Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Blaðsíða 13
Þjóðvegur 1 norðan við Ketilsstaði
13. mars 2010
Þórólfur Helgi Jónasson, f. 2.9.1988
n Þórólfur Helgi ók bifreið
eftir þjóðvegi 1 á suðurleið
frá Egilsstöðum. Skammt
norðan við Ketilsstaði er
aflíðandi beygja. Rann-
sóknarnefnd umferðar-
slysa telur að maðurinn
hafi ekið út fyrir malbikið
í beygjunni. Greinileg för
sáust í vegöxlinni hægra
megin við veginn. Talið er
að hann hafi reynt að stýra bifreiðinni aftur upp á
veginn en misst þá stjórn á henni. Bifreiðin snérist
á veginum og fór yfir á öfugan vegarhelming og
síðan út af veginum. Bifreiðin lenti af miklu afli í
skurði þaðan sem hún fór nokkrar veltur og endaði
loks á hvolfi ofan í skurðinum. Þórólfur notaði
bílbelti en hann lést vegna höfuðáverka sem hann
hlaut þegar bifreiðin valt í skurðinum. Hraðaút-
reikningur bendir til að bifreiðinni hafi verið ekið á
um og yfir 120 kílómetra hraða á klukkustund.
Hringbraut við Mánatorg
í Reykjanesbæ 24. apríl 2010
Lena Margrét Hinriksdóttir, f. 8.2.1992
Unnur Lilja Stefánsdóttir, f. 25.8.1991
n Ungur karlmaður ók
jeppabifreið norður Hring-
braut frá Reykjanesbæ.
Í bifreiðinni voru auk
bílstjórans þrír farþegar.
Allir farþegar bílsins höfðu
verið að skemmta sér um
nóttina og voru á heimleið
undir morgun áleiðis
að Garði og Sandgerði.
Skammt frá Mánatorgi
ók ökumaðurinn utan í
ljósastaur, sveigði síðan til
vinstri og ók út af veginum.
Stúlkurnar tvær sem voru í
aftursæti bílsins köstuðust
út úr bílnum og hlutu
alvarlega áverka. Þær
létust innan við sólarhring
eftir slysið en hvorug var í
bílbelti.
Vestfjarðavegur við Litla-Holt
19. júní 2010
Anne Marie Reinholdtsen, f. 14.12.1950
n Anne Marie ók bifhjóli
norður Vestfjarðaveg
áleiðis að Gilsfirði á sama
tíma og jeppabifreið
var ekið eftir heimreið
frá sveitabæ áleiðis yfir
Vestfjarðaveg. Ökumaður
bifreiðarinnar sá ekki
bifhjólið og ók inn á
veginn í veg fyrir það.
Anne Marie náði ekki að
hindra að árekstur yrði og lenti hjólið á hægri hlið
bifreiðarinnar, rétt við afturbrettið. Kastaðist hún
því næst af hjólinu, yfir bifreiðina og endaði utan
vegar um það bil 9 metra frá árekstrarstað. Anne
Marie lést af áverkum sem hún hlaut í slysinu.
Hringbraut við Birkimel 21. maí 2009
Árni Ragnar Árnason, f. 7.9.1972
n Maður ók fólksbifreið
vestur Hringbraut en hann
hugðist aka suður Birkimel
og var því á beygjuakrein. Á
sama tíma ók Árni Ragnar
Árnason bifhjóli austur
Hringbraut. Svo virðist
sem ökumaður fólks-
bifreiðarinnar hafi ekki séð
mótorhjólið en hann ók í
veg fyrir það. Árni Ragnar
reyndi að hemla en féll af hjólinu og hafnaði við
hlið fólksbifreiðarinnar. Hann lést vegna áverka
sem hann hlaut í slysinu. Áreksturinn var það
harður að hjálmurinn sem Árni Ragnar var með
kom ekki í veg fyrir alvarlega höfuðáverka.
Laugarvatnsvegur við
Þóroddsstaði
6. ágúst 2007
Eiríkur Óli Gylfason, f. 6.1.1981
n Eiríkur Óli ók austur
Biskupstungnabraut á
venjulegum hraða. Við
Minni-Borg mættu lög-
reglumenn ökumanninum
og gáfu honum merki um
að stöðva bifreiðina til
að athuga ástand hans.
