Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Qupperneq 9
Fréttir | 9Mánudagur 3. október 2011
„Venjuleg húsmóðir á í
erfiðleikum með leiguna“
n Blússandi vændismarkaður á einkamal.is n Fyrir allra augum og aðgengilegt af vísir.is n „Allar konur eru hórur,“ segir karl sem vill kaupa vændi
n „Ég fæ fjör og þú færð $$$.“ n „Þetta verður væntanlega farið út eftir klukkutíma,“ sagði framkvæmdastjórinn fyrir tveimur vikum
lofar hann. Það gerir líka 58
ára karl sem vantar fútt í kyn-
lífið og lofar bæði $$$$ og
100% trúnaði.
Einn er „alveg til í unga
og óreynda.“ Hann er 49 ára
og alveg til í „að karl sé milli-
göngumaður.“ Annar er að
leita að „konum sem kunna
til verka og vilja hittast.“ Þær
þurfa að vera á aldrinum 18–
28 ára, hafa áhuga á kynlífi
og $$. Nokkrir taka það fram
að þeir séu bara að leita að
skyndikynnum (– stundum
$kyndikynnum), eða eins og
einn orðar það „just looking
for sex $$“.
Einn hefur alltaf langað að
borga fyrir kynlíf. Hann er 29
ára og gerir þá kröfu að konan
sé vel vaxin og falleg. „Snyrti-
mennska og hreinlæti skil-
yrði.“ Annar væri líka til í að
fá að prófa BDSM eða að fá að
taka konu í „anal“. Hann væri
líka til í að hitta „shemale“ eða
„trönsu“.
Vill fá konu núna
Tveir vilja hitta konur sem má
mynda gegn greiðslu. Margir
vilja hitta konu núna. Stund-
um af því að þeir verða bara
í bænum eða á landinu í smá
tíma, eins og þessi sem vinnur
mikið úti á landi og hefur því
„ekki mikinn tíma til að fara á
pöbbinn.“ Aðrir eru bara grað-
ir. „Vantar kvk núna. Nóg $ í
boði,“ segir 21 árs strákur. „Er
flottur, graður og velstæður.
Vill fá konu núna ... $$$,“ segir
annar 26 ára.
Sumir taka fram að þeir séu
í sambandi. Eins og 47 ára karl
sem „vill hitta vel vaxna og vilj-
uga konu eða konur $$$$$. Er
giftur.“ Og 38 ára karl sem vill
bara kynlíf, er myndarlegur og
í góðu formi. Æfir fimm sinn-
um í viku, er í sambúð og fjár-
hagslega góðum málum. Hann
vill konur frá 18 til 50 ára.
Aðrir lýsa yfir ágæti sínu,
eins og 38 ára maður sem seg-
ist vera snyrtilegur, afslappað-
ur og þægilegur maður sem vill
kynnast stelpum frá 18–28 ára,
fara með þeim í bíltúr og kela
og kannski eitthvað meir. „Ég
fæ fjör og þú færð $$$.“ Ann-
ar segist bara vera venjulegur,
myndarlegur maður sem vill
ekkert rugl. Lofar peningum
og segist ekki vera „þessi perri
eins og margir hér.“
Þetta tónar vel við upplýs-
ingar Stígamóta um vændis-
kaupendur, að þeir séu fyrst og
fremst karlar, ungir og gamlir,
giftir og ógiftir, úr öllum stétt-
um, með alls kyns menntun og
bakgrunn.
Nánast allir á
höfuðborgarsvæðinu
Alls buðu 182 auglýsendur
vændi til sölu, þar af 154 kon-
ur og 28 karlar. Elsta auglýs-
ingin var frá 31. janúar árið
2007, en það ár birtu þrjár
konur og þrír karlar vænd-
isauglýsingar sem enn standa
inni á einkamal.is. Víða var
búið að fjarlægja netföng eða
símanúmer úr auglýsingun-
um.
