Karen. Hún vill meina
að þar sem lögreglan hafi ekki gert
neitt til að staðfesta grun sinn um
ölvun standi einfaldlega orð gegn
orði. Óeinkennisklæddir lögreglu-
menn heimsóttu Langa Manga
um klukkan hálf þrjú aðfaranótt
sunnudagsins 7. ágúst og lokuðu
staðnum í kjölfarið vegna meintrar
ölvunar starfsmanna.
„Þetta hljómar ógeðslega illa,
eins og starfsfólkið hafi verið blind-
fullt við störf, en þannig var það
ekki,“ segir Karen. Hún segist hafa
verið að halda upp á 26 ára afmæli
sitt fyrr um kvöldið og því hafi stað-
urinn verið lokaður vegna einka-
partís. Um tólfleytið var staðurinn
svo opnaður en tvær vinkonur Kar-
enar sáu um afgreiðslu við barinn.
Hún segir að þær hafi einungis ver-
ið búnar að drekka eilítið af hvítvíni
og því hafi þær alls ekki verið ölv-
aðar. Hún er ósátt við viðbrögð lög-
reglunnar.
„Mér finnst voðalega leiðin-
legt að daginn eftir var komin frétt
í öllum fjölmiðlun um að Langa
Manga hefði verið lokað vegna ölv-
unar starfsfólks,“ segir Karen og
bætir við: „Ég vil bara segja við fólk
sem þekkir mig ekki að ég er mjög
ábyrg og ég er ekki þekkt fyrir að
vera ölvuð á bak við barinn.“ Hún
segir vini og kunningja einfaldlega
hafa hlegið að þessu en hún viti
ekki hvernig þeir sem þekki hana
ekki taki þessu. Hún tekur fram að
Langa Manga hafi aldrei áður verið
lokað vegna slíkra mála.
Karen segist sjálf hafa verið á
Langa Manga allt kvöldið en hún
hafi ekki komið nálægt afgreiðsl-
unni. „Þegar lögreglan sagði að
það þyrfti að rýma staðinn hjálpaði
ég þeim að henda út og var mjög
liðleg. Ég var miður mín og sagði
þeim að þetta myndi ekki koma
fyrir aftur.“ Karen sagði gestum
staðarins sem voru fáir á þessum
tímapunkti að hún ætlaði að loka
staðnum þar sem tölvan væri biluð
og því ekki hægt að spila neina tón-
list. Hún segir engan hafa vitað af
raunverulegu ástæðunni þar sem
lögreglumennirnir hafi verið óein-
kennisklæddir.
Langi Mangi mun leggjast í vetr-
ardvala eftir rúmlega þrjár vikur og
verður lokaður í vetur, þar sem Kar-
en er á leið til Danmerkur. Hún seg-
ir ástæðu lokunarinnar einnig vera
þá að hún vilji taka tillit til gamals
fólks sem búi í nágrenninu.
jonbjarki@dv.is
Karen Elísabet
Eigandi Langa Manga. T
ollstjórinn í Reykjavík gerði
árangurslaust fjárnám hjá
Jóni Ólafssyni, athafna-
manni og eiganda vatns-
fyrirtækisins Icelandic
Glacial í Ölfusi, í maí á þessu ári.
Þetta kemur fram í endurriti úr
gerðarbók sýslumannsins í Reykja-
vík sem DV hefur undir höndum.
Fjárnámið var gert vegna tæplega
33 milljóna króna skuldar Jóns við
tollstjóraembættið. Lánardrottn-
ar Jóns, meðal annars Landsbank-
inn, munu þar af leiðandi geta ósk-
að eftir því að bú Jóns verði tekið
til gjaldþrotaskipta þar sem hann
á ekki eignir til að greiða útistand-
andi lán sín þar sem fjárnámið var
árangurslaust.
Fjárnámið er eitt af þeim atrið-
um sem skipta máli í dómsmáli
sem Landsbankinn hefur höfðað
gegn Jóni vegna tæplega 420 millj-
óna króna sjálfskuldarábyrgðar
sem hann gekkst í vegna láns til
eignarhaldsfélagsins Jervistone
Limited sem skráð er á Bresku Jóm-
frúaeyjum. Stefnan í málinu gegn
Jóni var þingfest þann 16. júní síð-
astliðinn og verður málið rekið fyrir
dómstólum.
