Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Page 14
Borgaði ekkert
n Lofið að þessu sinni fær Bílaspítal-
inn í Hafnarfirði en viðskiptavinur
spítalans vildi koma á framfæri hve
ánægður hann var með þjónustuna
þar. „Ég vil benda á að ég fékk frábæra
þjónustu hjá Bílaspítalanum en þang-
að fór ég með bílinn í bilanagrein-
ingu. Þeir gátu því miður ekki
fundið hvað var að bílnum en
bentu mér kurteislega á hvert
ég gæti snúið mér. Þrátt fyrir
að hafa eytt tíma í að
skoða bílinn rukkuðu
þeir ekkert fyrir því það
fannst ekkert að bíln-
um.“
Klikka alltaf á
pöntuninni
n Lastið fær Stöðin við Miklubraut
en viðskiptavinur er ósáttur við þjón-
ustuna. „Ég hef farið þangað 6 eða 7
sinnum og hef aldrei fengið það sem
ég pantaði. Síðast fór ég með vinum
mínum og við pöntuðum 4 mis-
munandi hamborgara og meðlæti.
Við ætluðum að borða á staðnum en
fengum þá innpakkaða
til að taka með og þeir
voru ekki merktir. Þegar
við spurðum, tók af-
greiðslumaðurinn af
sér hanskana og þreif-
aði á þeim til að gá hver
var hvað. Ekki góð þjónusta
þar.“
14 | Neytendur 3. október 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 232,6 kr. 232,6 kr.
Algengt verð 232,4 kr. 232,4 kr.
Höfuðborgarsv. 232,3 kr. 232,3 kr.
Algengt verð 232,6 kr. 232,6 kr.
Algengt verð 235,0 kr. 233,2 kr.
Melabraut 232,4 kr. 232,4 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Púðursykur
innkallaður
Kötlu púðursykur hefur verið inn-
kallaður úr búðum vegna fram-
leiðslugalla. Þessi ákvörðun var
tekin í samráði við matvælaeftirlit
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Þetta
kemur fram á heimasíðu Matvæla-
stofnunar en þar segir að möguleiki
sé á að varan gerjist við geymslu og
lyktarmyndun verði samfara henni.
Innköllunin nær til vörunnar sem
er merkt „best fyrir dagsetningu“
11. 20.12 og áætluð dreifing hennar
er matvöruverslanir um land allt.
Framleiðandi vörunnar er Eðal ehf.
Þeir neytendur sem eiga Kötlu púð-
ursykur sem er merkt með þessari
dagsetningu eða fyrr eru beðnir um
að skila honum til framleiðanda.
Tími haustverka runninn upp
n Frágangur á garði og gróðursetning lauka
H
austið er gengið í garð og kom-
inn tími til að huga að haust-
verkum í garðinum. Það er ým-
islegt sem þarf að hafa í huga
þegar gengið er frá garðinum fyrir vet-
urinn. Á blomaval.is segir að haust-
verkin felist aðallega í því að ganga
frá hlutum sem hafa verið í notkun
yfir sumarið. Gott sé að setja verk-
færi í þurra geymslu og að ganga frá
garðhúsgögnum á þann hátt að þau
fjúki ekki. Eins þurfi að tæma blóma-
ker sem þola ekki frost og setja þau
á hvolf þar sem lítið mæðir á þeim.
Laufin á grasflötinni eigi að raka sam-
an og grafa þau í holur í beðunum eða
blanda þeim í moltubinginn. Ekki sé
ráðlagt að láta þau liggja á grasflöt-
inni því grasið gæti kafnað og dáið þar
sem mikið lauf liggur. Ekki þurfi þó að
fjarlægja visna stöngla og blöð af fjöl-
ærum plöntum fyrr en á vorin því það
skýlir plöntum yfir veturinn.
Hafi fólk hugsað sér að setja nið-
ur haustlauka þá er rétti tíminn núna
áður en fer að frysta. Á síðunni segir að
gaman sé að setja niður lauka af ýmsu
tegundum svo þeir spretti upp með lit-
ríku blómskrúði næsta vor. Krókusa,
stjörnuliljur og snæliljur má setja í litl-
ar þyrpingar í beð eða jafnvel í jaðrana
á grasflötinni.
Stærri lauka eins og túlípana og
páskaliljur fari best að setja saman í
myndarlega hópa með 10 til 50 lauk-
um og hafa á áberandi stöðum þar
sem þeirra verður best notið.
Þumalfingursregla með gróður-
setningardýpt og millibil sé að setja
laukana 3 sinnum hæð sína djúpt í
moldina og að hafa millibilið 2 sinnum
hæðina á lauknum. gunnhildur@dv.is Haustlaufin Eitt af haustverkunum er að raka saman laufum og koma þeim í beðin.
K
önnunin sýnir að þetta er
eitthvað sem við þurfum að
gefa meiri gaum og gefur
okkur tilefni til að ætla að
efla þurfi eftirlitið og hafa
það markvissara,“ segir Tryggvi Ax-
elsson, forstjóri Neytendastofu, um
könnun sem stofnunin framkvæmdi
á forpökkuðum matvælum en sífellt
meira er um slíkar vörur á markaði,
vörur sem eru ekki vigtaðar í viðurvist
neytenda.
Könnun, sem náði yfir vörur frá sjö
framleiðendum, leiddi í ljós að fjögur
fyrirtæki nota ekki svokallað e-merki.
Um 50 prósent af vörum þeirra reynd-
ust léttari en stóð á pakkningunum.
Mest undirvigt mældist hjá Norð-
lenska matborðinu en einnig mæld-
ust frávik hjá Sláturfélagi Suðurlands
og Kjarnafæði. Athygli vekur að und-
irvigtin mældist oftast í pulsum.
