Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 3. október 2011 Mánudagur
Aðeins níu af þeim körlum
sem voru að selja sig skráðu
sig inn sem tvíkynhneigða eða
samkynhneigða en mun fleiri
orðuðu auglýsinguna líkt og þeir
væru það. Sumir hvöttu gagn-
kynhneigða karlmenn til að vera
ófeimnir við að prófa: „straight
karlmenn, ekki vera feimnir.“
Enn aðrir sögðust aldrei hafa
verið með karlmanni áður en
ætluðu að prófa þetta þar sem
þeir væru í sárri peningaþörf.
Eins og þessi: „Hæ. Er alveg stra-
ight kk en er svolítið desperate
fyrir $$. ... Hef aldrei verið með
kk en er til í hvað sem er fyrri
smá aðstoð.“
Nokkrir reyndu að beina við-
skiptunum inn á aðra miðla,
svo sem netföng eða MSN. Einn
óskaði eftir því að fá tölvupóst
og lofaði því þá að senda lista,
líklega yfir þá þjónustu sem var
í boði. Einn sem sagðist vera
„ungur kk sem er að leita eftir
kk sem vilja leika við líkamann
á mér gegn $$,“ bauð afslátt fyrir
tvo í einu. Annar lofaði að púla
fyrir hverri krónu.
Æsandi að fá pening
Fimm konur sögðust vera til-
búnar til að taka á móti pör-
um eða konum og tvær þeirra
reyndu aðeins að höfða til
kvenna. Aðrar beindu orðum
sínum að körlum.
Í átta tilfellum sögðust kon-
urnar vinna tvær saman. Í einu
tilfelli var um par að ræða, tví-
tuga stelpu og 23 ára strák, sem
var til í að stunda kynlíf fyrir
framan kúnna.
Sumar sögðust fíla að gera
það fyrir greiðslu. „Er heit gella
sem finnst æsandi að gera
skemmtilega hluti fyrir $$$,“
sagði 23 ára kona sem kunni að
meta eldri menn og pör. Hún
vildi ekki menn sem eru yngri
en 29 ára. Önnur „fílaði“ karl-
menn mjög mikið og var tilbú-
in að gera eitthvað fyrir þá gegn
greiðslu. „Geri skemmtilega
hluti fyrir $$$,“ sagði sú þriðja.
„Ég þarf hjálp,
hvað þarft þú?“
„Hæ hæ, ég er ung og hress í
leit að fjárhagslega sjálfstæð-
um manni sem vill $kemmta
sér með mér ;),“ sagði 23 ára
kona. „Greiði gegn greiða, það
er ekkert frítt í þessum heimi :)
$$$$$$,“ sagði önnur 22 ára, ný-
rökuð og með DD sílikonbrjóst.
Fleiri tala um greiða gegn
greiða. Það gerði til dæmis tví-
tug stúlka sem var til í margt
og marga og hét 100% trúnaði.
„Ég þarf hjálp, hvað þarft þú?“
spurði 22 ára stúlka sem lofaði
að bíta ekki, allavega ekki fast.
Einstæða móður vantaði aur
og bauð kynlíf í staðinn. Sagð-
ist vera ljóshærð, sæt og hress
og að hún hefði gaman af góðu
kynlífi.
Útlitslýsingar fylgdu stund-
um. Ein var 32 ára, dökkhærð
með strípur, blá augu, flott
brjóst, smá bústin en myndar-
leg. „Er 33 ára kona, þybbin en
myndarleg,“ sagði önnur.
Enn ein kona var fit og flott,
stundaði ræktina reglulega
og var ekki í neinu rugli. Fleiri
stunda ræktina, eins og þessi
sem var þrítug, stundaði líkams-
rækt reglulega, var í góðu formi
og spurði hvort menn væru til í
gott kynlíf, $ mjá?
„Er latino-stelpa, flott gella,“
sagði ein sem bauð upp á tott
og kynlíf gegn greiðslu. Hún var
ekki með aðstöðu svo hún gerði
þetta í bíl. Þær voru reyndar þó
nokkrar sem voru ekki með að-
stöðu.