Orðrétt segir í endurritinu úr
gerðarbók sýslumanns að Jón eigi
engar eignir á Íslandi. „Talsmanni
gerðarbeiðanda er ekki kunnugt
um að gerðarþoli eigi eignir hér á
landi. Með vísan til framanritaðs
krefst talsmaður gerðarbeiðanda
þess að gerðinni verði lokið án ár-
angurs.“ Tollstjóraembættið gat því
ekki gengið að eignarhlut Jóns í
vatnsfyrirtækinu í Ölfusi.
Titlaður „fjárfestingarráðgjafi“
Líkt og DV hefur greint frá veitti
Sparisjóðurinn í Keflavík lánið til
Jervistone Limited árið 2006. Ástæð-
an fyrir því að það er Landsbankinn
sem stefnir Jóni í málinu er sú að í
mars tók Landsbankinn yfir rekstur
Sparsjóðsins í Keflavík og varð sjóð-
urinn hluti af bankanum í kjölfarið.
Jón var titlaður „fjárfestingarráð-
gjafi“ Tortólafélagsins, að því er seg-
ir í stefnunni.
Lánið var notað til að fjárfesta í
erlendum hlutabréfum, líkt og segir
í stefnu, en Sparisjóðurinn bjó ekki
yfir upplýsingum um hvaða hluta-
bréf voru keypt fyrir lánið. Um þetta
segir í stefnunni: „Lánsfénu yrði öllu
varið til kaupa á erlendum hluta-
bréfum, skráðum í Bretlandi og
skyldu hlutabréfin standa til trygg-
ingar láninu.“ Staða sparisjóðsins í
viðskiptunum var því ekki mjög góð.
Látinn gangast í ábyrgð
Sparisjóðurinn í Keflavík krafðist
þess hins vegar áður en lánið var
veitt til Tortólafélagsins að Jón
gengist í sjálfskuldarábyrgð fyrir því
þar sem veðið fyrir láninu var ekki
mjög traust. Jón gerði það á endan-
um en upphaflega vildi hann ekki
gangast í slíka ábyrgð. Um þetta
segir í stefnunni: „Lánssamningur
var því undirritaður þann 11. apríl
2006 og nam fjárhæð hans 2.250.000
sterlingspundum. Sama dag undir-
ritaði stefndi yfirlýsingu um sjálf-
skuldarábyrgð, þar sem hann gekkst
í sjálfskuldarábyrgð til tryggingar
á skilvísri og skaðlausri greiðslu á
öllum skuldum, afleiðusamning-
um og öðrum skuldbindingum sem
Jervistone Ltd. gengst undir gagn-
vart Sparisjóðnum í Keflavík…“ Eftir
að fyrir lá að Jón ætlaði sér ekki að
greiða lánið var honum stefnt vegna
ábyrgðarinnar. Út frá fjárnámi toll-
stjóra að dæma er ljóst að Lands-
bankinn mun ekki fá mikið upp í
kröfur sínar á hendur Jóni.
Húsið í eigu skuldsetts
eignarhaldsfélags
Ein af ástæðunum fyrir því af hverju
fjárnám tollstjóra var árangurslaust
er sú að Jón er ekki skráður pers-
ónulega fyrir miklum eignum hér
á landi. Til að mynda er einbýlis-
hús á Baldursgötu 33 sem hann hef-
ur búið í skráð á börn hans en ekki
hann sjálfan. Húsið er að öllu leyti í
eigu eignarhaldsfélagsins Joco ehf.,
sem aftur er í eigu barna Jóns.
Joco ehf. er tæknilega gjaldþrota
eignarhaldsfélag sem stundar fast-
eignaviðskipti, verðbréfaviðskipti
og tengdan rekstur, samkvæmt síð-
asta birta ársreikningi félagsins frá
árinu 2009. Eina fasteign félagsins
er umrætt hús á Baldursgötu. Joco
er með neikvætt eigið fé upp á rúm-
an milljarð króna en heildarskuldir
félagsins nema rúmum 1.700 millj-
ónum króna. Á húsinu hvíla veð frá
Íslandsbanka og erlendum sjóði
upp á rúmlega 330 milljónir króna.