Í nánast öllum tilfellum
var fólkið statt á höfuðborg-
arsvæðinu, einn karl reyndi
að selja vændi á Suðurnesj-
um og þar reyndu tveir að
kaupa það. Það gerði einnig
einn karlmaður á Suðurlandi.
Á Suðurnesjum var ein kona
sem reyndi að selja vændi og
ein á Norðurlandi. Aðrir voru
á höfuðborgarsvæðinu.
Aldursdreifing þeirra sem
auglýstu kaup og sölu á vændi
var ansi mikil. Karlar sem
vildu kaupa vændi voru allt
frá 19 ára og upp í 58 ára, karl-
ar sem voru að selja
sig voru ívið yngri
eða á aldrinum 18
til 45 ára og konurnar voru á
aldrinum 18 og upp í 54 ára.
Flestir reyndu
að höfða til karla
Sömuleiðis reyndu langflest-
ir að höfða til karlkyns kaup-
enda. Af þeim karlmönnum
sem voru að falbjóða vændi
voru aðeins tveir sem beindu
orðum sínum að konum, ann-
ar þeirra undir netfanginu er-
tilsölu@gmail en hinn kallar
sig kreppupung. Sex reyndu að
höfða til beggja kynja. Í tveim-
ur tilvikum var óljóst að hvoru
kyninu þeir beindu sjónum
sínum.
Sumir virtust þurfa á pen-
ingi að halda og það núna. Átj-
án ára strákur sem sagðist vera
„grannur og flottur, allt rakað,“
sagði til dæmis að hann „sár-
lega vantar smá $$ svo þeir
sem eru til í það þá er ég til í
það, til í það í kvöld. Er til í allt
sem þið viljið.“ Hann ætlaði þó
ekki að hitta fleiri en einn eða
tvo, hæstbjóðendur.
n Hver sem greiðir fyrir kyn-
lífsþjónustu af nokkru tagi skal
sæta fangelsi allt að 2 árum.
n Hver sem hefur milligöngu um
vændi annarra skal sæta fangelsi
allt að 4 árum.
n Sömu refsingu varðar það
að ginna, hvetja eða aðstoða
barn, yngra en 18 ára, til þess að
stunda vændi eða aðra kynlífs-
þjónustu.
n Hver sem stuðlar að því með
ginningum, hvatningum eða
milligöngu að aðrir hafi holdlegt
samræði eða önnur kynferðis-
mök gegn greiðslu eða hefur
tekjur af kynlífsþjónustu sem
aðrir veita, svo sem með útleigu
húsnæðis eða á annan hátt, skal
sæta fangelsi allt að 4 árum en
sektum eða fangelsi allt að 1 ári
ef málsbætur eru.
Lög um vændi
„Er ekki einhver
hérna sem áttar
sig á því og vill bara
peninginn í staðinn
fyrir þetta vesen?
SV
IÐ
SE
T
T
M
Y
N
D
E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
n Enginn veit hversu umfangs-
mikill vændismarkaðurinn er á
Íslandi.
n Til Stígamóta leita 30 konur
og nokkrir karlar á hverju ári
vegna vændis og kláms.
n Tveir karlmenn hafa verið
dæmdir fyrir vændiskaup. Annar
fékk 80.000 króna sekt fyrir að
kaupa vændi á 15.000 krónur.
Hinn fékk 40.000 króna sekt
fyrir tilraun til að kaupa vændi
fyrir 20.000 krónur. Hámarks-
refsing fyrir vændiskaup er eins
árs fangelsi.
n Stjórnvöld hafa fengist við
tæpan tug mála er tengjast
mansali þótt aðeins hafi fallið
einn dómur í slíku máli.
n „Við búum við þegjandi sam-
þykki,“ segir Steinunn Gyðu- og
Guðjónsdóttir, framkvæmda-
stýra athvarfs fyrir konur á leið
úr vændi og mansali. „Vændi og
klám er fyrir augunum á okkur á
hverjum degi en lítið er aðhafst.“
Vændi á Íslandi