Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Síða 6
6 | Fréttir 3. október 2011 Mánudagur
Á
kæruvaldið hefur farið fram
á að dómurinn yfir Þorvarði
Davíð Ólafssyni verði þyngd
ur. Þorvarður var dæmd
ur í 14 ára fangelsi í héraðs
dómi fyrir að hafa ráðist á föður sinn,
Ólaf Tryggva Þórðarson. Horft er til
tveggja atriða þegar metið er hvort
um hafi verið að ræða tilraun til
manndráps eða einfaldlega líkams
árás. Atriðin eru árásin sem slík ann
arsvegar og afleiðingar hennar hins
vegar. Þorvarður hefur sjálfur neitað
að hafa ætlað að bana föður sínum í
árásinni. Hann viðurkennir hins veg
ar árásina í öllum meginatriðum og
játar að hafa veitt föður sínum áverk
ana.
Þetta kom fram í Hæstarétti á
föstudag þar sem málið var tekið
fyrir.
Myndir notaðar í
blóðferlarannsókn
„Brotaþoli svaraði ekki áliti en hann
andaði,“ sagði settur saksóknari þeg
ar hún talaði um afleiðingar árásar
innar og benti dómurum á myndir af
Ólafi þar sem hann lá í blóði sínu eft
ir árásina. Myndirnar voru teknar af
rannsóknardeild lögreglunnar. Þess
ar myndir voru notaðar við blóð
ferlarannsókn á vettvangi.
Niðurstaða blóðferlarannsóknar
innar leiddi í ljós að Ólafur hafði orð
ið fyrir árás á tveimur mismunandi
stöðum. Annars vegar við vestur
enda borðstofuborðsins, við hliðina
á ísskápnum, og hins vegar við arin
stæðið þar sem Ólafur fannst í blóði
sínu. Blóðferlarannsóknirnar leiddu
einnig í ljós að Ólafur hafi verið sleg
inn af miklu afli og fengið í sig spörk
af miklu afli.
Réðst á föður sinn
vegna lyga
Anna Nicole Grayson, vinkona Þor
varðar, laug því að honum að Ólaf
ur hefði misnotað hana frá átta ára
aldri. Þetta sagði hún honum nokkr
um klukkustundum áður en Þor
varður réðst á föður sinn. Voru þá
Anna Nicole og Þorvarður saman að
neyta fíkniefna. Eftir að hafa heyrt
það mun Þorvarður hafa ákveðið að
fara að á fund föður síns. „Þá missi ég
stjórn á mér og ræðst á hann,“ sagði
Þorvarður fyrir héraðsdómi en vitn
að var í orð hans fyrir Hæstarétti.
Hann mætti ekki sjálfur í réttarsal
inn.
Til marks um það hversu ofsa
fengin árásin var benti settur sak
sóknari á fyrsta framburð Þorvarðar
Davíðs fyrir lögreglunni. „Ég spark
aði í hausinn á honum – held ég –
aftur og aftur,“ var haft eftir Þorvarði
úr yfirheyrslum lögreglunnar fyrir
dómnum. Í yfirheyrslu hjá lögregl
unni sagðist hann einnig muna að
eins eftir sumum atvikum en þau
sem hann myndi eftir væru ógeðs
leg.
Því var veitt sérstök athygli að
Þorvarður Davíð notaði hnúajárn
í árásinni. „Atlagan eins og í þessu
máli var ekki bara sérstaklega hættu
leg heldur lífshættuleg,“ sagði settur
saksóknari.
Reyndi að hylja slóð sína
Þorvarður Davíð viðurkenndi fyrir
lögreglumönnum að hafa reynt að
hylja slóð sína. Hann reyndi að þrífa
blóð á vettvangi til að
afmá skóför sín. Þeg
ar hann kom heim til
sín eftir árásina setti
hann svo föt sín og
skó í þvottavél. Fyr
ir dómi sagðist hann
hins vegar ekki vita
af hverju hann hefði
reynt að þrífa blóðið.
