Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2011, Qupperneq 22
22 | Viðtal 17. ágúst 2011 Miðvikudagur M ér fannst ég bara vera frjáls þegar ég var komin út á sjó. Sjórinn er minn uppáhaldsstaður og mér líður hvergi betur,“ seg- ir Matthildur Hafsteinsdótt- ir, kokkur á frystitogaranum Frera. Hún er 62 ára, þriggja barna móðir og amma ell- efu barna. Hún var komin yfir sextugt þegar hún réð sig til starfa á frystitogara og veigr- ar sér ekki við því að vera á sjó í allt upp undir 40 daga í senn, enda segir hún að sér líði hvergi betur en á sjónum. Sjómennskuna segir hún vera sér í blóð borna. Hún hafi allt- af haft sterkar taugar til hafs- ins þrátt fyrir að hún hafi horft á eftir föður sínum í hafið, en hann drukknaði þegar hún var aðeins 12 ára gömul. „Pabbi minn var alltaf á sjó og mað- urinn minn vann lengi vel á sjó. Ég fékk oft að fara með pabba á sjóinn og fannst það alltaf jafn gaman. Ég fann það fljótt þegar ég fékk að fara með pabba hvað ég hafði mik- inn áhuga. Ég var aldrei sjó- veik eða neitt slíkt heldur leið bara vel á sjónum,“ segir Matt- hildur og horfir út á sjóinn út um gluggann á Kaffivagnin- um við höfnina. Hún valdi að hitta blaðamann á þeim stað því henni líður einkar vel við sjóinn. Í viðtalið fylgdi henni sambýlismaður hennar, Hauk- ur Harðarson, sem hlustar af athygli á frásögn Matthildar. Réð sig á frystitogara komin yfir sextugt En aftur að sjónum. Áður en hún réð sig á frystitogara hafði hún lítið unnið á sjónum fyrir utan eitt sumar á ísfrystitog- ara fyrir um 20 árum. „Ég var á Gylli frá Flateyri í kringum 1990. Þá var maðurinn minn sálugi líka um borð. Mér líkaði það rosalega vel, fór oft með þeim í siglingar. Ég var ein- hvern veginn bara svo tengd sjónum.“ Eftir það vann hún ýmis störf, yfirleitt sem matselja hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í landi, en sjórinn togaði allt- af í hana og hana langaði aft- ur á sjóinn. Hún var því him- inlifandi þegar henni bauðst starf kokks á frystitogara fyrr á þessu ári. Henni fannst það lítið mál að skella sér á sjó- inn þrátt fyrir að vera orðin 62 ára gömul. „Ég hef alltaf haft áhuga á sjó og greip þetta bara fegins hendi þegar það bauðst. Ég var búin að stinga því að kokknum á Frera að ef það vantaði kokk þá væri ég til. Það var nýbúið að loka mötu- neytinu sem ég vann í og ég var svona milli vinna.“ Hún hitti fyrir tilviljun kokkinn á Frera á Kanaríeyj- um. Hún kannaðist lítillega við hann og stakk því að hon- um að hóa í sig ef það vantaði kokk. „Ég spurði hann að því hvort hann myndi vilja hafa mig í huga ef það vantaði að- stoðarkokk.“ Henni bauðst fljótlega að leysa af eftir það og hefur farið í einn túr nú þegar og hlakkar til að fá boð um að fara í þann næsta. Núverandi sambýlismaður hennar, Haukur S. Harðarson, vinnur einnig á Frera og kynnti hana fyrir kokknum. Dó í fanginu á henni Nokkrum árum fyrr hefði hana þó ekki órað fyrir því að hún færi að vinna á sjó þó að vissu- lega hafi hana alltaf langað. Þá var hún gift sjómanni. Þau bjuggu flest sín hjúskaparár á Flateyri þar sem hann var til sjós. Árið 1992 fluttu þau í bæinn því hún var einmana eftir að börnin voru flogin úr hreiðrinu og var orðin leið á snjónum. „Ég var orðin svolít- ið einangruð. Börnin voru flutt og ég var mikið ein og langaði að breyta til. Ég var líka kom- in með leið á snjónum,“ seg- ir hún en bætir hlæjandi við: „Það hefur samt varla snjóað þarna síðan við fluttum.“ Hún á þó enn sumarbústað fyrir vestan og reynir að fara þang- að reglulega. Maðurinn hennar vann lengst af á sjó og var mjög hraustur að hennar sögn. Hann lést hins vegar skyndi- lega fyrir sjö árum síðan. „Við kynntumst þegar við vorum 15 og 17 ára og fengum 35 ynd- isleg ár saman. Hann dó svo í fanginu á mér á Læknavakt- inni í Kópavogi á föstudaginn langa árið 2004.