Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Side 8
8 | Fréttir 3. október 2011 Mánudagur
„Venjuleg húsmóðir á í
erfiðleikum með leiguna“
Á
heimasíðu einkamal.is
kemur fram að vefurinn
sé stærsti stefnumóta-
vefur landsins og einn
vinsælasti gagnvirki vef-
ur landsins, með 109.204 not-
endur. Vefurinn er öllum opinn
og aðgengilegur á heimasíðu
Fréttablaðsins, vísir.is, en til
þess að geta fullnýtt sér þjón-
ustu einkamal.is þarf notandi
að vera áskrifandi að vefnum
og greiða fyrir það.
Samkvæmt heimasíðunni
lítur einkamal.is á það sem
hlutverk sitt að auðvelda fólki
að kynnast með nýjustu tækni
en ánægja notenda, auglýs-
enda og samstarfsaðila er höfð
að leiðarljósi. „Um leið lítum
við á það sem ábyrgð okkar að
tryggja eftir fremsta megni að
vefurinn sé ekki notaður sem
vettvangur fyrir ólöglegt at-
hæfi.“
Engu að síður er fjölda
vændisauglýsinga að finna inni
á einkamal.is, nokkrar svona:
„umm oh oh $“ og sumar hverj-
ar ansi berorðar, eins og þessi:
„$$$$$ Ég er til í að borga fyrir
kynlíf $$$$. Er samt alveg flott-
ur gaur og massaður, langar
bara að ríða flottri gellu og ekk-
ert sambandsvesen ... Og hey,
kvenréttindabaráttudruslur,
hættið þessu væli í mér! ... Þetta
er einfalt. ... Allar konur eru
hórur. ... Sumar vilja láta bjóða
sér út að borða, aðrar vilja bara
láta bjóða sér í glas. ... Sumar
vilja eiga karl sem kaupir handa
þeim allt sem þeim langar í. ...
Aðrar vilja karl sem er alltaf að
segja eitthvað sem lætur þeim
líða vel með sjálfa sig. .. Þær
enda allar undir einhverjum
gaur og fá eitthvað í staðinn fyr-
ir það. ... Konur eru bara hórur.
... Það er staðreynd. Er ekki ein-
hver hérna sem áttar sig á því
og vill bara peninginn í staðinn
fyrir þetta vesen?“
Það er 32 ára karlmaður á
höfuðborgarsvæðinu sem talar.
„Það er best
að fara þangað“
Íslensk kona sem var um árabil
í vændi lýsti reynslu sinni í DV
á miðvikudaginn en þegar hún
byrjaði í vændi setti hún aug-
lýsinguna: „Venjuleg húsmóð-
ir á í erfiðleikum með leiguna“
inn á einkamal.is.
„Aðalmarkaðurinn er á
einkamal.is,“ sagði hún. „Það
er best að fara þangað. Ég leit-
aði líka að kúnnum þar og
fann þá með því að setja inn
ákveðin leitarskilyrði eins og
dollaramerki, ríkur, pening-
ar eða þess háttar. Þá finnur
maður menn sem vilja kaupa
vændi. Síðan sendi ég þeim
póst og spurði hvort þá vantaði
þjónustu.“
Þessir menn eru enn inni á
Einkamálum. Hún kíkir reglu-
lega á það. Sér að sumir hafa
skipt um „nikk“ en aðrir eru
enn með sama prófíl. „Mér
finnst hrikalegt að hugsa til
þess. Það er ótrúlegt að þetta
fái að lifa. Það á að setja þessa
menn sem eiga þetta í fangelsi
því þeir eru að græða á þessu.
Karlmenn þurfa að greiða fyrir
aðganginn.
Eins er Purple Rabbit ekkert
annað en vændissala. Sá sem
rekur það fær fimmtán pró-
sent af ágóðanum af öllu og er
þar með orðinn þriðji aðili sem
græðir á þeim sem selja sig.“
„Einkamál ber ábyrgð“
Undir þetta tekur Karen Linda
Eiríksdóttir, ráðgjafi á Stíga-
mótum, en hún hefur ekki að-
eins verið með fólk, konur
og karla, í viðtölum vegna af-
leiðinga kynferðisofbeldis og
vændis heldur hefur hún einn-
ig lagst í ítarlega úttekt á vænd-
ismarkaðnum hér á landi á síð-
ustu vikum.