Fasteignamat hússins er hins veg-
ar ekki nema rúmlega 76 milljón-
ir króna. Húsið er því yfirveðsett
en þar sem það er ekki skráð á Jón
persónulega munu lánardrottnar
hans, meðal annars Landsbankinn
ef dæmt verður honum í hag í mál-
inu, ekki geta leyst húsið til sín upp í
skuldir hans.
n Landsbankinn stefndi Jóni vegna 400
milljóna sjálfskuldarábyrgðar n Hús sem Jón
býr í er í eigu félags sem skuldar 1.600 milljónir
„Lánsfénu yrði öllu
varið til kaupa á
erlendum hlutabréfum,
skráðum í Bretlandi og
skyldu hlutabréfin standa
til tryggingar láninu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
1.600 milljóna króna skuld Einbýlishús á Baldursgötu sem Jón býr í er í eigu eignar-
haldsfélagsins Joco sem skuldar 1.600 milljónir. Joco er í eigu barna Jóns. Tollstjóri gat því
ekki gert fjárnám í húsinu.
Fyrir dómi Jóni Ólafssyni hefur
verið stefnt vegna 420 milljóna
króna sjálfskuldarábyrgðar sem
hann gekkst í vegna lánveitingar frá
Sparisjóðnum í Keflavík árið 2006.
Árangurslaust
fjárnám hjá
Jóni Ólafssyni
Tilboð hefur borist í eignir þrotabús
fiskvinnslunnar Eyrarodda á Flateyri
að sögn skiptastjórans Friðbjörns E.
Garðarssonar. „Samningaviðræður
hafa gengið vel og niðurstaða verð-
ur kynnt fljótlega,“ segir Friðbjörn
en segist ekki geta greint frá því hver
hafi gert tilboð í þrotabúið. „Tilboðs-
gjafi hefur óskað eftir trúnaði og því er
ekki unnt að upplýsa um hvern ræðir
að svo stöddu,“ segir Friðbjörn. Hann
segir um samstarfsverkefni Íslend-
inga og erlendra aðila að ræða þeg-
ar hann er spurður hvaðan tilboðið
komi.
Byggðastofnun tók umráð yfir
eignum þrotabús Eyrarodda sem
voru veðsettar stofnuninni. Um er
að ræða tólf eignir með mismun-
andi fastanúmerum. Byggðastofnun
kemur til með að eignast aðalfisk-
vinnsluhús Eyrarodda innan skamms
að sögn Hjalta Árnasonar, forstöðu-
manns lögfræðisviðs Byggðastofnun-
ar. Hjalti á von á að kröfuhafar muni
funda með skiptastjóra um umrætt
tilboð fyrir helgi og verði tíðinda að
vænta innan skamms um hvort um-
ræddu tilboði verði tekið.
Hjalti segir það vera markmið
stofnunarinnar að taka tilboði að-
ila sem vilja koma fiskvinnslu á fót á
Flateyri. „Aðalmarkmiðið er að þetta
sé aðili sem geti komið vinnslu af stað
og muni reyna það,“ segir Hjalti og
bætir við að Byggðastofnun geti ekki
sett kvaðir á tilboðsgjafann um að
hann starfræki fiskvinnslu á svæðinu.
Þegar hann er spurður hvort til-
boðið sé komið frá Íslendingum og
erlendum aðilum sem eiga í samstarfi
segist hann ekki hafa fregnir af slíku.
Þegar hann er spurður hvort stofnun-
in myndi setja það fyrir sig að erlendir
aðilar keyptu eignir þrotabús Eyrar-
odda segir hann: „Það gilda lög um
það hvort útlendingar geti átt sjávar-
útvegsfyrirtæki á Íslandi, það þarf að
vera í samræmi við þau.“ Lögin um
eignarhald erlendra aðila í sjávarút-
vegsfyrirtækjum kveða á um að beint
og óbeint erlent eignarhald megi vera
allt að 49 prósent.
Ef samningar nást lýkur langri og
strangri bið Flateyringa eftir lausn á
málum þrotabús Eyrarodda. Eyrar-
oddi var stofnaður eftir að fiskvinnsl-
an Kambur var lögð niður á vor-
dögum árið 2007. Haustið 2007 hóf
Eyraroddi vinnslu en fyrirtækið varð
gjaldþrota um miðjan janúar síðast-
liðinn. birgir@dv.is
Tilboðið frá Íslendingum og erlendum aðilum sem eru í samstarfi:
Skoða tilboð í Eyrarodda
Lausn í sjónmáli Flateyringar
gætu átt von á lausn á málum
þrotabús Eyrarodda eftir langa bið.