Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Page 15
Neytendur | 15Miðvikudagur 17. ágúst 2011
Þær vinsælustu
á um 15 þúsund
n Í Griffli er verð á skólatöskum á bilinu 199 til 18.000 krónur
n Ódýrustu töskurnar líka með stuðningi en ekki eins sterkar
J
eva-taskan er landsþekkt og
sú taska sem hefur verið vin-
sælust hérna á Íslandi í yfir 20
ár. Jeva eru hágæðatöskur frá
Danmörku sem eru hannað-
ar til að styðja við mjóbakið,“ segir
Haukur Olavsson, verslunarstjóri í
Griffli, þegar hann er spurður hvaða
skólatöskur séu vinsælastar. Í Griffli
er hægt að fá töskur sem kosta minna
en þúsund krónur en dýrustu tösk-
urnar eru margfalt dýrari; kosta á
bilinu 15 til 18 þúsund krónur.
Jeva og Beckman fyrir þau
yngstu
Haukur segir að einkenni góðrar
skólatösku séu að hún styðji vel við
bakið, sé sterkbyggð og búin breið-
um axlarólum. Þá sé mikilvægt að
hafa mittisól til þess að taskan sitji
föst á réttum stað á baki barnsins.
Hann segir Jeva-töskurnar vinsæl-
astar hjá börnum í fyrstu bekkjum
grunnskóla. Þeim fylgir nestisbox,
leikfimitaska og nestisbrúsi.
Haukur segir að töskur frá Beck-
man séu líka mjög vinsælar. Þær séu
álíka vandaðar og Jeva. „Þetta snýst
líka um það hversu lengi töskurnar
endast; frágangur og styrkleiki ræð-
ur þar mestu,“ segir Haukur. Hann
segir að verð á Jeva-töskunum og
Beckman séu þau sömu og í fyrra.
„Ég ákvað að hafa þetta allt á 14.888
krónur,“ segir hann.
Haukur segir að eitt einkenni
góðrar skólatösku sé að auðvelt sé að
stilla þær. Barnið geti sjálft togað í og
strekkt á böndunum þegar taskan er
komin á bakið. Þannig setjist taskan
á réttan stað á bakið.
Breið bönd og stuðningur við
bakið
Eins og sjá má á myndunum er úr-
valið mikið af skólatöskum. Verðið
er, eins og áður segir, mjög misjafnt.
Haukur segir að hjá eldri börnum,
þeim sem eru í 6. bekk og upp úr,
séu töskur frá Eastpack vinsælast-
ar. Í þeim sé til dæmis gert ráð fyrir
fartölvu og þær séu stærri en Jeva og
Beckman. Böndin yfir axlirnar séu
breið en það gildi raunar um lang-
flestar töskur sem framleiddar eru í
dag, líka þær ódýrustu. Flestar tösk-
ur séu einnig með mittisól en mis-
munandi sé hversu stuðningurinn
við bakið sé mikill. Eastpack-tösk-
urnar kosta á bilinu 10 til 18 þúsund
krónur.
Ágætar, ódýrar töskur
Auðvelt er að finna töskur sem kosta
minna en 10 þúsund krónur. Í Griffli,
eins og víðar, er hægt að velja um
fjölmargar töskur sem kosta fjögur
til sex þúsund krónur og þá er tölu-
vert úrval af töskum sem kosta 2 þús-
und eða jafnvel minna en 1 þúsund
krónur. Þannig var, þegar DV leit við,
hægt að fá nokkur eintök af Hanna
Montana töskum á 199 krónur. Ódýr-
ustu töskurnar eru eðlilega ekki eins
sterkar og hinar dýrustu en eiga það
þó flestar sammerkt að hafa svolít-
inn stuðning við bakið og breið bönd
yfir axlirnar. Sumar hafa þó einnig
mittisólar. Mikil fjárútlát eru því ekki
nauðsynleg þegar kemur að kaupum
á skólatöskum. baldur@dv.is
Úr nægu að velja Mikilvægt er að velja tösku sem passar barninu. Hún þarf ekki að vera
dýr.
Hanna
Montana
Þessi gæti verið
fyrir ungar stúlkur
og kostar aðeins
199 kr.
Monster Jam
Þessi taska gæti
passað fyrir unga
drengi og kostar
1.990 kr.
Southwest
Bound
Mikið úrval er af
töskum sem kosta
um 4.000 kr. Þessi
er vinsæl að sögn
Hauks.
Beckman
Töskur frá þessum
framleiðanda eru
afar vandaðar en
þær kosta 14.888
kr.
Eastpak
Töskur fyrir unglinga með hólfi fyrir
fartölfu. Verð frá 10.000 til 18.000 kr.
Jeva
Þessar dönsku
töskur eru þær
vinsælustu og
bestu, að sögn
Hauks. Kosta
14.888 kr. en þeim
fylgir leikfimitaska
og nestisbox.