Eiríkur Óli virti það að
vettugi og jók þess í stað
hraðann. Lögreglan missti sjónar á bílnum en sá
innan skamms rykmökk í fjarska þegar komið var
inn á Laugarvatnsveg. Þar hafði bíllinn endað
utan vegar. Á veginum voru 70 metra löng skriðför
þar sem bifreiðin fór út af.
Vestfjarðavegur við Klukkufell
17. september 2007
Mariusz Polinski, f. 1987
n Mariusz keyrði bíl sínum
eftir Vestfjarðavegi seinni-
part dags í björtu veðri. Ók
hann bílnum nokkuð hratt
en vegyfirborðið var blautt
og gekk á með rigningum.
Rétt áður en Mariusz
kom að afleggjaranum
að bænum Klukkufelli
varð hann var við bifreið
úr gagnstæðri átt. Vegna
takmarkaðrar vegsýnar voru ekki nema nokkrir
tugir metra á milli bílanna þegar ökumennirnir
urðu hvor annars varir. Svo virðist sem Mariusz
hafi brugðið við að sjá bifreið koma úr gagnstæðri
átt og fór hann að rása til á veginum og endaði á
á öfugum vegarhelmingi. Hann náði að forðast
árekstur en bifreiðin fór út af veginum öfugum
megin rétt eftir að bifreiðarnar tvær mættust.
Krýsuvíkurvegur við
Bláfjallaaflegjara
15. október 2007
Magnús Jónsson, f. 21.4.1975
n Magnús ók bifhjóli
suðaustur Krýsuvíkurveg á
miklum hraða en skammt
frá Bláfjallaafleggjara
ók hann fram úr tveimur
flutningabifreiðum. Veg-
sýn var takmörkuð og fór
Magnús yfir heila línu yfir
á rangan vegarhelming.
Við framúraksturinn missti
hann stjórn á hjólinu, náði
ekki beygju og hafnaði utan vegar. Á veginum voru
130 metra skriðför eftir bifhjólið en það endaði
30 metrum fyrir utan veginn. Hraðaútreikningar
rannsóknarnefndar umferðarslysa benda til
þess að Magnús hafi verið á að minnsta kosti 140
kílómetra hraða á klukkustund.
Sæbraut við Kringlumýrarbraut
1. mars 2006
Guðrún Jónsdóttir, f. 4.3.1987
n Guðrún ók mjög hratt
austur Sæbraut er hún
missti stjórn á bifreið sinni
og ók út af veginum. Hún
kastaðist út úr bílnum
við slysið. Samkvæmt
lögregluskýrslu var hún í
kappakstri við annan bíl.
Kappaksturinn hófst á
Sæbraut við Höfðatún.
Engin hemlaför voru
sjáanleg en skriðför voru á veginum eftir bifreiðina
frá því að Guðrún missti stjórn á henni og þar
til hún hafði farið yfir umferðareyju á mótum
Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar.
Elliðavatnsvegur við
Kaldárselsveg
6. júní 2006
Hallgrímur Páll Guðmundsson, f. 12.11.1971
n Hallgrímur Páll ók fólks-
bifreið suðvestur Elliða-
vatnsveg í átt að vega-
mótum við Kaldárselsveg.
Hallgrímur missti stjórn á
bifreiðinni í s-beygju. Við
það fór bifreiðin út af veg-
inum og utan í stóran stein
við hliðarveg. Bifreiðin
kastaðist yfir girðingu og
endaði á hliðinni á túni.
Hallgrímur lést þrátt fyrir að hafa notað bílbelti
en farþegi bifreiðarinnar komst lífs af. Sérfræð-
ingur sem reiknaði út hraða í slysinu taldi hraða
bifreiðarinnar við upphaf beygjunnar hafi verið
116 kílómetrar á klukkustund en hámarkshraði á
Elliðavatnsvegi er 50 kílómetrar á klukkustund.
