Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Page 4
4 | Fréttir 3. október 2011 Mánudagur
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
Heimilisiðnaðarskólinn
Prjón, hekl, þjóðbúningasaumur, baldýring, útsaumur, orkering, knipl,
jurtalitun, tóvinna, fatasaumur, vefnaður, leðursaumur o.m.fl.
Verslun
Mikið úrval af íslensku prjónabandi og lopa, prjónum,
prjónabókum og blöðum.
Efni og tillegg fyrir þjóðbúningasaum og jurtalitun.
Gjafakort.
Opið alla virka daga kl. 12–18
Verið velkomin.
Nethyl 2e
110 Reykjavík
Símar 551 7800/551 5500
hfi@heimilisiðnaður.is
skoli@heimilisidnadur.is
www.heimilisidnadur.is
Friðrik Þór Guðmundsson, blaðamað-
ur og nýkjörinn formaður Borgara-
hreyfingarinnar, segir að nýja stjórnin
sé reiðubúin að grafa allar stríðsaxir.
Hörð átök hafa verið innan flokksins
undanfarna mánuði en Friðrik seg-
ir að átökin hafi þétt hópinn og fært
nýjum leiðtogum hans skýrari fram-
tíðasýn. Draumurinn sé að hverfa aft-
ur til þess starfs sem hreyfingin stóð í
þegar hún var stofnuð en Friðrik segist
vilja samstarf með öllum þremur þing-
mönnum Hreyfingarinnar, sem kosnir
voru á þing fyrir Borgarahreyfinguna í
síðustu þingkosningum.
„Mér líst vel á þetta en þetta var ekki
það sem ég átti von á,“ segir Friðrik um
hvernig honum lítist á framtíðina sem
formaður. „Þetta er áskorun og ég tek
henni.“ Í Borgarahreyfingunni er for-
maður ekki kjörinn sérstaklega held-
ur verður sá aðili sem fær flest atkvæði
til stjórnarsetu sjálfkrafa formaður.
„Framtíðin horfir þannig frá sjónar-
horni nýs formanns að hér eftir verði
málefnin látin ráða för og leitast við að
settla allar persónulegar væringar. Við
ætlum að leita á ný mið samstarfs og
sátta við öll þau öfl sem eiga samleið
með Borgarahreyfingunni,“ segir hann
aðspurður um hvernig framtíð flokks-
ins blasi við honum.
„Ég myndi nú kannski ekki orða
það þannig að við endurheimtum eitt
eða neitt. Að minnsta kosti til að byrja
með viljum við að það náist sáttir og
samstarf. Það er enginn að tala um
sameiningu á þessum tímapunkti,“
segir hann. En vill Friðrik fá gömlu
þingmennina aftur til liðs við flokkinn?
„Já, mig langar það – og fleirum,“ segir
hann og bætir við: „En það er löngunin
en með áherslu á að það geti bara gerst
ef allir eru viljugir til þess og viljugir til
að grafa allar stríðsaxir.“
adalsteinn@dv.is
Borgarahreyfingin vill vinna með Hreyfingunni:
Vill grafa stíðsaxir
S
teinn Logi Björnsson, for-
stjóri Skipta móðurfélags
Skjás Eins, segir að miklar
hagræðingaraðgerðir hjá fé-
laginu muni ekki hafa áhrif
á framtíð Skjás Eins. Skipti tilkynntu
í síðustu viku um að 55 manns hefði
verið sagt upp hjá félaginu og dótt-
urfélögum þess. Botnlaust tap hefur
verið á rekstri Skjás Eins undanfarin
ár. Sjónvarpsstöðin er alfarið í eigu
Skjámiðla ehf. sem er dótturfélag
Skipta.
Steinn Logi vill ekki upplýsa
um rekstrarafkomu ársins 2010, en
hvorki hefur verið skilað ársreikn-
ingi fyrir Skjá Einn né Skipti til árs-
reikningaskrár. Spurður um hversu
mikið tap hafi verið á rekstri Skjás
Eins á síðasta ári segir Steinn Logi:
„Það liggur fyrir. Ég hélt reyndar að
við værum búnir að skila ársreikn-
ingnum inn til fyrirtækjaskrár og ég
ætla ekki að tjá um það frekar. Það er
í reikningnum og verður opinbert.“
Gríðarlegt tap
Tap Skjás Eins hefur verið gríðarlega
mikið undanfarin ár. Árið 2006 tap-
aði Skjárinn 153 milljónum króna.
Árið 2007 tapaði félagið 339 milljón-
um og árið 2008 nam tapið 575 millj-
ónum króna. Samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins fyrir 2009 tapaði félagið
375 milljónum króna. Tap Skjás Eins
á fjórum árum nemur því 1,4 millj-
örðum króna. Það gerir tap upp á
milljón á dag, hvern einasta dag árs-
ins, fjögur ár í röð.