Má ekki hlunnfara neytendur
Í könnuninni kom einnig fram að
sumar vörur mældust í yfirvigt og í
einu tilfelli reyndust allir pakkar sem
vigtaðir voru vera með um 40 prósent
meira magni af áleggi en uppgefið var
á umbúðunum. Í frétt Neytendastofu
segir að samkvæmt reglum um þyngd
á forpökkuðum vörum megi pökkun-
araðilar hafa innihald þyngra en upp-
gefið er þannig að neytendur njóti
góðs af en þeir megi ekki hlunnfara
neytendur.
Geta beitt viðurlögum
Tryggvi segir að könnunin sé sú
fyrsta sem Neytendastofa framkvæm-
ir á forpökkuðum vörum en mark-
miðið sé að hafa eftirlit með þessum
markaði og gera úrtakspróf eins og
gert sé ráð fyrir. Eins hafi stofnunin
heimildir til að beita viðurlögum við
slíkum brotum. „Við sendum öllum
aðilum niðurstöðurnar úr þessari
könnun eins og vanalega er gert. Við
byrjum þar og munum að sjálfsögðu
beita viðurlögum ef þess þarf. Þetta er
svipað og með verðmerkingaeftirlit-
ið, við getum ekki sektað á staðnum,“
segir Tryggvi.
Fyrirtæki noti löggilta vog
Aðspurður hvort fyrirtækin séu
þar með markvisst að svindla á
neytendum segist Tryggvi ekki geta
tekið undir þá fullyrðingu. „Það þarf
að beina kastljósinu okkar að fram-
leiðsluferlinu en fyrirtækin eða pökk-
unaraðila verða að nota löggilta vog.
Það er búið að færa vigtunarstaði
þangað sem við sjáum það ekki, hvort
sem pökkunin fer fram í öðru her-
bergi eða í öðrum landshluta. Vogin
sem notuð er þarf því að vera löggilt
og mæla rétt,“ segir hann. Það verði
því að vera tryggt að framleiðsluferli
hjá viðkomandi fyrirtæki sé á þann
hátt að alltaf sé rétt mælt. Það sé á
ábyrgð framleiðandans, hann lofi
ákveðnu magni á umbúðum og hann
verði að standa við það því öll verð-
lagning sé reiknuð út frá þeim upp-
lýsingum.
Eftirlit fyrir neytendur
Tryggvi segir að starfsmenn
Gunnhildur Steinarsdóttir
gunnhildur@dv.is
Matvæli
Svindlað á pylSum
n Neytendastofa kannaði vigt á forpökkuðum matvælum n 3 af 7 framleiðendum með e-merkingar
n Undirvigt mældist í allt að 50 prósentum tilvika n Neytendur eru hvattir til að líta eftir e-merkinu
n Á töflunni má sjá að mesta undirvigtin mældist á vörum sem pakkað er hjá Norð-
lenska matborðinu ehf. bæði í Goða- og Krónupulsum og í brauðskinku. Einnig komu upp
frávik hjá Sláturfélagi Suðurlands í 10 stk. pylsum og í pylsum frá Kjarnafæði. Fimm af
vörutegundum sem voru kannaðar voru e-merktar hjá þremur aðilum og reyndist þyngd
þeirra miðað við uppgefna þyngd á umbúðunum vera innan skekkjumarka. Það voru því
fjórir framleiðendur sem merkja ekki vörur sínar með e-merkinu og af 12 vörutegundum
frá þessum aðilum sem vigtaðar voru reyndist helmingur þeirra í undirvigt.
Krónan pylsur 10 stk. Norðlenska matborðið ehf 20 18 Nei
Goða pylsur 5 stk. Norðlenska matborðið ehf 19 14 Nei
Vínarpylsur 10 stk. Sláturfélag Suðurlands 20 4 Nei
Brauðskinka Norðlenska matborðið ehf 20 3 Nei
Heimilispylsa Kjarnafæði 17 2 Nei
Hunangsskinka Sláturfélag Suðurlands 20 0 Nei
Beikonskinka Sláturfélag Suðurlands 20 0 Nei
Brauðskinka Sláturfélag Suðurlands 20 0 Nei
Vínarpylsur 5 stk Sláturfélag Suðurlands 37 0 Nei
Bónus reykt brauðskinka Síld og fiskur ehf 20 0 Já
Gæðagrís Brauðskinka Síld og fiskur ehf 20 0 Já
Skinka Síld og fiskur ehf 20 0 Já
Brauðskinka – tilboð Ferskar kjötvörur ehf 20 0 Nei
Kjúklinga grillpylsur Reykjagarður hf 20 0 Já
Ölpylsa Wolf í Þýskalandi 20 0 Já
Skinka Kjarnafæði 19 0 Nei
Vörutegund Fyrirtæki
Fjöldi
sýna
Fjöldi undir
leyfilegu fráviki E-merkt
Helmingur mældist í undirvigt
Áhrif skekkju upp á 1 gramm neytendum í
óhag í krónum og tölum.
Dæmi 1
Vara kostar 3.200 kr./kg.* í staðlaðri
500 gr. pakkningu. Ef miðað er við 800
pakka á dag með 1 gr. skekkju gerir það
650.000 krónur á ári.
*Algengt verð á áleggi
Dæmi 2
Vara kostar 800 kr./kg. í staðlaðri
500 gr. pakkningu. Ef miðað er við 800
pakka á dag með 1 gr. skekkju gerir það
165.000 krónur á ári.
Við borgum of mikið
Forstjóri Neytendastofu Tryggvi Axelsson segir e-merkið ákveðna tryggingu fyrir
neytendur.