„Get verið hvað sem þú vilt“
Margar lögðu áherslu á að
þær væru ungar, stinnar, heit-
ar, blautar og graðar. Í raun
væru þær alveg sjúkar í kynlíf
og fengju aldrei nóg af því. „Er
svaka gröð. Gæti riðið allan dag-
inn. Er líka flott, sexý og allt sem
þú vilt,“ segir 27 ára kona. Önn-
ur sagði að allt væri í boði: „Get
verið hvað $em þú vilt.“ Það gat
22 ára stelpa líka, en hún leit-
aði að leikfélaga sem vildi fara
í dúkkuleik með hana, klukku-
tíma í senn.
Ein kallaði sig „litlugröð“ og
sagðist vera að leita sér að fjár-
hagslega sterkum mönnum.
„Er ljóshærð, vel vaxin og ung.
Verðhugmyndin er ekki há $$$.“
Önnur spurði hvort það væri
draumurinn að vera með einni
sem er „$exý, ljóshærð, með $ítt
hár, góð í rúminu og ung?“ Hún
var 25 ára.
„Langar í leik með þér,“ seg-
ir enn önnur sem var til í staka
karla og pör. „Traust og falleg
fyrir þig $æti,“ sagði hún svo.
„Mér finnst gott að láta ríða
mér,“ sagði enn önnur. Hún var
21 árs, „big, beautiful woman“
sem notaði alltaf smokk, líka við
munnmök og setti karla í póst-
númerinu 111 í forgang.
Önnur sagðist vera vond
stelpa sem þyrfti að láta siða sig
til. Hún var tvítug Reykjavíkur-
mær, meðalhá og þétt stelpa
sem vildi bara eldri menn sem
hún gæti farið í pabbaleiki með.
„Ég vil láta ríða mér á allavegu,“
sagði hún og bætti því síðan við
að þess vegna væri hún „alltaf til
í meira.“ En hún gerði „ekki neitt
fyrir neinn $em gerir ekki neitt
fyrir neinn.“ Hún tók það fram
að hún setti það ekki fyrir sig að
þeir væru giftir. Aðrar vilja bara
gifta menn eða menn í sambúð.
„Ekkert rugl,
vesen eða ofbeldi“
Mjög fáar gerðu einhverjar kröf-
ur, þá helst varðandi aldur. Mjög
misjafnt var hvort þær vilja
eldri eða yngri menn, ein $var-
ar engum yngri en 46 og önnur
vill enga eldri en 50 ára. Örfá-
ar sögðu smokkinn vera skil-
yrði, ein sagði að „anal“ og að
„rimma“ kæmi ekki til greina
og önnur veitti ekki munnmök.
Nokkrar sögðu hreinlæti vera
skilyrði og ein sagðist ekki hika
við að kæra. „Ekkert rugl, vesen
eða ofbeldi (kæri hiklaust ef eitt-
hvað er! En veit ég þarf ekki að
standa í því, þið eruð svo miklar
elskur ;)“
Sumar voru aðeins við á dag-
inn og báðu um að ekki væri
hringt á næturnar.
„Verður farið út
eftir klukkutíma“
Engilbert Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri D3 sem heldur
úti einkamal.is, kom af fjöll-
um þegar DV ræddi við hann.
„Eru einhverjar vændisauglýs-
ingar þarna inni núna?“ spurði
hann hissa. „Ég kem alveg af
fjöllum. Þetta er eitt af því sem
á að henda út en ég er ekki for-
ritari og kann ekki skýringu á því
af hverju þetta hefur farið fram
hjá okkur. Vanalega er tekið til á
vefnum tvisvar til þrisvar á dag.
Þetta er bannað.“
Engilbert segir að stikkorð
séu notuð til að finna þessar
auglýsingar og að dollaramerk-
in séu á meðal þess fyrsta sem
farið var að leita eftir. „Dollara-
merkin eiga ekki að detta inn
og ég mun ræða við forritarann
strax í kvöld. Reyndar tökum
við auglýsingar ekki út ef það
eru dollaramerki í þeim en ekk-
ert annað sem bendir til þess að
eitthvað óeðlilegt sé á seyði. En
það er alveg ljóst að það fyrsta
sem ég mun gera í kvöld er að
láta forritarann keyra út þess-
ar færslur og henda út öllum
prófílum með dollaramerkjum.
