Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Mánudagur 3. október 2011
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili
árveknisverkefnis Krabbameinsfélagsins.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl
næst flegar flú
pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Ökum
undir
bleikum
merkjum
enn á n‡
í október og
nóvember
Vinstrigrænir í borgarstjórn leggja
til að stofnaður verði starfshópur
sem hafi það hlutverk að smíða
reglur um hvernig bregðast skuli
við aðstæðum þegar kallað verð-
ur eftir atkvæðagreiðslu um af-
mörkuð viðfangsefni borgarstjórn-
ar. Sóley Tómasdóttir, fulltrúi VG í
borgarráði Reykjavíkur, fór fram á
þetta á fundi borgarráðs á fimmtu-
daginn. Sóley lét bóka á fundin-
um: „Nýsamþykkt lög um íbúa-
kosningar og íbúafundi eru mikið
framfaraskref fyrir lýðræði í sveit-
arfélögum, þar sem kveðið er á
um að íbúar geti kallað eftir at-
kvæðagreiðslum og íbúafundum.
Þar er þó ekki kveðið á um hvort
atkvæðagreiðslur skuli vera ráð-
gefandi eða bindandi og sveitar-
stjórnir geta ákveðið hvort undir-
skriftir frá fimmtungi eða þriðjungi
íbúa nægi til að knýja slíkt fram.
Þar sem lýðræðið virkar best með
skýrum og fyrirfram ákveðnum
reglum, samþykkir borgarráð að
stofnaður verði starfshópur sem
hafi það hlutverk að smíða regl-
ur um hvernig bregðast skuli við,
verði kallað eftir atkvæðagreiðslu
um afmörkuð viðfangsefni borgar-
stjórnar. Þar verði skilgreint hlut-
fall íbúa sem nægir til að kalla
fram atkvæðagreiðslur og hvaða
þýðingu þær hafa. Hópurinn skil-
greini einnig ramma og fyrirkomu-
lag íbúafunda og hvernig niður-
stöður þeirra verði nýttar.“
Tillaga Sóleyjar er í takt við hug-
myndir Ögmundar Jónassonar
sem vildi láta ganga lengra í fram-
kvæmd íbúakosninga en Alþingi
samþykkti.
valgeir@dv.is
Sóley Tómasdóttir vill að borgin smíði reglur um atkvæðagreiðslur:
Skýrari reglur um íbúakosningar
Sóley Tómasdóttir „Þar verði skilgreint
hlutfall íbúa sem nægir til að kalla fram
atkvæðagreiðslur og hvaða þýðingu þær
hafa,“ segir í bókun Sóleyjar.
Ábending um kynferðislega misnotkun:
Engin nauðgun
átt sér stað
Margrét Frímannsdóttir, fangelsis-
stýra á Litla-Hrauni, segir frétta-
flutning af nauðgun á Litla-Hrauni
ekki eiga við rök að styðjast. „Það
hefur aldrei verið lögð fram kæra um
nauðgun. Það var hins leitað til lög-
reglu vegna ábendinga um kynferð-
islega misnotkun sem að reyndist
síðan þannig að það hefur aldrei
verið neitt staðfest í þeim efnum.“
Margrét segir það vera skyldu for-
stöðumanna fangelsisins að bregð-
ast strax við slíkum ábendingum og
það sé gert með því að tilkynna þær
til lögreglu sem rannsakar málið
og grípa til viðeigandi ráðstafana.
Slíkar ráðstafanir geti verið að flytja
fanga á milli deilda, milli húsa eða
inn á öryggisgang. Jafnvel geti reynst
nauðsynlegt að flytja fanga á milli
fangelsa. Hún nefnir einnig að fang-
ar hafi góðan aðgang að fagfólki sem
hefur unnið með föngum ef slík mál
hafi komið upp. „Ég tel að starfsfólk
innan fangelsiskerfisins sé að taka
mjög vel á svona málum. Bæði sál-
fræðingar fangelsismálastofnunar-
innar, sem eru sérmenntaðir á þessu
sviði, sem og hinn almenni starfs-
maður. En vel að merkja, það hefur
ekkert komið út úr rannsókn lög-
reglunnar sem bendir til þess að sú
ábending sem kom á sínum tíma
eigi við rök að styðjast.“
Árni Hrafn Ásbjörnsson, for-
maður Afstöðu, félags fanga á Litla-
Hrauni, segir fanga ekki óttast um
öryggi sitt innan fangelsismúranna
og að aðstandendur fanga þurfi ekki
að óttast um öryggi ástvina sinna
sem þar dvelja. Í yfirlýsingu sem
Afstaða sendi frá sér í kjölfar fjöl-
miðlaumfjöllunar stendur að félagið
vilji vekja sérstaka athygli á því að að
hinar meintu ásakanir, sem voru til
umfjöllunar í fréttatíma Sjónvarps-
ins á fimmtudaginn, heyra til al-
gjörrar undantekningar, ef ekki eins-
dæmi. Þar segir enn fremur að stjórn
Afstöðu harmi að forstjóri fangelsis-
málastofnunar skuli nota sér tilefni
þetta og vettvang til að kalla eftir
nýju fangelsi. „Að öðru leyti þykir
stjórn Afstöðu ekki við hæfi að tjá sig
um meint brot einstaklinga innan
fangelsa, einkum og sér í lagi þegar
þau eru á rannsóknarstigi.“
Maðurinn sem grunaður er um
að hafa misnotað samfanga sinn
afplánar nú fjórtán ára dóm sam-
kvæmt fréttastofu RÚV. Hann er
grunaður um að hafa byrlað sam-
fanga sínum lyf og komið fram vilja
sínum. Maðurinn var fluttur í fang-
elsið á Akureyri fimm mánuðum
eftir að grunur vaknaði en fangels-
ismálastjóri segir erfitt að færa til
fanga vegna plássleysis. Í frétt RÚV
um málið kom fram að hann hefur
tvisvar áður verið grunaður um að
hafa misnotað samfanga sína.
Reynt var að leysa úr málinu inn-
andyra á Litla-Hrauni,
en það gekk ekki og
var maðurinn því
fluttur í fangelsið
á Akureyri. Það
fangelsi er þó ekki
ætlað föngum í
langtímaafplánun.
hanna@dv.is