Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Blaðsíða 6
Áfram í forystu LÍÚ
þrátt fyrir rannsókn
6 | Fréttir 17. ágúst 2011 Miðvikudagur
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
í Múrbúðinni
VEGLEG VERKFÆRI
DURATOOL
Rafhlöðuborvél 18V
2.990 kr.
NOVA 18V Rafhlöðuborvél
2 hraðar
4.990 kr.
NOVA TWISTER 4,8V
Skrúfvél og skrúfbitar
1.790 kr.
Flísasög 800w,
sagar 52 cm
19.900kr.
M
enn eiga að starfa eft-
ir settum reglum, hann
[Þorsteinn Erlingsson]
fær engan afslátt á því þó
að hann sé í stjórn LÍÚ,“
segir Adolf Guðmundsson, formað-
ur Landssambands íslenskra útvegs-
manna, í samtali við DV. Hann segir
að ekki hafi verið rætt um það inn-
an stjórnar LÍÚ að víkja Þorsteini úr
stjórn á meðan meint löndunars-
vindl Saltvers er til rannsóknar hjá
Fiskistofu. Menn eigi að fá að njóta
vafans þar til niðurstaða fáist í mál.
„Við höfum ekki húsbóndavald yfir
mönnum, hann var kosinn á aðal-
fundi í stjórn félagsins.“
Þorsteinn Erlingsson, eigandi
útgerðarfyrirtækisins Saltvers, sat
í stjórn, LÍÚ, á sama tíma og meint
löndunarsvindl fyrirtækisins á að
hafa viðgengist. Fyrrverandi starfs-
maður Saltvers hefur sakað fyrirtæk-
ið um gróft löndunarsvindl. Málið
hefur verið til rannsóknar hjá Fiski-
stofu undanfarna mánuði og herma
heimildir DV að fyrirtæki Þorsteins
beri að greiða Fiskistofu meira en
200 milljónir króna í kjölfar bak-
reiknings Fiskistofu. Reynist út-
reikningar Fiskistofu réttir er ljóst að
meint kvótasvindl Saltvers er eitt það
umfangsmesta sem komið hefur ver-
ið upp um á Íslandi. Samkvæmt því
verður ekki betur séð en að hundr-
uðum tonna hafi verið landað fram
hjá vigt. DV hefur fjallað um málið
undanfarið.
Ekki á dagskrá stjórnar
Þorsteinn hefur lengi verið í for-
ystusveit LÍÚ og er einn aðalmanna
í stjórn, en heimildir DV herma að
ýmsir innan stjórnar LÍÚ séu ugg-
andi yfir málinu. Adolf Guðmunds-
son segist aftur á móti ekki kannast
við að málið hafi verið rætt sérstak-
lega innan stjórnarinnar. „Þessi um-
ræða hefur ekki borist mér til eyrna.
En ef hann reynist vera sekur, þá hef-
ur það eflaust áhrif á stjórnarsetu
hans hjá okkur,“ segir Adolf en ítrekar
að Þorsteinn muni fá að njóta vafans
þangað til lokaniðurstaða er komin í
málið.
Aðspurður hvort til greina komi
að Þorsteini verið vikið úr stjórn LÍÚ
á meðan rannsókn Fiskistofu stend-
ur yfir segir Adolf að slíkt hafi ekki
komið til tals. Hann segist ekki hafa
kynnt sér málið sérstaklega þar sem
það hafi ekki komið inn á borð LÍÚ.
Heimildir DV herma að nokkurr-
ar óánægju gæti á meðal ákveðinna
stjórnarmanna sem telji málið hið
versta fyrir LÍÚ út á við. Sérstaklega
nú þegar landssambandið reynir að
fylkja almenningi að baki sér í sjáv-
arútvegsmálum. Herma heimildir að
sumir spyrji sig að því hvort Þorsteini
sé stætt á að sitja í stjórn LÍÚ á með-
an verið sé að rannsaka hið meinta
löndunarsvindl.
Fjölskyldufyrirtæki
Auk þess að sitja í stjórn LÍU var Þor-
steinn stjórnarformaður Reykja-
neshafnar á sama tíma og meint
löndunarsvindl Saltvers á að hafa
viðgengist við höfnina. Þeir aðilar
sem DV hefur rætt við og þekkja til
málsins eru sammála um að hafi
fyrirtæki Þorsteins gerst sekt um
löndunarsvindl megi ætla að hann
hafi dregið sér fé frá ríkinu með því
að borga vísvitandi of lágt aflagjald,
á sama tíma og hann bar ábyrgð
sem stjórnarformaður Reykjanes-
hafnar. Þorsteinn er varaformaður
Fiskmarkaðs Suðurnesja og var á
meðal stjórnenda þegar Fiskmark-
aðurinn keypti fimm prósenta hlut
í SpKef af Hitaveitu Suðurnesja fyrir
um hálfan milljarð króna árið 2006.
Þorsteinn var á sama tíma varafor-
maður stjórnar SpKef.
Samkvæmt upplýsingum frá fyr-
irtækjaskrá er Auður Bjarnadóttir
stjórnarformaður í stjórn Saltvers
en Þorsteinn Erlingsson er með-
stjórnandi, þá er dóttir hans, Erla
Þorsteinsdóttir, varamaður í stjórn.