Þrátt fyrir mikið tap og samdrátt
hjá móðurfélaginu segir Steinn Logi
að Skjár Einn muni lifa af. „Þetta út
af fyrir sig hefur engin áhrif á rekst-
ur Skjás Eins. Við höfum verið með
miklar hagræðingaraðgerðir þar
líka.“
Í ljósi þess að Skipti eru að draga
saman seglin má búast við að fram-
lög móðurfélagsins til Skjás Eins
muni í kjölfarið snarminnka. Steinn
Logi segir svo ekki vera. „Nei, mark-
mið okkar er ekki að tapa á Skjá Ein-
um. Það er ekki þannig að við ætlum
bara að halda áfram að tapa á Skjá
Einum og að það sé bara lögmál, alls
ekki. Við höfum farið bæði í miklar
hagræðingaraðgerðir og svo höfum
við verið að breyta rekstrinum tölu-
vert og það var tekið mjög stórt skref
2010, sem var að fara með þetta úr
ókeypis dreifingu í áskriftarsjón-
varp. Það var mjög stórt og drama-
tískt skref og það má segja að það
hafi verið ögurstund fyrir fyrirtækið.
Það hefur tekist mjög vel og við erum
búnir að bæta reksturinn mjög mik-
ið.“
Hann segir að Skjár Einn hafi
einnig bætt dagskrá sína mikið og
það hafi skilað sér í mjög góðum við-
brögðum í áskriftarsölu. „Við vorum
klárlega með verulega betri afkomu í
fyrra og við stefnum að því að snúa
þessu upp í hagnað á næsta ári. Það
höfum við sett okkur sem markmið.“
„Búnir að hagræða á
Skjá Einum“
Steinn Logi fullyrðir að Skjár Einn sé
á mikilli uppleið og það sé hvetjandi
fyrir sjónvarpsstöðina. „Það er al-
veg ljóst að það verður eitthvert tap
2011 en miklu minna en 2010 og við
stefnum á að ná hagnaði 2012. Ég er
mjög bjartsýnn á að það takist miðað
við það sem við erum að sjá.“
Hann segir að ekki megi búast við
frekari hagræðingaraðgerðum eða
samdrætti hjá Skjá Einum. „Við erum
búnir að hagræða á Skjá Einum og
munum ekki endilega gera neitt
meira af því. Við erum sáttir og telj-
um að við séum búnir að finna form-
úluna. Maður veit aldrei hvað gerist
en þetta lofar góðu og við erum bjart-
sýnir.“
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
n Botnlaust tap hjá Skjá Einum og samdráttur hjá Skiptum n Skjár Einn
lifir samt n Forstjórinn segist bjartsýnn n Tjáir sig ekki um tap síðasta árs
2010 Ekki skilað ársreikningi
2009 375 milljónir
2008 575 milljónir
2007 339 milljónir
2006 153 milljónir
Tap Skjás Eins
Tapaði milljón
á dag í fjögur ár
„Það er ekki þannig
að við ætlum bara
að halda áfram að tapa á
Skjá Einum og að það sé
bara lögmál, alls ekki.
Steinn Logi Björnsson „Þetta út af fyrir
sig hefur engin áhrif á rekstur Skjás Eins. Við
höfum verið með miklar hagræðingarað-
gerðir þar líka.“
Skjár Einn Þrátt fyrir
risatap og niðurskurð lifir
Skjár Einn áfram.
Erill hjá
lögreglu
Ekið var á tvo gangandi vegfarend-
ur í Lækjargötu í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudags. Fólkið – karl og
kona – var flutt slasað á slysadeild.
Atvikið átti sér stað um klukkan
hálf fjögur um nóttina. Ökumaður-
inn sem ók á fólkið er ekki grun-
aður um að hafa gerst brotlegur við
lög en hann er sautján ára. Myrkur
og rigning á slysstað mun hafa gert
honum erfitt fyrir að sjá hvað var
fyrir framan hann. Slysið átti sér
stað fyrir framan húsnæði Íslands-
banka í Lækjargötu.
Þá var ekið á gangandi vegfar-
anda á gatnamótum Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar, um klukk-
an hálf sex á sunnudagsmorgun.
Ökumaðurinn ók af vettvangi.
Fórnarlambið er talið hafa verið
ölvað. Mikið var að gera hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu að-
faranótt sunnudags vegna ýmissa
verkefna.
Nýr formaður
ungra VG
Ellefta reglulega landsfundi Ungra
vinstri grænna sem haldinn var á
Suðureyri lauk á sunnudagskvöld.
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir var
kjörin formaður hreyfingarinnar,
en fráfarandi formaður, Snæ-
rós Sindradóttir, gaf ekki kost á
sér aftur. Bjarni Þóroddsson var
kjörinn varaformaður og Una
Hildardóttir ritari. Meðstjórnend-
ur voru kjörnir: Daníel Haukur
Arnarson, Eva Hrund Hlynsdóttir,
Helgi Hrafn Ólafsson, Sindri Geir
Óskarsson og Tinna Ingólfsdóttir.
Fundurinn samþykkti ályktun um
kynjaða ríkisstjórn sem felur í sér
að flokksforystan hafi ekki staðið
sig sem skyldi í jafnréttismálum.
„Það er hlutverk flokks sem kennir
sig við jafnrétti að tryggja að jafnt
kynjahlutfall sé í ríkisstjórn sem og
öllum skipuðum nefndum stjórn-
arinnar.“