Hof í Öræfasveit
2. júlí 2006
Heiðar Þórarinn Jóhannsson, f.15.5.1954
n Heiðar Þórarinn ók
mótorhjóli fram úr
bifreið sem var ekið á um
90 kílómetra hraða á
klukkustund. Heiðar missti
stjórn á hjólinu með þeim
afleiðingum að hann fór
að rása á veginum. Hraði
hjólsins varð til þess að
hann náði ekki stjórn á
hjólinu og ók út af veg-
inum. Talið er að hliðarvindur hafi einnig haft áhrif
á slysið. Heiðar var vel búinn, með öryggishjálm
og í viðurkenndum öryggisgalla, en það reyndist
ekki nóg.
Suðurlandsvegur við
Eystri-Rangá
23. júlí 2006
Birkir Hafberg Jónsson, f. 9.4.1980
n Birkir ók á þungu mótor-
hjóli austur Suðurlandsveg
í björtu og þurru veðri.
Nokkur hundruð metrum
áður en hann kom að brúnni
við Eystri-Rangá ók hann á
afturhjólabarðanum einum
um stund. Á sama tíma var
bifreið ekið í gagnstæða
stefnu yfir brúna. Rétt áður
en bifhjólið og bifreiðin
mættust lenti framhjól mótorhjólsins aftur á
veginum og stefndi þá hjólið framan á bifreiðina.
Birkir missti stjórn á hjólinu og rásaði mikið á
veginum. Hann féll af hjólinu og rann ásamt hjólinu
á hitaveiturör fyrir utan veginn. Hjólið kastaðist
aðra 44 metra frá rörinu og lenti í ánni. Hjálmurinn
losnaði af höfði hans þegar hann rakst á rörið og
fannst brotinn hinum megin brúarinnar. Birkir lést
samstundis af völdum áverka sinna. Að mati sér-
fræðings var hraði mótorhjólsins líklegasti um 168
kílómetrar á klukkustund.
Garðskagavegur 16. ágúst 2006
Jóhann Fannar Ingibjörnsson, f. 17.6.1972
Guðmundur Adam Ómarsson, f. 11.10.1984
n Ökumaður fólksbifreiðar
ók suður Garðskagaveg
í átt að Sandgerði á
allt of miklum hraða.
Vegna ógætilegs aksturs
rásaði bifreið hans út á
malarvegöxl. Ökumað-
urinn brást við með því
að rykkja bifreiðinni aftur
inn á veginn en við það
endaði hann á röngum
vegarhelmingi. Endaði það
með að ökumaðurinn ók
framan á sendibifreið sem
ekið var úr gagnstæðri átt.
Samkvæmt hraðaút-
reikningum var ökumaður
fólksbifreiðarinnar á
128 kílómetra hraða á
klukkustund. Ökumaður
sendibifreiðarinnar og farþegi sem var í bílnum
létust vegna áverka sem þeir hlutu.
Borgarfjarðarvegur Eystri við
Fossgerði 28. ágúst 2006
Unnur Bettý Guðmundsdóttir, f. 5.9.1987
n Ökumenn tveggja fólks-
bifreiða fóru í kappakstur í
norðurátt frá Egilsstöðum
að Eiðum. Báðir óku þeir
mjög greitt og skiptust
á að taka fram úr hvor
öðrum. Fólksbifreið og
gámaflutningabifreið komu
úr gagnstæðri átt á sama
augnabliki og bílunum var
ekið samsíða. Annar öku-
maðurinn náði að sveigja yfir á réttan vegarhelm-
ing fram fyrir hinn kappakstursökumanninn sem þá
tók beygju í veg fyrir gámabifreiðina. Unnur Bettý
Guðmundsdóttir, sem ók í veg fyrir flutningabílinn,
hlaut alvarlega áverka og lést samstundis.
Fréttir | 13Miðvikudagur 17. ágúst 2011
Fórnarlömb hraðans Hraðakstur hefur undanfarin ár verið meðal þriggja helstu ástæðna fyrir banaslysum í umferðinni. Hinar algengustu ástæðurnar eru ölvunarakstur og að bílbelti voru ekki notuð. Til hraðaksturs telst allur akstur yfir löglegum hámarkshraða. Ofsaakstur er síðan þegar ökumenn keyra meira en helmingi hraðar en leyfður hámarkshraði er. DV hefur tekið saman öll banaslys í umferðinni sem talin eru bein afleiðing hraðaksturs frá árinu 2006.Létust vegna hraðaksturs
H
ún var yndisleg stelpa
og yndislegur vinur.
