Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Blaðsíða 12
12 | Erlent 3. október 2011 Mánudagur
„Pútín er vinsælli en ég“
n Dmitry Medvedev lætur af embætti vegna vinsælda Vladimirs Pútín
D
mitry Medvedev, forseti
Rússlands, segir að ástæðan
fyrir því að hann ætli ekki að
bjóða sig aftur fram til forseta
sé sú að Vladimir Pútín er vinsælli
en hann. Pútín, sem gegndi emb-
ætti forseta Rússlands árin 2000 til
2008, mun líklega taka við embætt-
inu aftur á næsta ári þegar kosn-
ingar fara fram. Hann varð að láta
af embætti þar sem lög gerðu ekki
ráð fyrir því að forseti landsins sitji
lengur en í átta ár í senn. Nú hefur
lögunum verið breytt og getur Pút-
ín setið sem forseti til ársins 2024
verði hann kjörinn forseti eins og
flest bendir til. Medvedev mun ekki
hverfa af sjónarsviðinu þótt hann
láti af embætti forseta því forsætis-
ráðherrastóllinn bíður hans.
„Pútín forsætisráðherra er án
nokkurs vafa valdamesti og vin-
sælasti embættismaður landsins,“
sagði Medvedev fyrir helgi í fyrsta
viðtalinu eftir að tilkynnt var að
þeir myndu hafa sætaskipti. Í við-
talinu viðurkenndi hann einnig að
það hafi verið ákveðið „fyrir mörg-
um árum“ að Pútín myndi aftur
taka við forsetaembættinu en hann
hafi haldið þeim möguleika opnum
að bjóða sig aftur fram sem forseta
ef hann yrði farsæll. Stjórnarand-
stæðingar í Rússlandi hafa gagnrýnt
þessa tilhögun harðlega og segja
að spillingin í rússnesku stjórnkerfi
sé yfirþyrmandi. Medvedev svar-
ar þeim ásökunum þannig að það
sé undir rússnesku þjóðinni komið
hver stjórnar landinu. „Fólkið tekur
ákvarðanirnar. Það eru ekki innan-
tóm orð að halda því fram.“
Annar pappír, sama innihald Götusali sýnir ljósmyndara táknræna Matryoshku-dúkku
í Pétursborg. MynD ReuteRs
Ótrúlegur
samhugur
Ung bandarísk stúlka, Rachel Beck-
with, stofnaði söfnunarreikning
ásamt móður sinni skömmu fyrir
níu ára afmælisdaginn sinn fyrr á
árinu. Tilgangurinn með reikningn-
um var að safna 300 dölum, rúmum
30 þúsund krónum, til að veita fleiri
Afríkubúum aðgang að hreinu vatni.
Sá hörmulegi atburður átti sér stað í
sumar að Beckwith lést í hræðilegu
umferðarslysi. Fjölskylda hennar
ákvað að halda reikningnum opnum
og nú, rúmum tveimur mánuðum
síðar, hafa 1,3 milljónir dala safnast.
Það jafngildir um 150 milljónum
króna.
Borðaði lauf-
blöð og lifði af
Eldri borgari frá Kaliforníu þykir
heppinn að vera á lífi en bifreið hans
steyptist niður gljúfur á dögunum
eftir að hafa lent í árekstri við aðra
bifreið. Maðurinn, sem heitir David
Lavau og er 67 ára, slapp við alvarleg
meiðsl en var þó of máttfarinn til að
geta geta gengið upp á veginn aftur.
„Við leituðum alls staðar, hrópuðum
og kölluðum og loks heyrðum við
neyðarópin í honum,“ segir dóttir
Davids í samtali við AP-fréttastof-
una, en hann hafðist við í gljúfrinu
í sex daga. Lavau borðaði meðal
annars laufblöð og drakk rigningar-
vatn til að halda lífi. Lavau var fluttur
á sjúkrahús með þyrlu og er hann á
góðum batavegi. Á botni gljúfursins
fannst önnur bifreið og er talið að
það sé bifreiðin sem lenti í árekstri
við bifreið Davids. Ökumaður henn-
ar var látinn þegar að var komið.
T
rump Taj Mahal-spilavítið
í Atlantic City áformar að
gefa 25.000 dollara, tæplega
þriggja milljóna króna, inn-
eign fyrir lýtaaðgerðir í sig-
urlaun á spilamóti. Sigurvegarinn
„heppni“ getur notað inneignina í
alls konar aðgerðir, svo sem fitusog
á maga, andlitslyftingu, brjóstaað-
gerð og fleira. „Við vildum breyta
ímynd týpískra spilavítamóta og það
erum við sannarlega að gera,“ seg-
ir Kath leen McSweeny, aðtoðarfor-
stjóri Trump Entertainment Resorts,
við AP-fréttastofuna. Eins og nafn-
ið gefur til kynna er spilavítið í eigu
glaumgosans og milljarðamærings-
ins Donalds Trump.