Þorsteinn er hundrað prósent eig-
andi fyrirtækisins. Þorsteinn fór
í framboð fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn árið 2010 og í kjölfarið tók
Einar Magnússon við stjórnarfor-
mennsku Reykjaneshafnar. Önnur
dóttir Þorsteins, Björk Þorsteins-
dóttir, sat í stjórn Reykjaneshafnar
og starfaði á sama tíma fyrir Saltver.
Í kjölfar athugasemda um mögu-
lega hagsmunaárekstra var Björk
skyndilega vikið úr stjórn. Einar
og Björk eru bæði starfandi bæjar-
fulltrúar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Reykjanesbæ.
Eitt fyrirtæki á þremur árum
Hjá Fiskistofu hafa fengist þær
upplýsingar að ákvörðun í málinu
liggi ekki fyrir. Þorsteinn Hilmars-
son, starfsmaður Fiskistofu, sagði
að um hefði verið að ræða stjórn-
sýsluákvarðanir sem færu sínar
leiðir og menn gætu í framhald-
inu véfengt þær og ennþá væri ekki
komin lokaniðurstaða. Hann stað-
festi hvorki né neitaði því að eig-
anda Saltvers hefði verið gert að
greiða fjársektir til stofnunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu hefur stofnunin lagt sér-
stakt gjald vegna ólögmæts sjáv-
arafla á eitt fyrirtæki í kjölfar bak-
reikningsrannsóknar, á síðustu
þremur árum. Það var í tilfelli fyrir-
tækisins Perlufiskur ehf. Var niður-
staðan sú að líta yrði svo á að óút-
skýrður mismunur hráefniskaupa
og seldra afurða á tímabilinu 1.
janúar 2008 til 14. júlí 2009 næmi
rúmum 55 tonnum af þorski og
rúmum 70 tonnum af steinbít. Að
lokum var Perlufiski gert að greiða
rúmar 23 milljónir króna vegna
ólögmæts sjávarafla.
n Formaður LÍU segir ekki á dagskrá að víkja Þorsteini Erlingssyni
úr stjórn n Málið talið eitt umfangsmesta kvótasvindl á Íslandi„Heimildir DV
herma að nokkurr-
ar óánægju gæti á með-
al ákveðinna stjórnar-
manna sem telji málið hið
versta fyrir LÍÚ út á við.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Stoppuðu
kannabisræktun
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði kannabisræktun á
þremur stöðum í Hafnarfirði um
helgina. Í tilkynningu frá lögregl-
unni segir að nokkrir karlmenn
hafi verið handteknir og yfirheyrðir
í tengslum við aðgerðirnar en lagt
var hald á bæði kannabisplöntur
og græðlinga auk ýmiss búnaðar
sem fylgir svona starfsemi. Á ein-
um staðnum var einnig lagt hald á
töluvert af peningum sem grunur
leikur á að séu fengnir úr fíkniefna-
sölu. Á sunnudag var einnig fram-
kvæmd húsleit í Hafnarfirði og þá
fundust nokkrir tugir gramma af
marijúana. Þá handtók lögreglan
þrjá fíkniefnasala í Hafnarfirði á
föstudag. Þeir handteknu eru allir
um tvítugt. Þremenningarnir við-
urkenndu allir að fíkniefnin hefðu
verið ætluð til sölu.
Bítast um
formannsstól
Tveir hafa boðið sig fram í embætti
formanns Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, SUS. Kosið verður í embætt-
ið á sambandsþingi SUS í Hveragerði
26.–28. ágúst næstkomandi. Annar er
sagnfræðingur og laganemi en hinn
er héraðsdómslögmaður. Björn Jón
Bragason, sagnfræðingur og laganemi,
hefur þegar vakið athygli vegna fram-
boðsmyndanna sem hann lét smella
af sér í tilefni framboðsins. Björn Jón
var á sínum tíma á launum hjá Björg-
ólfi Guðmundssyni við að skrifa bók
um Hafskipsmálið. Sú bók kom út
árið 2008 og heitir Hafskip í skotlínu.
Björn Jón hefur verið formaður Frjáls-
hyggjufélagsins frá árinu 2009 og lýsir
sjálfum sér sem miklum frjálshyggju-
manni sem vilji berjast gegn aðför
vinstristjórnarinnar að þeim gildum
sem frjálshuga fólki eru hvað helst
hjartfólgin og þá vill hann skapa sátt
innan ungliðahreyfingarinnar. Hér-
aðsdómslögmaðurinn Davíð Þorláks-
son lýsti yfir framboði til formennsku
í SUS í byrjun júlí. Hann hlaut hér-
aðsdómslögmannsréttindi árið 2009
og hefur setið í stjórn SUS frá árinu
2009 og þar áður árin 2003 til 2005.
Auk annarra starfa innan sjálfstæðis-
félaga í heimabæ sínum Akureyri og
Reykjavík.
Situr í stjórn LÍÚ Þorsteinn Erlings-
son, eigandi Saltvers, situr í stjórn LÍÚ
en heimildir DV herma að ýmsir innan
stjórnar LÍÚ séu uggandi yfir málinu.
Umfjöllun mánudaginn 15. ágúst.