„Ástand Ólafs hef
ur ekki breyst und
anfarna mánuði,“ las
settur saksóknari upp
úr skýrslu lækna Ólafs
fyrir dómnum. „Þar
sem bati er enginn
hefur verið sótt um varanlega vist
un á hjúkrunarheimili.“ Ólafur hef
ur verið færður til aðhlynningar á
endurhæfingardeild Landspítalans
á Grensási en hann hefur enn ekki
komist til meðvitundar.
Bara líkamsárás
„Það kann að vera erfitt að sýna fram
á huglæga afstöðu,“ sagði lögmaður
Þorvarðar Davíðs en hann benti á
að það þýddi ekki að ekki þyrfti að
sanna að hann hafi ætlað að ráða
föður sínum bana. Einnig gerði lög
maðurinn athugasemdir við orðalag
í dómi héraðsdóms þar sem vikið er
að ástæðu þess að Þorvarður Davíð
lét af árásinni á föður sinn. Í dómn
um segir að Þorvarður hafi hætt og
farið eftir að hafa runnið til í blóði.
„Ekki hafi verið sýnt fram á ásetn
ing um að bana brotaþola,“ sagði
lögmaðurinn og bætti við að ekki
væri sannað að slíkur ásetning
ur hafi myndast á meðan að árás
inni stóð. Er það lagt til grundvallar
þess að Þorvarður verði dæmdur
fyrir líkamsárás en ekki fyrir tilraun
til manndráps.
Hnúajárnið hefur ekki fundist
„Það liggur fyrir að um hafi verið
að ræða tvö högg í höfuð og svo 10
spörk,“ sagði lögmaður Þorvarðar.
„Hann bankaði upp hjá brotaþola,“
sagði lögmaðurinn og taldi hann
það merki um að Þorvarður hafi ekki
komið til föður síns til að veita hon
um skaða. Þá sagði lögmaðurinn að
ekki benti neitt til þess að Þorvarður
hafi notað vopn eða hluti í árásinni –
að undanskildu hnúajárni sem ekki
hefur fundist.
„Þá styður það einnig málatil
búnað ákærða að hann heyrir andar
drátt þegar hann yfirgefur brotaþola
og hann hefur lýst því að hann hafi
ekki gert sér grein fyrir þeim alvar
legum afleiðingum sem af atvikinu
hlutust,“ sagði lögmaðurinn. Hann
sagði einnig að Þorvarður hafi hætt
árásinni þegar honum hafi runnið
reiðin en ekki út af því að hann hafi
runnið til í blóði eins og kemur fram
í dómi héraðsdóms. „Það er of mikil
einföldun á sannleikanum.“
Í engu ástandi til að gefa skýrslu
„Hann er í miklum ranghugmynd
um og er í geðrofsástandi,“ sagði
lögmaðurinn um ástand Þorvarðs
þegar Þorvarður var yfirheyrður
hjá lögreglu. Sagði lögmaðurinn að
Þorvarður hafi ekki verið í neinu
ástandi til að gefa skýrslu og
lýsa málsatvikum. „Ástand
hans var þetta geðrofsein
kenni sem hefur í eðli sínu
ranghugmyndir, ofsókn
aræði,“ sagði lögmaðurinn.
„Ákærði hefur við þetta at
hæfi sitt misst fjölskyldu
sína. Þetta er fjölskyldu
harmleikur.“
Lögmaðurinn segir að
Þorvarður Davíð sýni mikla
iðrun og vanlíðan vegna
árásarinnar. Hann hefur
undanfarna mánuði fengið
lyfjameðferð við geðrofi og
hefur náð geðheilsu sinni
aftur að mestu leyti.
Þorvarður
Davíð
segist
iðrast
n Réttað yfir syni Ólafs Þórðarsonar n Segist iðrast gjörða sinna
n Tekist á um hvort um var að ræða líkamsárás eða manndrápstilraun„Ástand Ólafs
hefur ekki breyst
undanfarna mánuði.