Eitt af því sem sló hana var
hversu mikil eftirspurnin er og
hversu auðvelt það er að finna
vændi, til að mynda á einka-
mal.is. „Það er ein gátt sem
er greinilega vinsæl og mikið
notuð. Hún fær að standa. Þetta
er opinn vefur sem liggur fyrir
augunum á okkur þannig að
þeir sem það vilja geta farið þar
inn og séð hvað er að gerast.
„Einkamál ber ábyrgð,“ segir
Karen og heldur áfram; „ með
því að loka algjörlega augun-
um fyrir því sem er að gerast
þar inni. Við sjáum að þar eru
auglýsingar frá karlmönnum,
sem hafa verið þar í tvö til þrjú
ár, sem óska eftir því að kaupa
vændi.
Þeir sem standa á bak við
vefinn gætu lokað fyrir þetta
ef einhver vilji væri fyrir hendi.
Svo virðist sem það sé frekar
lokað á þær sem eru að selja
vændi en kaupendurna. Samt
er það þannig að í hvert ein-
asta sinn sem ég hef sett inn
auglýsingu fær hún að standa
í einhvern tíma. Sumar hafa
verið teknar út en aðrar ekki.“
Karen setti inn mismunandi
auglýsingar á mismunandi
tímum. Allar eiga það þó sam-
eiginlegt að vændi er auglýst
til sölu og það með nokkuð
afdráttarlausum hætti. Sum-
ar voru teknar út á fyrsta sóla-
hringnum en aðrar eru enn
inni á einkamal.is.
Nudddálkarnir
Nudddálkarnir á Vísi og í Frétta-
blaðinu eru annað áhyggjuefni.
„Þar er líka blússandi vænd-
ismarkaður. Við hringdum í
nokkrar konur sem auglýstu í
nudddálki Fréttablaðsins en
þær vildu ekki tala við konur
og ýmist skelltu á eða sögðust
ekki nudda konur. Svo ég fékk
manninn minn til að hringja
í eitt númerið og sækja upp-
lýsingar. Hann fékk þau svör
að hægt væri að fá nudd með
„happy ending“ fyrir 25 þús-
und krónur. Svo lýsti stúlkan
sér og sagðist vera mjög vinsæl.
Hann átti að hringja hálftíma
fyrir mætingu og fá staðsetn-
inguna þá.“
Sjötíu „missed calls“
Sjálf sendi hún inn auglýsingu
í nudddálk í Fréttablaðinu en
auglýsingin lá í viku á vísir.is.
„Eftirspurnin var svakaleg og
síminn hringdi nánast stöðugt
í heila viku,“ segir Karen og tek-
ur dæmi. „Við skildum símann
eftir uppi á Stígamótum yfir
helgi og þegar við komum aftur
til vinnu á mánudegi voru sjö-
tíu „missed calls“ á símanum
og hann orðinn rafmagnslaus.
Sum númerin voru óskráð en
önnur ekki og eyddum við dá-
góðri stund í að skoða fjöl-
skyldu- og brúðkaupsmynd-
ir þessara manna á Facebook.
Þeir eru enn að hringja svo það
er greinilegt að þeir vista núm-
erin og nota þau aftur og aftur.
Vændi fer líka fram í undir-
heimunum. Þetta virðist vera
alls staðar. Það er bara spurn-
ing hvað hægt er að gera til að
spyrna gegn því að þetta fái að
grassera svona alls staðar,“ seg-
ir Karen. „Ef það væri lagður
einhver metnaður í að vinna
gegn þessu væri það hægt. Það
er alltaf sagt að það sé spurning
um forgangsröðun en það má
líka spyrja hver ákveður hvað á
að setja í forgang.
Sumt af því sem ég hef séð
þarna inni er grafalvarlegt, eins
og það hversu mikil eftirspurn
er eftir því að kaupa vændi af
ólögráða einstaklingum.“
Þarft að viðurkenna
vandamálið
Hún segir að þegar þurfi að
stofna athvarf fyrir einstak-
linga sem eru að reyna að
komast út úr vændi hljóti öll-
um að verða ljóst hversu al-
varlegt þetta er. „Þessi heimur
virðist vera þannig að þegar
þú ert einu sinni kominn þar
inn er mjög erfitt að komast
þaðan aftur. Það getur tekið
mörg ár og kostað heljarinnar
átak að slíta sig lausan, og þá
virðist engu skipta hvort við-
komandi hefur byrjað sjálf-
viljugur í vændi eða ekki.