“ Maðurinn hennar hafði ekki sýnt nein merki þess að vera veikur en hafði þó verið slappur þennan dag. „Hann var eitthvað svo slappur en vildi ekki hringja á sjúkra- bíl því að við vorum með tvö barnabörn hjá okkur. Við ætl- uðum bara að byrja þar en hann komst ekki einu sinni inn til læknisins. Hann dó eig- inlega í fanginu á mér á bið- stofunni. Fékk hjartastopp,“ segir hún alvarleg í bragði. „Þetta var alveg rosalega erf- itt.“ Hafði farið í skoðun mánuði áður Matthildur segir það hafa verið afar sára lífsreynslu að missa eiginmann sinn svo skyndilega. Þau höfðu verið saman frá því þau voru ung- lingar og hlökkuðu til efri ár- anna saman. Hún er ekki sátt við samtökin Hjartavernd þar sem hann hafði farið í skoð- un þar, aðeins mánuði áður en hann dó. „Þar gáfu þeir honum bara græna passann út í lífið, sögðu að hann væri hraustur og ekkert að honum. Þeir sendu hann ekki í alls- herjar tékk heldur tóku bara af honum hjartalínurit og ein- hverjar sjö blóðprufur sem voru sendar til framhalds- rannsóknar í Ameríku. Hann var ekki sendur í áreynslu- próf eða neitt slíkt. Þeir sögðu bara við hann að hann ætti að losa sig við 20 kíló eða eitthvað þannig. Hann dó svo mánuði seinna úr hjartastoppi. Fékk kransæðastíflu. Það er eitt- hvað sem hefði sést um leið ef hann hefði farið í áreynslu- próf. Ef hann hefði verið sendur í framhaldsrannsókn frá Hjartavernd hefði hann kannski verið þræddur eða allavega hefði eitthvað verið gert.“ Það er greinilegt að hún er sár yfir vinnubrögðunum. „Hann var bara 55 ára þegar hann dó. Það er rosalega erf- itt þegar hraustir menn fara svona. Hann átti eftir að gera svo margt. Það má eiginlega segja að þetta sé það eina sem ég er ekki sátt við í dag, það er Hjartavernd. Við deyjum öll og það gerist á mismunandi tíma en ég hef aldrei sæst við þetta.“ Spítalinn brást henni En þetta var því miður ekki eina áfallið sem Matthild- ur varð fyrir þennan daginn. Buguð af sorg vegna skyndi- legs fráfalls eiginmanns síns var hún keyrð upp á spítala þar sem hún átti að fá áfallahjálp. „Spítalinn brást mér. Það var farið með mig upp á Borgar- spítala þar sem ég átti að fá áfallahjálp. Mér var fylgt inn í aðstandendaherbergi og þar sat ég alein og enginn kom. Ég beið og beið en enginn kom til mín.“ Matthildur beið dágóða stund í öngum sínum, nýbúin að verða fyrir mesta áfalli lífs síns og var alein. „Mér var ekki farið að standa á sama, það kom ekki einu sinni prestur til mín og ég ákvað þess vegna að fara fram og leita að einhverj- um. Ég labbaði út úr aðstand- endaherberginu og opnaði næstu dyr. Þá voru það dyrnar að kapellunni og þar lá mað- urinn minn. Þar lá hann dá- inn,“ segir hún og augljóst er að upprifjunin reynist henni erfið. „Þá var mér nóg boð- ið, lokaði dyrunum og fór inn og hringdi alein í börnin mín og sagði þeim að pabbi þeirra væri dáinn.“ Tær skelfing Hún segir þetta hafa tekið á. „Þetta var öll áfallahjálp- in sem ég fékk. Það var eng- inn hjá mér, enginn sem hélt í höndina á mér. Ekki neitt. Ég hringdi í börnin mín og sagði þeim að pabbi þeirra væri dá- inn.“ Hún segir það hafa verið erfitt en einhver óútskýran- legur styrkur hafi rekið hana áfram. „Þetta var tær skelfing. Ég bara varð að gera þetta og gerði þetta. Maður fer í ein- hvern gír þegar maður þarf að gera hlutina. Sérstaklega und- ir svona kringumstæðum.“ Yngri dóttir hennar var ólétt að sínum seinni tvíbur- um og hafði sagt pabba sín- um frá því daginn áður. Hún óttaðist viðbrögð hennar við fréttunum. „Yngsta dóttir mín var komin svo stutt á leið og ég var svo hrædd um hana að ég sagði henni þetta ekki strax. Ég lét manninn hennar fara og segja henni þetta.“ Enginn á að þurfa að upp- lifa svona hrylling Hún segir prestinn svo hafa birst að lokum. „Þetta var um páska og sjálfsagt undirmann- að á spítalanum vegna þess. Presturinn kom svo á endan- um. Þá hafði hún farið í messu hjá manninum sínum sem er líka prestur, klukkan átta á föstudaginn langa.“ Hún er sár yfir aðgerðaleysinu. „Hún var á vakt og átti auðvitað að vera á staðnum. Það var enginn annar þarna sem gat hjálpað mér.