Líðan Ólafs óbreytt
Þorvarður Davíð viðurkenndi fyrir
lögreglumönnum að hafa reynt
að hylja slóð sína. Mynd STefán KaRLSSon
alvarleg árás „Það liggur fyrir að um hafi verið að ræða tvö högg í höfuð og svo 10 spörk,“
sagði lögmaður Þorvarðar. Þorvarður mætti ekki fyrir dóminn. Mynd GunnaR GunnaRSSon
17. nóvember 2010 Umfjöllun DV um árás
Þorvarðar Davíðs á föður sinn.
fundaði með borgarstjóra:
Fórnarlamb
ofbeldis hitti
Jón Gnarr
Sautján ára drengur sem steig fram
í DV og sagði frá grófu ofbeldi af
hálfu föður síns átti tæplega tveggja
klukkustunda langan fund með Jóni
Gnarr borgarstjóra. „Við vorum bara
að tala saman um hvernig mín hlið
og upplifun var á kerfinu þegar ég
var lítill,“ segir drengurinn í samtali
við DV um fundinn. „Hann var mjög
almennilegur og mjög gott að tala
við hann,“ segir hann. „Það var samt
engin sérstök niðurstaða.“
Mál drengsins vakti mikla athygli
þegar bréf hans birtist á samskipta
síðunni Facebook í ágúst síðastliðn
um. Í bréfinu sagði hann meðal ann
ars: „Maður heldur þessu leyndu
fyrir öllum og kemur bara fram með
„fake“ bros svo fólk heldur að manni
líði vel. En trúið mér, innst inni er
maður að deyja.“
Drengurinn steig eins og áður
segir fram í DV og ræddi þar opin
skátt um ofbeldið. „Ég fann fyrst fyrir
vilja til að segja frá þessu eftir að ég
las bókina Grafarþögn í íslensku. Ég
sá bara fyrir mér fjölskylduna mína.
Það vakti upp svo margar minn
ingar að ég gat bara ekki meir. Ég
gat ekki einu sinni klárað bókina –
mér fannst þetta bara eins og heima
hjá okkur,“ sagði hann í lok ágúst.
Hann lýsti því hvernig faðir hans
hafði haldið heimilislífinu í heljar
greipum í mörg ár og hvernig hann
hefur haldið því áfram eftir skilnað
foreldranna.
adalsteinn@dv.is
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Vann 5,4 milljónir
Heppinn viðskiptavinur sem
keypti sér lottómiða í Shellskál
anum á Egilsstöðum var með allar
tölurnar réttar og hlýtur hann því
rúmlega 5,4 milljónir króna í vinn
ing.
Einn hlaut vinning fyrir fjórar
réttar tölur og bónustölu og fær því
238.030 krónur. Sá keypti miðann í
Select við Vesturlandsveg í Reykja
vík. Þrír voru með fjórar réttar tölur
í Jóker og fær hver vinningshafi um
sig 100 þúsund krónur í vinning.
Einn vinningshafanna er í áskrift
en hinir miðarnir voru keyptir í
SamkaupumÚrval á Selfossi og
Olís á Siglufirði.
Minnisvarði
um Súluna
Á laugardag var reistur minnisvarði
um eitt frægasta fiskiskip Íslendinga,
Súluna EA 300. Afkomendur Sverris
Leóssonar, útgerðarmanns, létu
reisa varðann í minningu Sverris
og færðu Akureyrarhöfn listaverkið
að gjöf. Súlan EA 300 var í heila öld
gerð út frá Akureyri.
„Hún var stolt Akureyringa, enda
eitt fengsælasta veiðiskip íslenska
flotans. Í landlegum lá hún gjarnan
við Torfunefið nýmáluð og tilbúin
til átaka á næstu vertíð, rétt eins og
hvert annað kennileiti á Akureyri.
Þar var minnisvarðinn reistur Útgerð
Súlunnar frá Akureyri stóð í heila
öld og það er fátítt ef ekki einstakt,
að bak við aldarlanga útgerðarsögu
standa eingöngu tvö skip,“ segir í
fréttatilkynningu.