Okkar reynsla er sú að af-
leiðingarnar af vændi eru þær
sömu og af kynferðisofbeldi,
bara ýktari. Skömmin og sekt-
arkenndin er meiri.
Þetta er svo alvarlegt að
það er ekki hægt að ýta þessu
til hliðar sem einhverju auka-
atriði. Við þurfum að viður-
kenna að þetta sé raunveru-
legt vandamál og takast á við
það þannig.“
Aðgerðaleysi er það
sama og samþykki
Eftirspurnin drífur markað-
inn áfram og þótt Karen Linda
starfi í þessum geira segir
hún að það hafi verið sláandi
að sjá hversu mikil hún var
í raun og veru. „Ég fæst við
kynferðisofbeldi daginn út og
inn, og þar sem ég hef rætt við
fólk sem hefur verið að selja
sig grunaði mig að þetta væri
slæmt. En að sjá hvernig þetta
er var eins og að fá kjaftshögg.
Nú vil ég kasta boltanum
yfir til lögreglunnar því þetta
er glæpur samkvæmt lögum
og það er undir lögreglunni að
gera eitthvað í þessu. Við get-
um það ekki. Aðgerðaleysi er
það sama og samþykki, þann-
ig að það virðist vera þegjandi
samþykki fyrir þessu. Ef þú
skoðar umræðuna um vændi
þá virðist heldur aldrei mega
koma nálægt þessu, eftir-
spurninni og kaupendunum.
Við ræðum um vændiskonur
og einstaklinga sem selja sig
en það stoppar allt þegar það
kemur að því að skoða eftir-
spurnina. Þar liggur vandinn.“
Orðaleikur í auglýsingum
Hún segir jafnframt frá því að
þegar Stígamótakonur fóru til
Danmerkur í vor til að kynna
sér athvörf fyrir konur í vændi
hafi þær fengið gagnlegar
upplýsingar sem munu nýt-
ast vel hér heima. „Þar kynnt-
umst við til dæmis þessum
helstu frösum sem eru not-
aðir í vændisauglýsingum og
farið er að bera á í auglýsing-
um hér heima líka. Ég sá til
dæmis auglýsingu í Frétta-
blaðinu um daginn undir fyr-
irsögninni „the new Spanish“,
sem er frasi yfir fróun á milli
brjósta.
Það stemmir við það sem
þeir sem hafa verið að selja
sig segja. Þeir tala um að þetta
sé orðaleikur, þar sem það er
ólöglegt að auglýsa vændi eru
gjarna notuð leyniorð um við-
skiptin. Dollaramerkið er eitt
af því. Auðvitað er aldrei hægt
að staðhæfa að dollaramerkið
þýði vændi en mér finnst það
alveg augljóst og af svörum
manna að dæma virðist þeim
þykja það líka. Þetta er sölu-
merki, hvað annað gæti þetta
staðið fyrir en vændi?“
Hátt í þrjúhundruð
vændisauglýsingar
Þegar dollaramerktar auglýs-
ingar á einkamal.is eru skoð-
aðar kemur í ljós að 257 aug-
lýsingar virðast varða vændi
með það afgerandi hætti að
varla leikur nokkur vafi á. Þá
eru ótaldar þær auglýsingar
sem varða vændi en eru ekki
dollaramerktar.
27 auglýsingar voru frá
virkum notendum, sem þýð-
ir að þeir hafa skráð sig inn á
vefinn á síðasta mánuði. Elsta
auglýsingin frá notendum úr
þeim hópi var frá árinu 2000
en 39 ára karlmaður óskaði
eftir því að „hitta sæta stelpu
sem hefur meiri áhuga á kyn-
lífi en að þrífa klósett. 100%
trúnaður. $.“ Maðurinn var
síðast tengdur inn á einka-
mal.is þann 8. september en
auglýsingin hefur verið skoð-
uð 1.338 sinnum.
Og þó að það sé ólöglegt
að kaupa vændi voru engu að
síður 75 menn sem óskuðu
eftir kaupum á vændi á einka-
mal.is. Elstu auglýsingarnar
eru frá árinu 2003, eða tvær,
en síðan er ekkert fram til árs-
ins 2006.