Þetta verður væntanlega farið
út eftir klukkutíma. Ég er ekki
ánægður með þetta, þetta á ekki
að vera þarna inni.“
Eru ekki löggan
Samkvæmt skilmálum sem birt-
ir eru á einkamal.is er strang-
lega bannað að bjóða vöru eða
þjónustu sem íslensk löggjöf
bannar, svo sem vændi, ólög-
leg vímuefni eða ólöglegt klám-
efni. Einkamál áskilur sér rétt til
að grípa til viðeigandi ráðstaf-
ana ef orðalag auglýsingar not-
anda þykir óviðeigandi. Prófílar
fólks eru þó ekki skoðaðir nema
þeir séu mjög grunsamlegir.
„Upplýsingarnar sem fólk setur
þarna inn eru mjög persónuleg-
ar þannig að við erum ekkert að
gramsa í prófílum fólks. Við lít-
um ekki svo á að við séum lögg-
an og lesum persónuleg skila-
boð frá fólki.“
Afleiðingarnar eru þó ekki
mjög alvarlegar ef fólk verður
uppvíst að því að brjóta regl-
urnar og auðvelt er að komast
inn aftur með því að skipta um
netfang. „Ef við sjáum eitthvað
vafasamt tökum við það út og
bönnum netfangið. Aftur á móti
getum við ekki lokað á IP-tölur
þar sem ein IP-tala getur átt við
marga og við gætum því verið að
loka á aðra sem eru þarna í rétt-
um erindagjörðum í leiðinni,“
segir Engilbert og bætir því við
að þeir sem standi að vefnum
séu í mjög góðu samstarfi við
lögregluna. Ef upp koma lög-
reglumál í tengslum við mis-
notkun vefjarins, t.d. vegna
ólöglegrar þjónustu eða sölu
áskilur Einkamál sér fullan rétt
til að aðstoða yfirvöld. „Ef lög-
reglan biður um gögn afhend-
um við þau strax í stað þess að
fara fram á dómsúrskurð eða
eitthvað þess háttar. Fólk verð-
ur bara að taka afleiðingunum
af því.
Við erum mjög taktískt að
reyna að vinna gegn þessu, því
þetta er akkúrat það sem við vilj-
um ekki sjá þarna.“
„Þær eru svolítið lúmskar“
Engilbert segir að ákveðnar síð-
ur eigi að virka þannig að þegar
viss orð séu notuð í auglýsing-
um sé tekið á því. „Sá grunnur
er alltaf að stækka en það er nú
leiðinlegt að segja það að þær
eru ansi fljótar að finna eitthvað
nýtt. Þær eru svolítið lúmskar og
setja stundum dollaramerkið
inn, GSM-númer eða MSN-net-
fang því þær vilja helst fá menn
á aðrar síður því þær vita að við
lokum á allt slíkt hjá okkur.“
Að því sögðu bætir hann því
við að samfélagið á einkamal.
is sé samt svo stórt að erfitt sé
að fylgjast með öllu sem þar fer
fram. „Um 100.000 manns eru
skráðir þarna inni og þú getur
rétt ímyndað þér að þar þrífast
auðvitað hlutir sem við erum
ekki hrifin af og leggjum kapp á
að losna við. Við erum að reyna
að berjast gegn þessu og breyta
ímyndinni sem blaðamenn
virðast hafa af vefnum, því margt
gott hefur gerst þar, fólk hefur
kynnst á heilbrigðan hátt, við
bjóðum upp á dansnámskeið,
bíóferðir og annað slíkt. Þetta er
svo lítið brot af öllu sem fram fer
þarna. Vefurinn er ellefu ára og
hefur gengið vel, langflestir eru
þarna inni á réttum forsendum
og mér finnst synd að eyðileggja
fyrir þessu fólki.“
„Hvernig veit maður
hvað er nudd?“
Annað vandamál sem einka-
mal.is stendur frammi fyrir að
mati Engilberts eru auglýsing-
arnar á vefnum. „Menn sem eru
með ólöglega starfsemi á sínu
vefsvæði hafa verið að setja upp
auglýsingar hjá okkur og biðja
fólk um að koma yfir til sín. Við
reynum að koma í veg fyrir það
líka. En það er svo sem ekkert
nýtt í þessu.