Mjög umdeilt
„Margir vilja breyta einhverju í út-
liti sínu, fá sér strekkingu hér og
upplyftingu þar, en þessar aðgerðir
geta verið býsna kostnaðarsamar,“
segir McSweeny. „Sigurvegarinn
mun eiga möguleika á því að láta
breyta sér að vild, fyrir að hámarki
25.000 dollara.“
Þetta útspil spilavítisins er langt
í frá að vera óumdeilt, eins og við
mátti búast. Gagnrýnt hefur ver-
ið að með þessu sé spilavítið að
blanda saman tveimur hættulegum
tegundum þráhyggju – útlitsdýrkun
og spilafíkn.
Eda Gorbis, prófessor í geð-
lækningum við UCLA-háskólann,
bendir á að hún hafi horft upp á
fólk sem glímir við bæði fíkn í lýta-
aðgerðir og fjárhættuspil. Hún hef-
ur áhyggjur af því að þetta tvennt
tengist. „Það er öruggt að þetta get-
ur ýtt undir hvort annað. Þetta eru
hvort tveggja fíknir og þetta eru
hættulegar fíknir.“
Virtur sálfræðingur, Vivian
Diller sem hefur skrifað bækur um
útlitsdýrkun, segir að spilavítið sé
að setja „hættulegt fordæmi“ með
þessari umdeildu keppni.
„Þetta á sérstaklega við um kon-
ur. Bæði konur og karlar geta verið
mjög áhrifagjörn og látið auðveld-
lega undan þrýstingi um að taka
þátt í svona hlutum sem eru ekki
úthugsaðir. Lýtaaðgerðir eru flókið
ferli og með því að bjóða þær í verð-
laun er vera að gera þetta ferli of
einfalt.“
Hægt að fara í margar aðgerðir
Samkvæmt heimasíðunni infoplas-
ticsurgery.com, sem spilavítið vísar
til í kynningarherferð fyrir spilamót-
ið, kemur fram að aðgerð til að fjar-
lægja fitu af upphandleggjum geti
kostað um 600 þúsund krónur. Bó-
tox-meðferð getur kostað á bilinu 25
til 50 þúsund krónur á hverjum lík-
amshluta. Brjóstaaðgerðir geta kost-
að tæpa milljón, fitusog getur kost-
að frá 240 þúsundum og upp í 1.200
þúsund krónur. Þá kostar andlitslyft-
ing um milljón, nefaðgerð um 600
þúsund og svo mætti lengi telja. Sig-
urvegarinn mun því geta látið fram-
kvæma nokkrar lýtaaðgerðir á sér.
McSweeny hjá Trump-spilavít-
inu er hins vegar á allt öðru máli en
gagnrýnendur mótsins. „Fólk vill oft
fara í svona aðgerðir en það er tví-
stígandi þar sem þær eru of kostn-
aðarsamar. Þetta er tækifærið til að
fara í aðgerð. Margir kjósa frekar að
eyða peningum í að borga fyrir skóla-
göngu barna sinna eða leggja fyrir til
að eiga á efri árum.“
Kjósi sigurvegarinn hins vegar
að fara ekki í lýtaaðgerðirnar getur
hann fengið sömu upphæð greidda
út í reiðufé.
Valgeir Örn Ragnarsson
valgeir@dv.is
Bandaríkin „Fólk vill oft fara
í svona aðgerðir
en það er tvístígandi þar
sem þær eru of kostnað-
arsamar. Þetta er tæki-
færið til að fara í aðgerð.
n Mjög umdeilt mót í spilavíti Donalds trump n sigurvegarinn getur
farið í fleiri en eina lýtaaðgerð n Geðlæknir varar við þessari hugmynd
Lýtaaðgerðir í
fyrstu verðlaun
Donald trump Spilavítið hans stendur
fyrir mjög umdeildu móti sem getur sett
hættulegt fordæmi að mati sálfræðings.
Vill herja á dóp-
ista í Mexíkó
„Ég tel að við þurfum að notast við
allar mögulegar lögreglusveitir, þar á
meðal herinn,“ sagði Rick Perry, rík-
isstjóri í Texas, í samtali við MSNBC
fyrir helgi. Perry sem sækist eftir út-
nefningu Repúblikanaflokksins til
embættis forseta Bandaríkjanna,
segir að hann muni íhuga að senda
hermenn til Mexíkó til að berjast
við fíkniefnaglæpamenn verði hann
kjörinn forseti.
Perry sagði þetta á kosningafundi
í New Hampshire. Sagðist hann vilja
kalla herinn til aðgerða til þess að
útrýma „þessum fíkniefnahringj-
um og halda þeim frá landamærum
okkar.“ Bandaríkin hafa verið í sam-
starfi við stjórnvöld í Mexíkó þegar
kemur að stríðinu gegn fíkniefnum
en hugmyndir um hernaðaraðgerðir
líkar þeim sem Perry íhugar eru al-
gjörlega nýjar af nálinni.
Ummæli Perrys eru ekki talin
vekja miklar vinsældir hjá stjórn-
völdum í Mexíkó sem sæta þegar
mikilli gagnrýni fyrir stríðið gegn
fíkniefnum sem hefur litlu skilað
þrátt fyrir áratugalanga baráttu.