Þú finnur ekki mann-
eskju með stærra
hjarta en það sem Guðrún
hafði,“ segir Jónína Bríet
Jónsdóttir um systur sína,
Guðrúnu Jónsdóttur, sem
lést aðeins átján ára gömul
í bílslysi eftir að hafa verið
í kappakstri á Sæbrautinni
árið 2006.
Guðrún var ekki í bílbelti
þegar hún og ökumaður
annars bíls hófu kappakstur
á Sæbraut við Höfðatún.
Guðrún ók mjög hratt
austur Sæbraut á hægri ak-
rein en missti stjórn á bifreið
sinni með þeim afleiðingum
að hún braut niður tvo ljósa-
staura og hafnaði á þeim
þriðja. Þar sem hún var ekki
í bílbelti kastaðist hún út úr
bílnum, en talið er að hún
hefði mögulega getað lifað
slysið af hefði hún verið í
belti. Aðkoman að slysinu
var ljót og fengu vitni sem
komu að slysstað áfallahjálp.
Aðeins eitt líf
Jónína Bríet segir slysið hafa
haft mikil áhrif á fjölskyld-
una, sem enn syrgir Guð-
rúnu sárt. Þegar fimm ár
voru liðin frá andláti Guð-
rúnar skrifaði Jónína Bríet
grein í Morgunblaðið þar
sem segir meðal annars:
„Við eigum bara eitt líf og
stundum hugsum við að það
geti ekkert drepið okkur og
það muni ekkert henda mig.
Það er bara ekki rétt, en ég
hugsaði samt svona. Stóra
systir mín gerði það líka en
þegar hún dó var hún aðeins
18 ára gömul. Hún hugsaði
eins og flestir gera, svona
nokkuð kemur ekki fyrir
mig. Þú getur alveg sloppið,
þú lendir í umferðarslysi og
ekkert kemur fyrir þig en
hvað um hina, kannski kom-
ast þeir ekki svona vel út úr
slysunum. Lífið er stutt, ekki
koma þér eða öðrum í hættu
að óþörfu. Það eina sem þú
þarft að gera er að hægja á
þér, fylgjast vel með öllu í
kringum þig og vera alltaf
með bílbelti, það bjargar.“
Yndisleg stelpa
„Við systir mín vorum mjög
nánar, ég hugsa um hana á
hverjum degi og sakna henn-
ar mjög mikið,“ segir Jónína.
„Við vorum nánast alltaf
límdar saman og ég myndi
vita ef hún hefði áður stund-
að kappakstur. Ég er alveg viss
um að hún stundaði það ekki
að jafnaði. Fyrst eftir slysið
áttum við erfitt með að trúa
að það hefði orðið af völdum
hraðaksturs og að hún hefði
verið í kappakstri. Það var
ekki henni líkt, en hún hafði
áhuga á fallegum bílum og
vissi sennilega aðeins meira
um bíla en flestar 18 ára
stelpur. Í dag finnst mér erfitt
að heyra af slysum og sér-
staklega þeim sem verða af
völdum hraðaksturs. Þau eiga
ekki að þurfa að gerast.“
Gott að muna og rifja
upp
Jónína Bríet segir að dauði
systur sinnar hafi mikil áhrif
á hvernig hún keyri og hegði
sér í umferðinni. „Þetta hefur
haft áhrif á alla í kringum
okkur. Við Guðrún erum
aldar upp í Garðabænum
og Garðabær er mjög náið
samfélag. Ég sá og fann fyrir
því að krakkarnir sem voru
komnir með bílpróf í kringum
okkur hættu að vera í bíla-
leikjum á planinu og keyra
glannalega. En svo fer fólk að
gleyma og þá byrjar þetta aft-
ur. En það er gott að muna og
rifja upp. Og ekki gleyma að
festa bílbeltin, fylgjast betur
með í kringum okkur, hætta
að aka eins og það sé enginn
annar í umferðinni en þú.“
„Ég sakna
hennar mikið“
n Lést 18 ára eftir kappakstur n Systir
hennar brýnir fyrir fólki að aka varlega
Syrgir ástvin Jónína Bríet
Jónsdóttir, systir Guðrúnar, segir
lát systur sinnar hafa haft mikil
áhrif á sig og fjölskyldu sína.