“ Matthildur ákvað að kæra þetta til að koma í veg fyrir að svona nokkuð myndi gerast aftur. „Það var geðhjúkrunar- fræðingur sem kærði þetta fyrir mig. Ég gat ekki hugsað mér að nokkur maður þyrfti að ganga í gegnum þetta sama. Svona hrylling á fólk ekki að þurfa að upplifa ofan á það að missa maka sinn.“ Kynntist ástinni á ný Matthildur lét þó ekki deig- an síga og hélt lífi sínu áfram. Hún segir fyrstu árin eftir and- lát eiginmannsins hafa verið mjög erfið. Bæði tilfinninga- lega og svo líka fjárhagslega, enda búin að missa fyrirvinnu heimilisins. Hún gafst þó ekki upp enda á hún börn og barnabörn sem hún lifir fyrir. „Þau eru öll yndisleg og ótrú- lega vel heppnuð,“ segir hún og hlær einlægt. Ástin bankaði líka upp á hjá henni á ný. Fyrir um ári kynntist hún núverandi sam- býlismanni sínum, Hauki S. Harðarsyni. „Við höfðum vit- að af hvort öðru gegnum árin,“ segir Matthildur og horfir ást- úðlega á Hauk sem situr hin- um megin við borðið. „Við hittumst fyrst árið 2005 en síðan var það ekki fyrr en fyr- ir um það bil ári að við enduð- um saman.“ Þau hittust á balli. „Það var á Kringlukránni,“ segir hún hlæjandi. „Gott ef það var ekki bara Geirmund- ur að spila. Ég ætlaði nú ekk- ert að nenna en dreif mig. Ég er ánægð með það í dag,“ segir hún og skellir upp úr og Hauk- ur brosir til hennar. Jafnrétti um borð Haukur starfar líka á Frera og þau eru ánægð að geta unnið saman. „Þannig á það að vera. Vinna saman og búa saman, það er alveg frábært. Í stað- inn fyrir að hanga ein heima í mánuð og bíða eftir að hann komi heim. Svona á þetta að vera.“ Þeim líkar báðum vel um borð og segja móralinn vera góðan. „Mér finnst svo gott að vinna með karlmönnum, mér finnst það eiginlega betra. Þeir eru svo þakklátir,“ segir Matt- hildur og tekur fram að all- ir séu jafnir á sjónum. „Kven- menn eru ekki á lægri launum. Allir eru jafnir úti á sjó og fá jöfn laun. Konur vinna sömu vinnu og fá þess vegna sömu laun. Alveg eins og það á að vera en það er líklega ekki hægt að segja að það sé svona jafnrétti á mörgum stöðum. Á sjónum er enginn launamun- ur milli kynjanna.“ Fiskast „assgoti“ vel á kvenmennina Hún segir skipverjana vera ánægða með að fá hana um borð og Haukur staðfestir það. „Þeir voru að tala um að þeir væru svo glaðir að hafa kon- ur um borð því það fiskaðist svo „assgoti“ vel á þær,“ segir Matthildur hlæjandi og bætir brosandi við: „Ég er víst eng- in undantekning þar á því að þetta var stærsti túrinn á árinu. Ég sagði líka á móti að það væri eðlilegt því að alltaf þegar pabbi minn fór á sjó og hann dreymdi mig þá fiskaði hann,“ segir hún brosandi. Matthildur segist tengjast sjónum órjúfanlegum bönd- um og munu líklega gera um ókomna tíð. „Mér líður best ef ég sé sjóinn. Í dag bý ég þannig að ég horfi út á sjóinn og finnst það alveg yndislegt.“ viktoria@dv.is Matthildur Hafsteinsdóttir var að- eins 12 ára þegar sjórinn tók föður hennar frá henni. Þrátt fyrir það hefur hún alltaf elskað hafið bláa og líður hvergi betur en einmitt úti á sjó. Hún giftist sjómanni, eignaðist með honum börn og varð sjó- mannskona. Sjómaðurinn hennar dó seinna í örmum hennar langt fyrir aldur fram og spítalinn brást henni, syrgjandi ekkjunni. Hún gafst ekki upp heldur stóð á sínu og fann ástina á ný og réð sig svo til starfa á frystitogara. Hún sagði Viktoríu Hermannsdóttur sögu sína yfir kaffi- bolla í Kaffvagninum við Höfnina. „Hann dó svo í fanginu á mér á Læknavaktinni í Kópavogi á föstudag- inn langa árið 2004. „Mér finnst svo gott að vinna með karlmönnum, mér finnst það eigin- lega betra. Þeir eru svo þakklátir. Amma á frystitogara Tengd sjónum Matthildur segir að hún hafi alltaf borið sterkar tilfinningar til hafsins og sér líði hvergi betur. Jafnvel þótt hún hafi misst föður sinn í djúpið bláa. MynD GunnaR GunnaRSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.