Allir heilvita menn vita að
vændi þrífst í þjóðfélaginu og
að það er auglýst, það er úti um
allt á netinu og í þessum smá-
auglýsingum. Hvernig veit mað-
ur hvað er „nudd“ og hvað er
nudd? Fólk finnur alltaf sínar
leiðir, við vitum hvernig samfé-
lagið er, það er talað um að þetta
sé elsta atvinnugreinin í heim-
inum og mun sennilega vera um
ókomna tíð.
Það eina sem ég get sagt er að
við erum að berjast gegn þessu,
við viljum ekki hafa þetta þarna
inni en þetta er endalaust stríð.
En við munum ekki gefast upp.“
Rétt er að taka fram að það
eru tvær vikur síðan DV ræddi
við Engilbert en auglýsingarn-
ar eru enn inni á einkamal.is og
koma upp þegar dollaramerki er
notað sem leitarorð. n
2003
n 2 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi.
2006
n 1 auglýsing frá karlmanni að
kaupa vændi.
2007
n 7 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi, 3 frá konum að
selja sig og 3 frá körlum að selja
sig.
2008
n 22 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi, 6 frá konum að
selja sig, 45 frá körlum að selja sig.
2009
n 24 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi, 21 frá konum að
selja sig, 11 frá körlum að selja sig.
2010
n 13 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi, 83 frá konum
að selja sig og 8 frá körlum að
selja sig.
2011
n 7 auglýsingar frá karlmönnum
að kaupa vændi, 40 auglýsingar
frá konum að selja sig, 1 frá karli
að selja sig.
Á hvaða aldri voru
konur að selja sig?
< 20 ára 9
20–24 ára 61
25–29 ára 34
30–34 ára 41
35–39 ára 7
50–54 ára 2
n Flestar sögðust vera 29, 30 og 31 árs.
Eins voru margar 21, 22 og 23.
Á hvaða aldri voru
karlar að selja sig?
< 20 ára 2
20–24 ára 9
25–29 ára 8
30–34 ára 8
35–39 ára 8
40–45 ára 0
45–50 ára 1
n Flestir sögðust vera 31 árs. Eins voru
margir 20 ára.
Á hvaða aldri voru
karlar að kaupa vændi?
< 20 ára 2
20–24 ára 11
25–29 ára 12
30–34 ára 21
35–39 ára 13
40–44 ára 7
45–49 ára 5
50–54 ára 5
55–59 ára 1
n Flestir sögðust voru 32 og 33 ára.
Vændi á einkamal.is
BJ: Tott.
Anal: Endaþarmsmök.
Sænskt: Nudd með höndum á
kynfærum.
Franskt, enskfranskt, parísar-
franskt, súperfranskt: Munn-
mök og sáðlát í munn.
Spænskt: Fróun milli brjósta.
Grískt: Samfarir í endaþarm.
Svartur koss, rimming: Sleikt í
kringum endaþarm.
Fistfucking: Fingur, hendi eða
handleggur upp í einkastaði.
Toiletsex: Þvag og/eða hægðir í
tengslum við kynlíf.
Hvað þýða
auglýsingarnar?
SV
IÐ
SE
T
T
M
Y
N
D
E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
„Einkamál ber
ábyrgð með
því að loka al-
gjörlega augunum
fyrir því sem er að
gerast þar inni. Við
sjáum að þar eru
auglýsingar frá karl-
mönnum, sem hafa
verið þar í tvö til þrjú
ár, sem óska eftir því
að kaupa vændi.
Karen Linda Eiríksdóttir
ráðgjafi á Stígamótum