„Til í unga og óreynda“
Sumir eru ansi berorðir en
aðrir fara fínna í þetta. Eins og
51 árs karlmaður sem segist
vera fjárhagslega sjálfstæður
og laumar dollaramerki inn í
staðinn fyrir s-i í einu orðinu.
Það fer þó ekkert á milli mála
eftir hverju hann er að leita.
„Hef áhuga á skyndikynn-
um. Er viðkunnanlegur, fjár-
hagslega sjálfstæður náungi
í sæmilegu formi. Endilega
$endið línu.“ Og 41 árs karl-
maður óskar eftir „erótí$ku
nuddi“ eða konum sem vilja
tilbreytingu. Tekur það um
leið fram að hann sé „mjög
góður í rúminu og vel vaxinn.“
Fjárhaglega sjálfstæður 32
ára karlmaður leitar að konu
til að fullnægja sér og 31 árs
karl langar að fá sér að ríða.
Hann fílar „grannar $telpur
sem eru vel snyrtar“, það er
þó ekki skilyrði. „Greiði fyrir
greiða með fullum trúnaði,“
n Blússandi vændismarkaður á einkamal.is n Fyrir allra augum og aðgengilegt af vísir.is n „Allar konur eru hórur,“ segir karl sem vill kaupa vændi
n „Ég fæ fjör og þú færð $$$.“ n „Þetta verður væntanlega farið út eftir klukkutíma,“ sagði framkvæmdastjórinn fyrir tveimur vikum
Ingibjörg Dögg
Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Úttekt
Uppgefið verð er á bilinu 15 til 30
þúsund fyrir dráttinn. Algengasta
verðið virðist þó vera 25 þúsund
krónur, án þess að það sé alltaf til-
greint hvað er innifalið í verðinu.
n „Sælir. Verðið er 15 þúsund fyrir
drátt.“
n „Umm já ohoh $. Er svakaflott
og vel vaxin og er að taka 20 fyrir
dráttinn, sem sagt góðan drátt.“
n „20 þúsund fyrir munngælur og
drátt fyrir yngri 30 ára og yngri. En
20 og 25 fyrir 40 ára og eldri. Öll
aðstaða til fyrirmyndar, inn og út,
ekkert vesen. Kveðja, litlagröð.“
n „Umm já $ kostar 25 þús. Tott og
samfarir.“
n „Góð kynlífsþjónusta, hitt-
ingurinn (tott og samfarir) kostar
25 þús. Er aðallega við á daginn
ekki á næturnar svo ekki hringja
þá. Og já, gleymdi að segja að ég er
grönn og vel vaxin, stunda ræktina
reglulega.“
n „Til í allt $. 25 þús. hittingurinn.“
n „$ 25 þús. gott kynlíf.“
n „Er flott stelpa að leita að
smáaukapen$. Ég tek 25 þús. fyrir
sexið.“
n „Umm til? $ Er mjög falleg og vel
vaxinn og gef hann góðan. Ég tek
25 þús. fyrir hittinginn.“
n „Umm já $ ég tek 25 þús. fyrir
gott kynlíf. Ath! Ég er ekki við á
næturna.“
n „Umm $ common sex4money.
25 þús.“
n „Umm já $$ kynlífsþjónusta. 25
þúsund drátturinn.“
n „Mjá viltu ríða $. Tek 25 þús. fyrir.
Gef hann góðan.“
n „Sex4money 25 þús.“
n „Ég tek 25 þús. fyrir hittinginn.“
n „Ég tek 25 þús. fyrir sexið.“
n „Ójá $. Góðir kk sem eruð til
í að borga fyrir kynlíf með mér
hringið. Tek 25 þús. fyrir og er með
aðstöðu. Er vel vaxin og falleg ung
kona og ekki í neinu rugli.“
n „Kynlífsþjónusta $. 30 þús.
drátturinn.“
n „30. þús. dráttur aldarinnar.“
Hvað kostar vændi?„Nú vil ég kasta boltanum yfir
til lögreglunnar því
þetta er glæpur sam-
kvæmt lögum og það
er undir lögreglunni
að gera eitthvað í
þessu. Við getum það
ekki.
Karen Linda Eiríksdóttir
ráðgjafi á Stígamótum